Morgunblaðið - 03.05.2008, Page 6
6 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
KÓPAVOGSDEILD Rauða kross Íslands hef-
ur um árabil staðið fyrir heimsóknum í
Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra, en
fyrir tæpum tveimur árum var tekið upp á
þeirri nýbreytni að leyfa ferfætlingum að
gerast heimsóknarvinir.
Haustið 2006 hóf Pollý, sem er sjö ára
Cavalier king Charles spaniel, að heimsækja
heimilisfólkið í Sunnuhlíð einu sinni í viku
ásamt eiganda sínum, Lilju Bögeskov. Ári
síðar bættist Karólína í hópinn en hún er
rúmlega fjögurra ára tík, blanda af Springer
spaniel og Border collie, og skiptast nú
hundarnir á að mæta. Að sögn Guðleifs
Magnússonar, eiganda Karólínu, taka henni
flestir afskaplega vel og fær hún mikið af
strokum og atlotum. „Heimilisfólkið hefur
margt afskaplega gaman af þessu. Karólína
er svo spennt þegar við keyrum hingað upp
að húsinu, hún fer öll á ið og byrjar að láta
heyra í sér, hún veit hvert hún er að koma.“
Ekki er hún Pollý síður spennt að sögn Lilju.
„Hún byrjar að dingla rófunni þegar ég
keyri hingað, hún þekkir þetta. Heimsóknin
gleður fólk óskaplega mikið. Það knúsar
hana og klappar og sumir vilja fá hana upp í
rúm til sín.“
Lifnar yfir fólki að fá dýrin í heimsókn
Á öllu landinu eru 19 hundar sem fara í
heimsóknir með sjálfboðaliðum og þar af eru
12 í Kópavogi en þar hófst verkefnið. Heil-
brigðisstofnanir eru ekki einu staðirnir sem
hundarnir heimsækja en einnig er farið á
einkaheimili fólks. Þá er yfirleitt um að ræða
fólk sem er einmana og félagslega einangrað
en að sögn Lindu Óskar Sigurðardóttur,
framkvæmdastjóra Kópavogsdeildar Rauða
krossins, geta heimsóknir af þessu tagi rofið
einsemd og einangrun fólks og veitt því
hvatningu til að halda úr húsi, t.d. í göngu-
ferðir með hundana.
Að sögn Lindu kallast þeir sem fá heim-
sóknir gestgjafar og er ekki bara um eldra
fólk að ræða. Deildin vilji endilega fá fleiri
sjálfboðaliða en einnig fleiri gestgjafa.
„Stundum er eins og fólk finni fyrir vanmátt-
arkennd yfir því að þurfa að biðja einhvern
um að heimsækja sig,“ segir Linda en að
hennar mati hafa heimsóknirnar gefið afar
góða raun. „Það er gaman og gefandi á báða
bóga að fá sjálfboðaliða í heimsókn og oft
myndast svo góður vinskapur.“
Linda segir heimsóknir með hunda vera
verkefni sem hún vilji sjá um land allt. 50
Rauða kross deildir eru víðsvegar á landinu
en aðeins þrjár til fjórar bjóða upp á heim-
sóknir með hunda. „Það eru fordómar gagn-
vart dýrum en fólk bráðnar þegar þau koma
í heimsókn. Fólk sem hefur ekki viljað sjá
þessi dýr í heimsókn, fussað og sveiað og
haldið sig til hlés, bráðnar smátt og smátt.
Að sjá brosin, þegar lifnar yfir fólki, er það
sem mér finnst skemmtilegast við þetta.“
Forréttindi að koma að þessu verkefni
Hundaeigendur, sem sækja um aðild að
verkefninu, þurfa að sækja 3 klst. námskeið
hjá Rauða krossinum. Í kjölfarið fara hund-
arnir í atferlisskoðun en um hana sér Brynja
Tomer. Í skoðuninni fer Brynja með
hundana í ókunnugt umhverfi og fylgist með
því hvernig þeir koma fram við ókunnuga.
Það fyrsta sem hún skoðar er hvort hundarn-
ir verða stressaðir eða halda ró sinni. Farið
er með þá í lyftu, stiga og í rými sem mikið
glymur í, líkt og getur fundist á stofnunum.
„Við erum að leita að góða meðalhund-
inum. Þar sem er eldra fólk, fólk í hjólastól-
um og göngugrindum, skiptir máli að hund-
arnir séu afar yfirvegaðir og frekar opnir en
ekki æstir.“ Þá er æskilegt að þeir hafi
mjúkt og fallegt yfirbragð og líkist hundum
sem fólk minnist úr æsku sinni þegar það var
í sveit. „Það eru forréttindi að fá að koma að
svona verkefni. Þetta er viðurkenning á því
að hundar skipta marga máli í daglegu lífi.“
Hundarnir Pollý og Karólína skiptast á að heimsækja heimilisfólkið í Sunnuhlíð
Lifnar yfir fólki þegar
hundarnir koma í heimsókn
Kópavogsdeild Rauða
krossins hefur und-
anfarin tvö ár staðið
fyrir heimsóknum
með hunda
Í HNOTSKURN
»Hundarnir fara jafnt í heimsóknir áeinkaheimili og heilbrigðisstofnanir en
fyrir síðarnefndu stöðunum þarf að sækja
um sérstakt leyfi til yfirvalda.
»Meðal þeirra heilbrigðisstofnana semeru heimsóttar eru hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð, Rjóðrið, sem er hvíldarheimili
fyrir langveik börn, Roðasalir, sem er
sambýli heilabilaðra o.fl.
»Þá heimsækja hundarnir Enter-starfiðsvokallaða einu sinni í mánuði en það
er starf með 9-12 ára innflytjendum.
Morgunblaðið/RAX
Aufúsugestur Pollýanna, eða Pollý eins og hún er alltaf kölluð, hefur heimsótt heimilisfólkið
á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi í hálft annað ár við miklar vinsældir.
Sjálfboðaliðar Lilja Bögeskov, Linda Ósk Sigurðardóttir með Pollý, Brynja Tomer með
hvolpinn Brynfríði borubröttu og Guðleifur Magnússon með Karólínu.
LANDSBANKINN hefur í sam-
starfi við Félag starfsmanna Lands-
banka Íslands, FSLÍ, tekið höndum
saman um að gefa sérhverjum
starfsmanni Landsbankans á Ís-
landi bleikan varagljáa frá YSL til
styrktar Krabbameinsfélaginu. „Á
allra vörum“ er kynningar- og fjár-
öflunarátak sem hefur að markmiði
að leggja Krabbameinsfélaginu lið
við kaup á nýjum stafrænum grein-
ingarbúnaði sem eykur möguleika
á greiningu krabbameins í brjóst-
um á frumstigi.
Það var að frumkvæði starfs-
manna Landsbankans að starfs-
mannafélagið beitti sér í málinu og
greiðir félagið helming styrksins.
Segir í tilkynningu að bankinn von-
ist til að fleiri fyrirtæki fari að for-
dæmi bankans.
Bankamenn fá varagljáa að gjöf