Morgunblaðið - 03.05.2008, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistarverðlaun fyrir
Í kvöld fer fram verðlaunahátíðin Hlustendaverðlaun FM957 í Há-
skólabíói. Netkosningu er lokið og var kosið í átta flokkum. Brynjar
Már Valdimarsson, útvarpsmaður á FM957, var gríðarlega upp-
tekinn í gær við að undirbúa verðlaunaafhendinguna en tók sér þó
nokkurra mínútna hlé til að ræða við Helga Snæ Sigurðsson.
1
2
5 6
7
8
E
ins og gefur að skilja er verðlaunaafhendingin stór stund fyrir FM957-menn og -konur
og Brynjar Már Valdimarsson útvarpsmaður er orðinn gríðarlega spenntur. Hann seg-
ir verðlaunahátíðina í ár verða þá glæsilegustu til þessa. Skemmtiatriðin eru ekkert
slor því fram koma Gus Gus, Sprengjuhöllin, Merzedes Club, Ný Dönsk, Haffi Haff,
Bloodgroup og Páll Óskar. Uppselt er á atburðinn og má því búast við dúndurstuði og
-stemningu.
Brynjar og Heiðar Austmann hófu gleðina í hádeginu í gær, sendu út beint í anddyri Háskólabíós í
sex tíma og munu endurtaka leikinn í dag. Til stendur að allir tilnefndir líti við í heimsókn til þeirra
félaga og spjalli um lífið, listina og tilnefningar.
Brynjar Már segir undirbúning fyrir verðlaunaafhendinguna hafa gengið vandræðalaust fyrir sig,
allir verið ljúfir sem lömb og tilhlökkunin mikil í herbúðum FM957.
Eins og sjá má af lista yfir tilnefningar eru þær nokkuð fjölbreytilegar og listamennirnir úr ólíkum
áttum í tónlistinni. Því liggur beinast við að spyrja hvers vegna listinn sé eins og hann er, þ.e. hver
ákvað hvað og hverjir skyldu tilnefndir?
„Við sátum bara fund og kláruðum það,“ svarar Brynjar Már, og á þar við útvarpsmenn á útvarps-
stöðinni. Tilnefndir hafa verið að gera það gott á stöðinni, notið mikilla vinsælda meðal hlustenda.
„Þetta eru allt sterkustu kandídatarnir frá árinu 2007.“ Brynjar Már segir nýjum flokki hafa verið
bætt við í ár, Besta „solo“ flytjandanum, í ljósi þess að svo margir tónlistarmenn hafi hafið sólóferil á
árinu. Spurður að því hvernig hann skilgreini Hlustendaverðlaun FM957, svarar Brynjar Már: „Tón-
listarverðlaun fyrir ungt fólk á öllum aldri, frá 12 til 40 ára.“
Hnakkinn dauður?
– Hvernig kunna svo FM957-menn við hugtakið „FM-hnakki“?
„Ég hef aldrei spáð mikið í það, hef aldrei litið á mig sem FM-hnakka,“ svarar Brynjar Már og að
hugtakið fari ekki í taugarnar á honum. Það sé í raun orðið úrelt. „Þetta er eiginlega svolítið „last
season“. Þessi dæmigerði FM-hnakki sem menn voru að vitna í og sem FM á sínum tíma tók og hype-
aði upp og gerði grín að, það er þetta ljós þrisvar í viku, strípur…“
– Mynd af bílnum í vasanum?
„… já, eitthvað svoleiðis. Þetta var eiginlega gelgjuskeiðið á FM og það er bara svo löngu búið.
Hún er orðin 19 ára gömul stöðin þannig að gelgjan er farin,“ segir Brynjar og hlær.
Verðlaunin verða í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2, á Visir.is og FM957. Útsending
hefst kl. 19.45 kvöld.
Verður að sjálfsögðu rauður dregill til að ganga á inn að salnum.