Morgunblaðið - 03.05.2008, Síða 4
MIÐSTJÓRNARFUNDUR Fram-
sóknarflokksins verður haldinn kl.
13 í dag í safnaðarheimili Háteigs-
kirkju. Fundur-
inn hefst með
ávarpi Guðna
Ágústssonar, for-
manns Fram-
sóknarflokksins,
en síðan flytur
Ragnar Árnason,
prófessor við við-
skipta- og hag-
fræðideild Há-
skóla Íslands,
erindi um stöðu og horfur í þjóðarbú-
skapnum og Bjarni Frímannsson,
lektor við sömu deild, fjallar um
horfur í efnahag heimilanna.
Í miðstjórn sitja um 180 fulltrúar
alls staðar af landinu og þar á meðal
allir þingmenn flokksins jafnt sem
fyrrverandi þingmenn að því gefnu
að þeir séu enn félagar í flokknum.
Miðstjórn
Framsókn-
ar fundar
í dag
Rætt um fjárhags-
stöðu heimilanna
Guðni Ágústsson
4 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞETTA gerðist fyrir tveimur helg-
um og við vorum lengi að bíða eftir
því að umræddir menn kæmu til okk-
ar og gerðu grein fyrir málinu við
okkur en þeir hafa ekki gert það. Við
höfum kannað þetta sjálfir með vitn-
um,“ segir Páll Guðmundsson, for-
maður Ferðafélags Íslands, um
jeppamenn sem veltu jeppa á skála
félagsins í Landmannalaugum.
Páll segir mennina hafa valdið
miklum skemmdum á húsinu.
„Mennirnir veltu jeppanum ofan í
snjóskál sem er ofan við húsið og
eyðilögðu bílinn og stórskemmdu
húsið. Þeir voru mjög snöggir að
hafa sig á brott og létu draga bílinn í
burtu, sem var sagður ónýtur.
Við ætlum að sækja bætur vegna
þeirra skemmda sem urðu á húsinu.
Það brotnaði bæði veggur og gafl og
samanlagt gæti þetta sjálfsagt verið
tjón upp á milljónir króna.“ Páll seg-
ir Ferðafélagið líta málið mjög alvar-
legum augum.
„Það sem við erum að kæra til lög-
reglu er að þarna voru á ferð ölvaðir
menn við akstur. Það sem er jafnvel
enn alvarlegra er að grunur leikur á
að þarna hafi verið á ferð starfsmenn
ferðaþjónustu með farþega, sem
höfðu síðan komið þeim inn í skála.
Þetta hefði klárlega getað valdið
þeim sem voru að keyra og öðrum
tjóni. Það er mesta mildi að þarna
urðu ekki slys á fólki.“
Páll segir ölvun ökumanna á fjöll-
um hafa verið vandamál fyrir sex til
átta árum en síðan hafi ástandið
„snarlagast“ og „verið til fyrirmynd-
ar hjá jeppamönnum“.
Skálavörður lent í uppákomum
„Það var búið að snúa við þessari
þróun. Síðan höfum við orðið varir
við meiri drykkju og við getum ekk-
ert annað en tekið hart á því. Það
hefur verið töluvert mikið um
drykkju í skálanum í vetur og að
menn séu að fara í bílana og keyra
eitthvað í kringum skálana.
Skálavörður hefur lent í ýmsum
uppákomum í skálanum í vetur og
þurft að leita aðstoðar hjá öðrum
gestum í húsinu. Við erum með
skálavörð, unga konu, sem hefur
staðið í stappi við drukkið fólk.“
Páll segir að flestir jeppamenn
hagi sér vel en komin sé fram ný kyn-
slóð manna, að miklum meirihluta
karlar, sem séu farnir að höndla vín í
meira mæli en góðu hófu gegnir.
Drukknir fjallamenn veltu
jeppa á hús Ferðafélagsins
Ölvun á fjöllum
færist í vöxt á ný
Ljósmynd/Ferðafélag Íslands
Högg Eins og sjá má á myndinni skemmdist skálinn nokkuð þegar jeppinn
skall á honum fyrir um hálfum mánuði. Tjónið er metið á milljónir króna.
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti
Skáksambandsins, undirrituðu í gær samning um efl-
ingu skáklistar í grunnskólum. Um er að ræða til-
raunaverkefni til eins árs sem menntamálaráðuneytið
styrkir um 1,5 milljónir. Skáksambandið mun auglýsa
eftir 6-8 grunnskólum til að taka þátt í tilrauninni.
Skáksambandið mun einnig hjálpa þeim að innleiða
skákkennslu í skólastarfinu og vekja áhuga nemenda á
að stunda skák utan hefðbundins skólastarfs.
Guðfríður Lilja sagði alþjóðlegar rannsóknir hafa
sýnt að innleiðing skákar í skólastarf hafi mjög jákvæð
áhrif jafnt á einbeitingu og námsgetu einstaklinga og
félagslega. Skákin tengi ólíka hópa og kynslóðir.
Skáklistin verður efld í grunnskólum
Morgunblaðið/Valdís Thor
MEÐALHITI í Reykjavík í apríl-
mánuði var 5,2°C en í apríl í fyrra
var meðalhitinn 3,9°C. Þrátt fyrir
lægri meðalhita árið 2007 voru sól-
skinsstundirnar fleiri, eða 207,2
klst. samanborið við 141,8 klst. nú.
Öðru máli gegnir um meðalhit-
ann á Akureyri en hann lækkar úr
4,9°C í 1,4°C milli ára. Fjöldi sól-
skinsstunda helst þó svipaður eða
rétt rúmlega 150 klst.
Dregið hefur úr meðalhámarks-
og lágmarkshita á báðum stöðum
og fór meðallágmarkshitinn á Ak-
ureyri undir frostmark eða í -1,5°C.
Það sem er þó sameiginlegt með
stöðunum tveimur er magn úrkomu
en það hefur minnkað töluvert.
Úrkoma
lítil í apríl
SAMNINGANEFND heilbrigðis-
ráðherra og hjartalæknar hafa gert
2 ára samning um þjónustu þeirra
síðarnefndu sem sögðu sig af samn-
ingi fyrir liðlega tveimur árum.
Í tilkynningu heilbrigðisráðuneyt-
isins segir m.a. að með samkomulag-
inu nú sé ekki lengur gerð krafa um
tilvísun frá heilsugæslu- eða heim-
ilislækni. Sjúklingar þurfa heldur
ekki lengur að leggja út fyrir öllum
kostnaði vegna þjónustu hjarta-
lækna og sækja síðan um endur-
greiðslu á hluta hans til Trygginga-
stofnunar ríkisins. Með
samkomulaginu þurfa sjúklingar
einungis að greiða hjartalækni hlut-
deild sína í hinum umsamda kostnaði
við þjónustuna. Hjartalæknar fá
mismuninn greiddan beint frá TR.
Samkomulagið felur þannig í sér
bæði umtalsvert hagræði fyrir hina
sjúkratryggðu og minni kostnað.
Samningurinn sem nú hefur verið
gerður milli samninganefndar heil-
brigðisráðherra og félags starfandi
hjartalæknanna þýðir m.ö.o. að nú
gilda sömu almennu reglurnar um
greiðslur fyrir komur til hjarta-
lækna og gilda fyrir komur til ann-
arra sérfræðilækna. Samningurinn
gildir um alla hjartalækna sem voru í
starfi í apríl 2008 og tekur til þjón-
ustu sem veitt er utan sjúkrahúsa.
Hafa læknar frest til 1. júní til að
staðfesta aðild sína að samningum.
Hjartasjúklingar greiða
lækni aðeins hlutdeild
GUÐFRÍÐUR
Lilja Grétars-
dóttir lætur af
embætti forseta
Skáksambands
Íslands á aðal-
fundi sambands-
ins sem fram fer
í dag.
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
hefur gegnt emb-
ættinu síðastliðin fjögur ár og er
fyrsta og eina konan sem það hefur
gert, auk þess að hafa gegnt emb-
ætti forseta Skáksambands Norð-
urlanda.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að búist sé við spennandi kosning-
um um nýjan forseta Skáksam-
bandsins.
Tveir eru í framboði, þeir Óttar
Felix Hauksson og Björn Þorfinns-
son. Þeir hafa báðir setið í stjórn
Skáksambandsins undanfarin ár,
Óttar Felix sem varaforseti og
Björn sem gjaldkeri og almennur
stjórnarmaður.
Aðalfundur Skáksambandsins fer
fram í dag, laugardag 3. maí, í Skák-
höllinni Faxafeni 12 og hefst klukk-
an 10.
Hættir
sem for-
seti SÍ
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Óttar Felix og Björn
Þorfinnsson í kjöri
♦♦♦
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
Sex vikna námskei› hefjast 5. maí.
Mánudaga, mi›vikudaga og föstudaga
kl. 6.30 e›a 12.05.
A›gangur a› tækjasal fylgir.
VEGAGERÐIN og Ístak hf. und-
irrituðu í gær samning um tvöföld-
un Reykjanesbrautar, milli Strand-
arheiði og Njarðvíkur, eftir
endurútboð. Ístak hyggst hefjast
handa mánudaginn 5. maí.
Vegagerðin hafði áður hafnað til-
boði Adakris/Topp verktaka í verk-
ið þar sem verktakinn stóðst ekki
kröfur Vegagerðarinnar. Tilboð Ís-
taks hljóðaði upp á ríflega 807
milljónir kr. Undirverktaki vegna
malbikunar verður Hlaðbær-Colas
malbikunarstöð og eftirlit verður í
höndum Mannvits hf.
Áætlað er að hinn 16. október
verði unnt að aka útboðskaflann á
fjórum akreinum.
Ístak klárar
Reykjanesbraut