Morgunblaðið - 06.04.2008, Síða 45

Morgunblaðið - 06.04.2008, Síða 45
heppinn að vinna með Ólafi að bóka- útgáfu, fyrst hjá Vöku-Helgafelli og síðar Eddu miðlun og útgáfu, og var sú reynsla ómetanleg. Það var ekki eingöngu lærdómsríkt að vinna með Ólafi. Honum tókst að blása áhuga og krafti í samstarfsfólk sitt og laða fram það besta í því – sem er eig- inleiki sem fáum er gefinn. Í bókaút- gáfu standa þeir útgefendur upp úr sem eru stórhuga, hafa menningar- legan metnað og þora að fara nýjar leiðir. En samtímis þurfa þeir líka að vera með báða fætur á jörðinni og geta rekið fyrirtæki sitt skynsam- lega. Ólafur var öllum þessum eig- inleikum gæddur. Sem útgefandi Halldórs Laxness tókst Ólafi að end- urvekja áhuga útgefenda víða um heim fyrir verkum nóbelsskáldsins, auk þess sem hann var óþreytandi við að fá Íslendinga til að sýna skáld- inu verðskuldaðan áhuga – bæði sem útgefandi og sem höfundur þriggja bóka um Halldór Laxness. Margir okkar fremstu höfunda í dag – jafnt höfundar skáldverka fyrir fullorðna og börn og höfundar fræðibóka af ýmsu tagi – hófu feril sinn undir verndarvæng Ólafs sem gaf út bæk- ur þeirra og kom þeim á framfæri við lesendur með nýjum og ferskum hætti. Ólafi var einnig umhugað um að koma höfundum sínum á framfæri erlendis og var einn af þeim sem ruddu brautina á því sviði. Sjálfur var Ólafur öflugur penni, en auk bók- anna um Laxness skrifaði hann stór- merka viðtalsbók við Gunnar Thor- oddsen, tók saman í samvinnu við tvo aðra höfunda mikið og merkilegt þjóðsagnasafn í fimm bindum og um þessar mundir er að koma út ljóða- bók eftir hann – svo það helsta sé nefnt. Leiðir okkar Ólafs lágu svo aftur saman í bókaútgáfu síðastliðið haust. Það var mér í senn heiður og ánægja að koma að útgáfu á bók Ólafs um Halldór Laxness, Til fundar við skáldið. Það var aðdáunarvert að finna fyrir þeim andans krafti sem bjó í Ólafi þótt hann væri langt leidd- ur af sjúkdóminum og þrotinn líkam- legum kröftum. Menn ná yfirleitt ekki þeim ár- angri og þroska sem Ólafur náði einir og sér. Hann átti einstakan stuðning í fjölskyldu sinni og lengi vel vann öll fjölskyldan á einn eða annan hátt með Ólafi í útgáfunni. Hin djúpu og sterku fjölskyldutengsl hafa án efa verið ómetanlegur styrkur og frjó uppspretta fyrir alla fjöslkylduna. Sumir menn eru þannig gerðir að þeir virðast ódauðlegir – og kannski eru þeir það á sinn hátt. Ólafur mun alltaf lifa í huga mínum brosandi sínu hlýja og heillandi brosi. Ég sendi El- ínu, Kjartani Erni, Ragnari Helga og fjölskyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur. Missir ykkar er mikill. Bjarni Þorsteinsson. Heiðursmaður! – er fyrsta orðið sem kemur upp í hugann í minning- unni um Ólaf Ragnarsson. Kynni okkar urðu því miður ekki löng, hóf- ust haustið 2004 þegar við áttum samleið í baráttumálum sumarhúsa- eigenda í Skorradal. Mér varð strax ljóst að Ólafur var enginn venjulegur maður. Hann bar höfuð og herðar yf- ir samferðamenn sína hvað varðar gjörvileika og fágaða framkomu. Hvarvetna lagði hann gott til mál- anna og setti skoðun sína fram með skýrum og meitluðum hætti svo eftir var tekið. Samskipti okkar spönnuðu marga fundi, símtöl og tölvupóst. Því miður setti hinn illvígi sjúkdómur fljótlega mark sitt á Ólaf þannig að líf hans var ekki dans á rósum síðustu misserin. Baráttuþrek hans og æðru- leysi var einstakt. Undir það síðasta tjáði hann sig með aðstoð tölvu og náði þó með undraverðum hætti að ljúka við útgáfu bókar sinnar um Laxness sem út kom fyrir síðustu jól. Það er afrek sem vart verður end- urtekið. Fyrir mig voru það sannköll- uð forréttindi að fá að kynnast Ólafi og eiga með honum samleið þótt stutt væri. Nú er hetjulegri baráttu hans við óvæginn sjúkdóm lokið og almættið hefur kallað „vænan vinnu- mann, af velli, heim að bæ um miðjan dag“. Ég sendi eiginkonu hans, börn- um og ástvinum öllum hugheilar samúðarkveðjur. Runólfur Gunnlaugsson. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 45 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegrar móður okkar tengdamóður og ömmu, AÐALHEIÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR Sléttuvegi 11 Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar. Guðrún Jóhanna Þórðardóttir Þorsteinn Víðir Þórðarson Kristín Tryggvadóttir Hlynur Smári Þórðarson Ágústa Árnadóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar systur okkar, LILJU JÓNHEIÐAR SKARPHÉÐINSDÓTTUR, áður til heimilis á Ægisgötu 12, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimilinu Hlíð fyrir frábæra umönnun. Inga Skarphéðinsdóttir, Anna V. Skarphéðinsdóttir. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRNS SIGURÐSSONAR, Árskógum 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks dagdeildar á hjúkrunarheimilinu Eir og starfsfólks Heiðarbæjar á Skógarbæ fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju. Guð blessi ykkur öll. Ársól Margrét Árnadóttir, Margrét Björnsdóttir, Brynjúlfur Erlingsson, Sigurður Björnsson, Ólafía Björnsdóttir, Sólveig Björnsdóttir, Ólafur Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Merkigili, Skagafirði, Heiðarbrún 69, Hveragerði, sem lést föstudaginn 21. mars á Sjúkrahúsi Selfoss, var jarðsungin í kyrrþey 2. apríl frá Garðakirkju. Þökkum auðsýnda samúð. Snorri Egilson, Þórunn Ragnarsdóttir, Elín Egilson, Guðmundur Torfason, Brynhildur Egilson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR. Bryndís Lúðvíksdóttir, Björn Thors, Helga Thors, Björn Ólafsson, Björn Thors, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Steinar Thors og barnabarnabörn. ✝ Þökkum af alhug fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, NÍLSÍNAR Þ. LARSEN, Garðvangi, Garði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Garðvangs og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir hlýhug og kærleiksríka umönnun. Þórdís Ólafsdóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Einar S. Guðjónsson, Egill Ólafsson, Jóna G. Bjarnadóttir, Bjarni Þór Ólafsson, Ragna Ólafs Lirot, Henry R. Lirot, Ólafur Högni Ólafsson, Gunnar Guðmundsson, Sóley Ólafsdóttir, ömmubörn, langömmubörn og fjölskyldur. ✝ Freyja Ásgeirs-dóttir fæddist á Flateyri 27. maí 1960. Hún lést á sjúkrahúsinu í Drammen í Noregi 23. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Ás- geir Sölvason skip- stjóri frá Flateyri við Önundarfjörð og Ásdís Sörladótt- ir frá Kjós í Árnes- hreppi. Systkini Freyju eru Guð- björg, f. 7.4. 1951, Hafdís, f. 16.9. 1953, Guðmundur Sölvi, f. 3.4. 1957, Berglind Bjarney, f. 14.9. 1958, Guðmundur Júní, f. 13.10. 1961 og Sig- urbjörg, f. 9.8. 1964. Freyja giftist Friðgeiri Garð- arssyni frá Hafn- arfirði 29. júlí 1979. Börn þeirra eru 1) Ásdís Fjóla f. 5.4. 1977, börn hennar og Gunnars Ragnarssonar eru Emilía og Ísabella, 2) Helga Rós f. 27.12. 1979, sam- býlismaður Pål Henrik Hagen, og 3) Guðríður Dögg f. 3.2. 1988. Freyja var jarðsungin frá kirkjunni í Mjøndalen 4. mars. Lífið er ekki alltaf eins og við vilj- um og stundum eru dagarnir sem ættu að vera bjartir mjög svartir. Þegar vorið var á næsta leiti, og allt er að lifna við þá kvaddir þú. Það er sárt að horfa á eftir systur sinni kveðja lífið allt of snemma. Mikið er ég þakklát að hafa farið til þín síð- ustu dagana þína, þá vissum við öll að hverju dró. Þú varst búin að berj- ast svo lengi og aldrei kvartaðir þú, alltaf var bara bjart framundan. Ég mun alltaf minnast þín sem glaðlyndrar systur sem aldrei skipti skapi en tók öllu lífinu sem leik. Ekki vorum við sátt hér heima þeg- ar þú fluttist til Noregs, það er nú einu sinni svo að alltaf viljum við hafa okkar nánustu sem næst okkur, eigingirni auðvitað. En á móti kom að það var þá hægt að heimsækja það fallega land Noreg. Og alltaf var tekið vel á móti manni, alltaf vel- komin og þar leið þér vel með Frið- geiri og öllum stelpunum þínum. Á Hvítasunnu í fyrra datt okkur Er- ling í hug með dags fyrirvara að skreppa í heimsókn, hringdum og það var lítið mál, komið bara. Það var búið að undirbúa garðveislu, því þetta var líka afmælisdagurinn þinn. Þarna var fjölskyldan þín og vinirn- ir, og þú varst svo glöð og ánægð, sjáðu þetta er sko hægt í maí í Nor- egi. Elsku systir, stórt skarð er nú í systkinahópnum og ekki von um óvæntri jólaheimsókn eða að kallað sé saman á frænkukvöld, vegna þess að Freyja er á landinu. Ég veit og trúi því að seinna hittumst við aftur og þá verður þú örugglega stödd á stórum golfvelli og þá kennirðu mér að spila golf. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Guð gefi þeim styrk sem sárast misstu, Friðgeiri, Ásdísi, Helgu Rós, Guðríði, litlu ömmutelpunum Emilíu og Ísabellu, mömmu og pabba. Elsku systir, þakka þér fyrir allt og allt. Kveðja Guðbjörg (Gugga systir). Freyja Ásgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.