Morgunblaðið - 06.04.2008, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 06.04.2008, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 43 Birgir Gunnarsson hóf störf hjá Blikksmiðju Reykjavíkur 1953 og starfaði þar nánast óslitið fram á síð- asta dag eða í um 50 ár. Samstarfs- félagar þennan tíma hafa verið margir og samstarfstími mislangur en sammerkt má segja með öllum að það var ekki erfitt að láta sér þykja vænt um Bigga. Hann var alltaf boð- inn og búinn að aðstoða alla og hjálpa til og lagði oft mikið á sig til þess að gera öðrum greiða. Það var öllum ljúft að vinna með Bigga. Í raun var einstakt hversu auðvelt og áreynslulaust allt samstarf hans var Birgir Gunnarsson ✝ Birgir var fædd-ur 8. mars 1936 í Reykjavík. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítalans 2. mars 2008. For- eldrar hans voru Gunnar Ólafsson fæddur í Stykk- ishólmi og Sigríður Sigursteinsdóttir fædd í Vest- mannaeyjum. Kona Birgis var Margrét Kristín Guðmunds- dóttir, hún lést 23.12. 1988. Þau eignuðust einn son, Guðbjörn Helga. Útför Birgis fór fram 12. mars sl. í kyrrþey að ósk hins látna. við aðra. Biggi fór aldrei í manngreining- arálit og kom alltaf eins fram við alla. Á þessum tíma hef- ur Biggi tekist á við ýmis áföll sem reynst hafa erfið. Einnig hafa orðið miklar sam- félagslegar breyting- ar, bæði uppsveiflur og niðursveiflur, óró- leiki og stöðugleiki. Alltaf einkenndist af- staða Bigga af ein- stöku rólyndi og æðru- leysi. En kannski fengum við aldrei að vita söguna alla. Það er ekki annað hægt en að segja að þú hafir kvatt skyndilega, kæri Biggi. Þegar við hittumst síð- astliðinn fimmtudag og við spurðum um hagi þína svaraðir þú: „Þetta er allt á uppleið“. Að þú skyldir vera al- farinn þremur dögum síðar var virki- lega óraunverulegt. Oft þegar rætt var um lífið og til- veruna áttir þú það til að skjóta því inn í að „Lífið væri eins og ljósapera. Á meðan hún lýsti væri maður lifandi og síðan væri bara slökkt“. Enginn vissi hvenær, hvar eða hve langur líf- tími perunnar væri. Mikið rétt og mikið satt. Frá fyrstu kynnum hefur hljómað draumurinn um að vera sjálfs sín herra og þá sem bóndi. Víst er að Biggi hefði orðið góður búmaður og átt vel heima í sveit. Biggi var mjög handlaginn, góður smiður, mikill grúskari og uppfinn- ingasamur. Oft á tíðum lagði hann á sig mikla vinnu við að gera við tæki og tól sem muna máttu sinn fífil feg- urri, sem og að bæta eða auðvelda ýmis vinnuferli á vinnustað sem oft komu sér vel og margt af því á eftir að nýtast áfram. Einnig var hann mikill áhugamað- ur um verkfæri. Fáir sem við höfum hitt hafa haft jafn mikla þörf fyrir að eiga nánast öll handverkfæri sem nöfnum tjáir að nefna. Stöðugt bætt- ist í safnið og alltaf var hægt að finna not fyrir hvert og eitt. Má eiginlega segja að það hafi verið hluti af þess- um draumi um að búa í sveit, vera ekki uppá aðra kominn og geta bjargað sér við hverjar þær aðstæð- ur sem uppá kæmu. Auðvelt er að sjá fyrir sér græn engi, sól og Bigga á stuttbuxum við heyskap. Einhvern veginn, þrátt fyr- ir kenninguna um ljósaperuna, þá trúum við að þetta sé staðurinn sem Biggi er á, hinum eilífu grænu engj- um alheimsins þar sem sumarið tek- ur aldrei enda. Að lokum sendum við Guðbirni, einkasyni Birgis, systkinum hans og öðrum ástvinum hans innilegar sam- úðarkveðjur. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum góðan vinnufélaga og vin. Samstarfsmenn í Blikksmiðju Reykjavíkur.                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARTA SVEINSDÓTTIR, lést fimmtudaginn 3. apríl að hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Ævar Guðmundsson, Sigrún Fríða Óladóttir, Sveinn Guðmundsson, Sigurveig Sigmundsdóttir, Jörundur Guðmundsson, Marta Rut, Dagný María og Guðmundur Sigurðarbörn, barnabörn og barnabarnabörn. Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Elsku Óli minn, vá, þetta er svo sárt og erfitt. Mig langar að segja nokkur orð til þín kæri vinur. Það fyrsta sem kom upp í huga þegar mér var hugsað til þín var að kíkja í myndaalbúmið mitt, og þar er mynd af þér skælbrosandi og við myndina stendur orð sem lýs- ir þér svo vel: „Bjargvættur“ og það ertu svo sannarlega. Alltaf þegar ég lenti í vandræðum þá gat ég hringt í þig og ég gat treyst því að þú yrðir mættur undir eins. Við áttum svo margar góðar stundir í litla hvíta bílnum þínum, honum Kittýkittý- bangbang, alveg ótrúlegt hvað við nenntum að hanga í þessum bíl og spjalla og hlusta á tónlist, þó að við hefðum alls ekki sama tónlistar- smekk. Það var líka bara einn disk- ur sem við gátum hlustað á saman og á þeim disk er lagið okkar, lagið sem ég setti endalaust á og söng há- stöfum með. Sumir af þessum bíl- túrum enduðu þó bara á því að ég steinsofnaði en það var allt í lagi, þér var alveg sama, þú vaktir mig bara þegar þú varst tilbúinn að fara heim og svo endurtókum við þetta allt daginn eftir. Þú gerðir alltaf allt fyrir mig. Þegar Kári fæddist þá heimtaðir þú að við færum í bíltúr til Keflavíkur til að kíkja á snáðann. Þú varst svo stoltur að vera orðinn pabbi. Þú passaðir líka alltaf að við myndum ekki missa sambandið, þó að það hafi minnkað í gegnum árin þá hvarf það aldrei. Það er ekki langt síðan þú lést mig vita að það væri nú kominn tími á að ég kíkti í heimsókn og þá helst á pabbahelgi. Ég hef alltaf og mun alltaf líta á þig sem einn af mínum kærustu vinum og ég á eftir að sakna þín svo sárt. Elsku Kári, Guðný, Aðalsteinn, Tryggvi, Pétur og Heiða, megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Þín vinkona, Fríða. Óli Símon var fyrsti vinur Jó- hanns sonar okkar og vinátta þeirra var ávallt traust. Við vorum ná- Ólafur Símon Aðalsteinsson ✝ Ólafur SímonAðalsteinsson fæddist í Reykjavík 17. ágúst 1984. Hann lést af slysför- um 21. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Bessastaðakirkju 28. mars. grannar í Norðurmýr- inni og kynntust þeir á leikskólanum Nóa- borg en þar voru þeir kóngar í ríki sínu. Brátt fengu þeir að hittast heima við eftir að leikskóla lauk á daginn. Þeir urðu góð- ir félagar og eyddu löngum tíma í að byggja og hanna hin ýmsu tæki og tól úr legokubbum. Óli hafði strax mikið verkvit og var handlaginn. Eitt sinn var samkeppni um hvor þeirra byggði flottara tæki og þurftum við foreldrar Jóhanns að velja hvor þeirra hefði vinninginn. Það var ekki auðvelt verk, en þrýstingurinn mikill um úrslit. Óli vann og þá grétu sumir sárt. Óli var tryggðatröll frá fyrstu tíð, hann vildi hafa Jóhann fyrir sig og var oft ekkert gefið um það að aðrir strákar fengju að vera með. En einn lítill glókollur fylgdi ávallt í kjölfarið á bróður sínum en það var Tryggvi, tveimur árum yngri og lét ekkert aftra sér. Þeir bræður voru miklir tækjamenn frá fyrstu tíð og voru byrjaðir að prjóna á hjólunum sín- um og hjóla fram af stökkpöllum þegar aðrir voru ekki búnir að sleppa hjálpardekkjunum. Þeir félagar tóku sér margt fyrir hendur og var Norðurmýrin þeirra leikvöllur og saman kynntust þeir mörgum kynlegum kvistum í hverf- inu. Þeir bjuggu sér til leikvang og þrautir í nýbyggingum við Rauð- arárstíginn, klifruðu upp á bílskúra og duttu niður af þeim. En þeir fóru oft lengra að heiman en þeir máttu. Það fréttist af þeim niður í Kola- porti í skoðunarferð um sölubásana. Þeir höfðu verið að spjalla, rölt af stað og heillaðir af umhverfinu voru þeir allt í einu komnir í Kolaportið. Eitt sinn í sínum mörgu ferðum höfðu þeir farið inn að Laugardals- höll en þar var sýning í gangi og mikið um dýrðir og þar sáu þeir þyrluflug og voru stórhrifnir. Ferðalagið átti að vera leyndarmál enda komnir langt út fyrir leyfileg mörk. En um kvöldið missti Óli Sím- on út úr sér, yfir sjónvarpsfrétt- unum þar sem fjallað var um þyrl- una, að hann hefði nú verið á staðnum ásamt góðum vini og þeir hefðu nú séð þetta allt saman. Þá voru þeir bara 7 ára. Jólin nálguðust og jóladagatalið var fastur liður, einn moli á dag meðan talið var niður til jólanna. Daginn fyrir fyrsta opnunardag dagatalsins fann ég þá félaga undir rúminu hans Jóhanns niðursokkna við að ná súkkulaðibitunum úr daga- talinu. Þeir voru nú svolítið skömm- ustulegir þegar við náðum þeim undan rúminu og vildi hvorugur þeirra viðurkenna að eiga hugmynd- ina að uppátækinu. Jóhann og Óli Símon voru saman í Ísaksskóla fyrstu skólaárin sín en fluttu síðan hvor í sína áttina. For- eldrarnir fóru að byggja hús fullir bjartsýni. Jóhann flutti í Grafarvog- inn og Óli út á Álftanes. Þó langt væri á milli voru vináttuböndin sterk og þeir bara keyrðir á milli staða. Síðar keyrðu þeir sjálfir á milli. Það var svo rígmontinn og stoltur pabbi sem kom í heimsókn og sýndi okkur myndir af Kára litla. Um leið og sá litli tók að braggast kom Óli með hann í heimsókn til okkar. Það leyndi sér ekki hver átti þennan litla orkubolta. Kæra fjölskylda, við vonum að í þessari miklu sorg og söknuði getið þið þó notið þess að líta til baka til allra gleðistundanna og við vitum að þið munuð sjá stjörnu Óla skína í gegnum litla drenginn hans. Hugur okkar er hjá ykkur. Sigurlaug, Guðmundur og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför föður míns og bróður okkar, STEINDÓRS ZÓPHÓNÍASSONAR fyrrum bónda, Ásbrekku í Gnúpverjahreppi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunar - og dvalarheimilinu Kumbaravogi fyrir góða umönnun. Ingveldur Sigrún Steindórsdóttir og systkini hins látna. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR, áður til heimilis á Fornhaga 15, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða. Gísli Þorsteinsson, Hjördís Henrysdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Þóra Halldórsdóttir, Ágústa Áróra Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.