Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 49
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Flækju-
fótur í samvinnu við Bændaferðir fara í
vikuferð til Þýskalands í sept. nk. Leið-
sögumaður Steingrímur Gunnarsson.
Uppl. í síma 898-2468.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan í Gullsmára 9 er opin á mánudög-
um og miðvikudögum kl. 10-11.30, sími
554-1226. Skrifstofan í Gjábakka er op-
in á miðvikudögum kl. 15-16, sími 554-
3438. Félagsvist í Gjábakka á mið-
vikudögum kl. 13 og föstudögum kl.
20.30 og í Gullsmára á mánudögum kl.
20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur í kvöld kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir
dansi.
Félagsstarf Gerðubergs | Virka daga er
dagskrá kl. 9-16.30, m.a. opnar vinnu-
stofur, spilasalur, dans, kórstarf o.fl.
Þriðjud. 8. apríl kl. 13 hefst postulíns-
námskeið, kennari Sigurbjörg Sig-
urjónsd. Mánud. og miðvikud. kl. 10.30
er sund og leikfimiæfingar í Breiðholts-
laug. Uppl. á staðnum, s. 575-7720.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Listasmiðjan opin, félagsvist,
skapandi skrif, Bör Börsson, Müllersæf-
ingar, brids, þegar amma var ung, leik-
fimi, sönghópur Hjördísar Geirs, Stef-
ánsganga o.fl. Bókmenntaferð til
Akureyrar 14.-16. maí. Uppl. 568-3132
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu
á mánu- og miðvikud. kl. 9.30-11.30.
„Affró“ dansar í Kópavogsskóla kl.
14.20. Ringó í Smáranum á miðvikud. kl.
12 og í Snælandsskóla á laugard. kl.
9.30, línudans í Húnabúð, Skeifunni 11 á
miðvikud. kl. 17. Uppl. í síma 564-1490.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
mánudag, kl. 9.30 er ganga frá Egilshöll.
Kvenfélag Kópavogs | Félagsfundur
verður í sal félagsins í Hamraborg 10, 2.
hæð, 9. apríl kl. 20. Auk hefðbundinna
fundarstarfa verður námskeið í skyndi-
hjálp á vegum Rauða krossins
Lífeyrisþegadeild Landssambands lög-
reglumanna | Fundur kl. 10 á Grett-
isgötu 89.
Vesturgata 7 | Nemendur Sigvalda
sýna línudans föstud. 11. apríl kl. 15.
Kennsla í gömlu dönsunum alla mánu-
daga kl. 13.30-14.30. Danskennari Guð-
björg Arnarsdóttir.
Kirkjustarf
Bústaðakirkja | Starf eldri borgara er á
miðvikudögum kl. 13-16. Spilað, föndrað,
handavinna og óvænt uppákoma. Hafið
samband við kirkjuvörð í síma 553-
8500 ef bílaþjónustu er óskað.
Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11.
Almenn samkoma kl. 14, Sigrún Ein-
arsdóttir prédikar. Kaffi og samfélags-
stund á eftir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Brauðs-
brotning kl. 11. Kennari er David Pawson.
International church, Bibleteaching for
english speaking kl. 13. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður er Mark
Brewer skólastjóri Masters Commission
skólans í Dallas. Gospelkór Fíladelfíu
leiðir lofgjörð. Barnakirkja fyrir börn, 1-
13 ára.
60ára afmæli. Sextugurer í dag, 6. apríl Ragn-
ar Gerald Ragnarsson skip-
stjóri í Keflavík.
Gullbrúðkaup. Í dag, 6. apríl, eiga
fimmtíu ára brúðkaupsafmæli hjónin
Hjördís Sigurðardóttir og Adolf J.
Berndsen, fyrrverandi oddviti og um-
boðsmaður á Skagaströnd. Þau verða
að heiman í dag.
dagbók
Í dag er sunnudagur 6. apríl, 97. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Eitt sinn voruð þér myrkur, en nú eruð þér ljós í Drottni. Hegðið yður eins og börn ljóssins. (Efes. 5, 8.)
Fyrirlestraröð Sagnfræðinga-félagsins heldur áfram áþriðjudag með erindi ÖnnuLísu Rúnarsdóttur sviðs-
stjóra rannsókna- og varðveislusviðs
Þjóðminjasafns Íslands. Anna Lísa
flytur erindið Minjar í torfi – hug-
myndafræði varðveislu Núpsstaðar kl.
12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns-
ins.
„Erindið fjallar um varðveislu gömlu
bæjarhúsanna á Núpsstað, sem Þjóð-
minjasafninu hefur verið falið að gera
við, en við varðveisluna var hafður að
leiðarljósi sá möguleiki að sækja mætti
um skráningu Núpsstaðar á heims-
minjaskrá,“ segir Anna Lísa. „Heims-
minjaskrá gerir hins vegar mjög
strangar faglegar kröfur til þess hvern-
ig varðveislan fer fram, og segi ég frá
hvernig við leituðumst við að taka tillit
til þessara krafna og þeirra sem settar
eru fram í öðrum alþjóðlegum sátt-
málum um varðveislu gamalla húsa.
Um leið fjalla ég um þá möguleika sem
voru í boði við varðveislu Núpsstaðar,
og það varðveislumat sem nota má þeg-
ar reynt er að mæla það gildi sem
varðveisla húss hefur.“
Anna Lísa segir heimsminjaskrá og
alþjóðlega sáttmála m.a. gera þá kröfu
að þess sé gætt að varðveita uppruna-
leika þeirra minja sem um ræðir: „Það
gengur því ekki að byggja allt nýtt sem
laga þarf, heldur þarf að miða varð-
veisluna við að taka sem minnst af því
sem fyrir er,“ segir hún. „Íslensk torf-
hús eru hins vegar ekki sambærileg við
t.d. evrópskar hallarbyggingar, enda
torfið efni sem þarf að endurnýja. Það
þarf því t.d. að huga vel að þeim for-
sendum sem ráða för við varðveislu
sögulegra bygginga úr torfi.“
Um leið segir Anna Lísa að hugsa
þurfi sig tvisvar um áður en lagt er af
stað við varðveislu sem snýst um að
koma byggingum í upprunalegt horf:
„Oft vilja menn færa byggingar í upp-
runalegt horf, fjarlægja af þeim þær
breytingar sem gerðar hafa verið á
seinni tímum og varðveita þannig. En
hafa verður í huga að saga húsanna
felst oft í breytingunum sem gerðar
hafa verið á þeim, og vitnar hver
breyting um tímans rás. Þegar um
torfhús er að ræða eru reglulegar
breytingar og aðlögun að hlutverki
hússins eitt helsta einkenni þessarar
alþýðuhúsagerðar. Að færa byggingu í
upprunalegt horf varðveitir því aðeins
hluta af sögu hússins, en ekki alla sög-
una.“
Minjar | Fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands á þriðjudag
Hugmyndafræði varðveislu
Anna Lísa Rún-
arsdóttir fæddist í
Reykjavík 1971.
Hún lauk DEFA-
gráðu frá Ecole
d’Architecture de
Grenoble í Frakk-
landi 1995, fram-
haldsdiplóma í
heimslistarfræðum
frá háskólanum í Austur-Anglíu, og
doktorsprófi í félagsmannfræði frá
University College í Lundúnum 2004.
Anna Lísa hefur starfað hjá Þjóð-
minjasafni Íslands frá 2005 og er núna
sviðstjóri rannsókna- og varðveislu-
sviðs. Eiginmaður hennar er Soane
Kata og eiga þau tvö börn.
Í VIKUNNI verður fjöldi ljósmynda boðinn upp hjá upp-
boðshúsinu Christie’s í New York. Á forsýningu á verk-
unum beindist athyglin einkum að nektarportretti ljós-
myndarans Michel Comte frá 1993, af Carla Bruni, sem
fyrir skömmu varð eiginkona Sarkozy Frakklandsforseta.
Búist er við að hátt í 300.000 krónur fáist fyrir myndina.
Margar merkari myndir verða boðnar upp, þar á meðal eft-
ir Ansel Adams og Irving Penn.
Ljósmynd af nakinni forsetafrú
Pera vikunnar:
Hver þessara talna sker sig úr ?
5 … 7 … 9 … 11 … 13
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 14.
apríl. Lausn þessarar þrautar og nöfn vinningshafanna birtast á vef
skólans, digranesskoli.is, hinn 21. apríl.
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 14.
apríl. Lausn þessarar þrautar og nöfn vinningshafanna birtast á vef
skólans hinn 21. apríl.
Ekki munu birtast fleiri þrautir á þessu vori.
Frekari upplýsingar eru á vef skólans.
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
Myndlist
Norræna húsið | „Norrænar hugrenningar frá
Mexíkó“ er titillinn á sýningu dönsku text-
íllistakonunnar Trine Eillitsgaard. Listakonan
hefur verið búsett í Mexíkó sl. tuttugu ár og
ber sýningin það með sér. Síðasta sýning-
arhelgi, nánar www.nordice.is
Kvikmyndir
MÍR-salurinn | Rússnesk sakamálamynd frá
2006, Sverðberinn, verður sýnd í dag kl. 15. Í
myndinni segir frá rannsókn á morðmáli sem
illa gengur að upplýsa en sitthvað bendir til að
um raðmorðingja sé að ræða. Ýmislegt dul-
arfullt á eftir að koma í ljós. Enskur texti. Að-
gangur ókeypis.
Fyrirlestrar og fundir
Félag CP á Íslandi | Aðalfundur félagsins
verður fimmtud. 17. apríl, kl. 20, á Háaleit-
isbraut 11-13, 4. hæð. Venjuleg aðalfund-
arstörf. Nánar á www.cp.is. Eftir aðalfundinn
verður kynning á starfsemi systkinasmiðj-
unnar.
Styrkur | Samtök krabbameinssjúklinga og
aðstandenda þeirra halda aðalfundur þriðjud.
8. apríl kl. 20 í húsi Krabbameinsfélagsins í
Skógarhlíð 8, Reykjavík. Aðalfundarstörf.
FRÉTTIR
NÝLOKIÐ er átakinu Karl-
menn og krabbamein sem
Krabbameinsfélag Íslands
stóð fyrir til að vekja athygli
á mikilvægi þess að karlar
fylgist með einkennum
krabbameins og bregðist rétt
við þeim. Pósturinn var einn
meginstyrktaraðili átaksins.
Slaufur til styrktar átakinu
voru seldar í útibúum Pósts-
ins, fyrirtækið keypti slaufur
handa starfsmönnum sínum
og dreifði kynningarbækl-
ingum átaksins endurgjalds-
laust í öll hús landsins.
Framlag Póstsins til átaks
Krabbameinsfélagsins var
alls 2,4 milljónir króna sem
Ingimundur Sigurpálsson,
forstjóri Íslandspósts, afhenti
Guðrúnu Agnarsdóttur, for-
stjóra Krabbameinsfélags Ís-
lands, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Átakið Karlmenn og
krabbamein stóð yfir dagana
7. til 21. mars. Auk sölu slauf-
unnar var opnaður vefur á
www.karlmennogkrabbamein-
.is, bæklingi dreift á öll heim-
ili í landinu þar sem lýst var
fyrstu einkennum krabba-
meins hjá körlum og útskýrt
hvernig bregðast eigi við ef
slík einkenni gera vart við sig
auk þess sem málið var kynnt
í fjölmiðlum.
Pósturinn styrkir átakið
Karlmenn og krabbamein
Röng
mynd
Röng mynd
birtist með
grein Krist-
ínar Vil-
hjálmsdóttur
þýðanda,
„Hvenær er
fötlun fötl-
un?“ í blaðinu
í gær. Rétt mynd birtist hér og
eru hlutaðeigandi beðnir vel-
virðingar.
Rangt
höfundarnafn
Í grein undir fyrirsögninni Ég
er ekki að skilja þetta mistrit-
aðist nafn höfundarins, Bene-
dikts Jóhannessonar fram-
kvæmdastjóra. Beðist er
velvirðingar á þessum mistök-
um.
LEIÐRÉTT
Kristín
Vilhjálmsdóttir
Í TILEFNI af 20 ára afmæli
ADHD-samtakanna mánudag-
inn 7. apríl verður opið hús á
Háaleitisbraut 13, 3. og 4.
hæð, milli kl. 15 og 18. Dr.
Urður Njarðvík sálfræðingur
flytur fyrirlestur kl. 16 um
börn með ADHD og kvíða.
Boðið verður upp á afmælis-
tertu og kaffi. Til sýnis verða
blaðaúrklippur sl. 20 ára,
fréttabréf og önnur útgáfa.
Allir félagsmenn og aðrir mál-
efninu viðkomandi eru boðnir
velkomnir, segir í fréttatil-
kynningu.
Í tilefni af afmælinu verður
ennfremur haldin ráðstefna
um ADHD 25. og 26. sept-
ember 2008 í samstarfi við
fjölda aðila, sjá www.gesta-
mottakan.is/adhd. Markmið
ADHD-ráðstefnunnar er að
miðla fræðslu og stuðla að
aukinni þekkingu um ADHD
hjá öllum sem koma að mál-
efnum barna, unglinga og full-
orðinna með ADHD.
Þema ráðstefnunnar er ann-
ars vegar skólaganga barna
með ADHD og hins vegar full-
orðnir með ADHD. Við val á
fyrirlesurum var tekið mið af
þessum áherslum. Að sama
skapi mun annað kynningar-
efni taka mið af þessu þema.
ADHD-samtökin hétu áður
Foreldrafélag misþroska
barna og voru stofnuð 7. apríl
árið 1988. ADHD er alþjóðleg
skammstöfun sem stendur fyr-
ir Attention Deficit Hyperacti-
vity Disorder eða athyglis-
brestur og ofvirkni.
ADHD-samtökin eru til stuðn-
ings börnum og fullorðnum
með athyglisbrest, ofvirkni og
skyldar raskanir sem og fjöl-
skyldum þeirra.
ADHD-samtökin 20 ára
♦♦♦