Morgunblaðið - 06.04.2008, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND
FRÁ WALT DISNEY.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA
SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB
FRÁ LEIKSTJÓRA
INDEPENDENCE DAY OG
THE DAY AFTER TOMORROW
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
eeee
EMPIRE
eeee
NEWSDAY
eeee
OK!
Frábær gamansöm þroskasaga með Ryan Gosling í aðalhlutverki
- G.H.J
POPPLAND
eeee
styrkir GeðhjálpSÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
/ KRIngLUnnI
FOOL'S GOLD kl. 1:20 - 3:30 - 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára
FOOL'S GOLD kl. 1:20 - 3:30 - 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára LÚXUS VIP
STÓRA PLANIÐ kl. 4D - 6D - 8D - 10:10D B.i. 7 ára DIGITAL
DOOMSDAY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
LARS AND THE REAL GIRL kl. 10:10 LEYFÐ
HANNAH MONTANA kl. kl. 2D LEYFÐ
/ ÁLFAbAKKA
10,000 BC kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
THE BUCKETLIST kl. 6 - 8 B.i.7 ára
STEP UP 2 kl. 2 - 4 LEYFÐ
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl tali kl. 1 - 3:40 LEYFÐ
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
FOOL'S GOLD kl. 6D - 8:20D - 10:40D B.i. 7 ára DIGITAL
STÓRA PLANIÐ kl. 2D - 4D - 6D - 8D - 10D B.i. 10 ára DIGITAL
HANNA MONTANA kl. 2 3D - 4 3D LEYFÐ 3D DIGITAL
JUNO kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
UNDRAHUNDURINN ísl tal kl. 2 - 4 LEYFÐ
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„ÞAÐ ER verið að ljúka við fram-
leiðsluumsókn, það
er staðan á þessu,“
segir Ottó Geir Borg,
annar handritshöf-
unda að kvikmynd
upp úr skáldsögu
Ólafs Hauks Sím-
onarsonar, Gaura-
gangi, um stöðu
verkefnisins. Hand-
ritið sé klárt, þó svo
það sé alltaf breyt-
ingum háð, og Ólafur
búinn að kíkja á það
og sáttur við útkom-
una, að sögn Ottós.
Næsta skref er því
að afla fjár til fram-
leiðslunnar og segir
Ottó að styrkumsókn verði lögð
inn til Kvikmyndasjóðs á næst-
unni. Gunnar B. Guðmundsson,
hinn handritshöfundur mynd-
arinnar, kemur til með að leikstýra
henni en hann leikstýrði seinast
Astrópíu. Zik Zak framleiðir
myndina.
Ottó segir ljóst að kvikmyndin
verði nokkuð dýr á íslenskan mæli-
kvarða þar sem hún
verði „í períódu“,
þ.e.a.s. sögusviðið ekki
í samtímanum. Bókin
kom út 1988 og naut
mikilla vinsælda líkt og
söngleikurinn sem
gerður var upp úr
henni og sýndur í
Þjóðleikhúsinu við
gríðarlegar vinsældir
1993-4. Ottó skýtur á
að kostnaður við
myndina verði ekki
undir 170-180 millj-
ónum króna.
Í uppsetningu Þjóð-
leikhússins fóru Ingvar
Sigurðsson og Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir með að-
alhlutverkin en bókin segir frá
unglingnum Ormi Óðinssyni og fé-
lögum hans, uppátækjum þeirra og
samskiptum við eldri kynslóðina.
Leikarar hafa ekki verið fundnir
enn en Ottó segir erfitt að manna
hlutverkin því myndin gerist í
gagnfræðaskóla. „Við ætlum ekki
að láta 25 ára manneskjur túlka
unglingsárin, það yrði aldrei trú-
verðugt. Síðan verður auðvitað að
leita að stjörnum og reynsluboltum
í hlutverk eldri kynslóðarinnar.“
Ottó segir ekki ómögulegt að
leitað verði til leikara úr uppsetn-
ingu Þjóðleikhússins á Gauragangi
og ekki loku fyrir það skotið að
Ingvar verði beðinn um að leika í
myndinni. „Hugmyndin er jafnvel
að láta sögumanninn eldri útgáf-
una af Ormi og þá væri auðvitað
best að hafa Ingvar,“ segir Ottó.
Sú hugmynd hafi ekki verið borin
enn undir Ingvar. Aðalatriðið sé að
finna bestu leikarana í hlutverkin.
Ottó segir ekkert hægt að segja
um hvenær tökur hefjist þar sem
fjármögnun myndarinnar sé enn
ólokið.
Myndin gerist að vetri til og því
verði að taka hana yfir vetrarmán-
uðina. „Fyrsti möguleikinn er
núna rétt fyrir jól, næsti möguleiki
þá rétt eftir jól eða þá þarnæsta
haust.“
Handrit að Gauragangi klárt
Morgunblaðið/Þorkell
Leikstjórinn Hinn handritshöfundurinn, Gunnar B.
Guðmundsson, mun jafnframt leikstýra myndinni.
Morgunblaðið/Frikki
Ormur Ingvar Sigurðsson í hlutverki Orms Óðinssonar í
uppfærslu Þjóðleikhússins á Gauragangi 1994.
Fjáröflun fyrir framleiðslu
kvikmyndarinnar næsta skrefið
Ottó Geir Borg