Morgunblaðið - 03.05.2008, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 03.05.2008, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Nanna Hjalta-dóttir fæddist í Hjarðarholti, Lax- árdalshreppi, Dala- sýslu 18. júlí 1954. Hún andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi, föstudag- inn 25. apríl 2008. Foreldrar Nönnu eru Hjalti Þórð- arson, f. 3.7. 1928, fyrrverandi bóndi í Hjarðarholti og á Hróðnýjarstöðum í Laxárdal, Dalasýslu, og kona hans Inga Aðalheiður Guð- brandsdóttir, f. 20.7. 1929. Systkini Nönnu eru: Erna Kristín, f. 21.3. 1950 gift Vé- steini Arngrímssyni og eiga þau Kristín Guðrún, f. 5.3.1973, sam- býlismaður Sæmundur Björns- son, f. 7.5. 1972, d. 27.7. 1994, barn þeirra Sædís Birna, f. 21.1. 1995, sambýlismaður Eyþór Jón Gíslason, f. 1.4. 1975, þau skildu; Viðar Þór, f. 11.4. 1975, kvæntur Fanneyju Þóru Gísla- dóttur, f. 29.12. 1980, börn þeirra eru Sigurvin Þórður, f. 9.4. 2005 og Gróa Margrét, f. 21.1. 2008. Nanna ólst upp í Hjarðarholti í Laxárdal og lauk prófi frá Laugaskóla í Sælingsdal. Þau Ólafur stunduðu búskap á Leik- skálum, eins og áður segir, til ársins 2004 og hafa búið þar síðan en stundað vinnu utan heimilis. Auk bústarfa á Leik- skálum vann Nanna ýmis störf í Búðardal og víðar. Útför Nönnu fer fram frá Stóra-Vatnshornskirkju í Haukadal, Dalabyggð, í dag og hefst kl. 13. þrjú börn og sex barnabörn; Bára, f. 25.2.1952 gift Magnúsi Arngríms- syni og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn; Smári, f. 4.11. 1959, í sam- búð með Rögnu Ragnarsdóttur, hann á einn son og eina dóttur; og Sævar, 9. 7. 1965, giftur Maríu Ólafs- dóttur og eiga þau þrjár dætur og tvö barnabörn. Hinn 9.6. 1973 gekk Nanna að eiga Ólaf Sigurvin Guðjónsson, f. 16.9. 1952, og hafa þau síðan búið á Leikskálum í Haukadal í Dalasýslu. Börn þeirra eru: Elsku amma mín. Mig langar til þess að fá að skrifa nokkur orð um þig, bestu ömmuna í öllum heiminum. Þú bakaðir bestu kleinur í heimi og eldaðir alltaf svo góðan mat. Þú hugsaðir alltaf um alla aðra en sjálfa þig fyrst og sagðir alltaf að þú þyrftir ekki að gera neitt þegar ég og þú vorum að passa börn saman, af því að ég væri svo dugleg, t.d. að gefa Gróu Margréti pela eða skipta á henni. Einnig varst þú alltaf mjög hreinleg og vildir alltaf hafa hreint og fínt í kringum okkur, t.d. þegar gestir komu í heimsókn, þá mátti aldrei vera neitt dót eða drasl í stofunni eða svoleiðis. Það var svo gaman þegar við fór- um í fyrsta sinn í útilegu með felli- hýsið ykkar afa, t.d. þegar við fór- um á Akureyri og þegar við sáum hreindýrin á Möðrudal og þegar við skoðuðum Kárahnjúkavirkjun og þar í kring. Þegar við fórum á ættarmótið á Grenivík í fyrrasumar fannst þér svo gaman að hitta alla ættingjana sem þú þekktir og ekki síður að kynnast fleirum. Það var rosa gam- an að fara þangað með þér og afa og algjört æði að fá að njóta þess að vera þarna með þér. Göngutúrar og ferðalög voru eitt- hvað sem þú varst alltaf til í og ég tala nú ekki um að snúast í kring- um okkur hin í hestastússinu okkar. Í sambandi við göngutúra þá fór ég einu sinni í vetur með þér og Ás- laugu í göngutúr fram að Jörfa. Það var snemma um morguninn, þá vaktirðu mig til þess að koma með og ég var svo þreytt að ég labbaði hálfpartinn í svefni. Þú og Áslaug hlóguð bara að mér. Svo kom ég heim og sofnaði strax aftur. Og svo í sambandi við hestana; þú bakaðir alltaf kleinur fyrir dómara sem dæmdu á hestamótum. Og alltaf varstu tilbúin að keyra heim með hestakerru eða eitthvað svoleiðis ef ég, afi og mamma vorum einhvers staðar á hestbaki. Þú varst alltaf svo hress og kát og alltaf til í allt. Hvíldu í friði elsku amma mín, þín verður mjög sárt saknað. Elska þig. Þín Sædís Birna. Í dag er til grafar borin svilkona mín og vinkona Nanna Hjaltadóttir. Það er erfitt að skilja af hverju kona á besta aldri er hrifin burtu, en einhver hlýtur tilgangurinn að vera. Ýmsar byrðar hafa verið lagð- ar á Nönnu og fjölskyldu hennar í gegnum árin og alltaf hafa þau sigr- ast á erfiðleikunum. Eftir göngu- túrinn okkar á síðasta vetrardag sagðir hún við mig svo glettin, kát og bjartsýn að vanda: „Ég vinn mig nú út úr þessu góða mín,“ en því miður. Eiginmaður, börn, tengda- dóttir og barnabörn voru Nönnu mikilvægust af öllu, þau stóðu mjög þétt saman, og eiga margar góðar minningar. Hennar er sárt saknað. Nanna var góð kona, hún var svo hvetjandi persóna, alltaf brosmild og létt í lund, dugleg og samvisku- söm, sá björtu og spaugilegu hlið- arnar á öllum málum. Við Nanna urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að rugla saman reytum við bræð- urna Óla og Jónas, og búa við þau forréttindi að eiga heima í sveit eða í Haukadal í Dalabyggð. Nanna var fagurkeri og náttúrubarn, hún hafði svo gaman af því að ferðast um landið, með ástinni sinni honum Óla, og litlu fjölskyldunni þeirra sem aldeilis hefur stækkað. Oft var farið á hestamótin, komið við á handverksmörkuðum, keypt eitthvað fallegt, en margir minja- gripir eru til á þeirra heimili, sem bera vott um það. Handverk var henni mikils virði, bein, ull og leður var hennar uppáhaldsefni til að vinna úr, og eru ófáir hlutirnir til á heimilum landsmanna trúi ég, því vinsælir voru þeir. Þeir voru skemmtilegir göngutúrarnir okkar í vetur. Ég, kvartandi yfir aukakíló- um, jú, þá sagði Nanna: „Heyrðu Áslaug, nú bara gerum við eitthvað í þessu, ég þarf líka að losna við nokkur, við förum í göngutúra tvisvar í viku.“ Og það var ákveðið, Kristín og Sædís komu líka stund- um með og ýmislegt var spjallað og hlegið að hinu og þessu, það var al- veg einstakt hvað það var alltaf gott veður þegar að við gengum, þeir voru misjafnlega langir göngu- túrarnir, en alltaf hressandi, á mið- vikudögum var alltaf farið heim að Leikskálum í te og hrökkbrauð, við vorum nefnilega að grenna okkur. Látum minninguna um Nönnu lýsa upp döpur hjörtu okkar og létta hugi okkar á erfiðum stund- um. Kæri Óli, Kristín, Viðar, Fann- ey, Sædís B, Sigurvin Þ., Gróa M., foreldrar, systkini og tengdafor- eldrar, megi góður guð styrkja ykk- ur í sorginni og mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þín minning öllu æðri. Ofar moldum skín. Er góðra verður getið. Mun getið verða þín. (G.J.) Áslaug Finnsdóttir og fjölskylda. Sumardagurinn fyrsti gekk í garð bjartur hlýr og fagur og fuglarnir glöddu okkur með söng sínum. En svo breyttist allt á svipstundu þeg- ar hún systir mín veiktist. Rúmum sólarhring seinna var hún dáin að- eins 53 ára gömul. Eftir stöndum við fjölskyldan og ástvinir lömuð og ráðvillt. Minningar um liðnar sam- verustundir hrannast upp. Í Hjarð- arholti áttum við okkar æskuspor systurnar, Erna, Bára og Nanna og svo bættust bræður okkar, Smári og Sævar í hópinn. Það var mikið líf og fjör við bústörfin og svo áttum við okkar bú þar sem voru bakaðar dýrindis drullukökur skreyttar með sóleyjum og fíflum. Ætli þar hafi ekki verið lagður grunnur að þínum myndarskap, allt lék í höndum þér hvort sem það var bakstur, prjóna- skapur, handverk eða annað. Þegar þú kynntist honum Óla þínum flutt- ir þú í Haukadalinn og þar eign- uðust þið börnin ykkar Kristínu og Viðar. Árið 1995 fæddist svo fyrsta barnabarnið, Sædís Birna, og við vorum sko stoltar ömmur með 5 mánaða millibili. Síðan fæddist Sig- urvin Þórður árið 2005 og Gróa Margrét árið 2008. Það var ynd- islegur dagur 8. mars sl. er Gróa Margrét var skírð og Viðar og Fanney giftu sig. Þær minningar ylja okkur þessa köldu apríldaga. Í mörg ár höfum við systur og nokkr- ar góðar vinkonur sem í dentíð unn- um saman í sláturhúsinu í Búðardal verið í saumaklúbbi sem ber nafnið Ljós í myrkri. Hverjum hefði getað dottið það í hug 16. apríl sl. er við hlógum og grínuðumst í stofunni hjá þér að 10 dögum seinna værir þú ekki lengur hjá okkur. Elsku hjartans Nanna mín, ég náði aldrei að óska þér gleðilegs sumars en geri það hér og nú. Megi góður guð varðveita þig og blessa alla tíð. Elsku Óli, Kristín, Sædís, Viðar, Fanney, Sigurvin og Gróa og allir ástvinir Nönnu, í dag eigum við engin orð en minningin um ynd- islega eiginkonu, móður, tengda- móður, ömmu, dóttur, tengdadótt- ur, systur og kæra vinkonu lifir í hjörtum okkar um ókomin ár. Vertu sæl elsku systir. Þín stóra systir, Erna. Elsku systir, ekki kom mér til hugar að með sumarkomunni, þeg- ar allt er að lifna við í náttúrunni og farfuglarnir koma til að koma upp nýju lífi, þá yrðir þú tekin frá okkur svona snögglega, aðeins 53 ára gömul. Mikið var það dýrmætt fyrir okk- ur að þú og þín fjölskylda skylduð líta við hjá Birgittu og Helga. Þú á leið í fermingu í Vík, en gafst þér tíma til að kíkja við til að líta á nýj- asta fjölskyldumeðliminn (Reyni Inga) sem reyndar var ekki kominn með nafn þá. Nanna var einkar hugmyndarík og lagin í höndunum. Ég held að það sé ekki eitt einasta heimili í fjölskyldunni sem er án handavinnu eftir þig. Þessir hlutir eru minni fjölskyldu mjög dýrmætir. Nanna var búin að ganga í gegn- um erfiðan sjúkdóm fyrir nokkrum áratugum síðan. Hún vann sig út úr því, eins og öðru. Reyndar var það svo að systir mín var ekki sú mann- eskja sem kvartaði. Ég held að orð- ið ,,kvarta“ hafi hreinlega ekki verið til í hennar orðabók. Þegar við í fjölskyldunni fréttum að þú hefðir verið flutt með sjúkra- bíl á Akranes þá varð okkur bilt við. Hvað þá þegar fréttirnar urðu dekkri með kvöldinu og ennþá verri næsta dag. Ég var staddur í Reykjavík föstudaginn örlagaríka þegar ég fékk þungt símtal frá presti sem lýsti ástandi þínu. Mikið fannst mér gott að eiga tækifæri til að koma til þín og ná að hitta þig nokkrum klukkutímum áður en yfir lauk hjá þér. Það var og er mér mjög dýrmætt. Elsku Óli, Kristín, Sædís Birna, Viðar Þór, Fanney Þóra og börn. Guð veiti ykkur styrk í sorg ykkar. Sævar, María og fjölskyldur. Elsku systir. Mig langar að minnast þín í nokkrum orðum. Upp í hugann koma minningar frá liðnum árum, þær eru eins og stuttmyndir sem birtast frá ýmsum tímabilum í lífi okkar bæði úr leik og starfi. Sumt er eins og það hafi gerst í gær þó mörg ár séu liðin, þetta eru góðar minningar sem ég mun geyma vel í huga mínum. Það er svo skrítið að flestar tengjast þær við vorið og sumarið og allt sem tengist þeim árstíma. Ég veit ekki hvers vegna en svona er það bara og enn og aft- ur mun vorið tengjast minningu þinni. Mér brá þegar Sævar bróðir okk- ar hringdi í mig að kvöldi sum- ardagsins fyrsta og sagði mér að þú hefðir verið flutt mikið veik á Borg- arspítalann, þegar ég kom til þín seinna um kvöldið sá ég hvað þú varst mikið veik en þó hvarflaði það ekki að mér að þú myndir ekki ná þér aftur, ég sagði þér að Óli væri á leiðinni og þetta myndi allt lagast, í huga mér kom það ekki til greina að þú værir að deyja, hefði mig grunað það, þá hefði ég ekki farið heim þessa nótt. En svona er lífið, maður á ekkert inni, fær engan frest. Mig tekur sárt að þurfa að kveðja þig, elsku Nanna, minningin um þig mun áfram tengjast vorinu og hana mun ég geyma vel og vand- lega á meðan ég lifi. Ég vil biðja guð að blessa minningu þína og gefa fjölskyldu þinni styrk í sorg- inni og söknuðinum. Hvíl í friði elsku systir. Smári og fjölskylda. Sumarið 1954 fór ég í fyrsta sum- arfríið mitt og tók þá áætlunarbíl vestur í Búðardal og fór gangandi upp í Hjarðarholt. Það var fallegt sumarveður, sól og sunnangola, 21. júlí og þá leit ég hana frænku mína fyrsta sinn augum. Hún lá í körf- unni sinni þriggja daga gömul og leit frísklega út með rauða hárið sitt og þá þegar var búið að gefa henni nafnið Nanna. Systur hennar Erna og Bára voru mjög ánægðar með þessa nýju systur sína. Haust- ið 1961 var Ragnar að vinna á skurðgröfu í Dölunum og þá feng- um við Nönnu lánaða sem barn- fóstru fyrir strákinn okkar Loga, sem þá var á öðru ári. Þeim féll vel saman frændsystkinunum og þau voru dugleg að vera úti að leika sér. En kvöldin voru líka skemmtileg því Nanna var hörku spilakona og við Ragnar urðum oft undir í spila- mennskunni. Nanna lauk skyldu- námi frá Laugum í Sælingsdal og fljótlega upp úr því fór hún út á vinnumarkaðinn. Í mörg ár vann Nanna í afurðastöðinni í Búðardal en nú síðustu ár í heimaþjónustunni og sem leiðbeinandi í Silfurtúni og fórst henni það vel úr hendi því Nanna var bæði hugmyndarík og handlagin auk þess að hafa góða nærveru. Ung að árum giftist Nanna æskuástinni sinni honum Óla og saman reistu þau sér snyrti- legt býli að Leikskálum í Haukadal. Nanna greindist með krabbamein á besta aldri en tókst að vinna sig út úr því með þolinmæði og bjartsýni. Nú komu mörg góð ár sem Nanna naut með fjölskyldu sinni. Seinna kom að því að hjarta og æðakerfi fór að láta undan en með þraut- seigju og dugnaði tókst Nönnu einnig að sigrast á þeim veikindum. Fráfall Nönnu átti sér mjög skamman aðdraganda og það er stórt skarð sem hefur verið höggvið í frændgarðinn, skarð sem erfitt verður að fylla. Elsku Óli og fjöl- skylda, ég sendi ykkur mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Friðgerður Þórðardóttir. Það var sól og sumar í brosinu hennar Nönnu og notalegt að njóta þeirrar hlýju og elskusemi sem frá henni stafaði. Á hverju sem gekk hafði hún jafnan þrek og rósemi til að bera og miðlaði öðrum af innri styrk sínum. Hún var jafnan boðin og búin til að hjálpa öðrum: grönn- um, ættingjum, vinum, gestum og gangandi. Þannig minnist ég henn- ar; manneskju sem gaf svo margfalt meira en hún þáði. Það var líka sól og sumar þegar Nanna giftist Óla frænda mínum og uppeldisbróður einn fagran júnídag og þau hófu búskap á Leikskálum í Haukadal. Þar bjuggu áður afa- systkini okkar Óla og móðuramma hans ásamt dóttur sinni og tengda- syni. Ávallt hefur verið mikill sam- gangur á milli bæjanna Leikskála og Hamra, þar sem við Óli slitum barnsskónum. Tengslin við Leik- skála hafa því alltaf verið sterk og hjá Óla urðu þau að föstu sam- bandi. Til hinsta dags stóð Nanna þétt við hlið hans í einu og öllu. Hún kom að, úr næsta hreppi, en varð svo órjúfanlegur hluti Leik- skálaheimilisins og Haukadalsins að manni fannst að hún hefði alltaf átt þar heima. Fyrir mér var það bara söguleg staðreynd að hún hefði ein- hvern tíma átt heima í Laxárdaln- um. Það var alltaf gaman að koma að Leikskálum og sitja á skrafi við Óla og Nönnu yfir kaffibolla. Oftar en ekki var glatt á hjalla og dillandi hlátur húsfreyjunnar fyllti eldhúsið. Og ekki var komið að tómum kof- unum hjá henni sem hafði frá mörgu að segja og oft dáðist ég að skarplegum athugasemdum hennar um menn og málefni og skynsam- legum tillögum um lausn hinna ýmsu viðfangsefna. Ekki var farið svo frá borði að Nanna kæmi ekki með gestabókina. Í hana hef ég víst krotað eitt og annað í gegnum tíð- ina og flest af miklu alvöruleysi. Nanna Hjaltadóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra, EIRÍKS ÁSGEIRS ÞORLEIFSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11- G á Landspítalanum. Jónína Margrét Egilsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar frænku okkar, GUÐLAUGAR BALDVINU KRISTJÁNSDÓTTUR frá Uppsölum, Svarfaðardal, sem lést fimmtudaginn 17. apríl. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dalbæjar og hjúkrunarfólki á lyflækningadeild S.A. fyrir frábæra hjúkrun í veikindum hennar. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd ættingja, Kristján Jónsson, Lára Stefánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.