Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 54

Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 54
Síðan verður auðvitað að leita að stjörnum og reynsluboltum í hlutverk eldri kynslóðarinnar … 60 » reykjavíkreykjavík RUFUS Wainwright er af miklu tónlist- arfólki kominn, faðir hans Loudon Wain- wright III og móðir Kate McGarrigle og Rufus litli var því maríneraður í hljómlist frá blautu barnsbeini. Wainwright gaf út sína fyrstu plötu árið 1998 og var hylltur fyrir af gagnrýnendum. Snemma eftir aðra plötu sína, Poses, sökk Wainwright í fen eit- urlyfjaneyslu og var það vinur hans, Elton John, sem ýtti á að hann færi nú í meðferð. Hreinn og hress gaf hann út plöturnar Want One og Want Two sem þykja mikil meistaraverk og eins er með nýjustu plötu hans af því taginu, Release The Stars, sem út kom í fyrra. Hann hefur því ekki stigið feilspor á þessum vettvangi. Árið 2006 tók hann sig svo til og endurflutti fræga tón- leika Judy Garland í Carnegie Hall með til- heyrandi búningum og stjörnum prýddu að- stoðarfólki. Tilraunin heppnaðist vel en Wainwright hefur samt af ýmsum ástæðum skorið ýmislegt við sig á því tónleika- ferðalagi sem nú fer í hönd, eins og fram kemur hér á eftir. Exótískir staðir – Jæja, hvað segirðu þá? „Jú jú, ég hef það sæmilegt … hmm … sit bara hérna í New York, hangsandi.“ – Og á leiðinni til Íslands? „Einmitt, mér líst harla vel á það – þetta er auðvitað einn dularfyllsti staður á jarð- ríki og … (hikar) … hmm … ég hef verið að ýta dálítið á það að komast til Íslands, ég er búinn að vera að fást við tónlistina lengi og á tímabili gat ég bara spilað í New York og London (hlær) þannig að geta farið til ex- ótískra staða eins og Íslands markar vöxt í mínum ferli, ég á kost á að fara til staða sem ég hefði aldrei getað látið mig dreyma um hér áður fyrr. Þegar Ísland er búið eru það svo Austurlönd fjær (hlær).“ – Nærðu að dvelja hérna eitthvað? „Já, ég ætla að taka einn aukadag í það að skoða mig aðeins um.“ – Þú verður einn með gítarinn og slag- hörpuna. „Já. Ég var með rosalega stóra hljóm- sveit í u.þ.b. ár og við ferðuðumst um allan heim. Það var stórkostlegt en til allrar ólukku er ég líka stórkostlega fátækur eftir það ævintýri (hlær). Ég er á kúpunni. Þann- ig að ég er eiginlega tilneyddur, ég varð að strípa þetta niður til að jafna bankareikn- inginn aðeins. En það er fínt. Ég held að hlustendur eigi eftir að taka vel í þetta, þetta er tilbreyting frá öllu þessu „stóra“ sem ég hef verið að gera. „Stórar“ plötur, „stórir“ tónleikar o.s.frv. En nú er þetta al- veg beinabert.“ – Þannig að þú fórnaðir þér fyrir listina, settir sjálfan þig hlæjandi á hausinn til hyll- ingar listagyðjunni. „Ja … ég ýki þetta kannski aðeins. Ég á smá pening. En þú veist hvernig þetta er, það er ekkert öryggi í því að hafa lifibrauð af listinni. Maður þarf að fara varlega.“ – Judy Garland-verkefnið var því sann- anlega áhætta? „Ó já, það var áhætta á margvíslegan hátt (hlær kaldhæðnislega). Ég hafði t.d. miklar áhyggjur af því að fólk myndi ekkert vilja hlusta á mín eigin lög eftir það verkefni, þar sem það gekk fyrir einhverja Guðs mildi mjög vel (sýpur auðheyranlega á kaffi).“ Ólæknandi sjúkdómur – Þú byrjar ferilinn með að gefa út sóló- plötur, einskonar söngvaskáldakamm- erpopp. En að undanförnu hefurðu verið að umfaðma alls kyns miðla aðra, kvikmyndir, danslist o.fl. Af hverju? „Ég hef alltaf, alltaf verið hallur undir fjölbreytni. Ég veit það ekki – kannski af því að ég gat aldrei rokkað almennilega – kannski af því að ég er samkynhneigður og passaði ekki alveg inn í hugmyndir manna um poppstjörnur. Ég vissi að þess vegna yrði ég að vera eins og kamelljónið, ég yrði að geta farið víða og haft listrænann brodd einhvern veginn, ef ég ætti að komast af. Þetta er eins og hryllilegur, banvænn sjúk- dómur (hlær)… og engin lækning í augsýn! En já … ég gerði mér grein fyrir þessu frekar ungur.“ – Vissirðu frá upphafi að þú yrðir tónlist- armaður? Varstu dæmdur til að gera þetta? „Já, nokkurn veginn. Það var eiginlega augljóst að ég færi þessa leið.“ –Vegna fjölskyldunnar þá? „Já, en ég veit ekki. Fólk spyr mig hvort ég elski að koma fram og vera á sviði. Svarið er að ég hef alltaf fundið mig eðlilegan þar. Það kemur yfir mig ró og birta þegar ég er uppi á sviði. Allir geta séð þetta – þetta er nánast eins og dýrsleg hvöt. En ég veit ekki hvort að það er vegna fjölskyldugenanna eða ekki.“ – Að lokum, hverju ertu að vinna að núna? „Hmmm … ég verð eitthvað á túr fram- eftir ári en svo er ég að vinna að óperu.“ – Já! „Óperan hefur alltaf verið ástin mín nr. 1, 2 og 3 þó ég hafi ekki samið slíka sjálfur. En ég er semsagt að því núna.“ – Sérðu þá jafnvel fyrir þér að færa þig alveg yfir í klassíska tónlist? „Alls ekki. Þetta á samt að vera „alvöru“ ópera en það er ekki um neina tilfærslu að ræða. Ég er í grunninn … og verð alltaf … lagasmiður. Fyrst og fremst. Það er mín iðn ef svo mætti segja – og færir mér líka mesta saltið í grautinn (hlær).“ „ÉG ER Á KÚPUNNI“ RUFUS WAINWRIGHT ER MEÐ MERKUSTU POPPURUM SAMTÍMANS, EF POPPARA SKYLDI KALLA, EN PILTUR HEFUR Í Æ RÍKARI MÆLI FETAÐ ÓKUNNA STIGU AÐ UNDANFÖRNU OG GLAÐUR LAGT SÁLARHEILL UNDIR Í SKIPTUM FYRIR LISTRÆNAN ÁVINNING. HANN HELDUR TÓNLEIKA HÉR Á LANDI Í HÁSKÓLABÍÓI EFTIR SLÉTTA VIKU OG RÆDDI ARNAR EGGERT THORODDSEN VIÐ TAUGAÓSTYRKAN WAINWRIGHT SEM SEGIST VERA Á HAUSNUM EFTIR SÍÐUSTU VERKEFNI. Fyrst Ísland „Ég er búinn að vera fást við tónlistina lengi og á tímabili gat ég bara spilað í New York og London þannig að geta farið til exótískra staða eins og Íslands markar vöxt í mínum ferli.“arnart@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.