Morgunblaðið - 03.05.2008, Side 9

Morgunblaðið - 03.05.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 9 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið virka daga 10.00-18.00 Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00 SUMARAFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR af öllum vörum í dag laugardag iðunn tískuverslun Kringlunni, s. 588 1680 Peysudagar 25% afsláttur af peysum og bolum www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Hvítir jakkar vesti og kvartbuxur Str. 36 - 56 20%afsláttur af Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 fatnaði Langur laugardagur Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Stakir jakkar, kjólar og pils í úrvali Laugavegi 63 • S: 551 4422 Stuttkápur Stuttjakkar 20% afsláttur af völdum slám STJÓRN Samtaka atvinnulífsins hvetur aðildarfyrirtæki samtakanna til þess að gæta hófs og aðhalds við verðlagningu í því umróti sem ríkir um þessar mundir. Samdráttur eftirpurnar er fyrirsjáanlegur og af því leiðir að ekki verður unnt að velta öllum kostnaðarhækkunum áfram út í verðlag. Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórn- ar Samtaka atvinnulífsins komu fram þungar áhyggjur af stöðu efna- hagsmála. „Vandi á fjármálamörk- uðum, hátt vaxtastig, fyrirsjáanleg- ur samdráttur í umsvifum og at- vinnu, vaxandi verðbólga erlendis, veik staða krónunnar og mikil verð- bólga innanlands um þessar mundir vegna gengislækkunar eru þættir sem hafa gríðarleg áhrif á afkomu fyrirtækja og kjör launafólks. Fyr- irsjáanlegt er að aðlögun að breytt- um aðstæðum verði erfið og taki tíma. Stjórnin telur afar brýnt að allir aðilar sem áhrif hafa á fram- vinduna á næstu mánuðum og miss- erum, þ.e. ríkisstjórn, stjórnarand- staða, sveitarfélög og aðilar á almennum og opinberum vinnu- markaði, stilli saman strengi sína með það að markmiði að draga úr verðbólgu og koma í veg fyrir að há- ar verðbólguvæntingar festist í sessi,“ að því er segir á vef Samtaka atvinnulífsins. Þar kemur fram að hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu og mat- vælum hafi rýrt kjör þjóðarinnar og á sama tíma þurfi þjóðin að horfast í augu við að hátt gengi krónunnar undanfarin ár hafi haldið uppi hærri kaupmætti en fékk staðist til lang- frama. „Við núverandi aðstæður er yfirvofandi hætta á víxlverkandi hækkunum launa og verðlags og áframhaldandi veikingu gengis krónunnar sem allir tapa á. Þá at- burðarás er hægt að koma í veg fyr- ir,“ samkvæmt frétt á vef SA. Stjórn SA hvetur til hófs í verðhækkunum Óttast víxlhækkanir verðlags og launa og áframhaldandi veikingu krónunnar SAMTÖKIN Vinir Tíbets halda áfram vikulegum útifundum fyrir utan kínverska sendiráðið til stuðn- ings mannréttindabaráttu Tíbeta. Fundirnir eru venjulega á laugar- dögum kl. 13. „Tíbet er enn lokað, engir erlend- ir fjölmiðlar hafa aðgang að land- inu, engin mannúðarsamtök hafa aðgang að landinu, engir erlendir diplómatar fá aðgang að landinu. Eina fólkið sem fer inn í Tíbet eru kínverskir hermenn,“ segir í til- kynningu frá samtökunum. Samtökin árétta einnig að engin skemmdaverk á sendiráðinu hafa verið unnin af þeirra hálfu. Mótmælin halda áfram GRÆNA netið stendur á morgun, sunnudag, fyrir leiðsöguferð á Þingvelli til að kynna fyrir fólki umdeild vegarstæði milli Þingvalla og Laugarvatns. Einar Sæmunds- son, fræðslufulltrúi Þingvalla- þjóðgarðs, sér um leiðsöguferðina. Lagt verður að stað kl. 11 frá um- ferðarmiðstöðinni og er ráðgert að koma til baka um kl. 17. Fargjald er 1.500 kr. en ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára. Ekið verður og gengið um vegastæðin, komið við í þjónustumiðstöðinni og farið að Flosagjá. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig á sas@vortex.is til að vera öruggir um far. Vettvangsferð um Gjábakkaveg KVARTANIR hafa undanfarið bor- ist Hundaeftirliti Reykjavíkur og stjórn hesta- mannafélags- ins Fáks vegna lausa- göngu hunda á svæði Fáks. Hundaeft- irlitsmenn hafa rætt við hundaeig- endur og bent þeim á að lausa- ganga hunda er bönnuð. Ef hundar trufla hesta verður talsverð slysahætta og hafa ófá slys orðið á liðnum árum. Í frétt frá borginni eru hundaeigendur beðnir um að sýna aðgát í nánd við hesta jafnvel þótt hundarnir séu í taumi. Hundaeftirlitsmenn munu færa þá hunda sem ganga lausir á svæðinu í hundageymslu. Hundaeftirlitið minnir einnig á að á varptíma fugla 1. maí-15. ágúst er óheimilt að vera með hunda í Heiðmörk. Kvartanir vegna hunda á Fáks- svæðinu SAMRÁÐSFUNDIR borgarstjóra með íbúum verða í dag, laugardag- inn 3. maí, í þremur hverfum borg- arinnar. Í Hlíðum verður fundur í Há- teigsskóla kl. 11-13. Í Laugardal verður fundur í Laugalækjarskóla kl. 13-15 og í miðborginni verður samráðsfundur með borgarstjóra í sal Menntasviðs v/Fríkirkjuveg 1 kl. 14-16. Samráðsfundir borgarstjóra SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Lands- björg hefur sett upp upplýsingavef- inn www.safetravel.is en hann er hugsaður fyrir erlenda ferðamenn. Vefurinn er á sex tungumálum, ensku, þýsku, frönsku, ítölsku, spænsku og íslensku. Á vefnum er farið yfir ferðamennsku á breiðum grunni hér á landi en fjallað er um akstur, veður, gönguferðir, hjól- reiðar, hestaferðir, fjarskipti, köf- un, siglingar, skyndihjálp, hvera- svæði, klifur, íslenska náttúru og neyðar- og björgunarmál. Unnið er að því að koma upplýs- ingum um www.safetravel.is á heimasíður sem flestra þjónustuað- ila og í raun alla þá staði sem ferða- fólk er líklegt til að heimsækja svo upplýsingar um öryggismál verði aðgengilegar öllum þeim sem vilja njóta íslenskrar náttúru, segir í til- kynningu. Nýr vefur um öryggismál ferðafólks

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.