Morgunblaðið - 03.05.2008, Page 32

Morgunblaðið - 03.05.2008, Page 32
32 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Halldór SigmarGuðmundsson fæddist í Mýrarkoti í Grímsneshreppi í Árnessýslu 16. apríl 1918. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Sel- fossi þann 25. apríl sl. Foreldrar hans voru Þóranna Theódóra Árna- dóttir, f. 14. ágúst 1882, d. 7. febrúar 1954, og Guð- mundur Björnsson, f. 30. desember 1882, d. 31. jan- úar 1969. Alsystkini Halldórs voru; Guðrún Ragna, f. 1921, d. 1987, og Ólafur Árni, f. 1922, d.1974. Systkini hans sammæðra voru Guðríður Ásta Halldórs- dóttir, f. 1904, d. 1982, Sigríður Margrét Halldórsdóttir, f. 1906, d. 1915, Ingveldur Halldórs- dóttir, f. 1908, d. 1935, og Hall- dór Halldórsson, f. 1909, d. 1917. Halldór kvæntist 26. desember 1947 Ástu Böðvarsdóttur, f. 22. september 1922, d. 1. ágúst 1993. Þau bjuggu lengst af á Sæfelli á Eyr- arbakka. Börn þeirra eru: 1) Böðv- ar Ingvars, f. 26. júní 1948, kvæntur Höllu Emilíu Jóns- dóttur, f. 1949. Þau eiga þrjár dætur og sjö barnabörn. 2) Guðríður Ásta, f. 9. janúar 1953, gift Jóni Sighvatssyni, f. 1946. Börn hennar frá fyrra hjónabandi eru tvö og barnabörnin þrjú. 3) Ólafía Anna, f. 4. nóvember 1955, í sambúð með Vigfúsi Guðmundssyni, f. 1955. Börn hennar frá fyrra hjónabandi eru tvö og barnabörn fimm. 4) Ingveldur Dagmar, f. 16. ágúst 1957, gift Guðmundi Stefánssyni, f. 1954. Þau eiga fjögur börn og tvö barnabörn. Útför Halldórs verður gerð frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14. Elsku afi okkar. Baráttan við veikindin er nú búin og nú ertu kominn á betri stað og líður vel hjá ömmu okkar. Þú varst okkur börnunum alltaf svo góður og kær og það mun ávallt sitja fast í minningunni. Stundum hjálpuðum við þér að taka upp kartöflur og þú kallaðir til Ástu ef þú sást kartöflurnar liggja sunnan eða vestan megin við hana. Þá varð hún svo áttavillt og snerist í marga hringi. Alltaf vissum við að við fengj- um eitthvað gott þegar við kom- um á Sæfell, ís og ávextir voru alltaf á boðstólum. Ef þér þótti vanta ábót þá vorum við syst- urnar látnar telja klinkið í tuðr- unni og svo trítluðum við í sjopp- una til hennar Oddrúnar. Á vorin var alltaf gaman að koma inn í litla fjárhúsið og skoða nýfæddu lömbin og klappa þeim, það þótti okkur systrunum alltaf svo skemmtilegt. Þú varst svo handlaginn og hafðir alltaf eitthvað fyrir stafni í skúrnum þínum, smíðaðir borð, blómaker, jólatré og margt fleira sem prýddi heimilin hjá ættingj- unum. Okkur fannst ánægjulegt að vera með þér á 90 ára afmæl- isdeginum þínum og njóta góðra veitinga. Elsku Böðvar, Ásta, Ólafía, Inga (mamma) og fjölskyldur. Megi Guð styrkja ykkur í gegn- um söknuðinn. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Vertu sæll afi okkar. Þín barnabörn Ásta og Kristín. Elsku afi á Sæfelli hefur kvatt okkur eftir 90 ára lífshlaup. Ég var svo heppin að flytjast á Sel- foss frá Eyjum þegar ég var 5 ára og fékk mjög oft að koma til ömmu og afa á bakkanum enda eru ófáar minningarnar sem ylja manni í hjartanu, amma að prjóna eitthvað fallegt eða sauma og ég og afi að spila ólsen ólsen já eða veiðimann og svarta pétur. Oftar en ekki fékk ég að fljóta með bak við hús og fara með afa í kinda- kofann og fylgjast með honum gefa kindunum það var ótrúlegt hvað þær virtust hlýða honum þær t.d. mynduðu röð um leið og hann gekk inn um hliðið tilbúnar að elta hann inn. Svo á haustin fórum við systkinin oftar en ekki að taka upp kartöflur með afa og það var ákveðinn sjarmi yfir því og svo eldaði amma nýjan fisk og kartöflur. Já, það er endalaust hægt að rifja upp minningarnar sem við eigum og eigum eftir að segja börnunum okkar frá þegar þau stækka. Síðastliðin ár hefur afi alltaf verið hjá mömmu á jól- unum eins og ég að undanskildum einum jólum er hann var veikur. Og jólin 2002 eru mér efst í minn- ingunni þá var ég nýorðin mamma, hún Victoría var aðeins tæplega 2 vikna og afi kom til okkar að vanda. Hann sagði að það væri einstaklega skemmtilegt að halda jól þegar það væru lítil börn til að eyða þeim með. Svo sat hann inni í stofu og beið eftir að maturinn yrði til með vögguna sér við hlið og dáðist að barninu og hlustaði á messuna, mikið sem þetta var yndisleg stund. Og þau fern jól eftir þetta sem afi gat verið með okkur hafa verið alveg yndisleg, hann kættist mikið um leið og hann sá Victoríu og hló þegar hann sá pakkaspenninginn í henni og sagði svo alltaf blessað barnið hún er svo spennt. En nú er komið að kveðjustund, afi og amma sameinuð eftir 15 ár og eftir sitjum við afkomendurnir með yndislegar minningar og söknuð í hjarta og þakklát fyrir alla samveruna í gegnum árin. Með barnavísu sem oft var sungin á Sæfelli kveðjum við góð- an afa. Afi minn og amma mín úti á Bakka búa. Þau eru bæði sæt og fín og þangað vil ég fljúga. Elsku afi, hvíldu í friði. Kveðja, Ólöf, Jónas og Victoría Kolbrún. Elsku afi! Þá er komið að kveðjustund. Í hugann streyma fram minningar frá Sæfelli þar sem þú og amma bjugguð, en þangað var alltaf gott að koma og var margt brallað, teknar upp kartöflur, kindunum gefið, slegið og rakað, farið rúnt á traktornum og svo lengi mætti telja. Það var líka mikil tilhlökk- un þegar þið amma voruð vænt- anleg til Grindavíkur í heimsókn, þá fórst þú með okkur systur í göngutúra á bryggjuna og víðar, svo var endað í sjoppunni og keypt handa okkur nammi. Það var sko mikið sport. Það var þér mikið áfall þegar amma dó fyrir 15 árum en þú varst ákveðinn í að búa áfram á Sæfelli og hvergi annars staðar og tókst þér það með góðra manna hjálp. Fyrir þremur árum varðst þú hins vegar að flytja frá Sæfelli vegna heilsuleysis og var það þér mjög erfitt. Undanfarin tvö ár bjóst þú á hjúkrunarheim- ilinu Ljósheimum á Selfossi og þar leið þér vel og var vel hugsað um þig. Þann 16. apríl síðastlið- inn náðir þú þeim áfanga að halda upp á 90 ára afmælið þitt og heimsótti ég þig ásamt fleirum ættingjum og vinum og áttum við ánægjulega stund saman sem mér þykir ákaflega vænt um. Bless, elsku afi, ég og fjöl- skylda mín þökkum samveruna og hvíl þú í friði. Þín Rannveig. Nú þegar Halldór frændi okkar á Sæfelli er allur er ekki laust við að upp komi í hugann ýmsar minningar. Á Sæfelli var tvíbýlt og bjuggu þeir bræður hvor í sín- um enda með fjölskyldum sínum en á milli var innangengt. Við krakkarnir, sem vorum sjö alls, ólumst því upp nánast sem systk- inahópur og var oft fjör í bænum. Á Sæfelli og á Strönd, þar sem föðurafi okkar bjó, var alla tíð talsverður heimabúskapur – kýr, kindur og hestar. Auk þess var oft mikil kartöflu- og rófnarækt. Að þessu unnu ásamt afa þeir bræður, pabbi og Halli auk vinnu sinnar annars staðar. Það var því oft langur vinnudagur. Heyskap- ur á sumrin, garðvinna á haustin og gegningar yfir veturinn. Halli var, eins og margir af hans kynslóð, mikil bóndi í sér og öll verk sem lutu þar að léku í höndum hans. Að sjálfsögðu vor- um við krakkarnir á kafi með í öllum verkum og lærðum þannig hvernig hlutirnir gengu fyrir sig. Halli var barngóður og glað- sinna og hafði þann vana að tala við okkur eins og fullorðið fólk um það sem var verið að gera. Þegar vel lá á honum við búskap- arstörfin sem léku svo í höndum hans átti hann til með að segja: „Þú ert mikill höfðingi.“ Það var mikið hrós að fá slíka umsögn. Það fylgdi búskapnum að fara á fjall á haustin og það gerði Halli einnig. Hann átti alltaf stóra og mikla fjallhesta og þótti okkur það stórfengleg reið þegar hann hélt af stað með nokkra til reiðar, þar af einn undir trúss og hund- urinn Spori rak lestina. Varla er svo hægt að minnast Halla að ekki sé minnst á Ástu konu hans, sem lést fyrir all- nokkrum árum. Þrátt fyrir að hún gengi aldrei heil til skógar vegna fótameins var hún eins og Halli sívinnandi á heimilinu og var okk- ur oft sem móðir og aldrei kom neinn svo þar inn fyrir dyr að ekki væru bornar fram góðgerðir hvers konar. Eins og áður er sagt var bú- skapur Halla í blóð borinn og í mörg ár eftir að allur búskapur var aflagður í þorpinu og öll skepnuhús rifin hélt hann fé í kofa frammi við sjógarð. Fénu fækkað að vísu nokkuð með ár- unum, en það var þegjandi sam- komulag hans og bæjaryfirvalda að meðan hann gat, og vildi halda fénu þá gerði hann það. Það var síðan hans ákvörðun að hætta og þá var gamli kindakofinn rifinn fljótlega, enda held ég að hann hafi ekki viljað hafa hann fyrir augum, fjárlausan. Það var þó ekki fyrr en í fulla hnefana að hann hætti, enda orð- in slitinn af mikilli vinnu alla sína starfsævi. Hann var þá orðinn einn og var kominn með örygg- ishnapp tengdan símanum. Kom fyrir þegar hann var að huga að fénu í kofanum að hann hallaði sér fram á jötubandið og hnapp- urinn lenti á milli og allt fór í gang. Hann tók því með stóískri ró og nokkrum húmor þótt hann „fyndist“ ekki alveg strax. Við viljum þakka Halla frænda okkar allt það sem hann okkur gaf og hefur nýst okkur á lífsleið- inni og þökkum samfylgdina. Börnum hans og afkomendum þeirra sendum við okkar hlýjustu samúðaróskir þegar við kveðjum hann í dag. Már og Þórarinn. Halldór Sigmar Guðmundsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, ARNFRIÐ HEIÐAR BJÖRNSSON frá Gerði, Vestmannaeyjum, Frælsið 4, Torshavn, andaðist á heimili sínu í Færeyjum mánudaginn 28. apríl. Útför hans fer fram í Færeyjum sunnu- daginn 4. maí kl. 14.00. Oda Debes og fjölskylda. ✝ Okkar ágæta, ÞORBJÖRG FINNBOGADÓTTIR húsmæðrakennari, Víðilundi 20, Akureyri, er látin. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 5. maí kl. 13.30. Minningarathöfn verður í Fossvogskapellu miðvikudaginn 7. maí kl. 13.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Jónas Finnbogason. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HJALTI ÞÓRARINSSON fyrrverandi yfirlæknir og prófessor, Laugarásvegi 36, Reykjavík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni að kvöldi miðvikudagsins 23. apríl, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, mánudaginn 5. maí kl. 15.00. Alma Anna Þórarinsson (Thorarensen), Þórarinn Hjaltason, Halla Halldórsdóttir, Oddur Carl Hjaltason, Ingibjörg Jakobsdóttir, Sigríður Hjaltadóttir, Þórir Ragnarsson, Gunnlaug Hjaltadóttir, Hrólfur Hjaltason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AÐALHEIÐAR TÓMASDÓTTUR, áður til heimilis á Hábraut 4, Kópavogi, síðast til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. maí kl. 13.00. Sigurður Ingvarsson, Ágústa Jónsdóttir, Ingvar Sigurðsson, Jón Helgi Sigurðsson, Tómas Sigurðsson, Agnar Sigurðsson og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES JÓSEFSSON, Flétturima 35, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 30. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Elín Magnúsdóttir, Magnús Welding Jónsson, Sjöfn Jóhannesdóttir, Gunnar Jósef Jóhannesson, Guðný Ása Þorsteinsdóttir, Elín Theodóra Jóhannesdóttir, Jóhann Snorri Jóhannesson, Anna Guðrún Kristinsdóttir, Jóhannes Örn Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.