Morgunblaðið - 03.05.2008, Page 2

Morgunblaðið - 03.05.2008, Page 2
2 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Umsóknarfrestur er til 30. maí Kynntu þér námið á www.hr.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 6 0 8 Hlutu 5 ára fangelsi Ian Strachan af íslenskum ættum sakfelldur af ákæru í Lundúnum fyrir tilraun til fjárkúgunar innan bresku konungsfjölskyldunnar ásamt írskum félaga sínum IAN Strachan, 31 árs Englendingur, öðru nafni Paul Adalsteinsson, af íslenskum ættum, var í gær dæmdur í 5 ára fangelsi af kviðdómi í Old Baily í Lundúnum fyrir tilraun til að reyna að kúga fé út úr karlmanni í bresku konungsfjöl- skyldunni. Ásamt honum var 41 árs írskur karl- maður að nafni Sean McGuigan dæmdur til sömu refsingar. Neituðu báðir sakargiftum Sakborningarnir neituðu báðir sök. Þeir voru handteknir í september í fyrra á hóteli í Lund- únum og ákærðir í kjölfarið fyrir að hafa krafist þess að fá greidd 50 þúsund pund en ella myndu þeir birta myndband þar sem systursonur Elísa- betar Englandsdrottningar var borinn ýmsum sökum, þar á meðal að hafa neytt fíkniefna og átt kynmök við einkaþjón sinn. Í réttarhöldunum kom fram að mennirnir höfðu áður reynt að selja breskum fjölmiðlum segul- bandsupptökur og myndskeið sem tengdust mál- inu. Skýringum sakborninganna hafnað Dómar fyrir fjárkúgun eru sjaldgæfir í Bret- landi. Breska ríkisútvarpið hefur eftir Mark Carroll hjá breska ríkissaksóknaraembættinu, að þótt sakborningarnir hafi haldið því fram að þeir hefðu verið að vernda hagsmuni fórnarlambsins hafi kviðdómurinn hafnað skýringum þeirra og tekið undir þær fullyrðingar saksóknara að mennirnir hafi aðeins haft áhuga á peningum. Afi Ian Strachans flutti frá Íslandi til Englands á fyrri hluta síðustu aldar. Foreldrar Ians skildu er hann var níu ára og þá tók hann upp ættarnafn enskrar móður sinnar. Hefur hann fengist við ýmislegt um dagana að eigin sögn, meðal annars fasteignasölu, en fyrir nokkrum árum fluttist hann til Lundúna ásamt móður sinni. Fór hann þá að stunda félagsskap ríka fólksins og er sagður hafa þóst vel efnum búinn og hafa erft mikið fé eftir íslenska ömmu sína. BSRB leggur ríka áherslu á að gera kjarasamning til skamms tíma, eða eins árs, en samninganefnd ríkisins hefur lagt til langtímasamning, nán- ast til loka þessa kjörtímabils, að sögn Ögmundar Jónassonar, for- manns BSRB. Fyrsti formlegi samn- ingafundur BSRB og aðildarfélaga bandalagsins með samninganefnd ríkisins var haldinn hjá ríkis- sáttasemjara í gær. Ögmundur sagði að ríkisstjórnin hefði gefið ákveðin fyrirheit í stjórn- arsáttmála og yfirlýsingum ráð- herra, m.a. um að útrýma kynbundn- um launamum, taka á kjörum umönnunarstétta og kvennastétta og annarra innan umönnunarþjónust- unnar sem hefur átt við manneklu að stríða vegna bágra kjara. Ögmundur taldi það ekki ganga upp að bjóða langtímasamning án þess að minnast á efndir þessara fyrirheita. „Við höfum óskað eftir því að fá fund með ríkisstjórninni, milliliða- laust, oddvitum stjórnarflokkanna, félagsmálaráðherra og fjármálaráð- herra, þar sem við fáum að heyra hvernig þau ætla að standa við gefin fyrirheit,“ sagði Ögmundur. Hann kvaðst eiga von á að af þessum fundi gæti orðið á allra næstu dögum, hvort heldur nú um helgina eða strax eftir helgi. BSRB vill fá krónutöluhækkanir á laun en þær munu koma láglauna- og millitekjuhópum best, að mati Ög- mundar. „Markmiðið okkar með þessum samningum er að leggja okkar af mörkum til þess að kveða verðbólguna niður. Hún er alvarleg- asti vágesturinn sem herjar á heim- ilin í landinu, að ég tali ekki um veik- burða atvinnufyrirtæki sem mega við litlu,“ sagði Ögmundur. Hann kvaðst telja mikilvægt að ljúka samningunum sem fyrst. Það mundi stuðla að jafnvægi sem efnahagslífið og þjóðfélagið allt þyrfti mikið á að halda nú. BSRB óskar eftir fundi með ríkis- stjórn til að ræða efndir fyrirheita Morgunblaðið/Golli Samningafundur Fyrsti formlegi samningafundur BSRB og aðildarfélaga með samninganefnd ríkisins var hald- inn hjá ríkissáttasemjara í gær. BSRB vill fá kjarasamning til skamms tíma og krónutöluhækkanir á laun. AÐFERÐAFRÆÐI Hafrannsókna- stofnunarinnar við fiskveiðiráðgjöf greinir alls ekki á við efni vísinda- greinar um áhrif veiða á stofnsveiflur fiskstofna sem nýlega birtist í tímarit- inu Nature, að mati Jóhanns Sigur- jónssonar forstjóra. Morgunblaðið greindi frá grein Nature í gær og byggði þar á frétt í Fishing News. Jóhann segir að fram- setning Fishing News og frétt Morg- unblaðsins séu ekki í samræmi við innihald greinarinnar í Nature. Grein Nature mæli t.d. alls ekki gegn því að vernda smáfisk og rannsóknin sem að baki liggi mæli ekki með því að veiða mikið af smáfiski. Í rannsókninni hafi verið skoðaðar þrjár tilgátur. Engin markverð niðurstaða fékkst úr tveim- ur en sterkt samband fannst í þeirri þriðju. Hún gekk m.a. út á að mik- ilvægt væri að tryggja aldursbreidd fiskstofna. „Grein Nature segir í raun og veru að það sé ekki gott að miða veiðina einungis við stofn- þyngd heldur skipti máli að tryggja hæfilega samsetningu ald- urshópa í stofnin- um, að aldurssam- setning stofnsins sé rétt,“ sagði Jó- hann. Hann sagði að hægt væri að vinna að þessu markmiði bæði með sértækum og almennum aðgerðum. Mikilvægasta almenna aðgerðin fæl- ist í því að minnka veiðiálag eins og hér hefði verið gert í þorski. Með því breyttist aldurssamsetning stofnsins með tímanum og meira yrði til af eldri og stærri fiski. Hafrannsóknastofn- unin hefði talið að veiðiálag á íslenska þorskstofninn hafi verið of mikið, bæði stóran og smáan fisk. Því var lagt til að það yrði minnkað. Vegna of lágs hlutfalls af stórum fiski var lagt til fyrir nokkrum árum að gripið yrði til sértækra aðgerða. Í kjölfarið ákvað sjávarútvegsráðherra að banna net með mjög stórum möskva sem völdu stærsta fiskinn úr. Jafnframt því að vernda stóran fisk verði einnig að vernda smáan fisk. Annars verði aldr- ei til stór fiskur. Samsetning hrygningarstofns ekki nógu hagstæð „Við höfum sagt að það sé mjög mikilvægt að auka heildarlífþyngd hrygningarstofnsins svo auka megi líkur á að nýliðun verði betri en hún hefur verið. Jafnframt að samsetning hrygningarstofnsins hafi ekki verið nægilega hagstæð. Við þurfum að fá meira af eldri fiski inn í hrygningar- stofninn. Rannsóknir hafa sýnt að sá fiskur sé líklegri til að gefa af sér sterkari árganga. Hann hrygnir yfir lengra tímabil, hrygnir meira og hvert afkvæmi hans er lífvænlegra en frá yngri hrygnum,“ sagði Jóhann. Í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar Jóhann Sigurjónsson HEILDARKOSTNAÐUR við kaup, viðgerðir og endurbætur nýju Grímseyjarferjunnar Sæfara varð 533 milljónir kr. Fyrsta kostnaðar- áætlun í desember 2004 gerði ráð fyrir 150 milljónum en þá var ekki gert ráð fyrir neinum meiriháttar breytingum á skipinu. Upphafleg meginmarkmið náðust með kaupunum og endurbótum á skipinu, að því er segir í greinargerð Vegagerðarinnar um kaup og end- urnýjun á Grímseyjarferjunni Sæ- fara. Ferjan uppfyllir allar kröfur til þeirra siglinga sem skipinu eru ætl- aðar. Aðstaða farþega er stórbætt, siglingartíminn styttist umtalsvert og kostnaður varð mun minni en við nýsmíði, þótt hann hafi ekki orðið sá sem stefnt var að í upphafi. Ýmislegt hefði þó mátt fara betur í framkvæmdinni, að mati Vegagerð- arinnar. Ljóst þykir að betra hefði verið að skipa strax í upphafi verk- efnishóp með þátttöku Vegagerðar- innar, ráðuneytis, Siglingastofnun- ar, heimamanna og rekstraraðila. Einnig hefði þurft að skoða skipið betur áður en gengið var frá kaup- unum. Þá hefðu hönnunargögn þurft að vera nákvæmari og betri í upphafi og gera hefði þurft meiri kröfur til verktaka. Um verkframkvæmdina segir m.a. í greinargerðinni: „Útboðsgögnum vegna endurbóta og breytinga var breytt á útboðstíma og slakað á gæðakröfum til verk- taka. Það er óheppilegt. Einnig var í upphafi fjallað of óskipulega um breytingar og viðbætur. Óskir Grímseyinga um breytingar og við- bótarverk á síðari stigum komu gjarnan beint til verktaka frá sam- gönguráðuneyti. Framganga aðal- verktakans var með öllu óviðunandi og í hefðbundnu verki fyrir Vega- gerðina hefði verksamningi verið rift en samkvæmt upphaflegri áætlun átti verkinu að vera lokið 30. sept- ember 2006.“ Megin- markmið náðust Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sæfari Grímseyjarferjan uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.