Morgunblaðið - 03.05.2008, Síða 18

Morgunblaðið - 03.05.2008, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING FEÐGININ Erla Stef- ánsdóttir söngkona og Stefán S. Stefánsson saxófónleikari standa fyrir tónleikum í Múl- anum á Domo annað kvöld kl. 21, þar sem flutt verður tónlist eftir Bítlana í útsetningum Stefáns. Þeim til fulltingis verða Kjartan Valdemarsson píanóleikari, Róbert Þórhalls- son bassaleikari og Erik Qvick trommuleikari. sem með Stef- áni mynda Kvass-kvartettinn. Sérstakur gestur er Snorri Sigurðarson trompetleikari. Þau flytja lögin I will, Fixing A Hole, Got To Get You Into My Life, Things We did Today og fleiri. Tónlist Bítlað á djassísku í Múlanum Erla Stefánsdóttir LENGI hefur staðið til að norska djasssöngkonan Eld- björg Raknes kæmi til Íslands og héldi hér tónleika. Nú verð- ur loksins af því í samvinnu Jazzvakningar, Norska sendi- ráðsins í Reykjavík og Tónlist- arskóla FÍH. Tónleikarnir verða á morgun kl. 20 í sal FÍH við Rauðagerði og er aðgangur ókeypis. Eldbjörg hefur verið atvinnusöngkona frá 1991 og hefur m.a. sungið með trompetleikaranum Arve Henriksen. Í frétt um tónleikana segir að Eld- björg búi yfir mjög fallegri rödd og tónlist hennar sé frumleg og djörf án þess að vera tyrfin. Tónlist Eldbjörg Raknes loksins á Íslandi Eldbjörg Raknes RÁS 1 sendir út beint frá sýn- ingu Metrópólitan-óperunnar í New York á óperu Mozarts, Brottnáminu úr kvennabúrinu í kvöld, en þar fer Kristinn Sig- mundsson bassasöngvari með eitt aðalhlutverkanna. Kristinn syngur hlutverk ráðsmannsins Osmins og hefur fengið afar lofsamlega dóma fyrir túlkun sína á hinum groddalega um- sjónarmanni kvennabúrsins. Í helstu hlutverkum öðrum eru Diana Damrau, Aleksandra Kurzak, Matthew Polezani og Steve Davislim. Útsendingin hefst kl. 19 og kynnir í út- sendingunni er Magnús Lyngdal Magnússon. Tónlist Kristinn beint frá Metropolitan Kristinn Sigmundsson Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞAÐ er guðdómlegt veður hérna; þetta er yndislegt!“ segir danski trompetleikarinn Per Nielsen, hæst- ánægður með að vera kominn til Ís- lands. Hann leikur á tónleikum í Langholtskirkju kl. 15 í dag á vegum Listafélags kirkjunnar. Meðleikari hans á píanó er Carl Ulrik Munk- Andersen. Puccini, Elton John, Mama Cass „Ég ætla að spila úrval af því sem er á plötunum mínum,“ segir tromp- etleikarinn; „… allt frá klassík, eins og O mio babbino caro eftir Puccini, til dægurlaga, eins og Can you feel the love tonight, eftir Elton John. Við spilum líka alþýðusálma eins og Amazing Grace. Við verðum með nokkur atriði með þessum frábæra kammerkór sem Jón Stefánsson er með í kirkjunni. Þar er Laudate dominum eftir Mozart. Ég hafði áhyggjur af því að við myndum þurfa að æfa þetta mjög mikið; en Jón sannfærði mig um að kórinn kynni þetta, og svo reyndist vera. Við spilum líka með kórnum í Jesu bleibet meine Freude, eftir Bach, og í Dream a little dream of me, sem þekkast var í flutningi Mamas and the papas.“ Þegar ég spyr Per hvers vegna hann kjósi að blanda saman alls lags tónlist, svarar hann einfaldlega, að það sé það sem hann hafi áhuga á og hafi gert. Það hafi líka sýnt sig að þannig vilji fólk hlusta, enda hafi enginn klassískur tónlistarmaður í Danmörku selt jafnmargar plötur. Og það er laukrétt hjá Per Nielsen. Hann hefur gefið út 14 plötur með trompetleik sínum sem selst hafa í yfir 350.000 eintökum og fengið átta gullplötur og fjórar platínuplötur (yfir 35.000 eintök). Hann er sölu- hæsti klassíski hljóðfæraleikari Danmerkur. Og til marks um vin- sældir hans, þá hélt hann 20 jóla- tónleika víða um Danmörku fyrir síðustu jól, og var uppselt á þá alla. Vill brjóta niður múrana „Það er alveg klárt að stór hluti þeirra sem njóta tónlistar vilja hlusta jafnt á klassík og dægur- tónlist. Það gleður mig ef ég get átt minn þátt í að brjóta niður múrana milli klassískrar tónlistar og ann- arrar tónlistar. Ég hef átt farsælan feril sem klassískur tónlistarmaður og spilað í Suður-jósku sinfóníu- hljómsveitinni í 29 ár. Klassísku tón- bókmenntirnar hef ég spilað marg- oft í gegn. En ég finn að meðal kollega minna er stundum litið niður á dægurtónlistina. Ég fullyrði samt að það sé óþarft. Klassík og dægur- tónlist eiga marga snertifleti. Tök- um bara Elton John, hann er snill- ingur í því að smíða góðar laglínur – alveg eins og Puccini. Þetta eiga þeir sameiginlegt. Það sem gleður mig mest er að finna hve margir fara að hlusta á klassíska tónlist eftir að hafa heyrt dægurtónlist í þessum búningi,“ segir Per Nielsen. „En vinsældir mínar komu ekki fyrir- hafnarlaust. Fyrsta platan mín var ekki góð, en ég hef unnið markvisst að þessu, kostað mínar upptökur sjálfur og lagt hart að mér til að ná markmiðum mínum,“ segir Per Niel- sen. Einn vinsælasti hljóðfæraleikari Dana, Per Nielsen, leikur í Langholtskirkju í dag Trompetleikarinn Per Nielsen kveðst vilja brjóta niður múra í tónlistinni. Laglínusnillingarnir Elton John og Puccini YFIRLITSSÝNING um íslenska myndlist í eigu Listasafns Íslands var opnuð í Skandinavíu-húsinu í New York hinn 1. maí. Um er að ræða sýningu á skúlptúrum, innsetn- ingum, málverkum, ljósmyndum og myndbandsverkum eftir vel þekkta íslenska listamenn; Þórdísi Að- alsteinsdóttur, Olgu Bergmann, Hildi Bjarnadóttur, Margréti H. Blöndal, Ólaf Elíasson, Steingrím Eyfjörð, Gabríelu Friðriksdóttur, Huldu Hákon, Gjörningaklúbbinn, Guðnýju Rósu Ingimarsdóttur, Heklu Dögg Jónsdóttur, Ragnar Kjartansson, Ólöfu Nordal, Jón Ósk- ar, Eggert Pétursson, Katrínu Sig- urðardóttur, Hrafnkel Sigurðsson, Magnús Sigurðarson og Huldu Stef- ánsdóttur. Ólík viðhorf til náttúrunnar Sýningin ber heitið From Another Shore; Recent Icelandic Art eða Frá annarri ströndu; nýleg íslensk list, og er Halldór Björn Runólfsson for- stöðumaður Listasafns Íslands sýn- ingarstjóri. Hann segir það marka mun á milli listamannanna hversu ólík viðhorf þeir hafa til náttúrunn- ar, sem þó er grundvöllur listar þeirra, hvort heldur það er meðvitað eða ekki. „Samtímalist á Íslandi stendur föstum fótum í landslaginu, en á þó lítið sameiginlegt með evr- ópskri landslagshefð.“ Sýningunni er ætlað að afhjúpa nýjar stefnur og strauma í íslenskri myndlist og sýna hvers íslenskur listheimur er megnugur. Náttúran í forgrunni Sýning á íslenskri sam- tímalist í New York Ólöf Nordal á verk á sýningunni. ÞAÐ skal áréttað að Pólsk menn- ingarhátíð sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir, er haldin í dag, í fyrirlestrasal Þjóð- minjasafnsins, og hefst kl. 14. Pólska hátíðin er í dag ÞAÐ verður bjart yfir Hvergerðingum 30. maí til 1. júní því þá mun standa yfir í bæn- um tónlistarhátíðin Bjartar sumarnætur, í Hveragerðiskirkju. Þrennir tónleikar verða haldnir í kirkj- unni yfir þá helgi, á föstudags-, laugar- dags- og sunnudags- kvöldi. Dagskráin er fjölbreytt og aðgengi- leg og við allra hæfi, að því er segir í tilkynningu. Á föstudagskvöldinu hefjast hátíð- artónleikar kl. 20, tileinkaðir tón- skáldinu Johannesi Brahms. Næsta dag, 31. maí, hefjast tónleikar kl. 17 og verða m.a. leikin verk eftir Mess- iaen og Mozart. Diddú, þ.e. Sigrún Hjálmtýsdóttir, syngur valdar aríur, m.a. aríu Næturdrottningarinnar úr Töfraflautu Mozarts. Einnig verður heiðruð minning vísnasöngkonunnar Bergþóru Árnadóttur frá Hvera- gerði með flutningi á lagi hennar, „Hveragerði“. Á sunnudagskvöld hefjast tón- leikar kl. 20 sem bera yfirskriftina Með frönskum blæ. Á þeim verður boðið upp á franska tónlist í léttari kantinum en auk þess munu Hvera- gerðislög hljóma í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar. Listrænir stjórnendur hátíðarinnar eru sem fyrr hjónin Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran selló- leikari. Peter Máté píanóleikari skipar með þeim Tríó Reykjavíkur sem kemur fram á hátíðinni. Af öðrum sem koma fram og flytja tónlist má nefna Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur píanóleikara, Sigurð I. Snorrason klarinettuleikara, Þór- unni Ósk Marinósdóttur víóluleikara og fiðluleikarann Huldu Jónsdóttur. Miðasala fer fram hjá bæjarskrif- stofum Hveragerðis, á bókasafninu og við inngang kirkjunnar. Tónlistarhátíðin Bjartar sumarnætur haldin í Hveragerði Fjölbreytt, aðgengileg dagskrá við allra hæfi Tríó Reykjavíkur Tríóið skipa Guðný Guðmunds- dóttir, Peter Maté og Gunnar Kvaran. „ÞETTA er stór- merkilegt fyrir okkur Íslend- inga, því þótt við höfum vitað að við ættum um 300 verk eftir hann, þá var stærri parturinn af þeim óskráður og óyfirfarinn,“ segir Nína Magn- úsdóttir safn- stjóri í Ný- listasafninu, en nú um helgina gefst almenningi kostur á að kynna sér verk Dieters Roth í safneign Nýló. Á síðustu vik- um hefur safnið verið að skrá og ljósmynda verk Dieters. „Hér eru t.d. pinkulítil bókverk sem eru mjög verðmæt og aðeins til í fáum eintökum og margir mjög skemmti- legir molar.“ Plötur Dieters verða á fóninum og munu tónsmíðarnar óma um safnið. Óformleg leiðsögn um verkin verður á milli kl 13 og 17 í dag. Dieter Roth kemur upp úr kössunum Nýskráð verk, sum ósýnd, nú í Nýló Dieter Roth „Pinkulítil bókverk og skemmtilegir molar.“ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.