Morgunblaðið - 03.05.2008, Síða 20

Morgunblaðið - 03.05.2008, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Árborg | „Sérfræðingur umhverf- ismála er nýtt starf hjá Árborg og er að hluta til enn í mótun. Starfið felst í að sinna verkefnum tengdum Stað- ardagskrá 21. Ég rýni í skipulags- málin með tilliti til umhverfis- þátta, er í sam- starfi við ýmis fé- lög sem tengjast umhverfis- og náttúrumálum og efli tengsl við íbúa sveitarfé- lagsins, stofnanir og fyrirtæki til þess að gera sveitarfélagið að sjálfbæru og frábæru samfélagi, sagði Katrín Georgsdóttir, sem tók fyrir skömmu til starfa hjá Sveitar- félaginu Árborg, þegar hún var spurð um nýja starfið. Katrín er fædd í Gautaborg í Sví- þjóð árið 1973 og fluttist þaðan tveimur árum seinna á Akranes. Faðir hennar er þaðan en móðir frá Núpi í Dýrafirði. Katrín kláraði Fjölbrautaskólann á Akranesi, fór síðan sem skiptinemi til Arnhem í Hollandi í eitt ár og kom heim. Hún staldraði ekki lengi við á Íslandi og fór aftur til Hollands, nánar tiltekið til Deventer í nám í umhverf- isfræðum, sem hún kláraði á fimm árum. Í Hollandi kynntist hún eig- inmanni sínum, Christian Elgaard, sem er Dani og eiga þau tvær dætur, Mathildu Ásu og Reginu. Katrín ákvað að skella sér í meira nám í „Konunglega landbún- aðarskólanum á Fredriksberg“ og svo fór hún í tækniskóla og tók kúrsa í grafískri hönnun. Eftir að Katrín og Christian fluttu til Íslands hóf hún störf hjá Vinnuskóla Reykjavíkur á umhverfissviði Reykjavíkurborgar og starfaði þar frá því í mars 2006 þar til hún tók við nýja starfinu hjá Árborg. „Mér finnst ég hafa hlotið besta starfið í heiminum og algjörlega dottið í lukkupottinn með nýja starf- inu í Árborg. Ég hef reyndar bara starfað í rúmlega tvo mánuði og er því bara rétt að kynnast öllum og ná tökum á fyrirliggjandi verkefnum. Það sem gerir þetta starf svo spenn- andi er að með ráðningunni er sveit- arfélagið að setja umhverfismálin efst í stjórnsýsluna, eitt af fáum sveitarfélögum á landinu, og þar með stefnir sveitarfélagið á að vera í forystunni hvað varðar umhverf- ismál. Ég er að kynnast sveitarfélaginu og hef fengið að fara með ýmsu góðu fólki í skoðunarferðir og reyni eftir fremsta megni að soga til mín vitn- eskju þeirra og er að lesa heilan helling um Árborg og Árnessýslu. Mér hefur verið svakalega vel tekið og gengið mjög vel hingað til, sagði Katrín um nýja starfið og hvernig það hefur gengið. Tökum á – tökum til Þessa dagana er sérstakt um- hverfisátak í gangi sem kallast „Tökum á – tökum til. Átakið geng- ur út á að hvetja íbúa og fyrirtæki í sveitarfélaginu til að taka til, ekki bara á eigin lóðum heldur huga að umhverfinu öllu í kringum sig. Starfsmenn framkvæmda- og veitusviðs keyra svo um svæðið og hirða upp garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðarmörk. En hvernig hefur gengið að virkja íbúa og eigendur fyrirtækja í átak- inu? „Mér sýnsit það ganga ljómandi vel. Íbúar hafa tekið vel við sér og maður sér að bærinn er að lifna við eftir veturinn. Við byrjuðum átakið föstudaginn 25. apríl með því að allir starfsmenn Ráðhússins og fram- kvæmda- og veitusviðs fóru út og tóku til. Við fengum líka leik- og barnaskóla með okkur í lið þennan dag og nýnemar úr Fjölbrautaskól- anum tíndu rusl í nágrenni við skól- ann alla vikuna. Þetta var alveg frá- bært og maður sá árangurinn strax. Umhverfismálin byrja nefnilega alltaf fyrst hjá manni sjálfum. Best er að spyrja „hver er ég?“ Er ég týp- an sem hendi rusli út um bílglugg- ann til þess að einhver annar, sem fær borgað frá sveitarfélaginu, geti gengið á eftir mér með poka og tekið til eftir mig? Eða tek ég ábyrgð og hendi mínu rusli sjálf? Þetta er spurning um innri mann og hvernig samfélagi þú vilt búa í. Ég er mjög hrifin af orðatiltækinu: „Hver er sinnar gæfu smiður“ og það á við umhverfismálin líka. Maður býr til sitt eigið umhverfi, umhverfið er maður sjálfur, sagði Katrín. Hjól í ráðhúsið Þegar Katrín er spurð að því hvað sé helst fram undan hjá Árborg á sviði umhverfismála stendur ekki á svarinu. „Það eru bara skemmtilegir tímar framundan í Árborg. Við erum að fá hjól í ráðhúsið. Þetta er til- raunaverkefni þar sem starfsmenn fá afnot af hjólum til þess að fara á fundi og annað. Við erum búin að reikna það út að það tekur ekki nema 2 til 8 mínútur á hjóla í aðrar stofnanir á Selfossi. Með því að hvetja fólk til að hjóla ýtir maður undir heilbrigðari lífsstíl, minnkar mengun, minnkar slysahættu, minnkar álag á vegum og skapar betri starfsskilyrði fyrir starfsfólkið. Þannig eru starfsmenn sveitarfé- lagsins fyrirmyndir. Árborg er alveg frábært svæði til að hjóla á. Það er jafn-flatt og Danmörk og Holland og ég hlakka mikið til að flytja og fara að hjóla daglega á ný. Svo eru enda- laus önnur skemmtileg mál í deigl- unni. „Árborg býður upp á svo svaka- lega mikla möguleika. Fjölbreytnin í samfélaginu er mjög mikil. Náttúran er sterk með Ölfusá og votlendið allt um kring, Flóann og stórkostlegu hraunfjörurnar. Sagan bæði jarð- fræðilega og ekki síst menning- arlega er ótrúlega merkileg. Val á búsetu er frábært, maður getur val- ið um það að búa í sveit en samt í nokkurra kílómetra fjarlægð við þjónustu og verslun og líka valið fjölskylduhverfi með öllu sem því fylgir, búið við hafið í þorpum með mikla sögu og í nánd við ótrúleg náttúruöfl og fegurð og svo í miðbæ og ferðast ókeypis um í strætó. Mín framtíðarsýn er Árborg sem hjólaborg, þar sem sjálfbær þróun er raunveruleiki en ekki lífs- gæðaskerðing. Náttúran, græn svæði, göngu-, reið- og hjólastígar eru grunnurinn að öllu skipulagi. Í Árborg eru íbúar meðvitaðir um mikilvægi góðrar fyrirmyndar með ábyrgð og umhyggju gagnvart um- hverfi og samfélaginu í heild. Ár- borg er sveitarfélag þar sem fyr- irtæki eru meðvituð um endur- nýtingu auðlinda, þau leggja metnað sinn í að draga úr úrgangi og hafa nýsköpun í fyrirrúmi. Árborg hefur allt það sem gefur lífinu lit,“ sagði Katrín. Árborg verði hjólaborg Umhverfisverðlaun Árborgar Gunnar Björnsson, sóknarprestur á Selfossi, fékk verðlaunin fyrir mikla elju og dugnað við að fræða unga sem aldna í ræðu og riti um gildi þess að ganga vel um náttúruna og fyrir að sýna gott fordæmi, Sund- deild Ungmennafélags Selfoss fékk verðlaunin fyrir gott starf á und- anförnum árum við að halda miðbæ Selfoss hreinum og snyrtilegum um helgar og Matvælastofnun fékk verðlaunin fyrir góðan frágang á lóð og umhverfi við Austurveginn á Selfossi. Hér eru verðlaunahafarnir, ásamt bæjarstjóra og formanni um- hverfisnefndar Árborgar, f.v. Ragn- heiður Hergeirsdóttir, Jón Gíslason, Kristinn Ágúst Friðfinnsson, Gunn- ar Björnsson og Jóhann Óli Hilm- arsson. Katrín Georgs- dóttir er sérfræð- ingur umhverfis- mála hjá Árborg Katrín Georgsdóttir ÁRBORGARSVÆÐIÐ Tvær sýningar sem eru hluti af há- tíðinni List án landamæra, verða opnaðar á Akureyri í dag.  Snúist í hringi, nefnist myndlist- arsýning sem opnuð verður kl. 15 í dag í Ketilhúsinu. Þar eru verk eft- ir Rósu Júlíusdóttur og Karl Guð- mundsson en þau hafa unnið saman að listsköpun í fjöldamörg ár, „bæði sem kennari og nemandi en líka sem félagar/vinir í listinni. Þau hafa haldið sameiginlegar listsýn- ingar og tekið þátt í margskonar samsýningum. Einnig hafa þau haldið fyrirlestra um samvinnu sína í tengslum við sýningarnar og á ráðstefnu um menntamál,“ eins og segir í tilkynningu. Næm listræn tilfinning Karl Guðmundsson útskrifaðist af myndlistabraut Verkmennta- skólans á Akureyri vorið 2007 og í mörg ár hefur hann komið á vinnu- stofu Rósu Kristínar til náms og leiks. „Karl býr yfir næmri list- rænni tilfinningu,“ segir Rósa Kristín. Hún útskrifaðist úr mál- unardeild Listaakademíunnar í Bologna á Ítalíu og kenndi við Myndlistaskólann á Akureyri frá 1980 – 2000 og var stundakennari við LHÍ í nokkur ár. Rósa er lektor í myndlista- kennslu við Háskólann á Akureyri.  Í dag verður opnuð í Dalí Gallery sýning á úrvali verka nemenda á starfsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri. Meðal annars má sjá myndbandsverk, textíl, málverk, teikningar og skúlptúra. Sýningin stendur til sunnudagsins 11. maí. Allir eru velkomnir á báðar sýn- ingar. Kalli og Rósa snúast í hringi í Ketilhúsinu „TILGANGURINN er í raun sá að sýna hvað söfnin við Eyjafjörð eru fjölbreytt,“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir, kynningarfulltrúi Minjasafnsins á Akureyri, um ástæðu þess að í dag er Eyfirski safnadagurinn haldinn hátíðlegur annað árið í röð. Aðgangur er ókeypis á öll söfn við fjörðinn og boðið upp á fríar rútuferðir frá Ak- ureyri. Yfirskrift dagsins er Vertu gestur í heimabyggð og eru öll söfnin opin frá kl. 11 til 17. „Fólkið í heima- byggð er bestu kynningarfulltrúarn- ir okkar,“ segir Kristín Sóley, og vonast til þess að heimamenn bendi gestum sínum „á þá skemmtilegu af- þreyingu sem söfnin eru,“ segir hún. Söfnin kynna starfsemi sína í dag og að þessu sinni verður áherslan á innra starf safna. Af því tilefni gefst gestum meðal annars tækifæri á því að láta greina gersemar úr fórum sínum í Minjasafninu á Akureyri, á Byggðasafninu Hvoli á Dalvík verð- ur hægt að fylgjast með hvernig safnmunir eru skráðir og í Gamla bænum Laufási verður kynning og sýnikennsla á torfhleðslu en torfbær krefst mikils viðhalds og þá gildir að hafa handverkið í lagi. Á Síldar- minjasafni Íslands á Siglufirði verða bátasmiðir að vinna að safnkostinum í Bátahúsinu, safn viðtala við iðn- verkafólk verður kynnt á Iðnaðar- safninu og á Safnasafninu verður safnastefna þess einstaka safns kynnt. Þessi söfn verða opin í dag á Ak- ureyri: Amtsbókasafnið, Davíðshús, Flugsafn Íslands, Iðnaðarsafnið, Listasafnið, Minjasafnið, Nonnahús og Sigurhæðir. Önnur eru byggða- safnið Hvoll á Dalvík, gamli bærinn í Laufási, Holt – hús Öldu Halldórs- dóttur í Hrísey, Hús Hákarla-Jör- undar í Hrísey, Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar, Safnasafnið, Síldar- minjasafn Íslands á Siglufirði, Smá- munasafn Sverris Hermannssonar og Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þor- steinssonar á Siglufirði. Allir geta fengið ókeypis far á söfnin, því safnarútur munu keyra á öll söfn í Eyjafirði og safnastrætó milli safna á Akureyri. Leiðirnar sem farnar verða eru sem hér segir: Safnarúta 1: Frá Upplýsingamið- stöð ferðamanna, Hafnarstræti 82, kl. 10. Fer á Smámunasafn Sverris Hermannssonar, Safnasafnið og Gamla bæinn Laufás. Leiðsögumað- ur er með í för og áætluð heimkoma kl 15. Safnarúta 2: Frá Upplýsingamið- stöð ferðamanna, Hafnarstræti 82, kl. 10. Fer á Byggðasafnið Hvol á Dalvík, Náttúrugripasafnið í Ólafs- firði, Þjóðlagasetrið og Síldarminja- safn Íslands á Siglufirði. Leiðsögu- maður með í för. Áætluð heimkoma kl. 17. Hríseyjarferð: Farið með safna- rútu 2 út á Árskógssand – siglt til Hríseyjar, leiðsögn í húsi Hákarla- Jörundar og Ölduhúsi – siglt með ferju með leiðsögn til Dalvíkur og farið á Byggðasafnið Hvol. Ferð með safnarútu 2 á leið til baka til Akureyrar. Áætluð heimkoma kl. 17. Söfnin við Eyjafjörð mjög fjölbreytt Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Forvitnilegt Safnasafnið á Svalbarðsströnd er eitt margra skemmtilegra safna við Eyjafjörð. Þar eru nú margar sýningar alþýðulistamanna. Í HNOTSKURN »Ókeypis er inn á öll söfn ásvæðinu í dag, Eyfirska safnadaginn. Allir geta fengið ókeypis far á söfnin frá Akureyri, því safnarútur munu keyra á öll söfn í Eyjafirði, og safnastrætó milli safna á Akureyri. Safnarút- urnar leggja af frá Upplýsinga- miðstöð ferðamanna kl. 10.  Kór Akureyrarkirkju heldur tvenna tónleika í dag; í Dalvíkur- kirkju kl. 14 og í Ólafsfjarðarkirkju kl. 17. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Þá syngur Kvennakór Akureyrar í Akureyrarkirkju á morgun kl. 16.30. Miðaverð er 1.500 kr. en frítt fyrir börn yngri en 12 ára. Á engum tónleikanna er tekið við greiðslu- kortum.  Sýning myndlistarmannsins Kjartans Sigtryggssonar verður opnuð í dag á Café Karolínu.  Franski dúettinn Triskyn er með tónleika í Minjasafnskirkjunni í kvöld kl. 20.30. Verð 1.000 kr.  Minningarleikur um Guðmund Sigurbjörnsson, fyrrverandi for- mann Íþróttafélagsins Þórs, verður á morgun kl. 14 í Boganum. Þar mætast karlalið Þórs og KA í knatt- spyrnu. Guðmundur lést langt um aldur fram, aðeins 49 ára, árið 1998. Tónleikar og knattspyrna SIGURÐUR Kristinsson hefur verið ráðinn deildarforseti hug- og félagsvís- indadeildar frá 1. maí. Það er ný deild sem verður til með samein- ingu félagsvís- inda- og laga- deildar og kennaradeildar 1. ágúst nk. Sigurður hefur starfað við Háskólann á Ak- ureyri frá árinu 2000, þar af sem starfandi deildarforseti félagsvís- inda- og lagadeildar frá 1. júní 2007. Sigurður Kristinsson Sigurður var ráðinn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.