Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 63

Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 63 Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is HÖFUNDUR bloggsíðunnar Stuff White People Like, eða Eftirlæti bleiknefjanna, komst í fréttir nýlega þegar honum voru boðnar rúmar 22 milljónir fyrir útgáfuréttinn á bók byggðri á síðunni. Upphæðin vakti nokkra furðu í útgáfuiðnaðinum og þótti alltof há fyrir bók eftir alls óþekktan höfund sem hafði aldrei skrifað annað opinberlega en blogg. Það er ef til vill ekki alveg rétt að kalla Christian Lander óþekktan, því á þeim fáu vikum sem liðnar eru síðan hann byrjaði að blogga í jan- úar hefur síðan vakið mikla athygli. Þar gerir Lander grín að hvítu, frjálslyndu og menntuðu millistétt- arfólki sem þráir ekkert heitar en að hafa hárréttar skoðanir, óaðfinn- anlegan smekk og puttann á púls- inum í tísku og menningu. Hegðun og framkoma Eftirlæti bleiknefjanna eru talin upp í númeruðum smáköflum sem innihalda ráðleggingar um rétta hegðun og framkomu og spanna allt frá mat og drykk að stjórnmálum. Dæmi um það sem hvítu fólki líkar að mati Landers er „að standa kyrrt á tónleikum“ (#67). „Mundu, að á tónleikum eru allir að fylgjast með þér og bíða eftir því að þú byrjir að dansa. Það er til þess að geta þá hlegið að þér. Þetta þýðir að Belle and Sebastian-tónleikar líta frekar út eins og óreiðukenndar bið- raðir en tónlistarviðburðir,“ segir Lander og bætir við í lokin: „Það er reyndar viðunandi að lyfta annarri höndinni annað slagið og benda í átt- ina að sviðinu.“ Fjölmargar bækur sem byggja á vinsælum bloggsíðum hafa komið út síðustu misserin. Fyrir örfáum árum þótti það mjög djarft af útgáfufyr- irtækjum að taka bloggara upp á arma sína, en það er nú orðið svo hversdagslegt að nokkrir forleggj- arar bítast yfirleitt um vinsælar bloggsíður sem skjóta upp kollinum. Oft hafa höfundarnir lagt upp með þær sérstaklega í þeim tilgangi að vekja athygli útgáfufyrirtækja. Viðbrögðin við þessum nýjasta samningi þykja benda til þess að þróunin hafi náð hámarki þó að alltaf verði eftirspurn eftir góðum höf- undum, sama hvaða umbúðir þeir velja utan um skrif sín. »VEFSÍÐA VIKUNNAR: STUFFWHITEPEOPLELIKE.WORDPRESS.COM Eftirlæti bleiknefjanna Bleiknefur Christian Lander sýnir hvernig maður ber sig að við endur- vinnslu - sem er einmitt eitt af því sem hvítt fólk hefur sérstakt dálæti á. SÖNGKONAN Amy Winehouse og Mark Ronson munu semja og taka upp aðallag nýju James Bond kvikmyndarinnar, Quantum Of Solace, í vikunni. Upptökustjórinn mun hafa heimsótt söngkonuna á fimmtudagskvöldið og tekið gítar hennar og farangur með sér í upptökustúdíó sitt í sveitinni, en von er á Winehouse þangað eftir helgi. Hún hefur hljóðritað sín kunnustu lög undir stjórn Ron- sons, þar á meðal lagið Rehab sem hlaut Grammy-verðlaun á dög- unum. Heimildamaður segir þau spennt fyrir verkefninu. „Þeim finnst þetta stærsta verk sem þau hafa fengið til þessa,“ sagði hann. „Nýja myndin mun vera talsvert myrk þannig að Amy passar vel þar inn í.“ Winehouse semur fyrir Bond Reuters Samhöfundar Winehouse og Mark Ronson semja Bondlagið saman. LEIKKONAN Renée Zellweger fer með hlutverk í ruðnings- kvikmyndinni Leatherheads sem George Clooney leik- stýrir. Hann und- irbjó kvikmynd- ina í áratug og segist hafa haft Zelweger í huga allan tímann, í hlutverk fréttakonu. „Hún var eina leikkonan sem passaði í hlutverkið, nokkrar senur voru hreinlega skrifaðar fyrir röddina í henni,“ segir Clooney. Þau Zellweger eru afar góðir vinir, tala saman í hverri viku og Zellwe- ger segir þau alltaf vera að hittast Um árabil hafa verið sagðar um þau sögur, að þau séu leynilegt par. Zellweger er sama. „Mér er sama því það sem er skrifað gerir mig að svo miklu áhugaverðari manneskju en ég er í raun, sérstaklega þegar sagt er að George Clooney sé leynilegur eig- inmaður minn. Ég er hræðileg kvikmyndastjarna. Alls ekki góð í því hlutverki. Ég get stundum þóst vera það en það reynir á.“ Zellweger seg- ist vera hræði- leg stjarna Renée Zellweger Cover svalalokanir Ending – Gæði – styrkur Nútíma svalalokanir og sólstofur 5 ára ábyrgð er á Cover glerbrautakerfi nu frá Gleri og brautum. Íslensk framleiðsla. Cover er póstalaust glerbrautakerfi , sérhannað fyrir svala-lokanir, sólstofur o.þ.h. Kerfi ð er 95% opnanlegt og einstaklega auðvelt í notkun. Cover glerbrautakerfi ð er sett upp miðað við 35 m/sek eða Euro code 124. Cover glerbrautakerfi ð er eina kerfi ð sem rennur á jafn- stórum hjólum að ofan og neðan sem útilokar möguleika á glamri og stirðleika og ræður við 12mm heilt gler. Gler & brautir ehf – Dalshraun 10 – 220 Hafnarfjörður – Sími 517 1417 – www.cover.is Með Cover færð þú: • Öruggt og sterkt glerkefi sem stenst íslenskt veðurfar • 98% lokun og eru PVC-plastlistar á milli glerja • Cover er 95% opnanlegt og eru þrif einstaklega auðveld því glerið opnast inná við (þrif báðum megin) • Tært útsýni og nánast engin útlitsbreyting • Cover-gler setur fallegan blæ á fasteignina • Alltaf logn og hreinar svalir • Minna hitatap • Hljóðeinangrun um 10 db • Glerkerfi sem er auðvelt og fl jótlegt í uppsetningu • Góður frágangur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.