Morgunblaðið - 06.04.2008, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 57
PANTAÐU MIÐA
STRAX
10. APRÍL ÖRFÁ SÆTI LAUS
www.pabbinn.is
P
IP
A
R
/
S
ÍA
Miðasalan er opin í dag, sunnudag frá 14 - 20 og alla virka daga frá 10-18.
MIÐASÖLUSÍMI 511 4200
LOKASÝNING
SÝNT Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI
Skemmtiatriði á 17. júní
Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is 17juni.is
Frá sýningu götuleikhússins 2007
www.17juni.is
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun
í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún
frá morgni til kvölds. Gert er ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á
sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.
Auk hefðbundinna skemmtiatriða er áhugi á hópatriðum og sýningum og
er leitað að leik-, tónlistar-, dans- og öðrum listhópum til að troða upp á
útisviðum og á götunni. Einnig er óskað eftir hópum, félagasamtökum og
öðrum sem vilja standa fyrir eigin dagskrá á sviðum eða í samkomutjöldum
í samráði við þjóðhátíðarnefnd.
Umsóknir um flutning atriða, uppákomur og viðburði er hægt að fylla
út á vefnum www.17juni.is en einnig er hægt að skila þeim í Hitt Húsið,
Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur rennur út þriðjudaginn 6. maí.
Gísli Jónsson, dr.med., sérfræðingur í hjartalækningum
og lyflækningum hefur opnað læknastofu
í húsi Lækningar að Lágmúla 5, Reykjavík.
Tímapantanir alla virka daga milli kl. 9-16
í síma 590 9200.
Netfang: gisli.jonsson@laekning.is
www. laekning.is
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
ÓPERUSTÚDÍÓ Íslensku óp-
erunnar hefur öðlast sess sem einn
af mest spennandi árlegum við-
burðum í klassísku tónlistarlífi hér-
lendis.
Nú er komið að fimmta óperu-
stúdíóinu, og í þetta sinn ætla ungir
og upprennandi listamenn þjóðar-
innar að spreyta sig á sjálfum Moz-
art: nú er komið að Cosi fan tutte!
Auðveldastur og erfiðastur
Blaðamaður settist niður með
Daníel Bjarnasyni hljómsveitar-
stjóra og Tinnu Árnadóttur sem er
önnur tveggja söngkona sem fara
með hlutverk þjónustustúlkunnar
hrekkjóttu Despínu: „Mozart er
kannski erfiðastur,“ segir Daníel,
spurður um hvort verkið hafi reynst
erfitt viðfangs: „Hann er erfiðastur
því hann virkar svo auðveldur, er
svo léttur og tær að allt þarf að vera
skýrt,“ segir hann.
Tinna hefur sömu sögu að segja:
verkið er skemmtilegt, en krefjandi.
„Það er ekki aðeins söngurinn sem
reynir á, heldur samspil leikaranna,
að vera á réttum stað á réttum tíma
án þess að hrasa ofan í gryfju,“ seg-
ir Tinna hlæjandi.
Hlátur og grátur
Cosi fan tutte er ein af höfuð-
perlum óperubókmenntanna og
telst hiklaust með bestu verkum
Mozarts sem sjálfur kallaði óperuna
gamanharmleik. Sagan segir af vin-
unum Ferrando og Guglielmo sem
eiga fyrir kærustur þær Fiordiligo
og Dorabellu. Don Alfonso kemur til
sögunnar og heldur því fram við
Ferrando og Guglielmo að konur
geti ekki verið trygglyndar. Upp-
hefst þá veðmál og mikið gaman,
enda vilja vinirnir ekki trúa því upp
á kærustur sínar að þær séu ekki
tryggastar allra kvenna og eru
reiðubúnir að leggja ýmislegt á sig
til að sanna það. Stríðna þjónustu-
stúlkan Despína leggur svo sitt af
mörkum til að allt fari á þann veg
sem er í senn verstur og fyndnastur.
Láta ljós sitt skína
Daníel og Tinna eru sammála um
það mikilvæga hlutverk sem óp-
erustúdíóið leikur: „Sýningar óp-
erustúdíósins eru í alla staði fagleg-
ar, en veita ungum
tónlistarmönnum krefjandi og
þroskandi tækifæri til að láta ljós
sitt skína í alvöru óperuuppfærslu,“
segir Daníel. „Þetta framtak hefur
tengt saman Íslensku óperuna og
hinar ungu kynslóðir söngvara og
hljóðfæraleikara og orðið stökk-
pallur til frekari afreka bæði við Óp-
eruna og erlendis.“
Ár frá ári hefur Óperustúdíóinu
vaxið fiskur um hrygg, æ meira er
lagt í uppfærslurnar sem iðulega
hljóta mjög góðar umsagnir gagn-
rýnenda: „Þetta eru alvöru sýningar
með alvöru söngvurum og ekkert
slegið af,“ bætir Daníel við og þau
Tinna lofa skemmtilegri og hrífandi
sýningu sem enginn á að eftir að
verða svikinn af.
Hvikular kærustur og
hrekkjóttir kærastar
Óperustúdíóið sýnir Cosi fan tutte eftir Mozart
Ungir og upprennandi listamenn láta ljós sitt skína
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Efnileg Tinna og Daníel segja að hvergi sé slegið af í uppfærslu Óperustúdíósins í ár.