Morgunblaðið - 03.05.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 03.05.2008, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is KÓPAVOGSDEILD Rauða kross Íslands hef- ur um árabil staðið fyrir heimsóknum í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra, en fyrir tæpum tveimur árum var tekið upp á þeirri nýbreytni að leyfa ferfætlingum að gerast heimsóknarvinir. Haustið 2006 hóf Pollý, sem er sjö ára Cavalier king Charles spaniel, að heimsækja heimilisfólkið í Sunnuhlíð einu sinni í viku ásamt eiganda sínum, Lilju Bögeskov. Ári síðar bættist Karólína í hópinn en hún er rúmlega fjögurra ára tík, blanda af Springer spaniel og Border collie, og skiptast nú hundarnir á að mæta. Að sögn Guðleifs Magnússonar, eiganda Karólínu, taka henni flestir afskaplega vel og fær hún mikið af strokum og atlotum. „Heimilisfólkið hefur margt afskaplega gaman af þessu. Karólína er svo spennt þegar við keyrum hingað upp að húsinu, hún fer öll á ið og byrjar að láta heyra í sér, hún veit hvert hún er að koma.“ Ekki er hún Pollý síður spennt að sögn Lilju. „Hún byrjar að dingla rófunni þegar ég keyri hingað, hún þekkir þetta. Heimsóknin gleður fólk óskaplega mikið. Það knúsar hana og klappar og sumir vilja fá hana upp í rúm til sín.“ Lifnar yfir fólki að fá dýrin í heimsókn Á öllu landinu eru 19 hundar sem fara í heimsóknir með sjálfboðaliðum og þar af eru 12 í Kópavogi en þar hófst verkefnið. Heil- brigðisstofnanir eru ekki einu staðirnir sem hundarnir heimsækja en einnig er farið á einkaheimili fólks. Þá er yfirleitt um að ræða fólk sem er einmana og félagslega einangrað en að sögn Lindu Óskar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Kópavogsdeildar Rauða krossins, geta heimsóknir af þessu tagi rofið einsemd og einangrun fólks og veitt því hvatningu til að halda úr húsi, t.d. í göngu- ferðir með hundana. Að sögn Lindu kallast þeir sem fá heim- sóknir gestgjafar og er ekki bara um eldra fólk að ræða. Deildin vilji endilega fá fleiri sjálfboðaliða en einnig fleiri gestgjafa. „Stundum er eins og fólk finni fyrir vanmátt- arkennd yfir því að þurfa að biðja einhvern um að heimsækja sig,“ segir Linda en að hennar mati hafa heimsóknirnar gefið afar góða raun. „Það er gaman og gefandi á báða bóga að fá sjálfboðaliða í heimsókn og oft myndast svo góður vinskapur.“ Linda segir heimsóknir með hunda vera verkefni sem hún vilji sjá um land allt. 50 Rauða kross deildir eru víðsvegar á landinu en aðeins þrjár til fjórar bjóða upp á heim- sóknir með hunda. „Það eru fordómar gagn- vart dýrum en fólk bráðnar þegar þau koma í heimsókn. Fólk sem hefur ekki viljað sjá þessi dýr í heimsókn, fussað og sveiað og haldið sig til hlés, bráðnar smátt og smátt. Að sjá brosin, þegar lifnar yfir fólki, er það sem mér finnst skemmtilegast við þetta.“ Forréttindi að koma að þessu verkefni Hundaeigendur, sem sækja um aðild að verkefninu, þurfa að sækja 3 klst. námskeið hjá Rauða krossinum. Í kjölfarið fara hund- arnir í atferlisskoðun en um hana sér Brynja Tomer. Í skoðuninni fer Brynja með hundana í ókunnugt umhverfi og fylgist með því hvernig þeir koma fram við ókunnuga. Það fyrsta sem hún skoðar er hvort hundarn- ir verða stressaðir eða halda ró sinni. Farið er með þá í lyftu, stiga og í rými sem mikið glymur í, líkt og getur fundist á stofnunum. „Við erum að leita að góða meðalhund- inum. Þar sem er eldra fólk, fólk í hjólastól- um og göngugrindum, skiptir máli að hund- arnir séu afar yfirvegaðir og frekar opnir en ekki æstir.“ Þá er æskilegt að þeir hafi mjúkt og fallegt yfirbragð og líkist hundum sem fólk minnist úr æsku sinni þegar það var í sveit. „Það eru forréttindi að fá að koma að svona verkefni. Þetta er viðurkenning á því að hundar skipta marga máli í daglegu lífi.“ Hundarnir Pollý og Karólína skiptast á að heimsækja heimilisfólkið í Sunnuhlíð Lifnar yfir fólki þegar hundarnir koma í heimsókn Kópavogsdeild Rauða krossins hefur und- anfarin tvö ár staðið fyrir heimsóknum með hunda Í HNOTSKURN »Hundarnir fara jafnt í heimsóknir áeinkaheimili og heilbrigðisstofnanir en fyrir síðarnefndu stöðunum þarf að sækja um sérstakt leyfi til yfirvalda. »Meðal þeirra heilbrigðisstofnana semeru heimsóttar eru hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð, Rjóðrið, sem er hvíldarheimili fyrir langveik börn, Roðasalir, sem er sambýli heilabilaðra o.fl. »Þá heimsækja hundarnir Enter-starfiðsvokallaða einu sinni í mánuði en það er starf með 9-12 ára innflytjendum. Morgunblaðið/RAX Aufúsugestur Pollýanna, eða Pollý eins og hún er alltaf kölluð, hefur heimsótt heimilisfólkið á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi í hálft annað ár við miklar vinsældir. Sjálfboðaliðar Lilja Bögeskov, Linda Ósk Sigurðardóttir með Pollý, Brynja Tomer með hvolpinn Brynfríði borubröttu og Guðleifur Magnússon með Karólínu. LANDSBANKINN hefur í sam- starfi við Félag starfsmanna Lands- banka Íslands, FSLÍ, tekið höndum saman um að gefa sérhverjum starfsmanni Landsbankans á Ís- landi bleikan varagljáa frá YSL til styrktar Krabbameinsfélaginu. „Á allra vörum“ er kynningar- og fjár- öflunarátak sem hefur að markmiði að leggja Krabbameinsfélaginu lið við kaup á nýjum stafrænum grein- ingarbúnaði sem eykur möguleika á greiningu krabbameins í brjóst- um á frumstigi. Það var að frumkvæði starfs- manna Landsbankans að starfs- mannafélagið beitti sér í málinu og greiðir félagið helming styrksins. Segir í tilkynningu að bankinn von- ist til að fleiri fyrirtæki fari að for- dæmi bankans. Bankamenn fá varagljáa að gjöf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.