Morgunblaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ATVINNULÍFSHÓPUR Framtíðar-
landsins hefur sent frá sér skýrslu
um opinberan stuðning við stóriðju.
Í hópnum starfa hagfræðingar og
verkfræðingar.
Niðurstaða skýrslunnar er sú að
fjárfesting í stóriðju með núver-
amdi ríkisaðstoð sé langt frá því að
vera hagkvæm leið til uppbygg-
ingar atvinnulífi hér á landi.
„Staðbundin áhrif eða öllu heldur
byggðasjónarmið hafa oft verið
notuð til að réttlæta fjárfestingu í
stóriðju. Álver er vissulega um-
fangsmikill atvinnurekandi og
greiðir tiltölulega góð laun. Reynsl-
an m.a. frá Bandaríkjunum hefur
hins vegar sýnt að starfsemi álvera
hefur aðeins spornað gegn óhag-
stæðri byggðarþróun þar sem þau
eru rekin en hefur ekki snúið þró-
uninni við,“ segir í tilkynningu.
Stóriðja til
einskis?
NÝ vefgátt um almannatryggingar
á Norðurlöndum, www.norsoc.org,
var opnuð á dögunum. Vefgáttin er
samstarfsverkefni tryggingastofn-
ana á Norðurlöndunum og er til-
gangur hennar að veita þeim sem
hyggjast starfa, nema eða flytjast
innan Norðurlandanna bestu mögu-
legu upplýsingar og svör við spurn-
ingum um almannatryggingar.
Norræn gátt
SAMKVÆMT áætlunum Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðnaði um
sölu og birgðir mjólkurafurða má
gera ráð fyrir að greiðslumark
mjólkur á næsta verðlagsári verði
119 milljónir lítra. Sala mjólkuraf-
urða á innanlandsmarkaði hefur
gengið ágætlega undanfarna mán-
uði og því verður greiðslumarkið
aukið um tvær milljónir lítra eða
1,7%.
Gangi þetta eftir verður þetta
fimmta verðlagsárið í röð sem
greiðslumark mjólkur er aukið.
Meiri mjólk
Aukning Fyrir 5 árum var greiðslu-
mark mjólkur105 milljónir lítrar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
MIKIÐ tjón varð þegar kaldavatns-
leiðsla gaf sig í inntaksklefa í
íþróttahúsi Þróttar og vatn flæddi
inn í 900 fermetra íþróttasal á
neðstu hæð. Vart varð við tjónið
snemma morguns og strax var kall-
að eftir aðstoð. Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins vann í morgun
ásamt starfsmönnum íþróttahúsins
og framkvæmda- og eignasviðs að
því að dæla vatni í burtu og forða
munum frá skemmdum. Salurinn,
sem heitir Skellur, er ónothæfur.
Rjúfa þurfti gólf íþróttasalarins
til að dæla burt vatninu en það var
undir öllu gólfinu. Samkvæmt upp-
lýsingum frá framkvæmda- og
eignasviði Reykjavíkurborgar er
ljóst að tjón hleypur á milljónum
króna.
Milljónatjón
er rör gaf sig
„VIÐ sem höfum prófað að standa heiðursvörð
vitum að það reynir gríðarlega á og þarfnast mik-
ils undirbúnings,“ segir Bragi Björnsson aðstoð-
arskátahöfðingi. Skátar gegna venju samkvæmt
stóru hlutverki víða um land á þjóðhátíðardaginn,
koma m.a. að helgistundum, skrúðgöngum og
skemmtidagskrá og hafa gert í áratugi.
En það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að
standa heiðursvörð. „Undirbúningur fyrir þennan
dag tekur um tvo mánuði og það þarf að gæta vel
að mataræði og sjá til þess að blóðsykurinn sé
nægur,“ segir Bragi. „Sú hætta er fyrir hendi að
það líði yfir fánabera, en það er hægt að nota ýmis
lítil brögð til að halda blóðrásinni gangandi;
hreyfa fætur örlítið úr stað og kreppa hnefa svo
lítið beri á.
Ég held að það séu reyndar liðin þrjú ár síðan
síðast leið yfir skáta við athöfnina á Austurvelli.
Auðvitað er yfirlið áfall fyrir ungar sálir, en við
sem eldri erum vitum að hver sem er getur lent í
slíku. Við bendum þeim gjarnan á að í heið-
ursverði Elísabetar Englandsdrottningar eru
menn sem hafa þetta að aðalatvinnu, en þeir eiga
stundum erfitt með að standast álagið og detta út.
Vegna álagsins tölum við um fánabera og fána-
verði, en annar hver maður í verðinum er fánalaus
og grípur inn í ef þörf er á. Að auki erum við með
varamenn og göngustjórar eru til taks ef í óefni
stefnir.
Skátar leggja mikla áherslu á að fáninn snerti
ekki jörð, slíkt þykir ekki góð lexía. Skátar í heið-
ursverði hafa sést skutla sér til að grípa fánann ef
fánaberi hefur riðað til falls, en hafa lítið hugsað
um félagann sem féll eins og drumbur í jörðina,“
segir Bragi.
Að halda takti og taka beygjurnar rétt
Hann segir að undirbúningur lúti að gönguæf-
ingum og uppröðun eftir kúnstarinnar reglum;
nefnir sem dæmi að gæta þurfi að því að halda
takti og taka beygjurnar rétt. „Þar sem lítil hefð
er fyrir slíku á Íslandi þá er bæði hollt og
skemmtilegt fyrir unglinga að fá að spreyta sig.
Krakkarnir mega ekki vera undir 15 ára aldri og
eru flest á menntaskólaaldri.
Hvar sem er í heiminum lofa skátar að gera
skyldu sína við ættjörðina. Við lítum svo á að fán-
inn standi fyrir ættjörðina og það sem hún hefur
gert fyrir okkur. Þetta er dagurinn þegar
þjóðerniskenndin er sem mest og við erum stolt af
því að fá að halda heiðri fánans á loft. Við leggjum
áherslu á að ungmennin fái þetta tækifæri.“
Það er í nógu að snúast hjá Reykjavíkurskátum
á þjóðhátíðardaginn. Dagurinn byrjar með heið-
ursverði við athöfn við leiði Jóns Sigurðssonar í
Suðurgötukirkjugarði. Svo er gengið fylktu liði
niður á Austurvöll þar sem staðinn er heið-
ursvörður meðan hátíðardagskrá fer fram. Skátar
leiða líka skrúðgöngur frá Hlemmi og Hagatorgi í
miðbæinn Síðast en ekki síst sjá skátar um dag-
skrá í Hljómskálagarði. Vinnudagurinn er því
langur; þau sem standa heiðursvörðinn mæta upp
úr klukkan sjö og eru að fram eftir degi.
„Það lítur vel út með veður í dag, en við höfum
alltaf einhverjar áhyggjur af veðrinu,“ segir
Bragi. „Það er ekkert grín að standa upp á end-
ann í klukkutíma án þess að hreyfa sig þegar
veðrið sýnir sínar verstu hliðar. Ég man að fyrir
nokkrum árum var veðurspáin slæm og ég nefndi
við krakkana hvort við þyrftum ekki að vera í
stökkum yfir skátabúningnum. Það fannst þeim
ekki koma til greina, væri hreinlega hneisa.“
Skátar bjarga fánanum
frekar en fánaberanum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Æfing Skátarnir voru með æfingu síðdegis í gær í kirkjugarðinum við Suðurgötu fyrir daginn í dag.
Bragi Björnsson héraðs-
dómslögmaður er jafnframt
aðstoðarskátahöfðingi. Dag-
urinn hefur sérstakan sess í
huga skátans, en ekki síður
persónulega fyrir Braga sem
í dag fagnar 40 ára afmæli
sínu.
En verður hann við vinnu á
þjóðhátíðardeginum að
þessu sinni? „Heyrðu, það er
nú bara þannig að ég hafði komið að hátíð-
arhöldum á 17. júní í aldarfjórðung, eða frá því
að ég var 14 ára, þangað til í fyrra. Þá var ég í út-
löndum vegna vinnu minnar og sá þá að þetta
var hægt án mín.
Í dag ætla ég að taka mér frí. Mér finnst þó lík-
legt að ég verði á Austurvelli og fylgist með
mínu fólki. Mig langar að vera þarna einu sinni
sem áhorfandi, vil bara fá að taka þátt, en ekki
að starfa eða stýra einhverju, svona einu sinni,“
segir Bragi Björnsson.
Afmælisbarnið fylgist með en stjórnar engu
Bragi Björnsson
Eftir Andrés Þorleifsson
andresth@mbl.is
GERT er ráð fyrir fjölmenni í miðbæ Reykja-
víkur í dag, enda veðurspáin góð. Borg-
arstarfsmenn hafa að undanförnu unnið af
krafti að slætti, gróðursetningu og hreinsun á
veggjakroti og öðrum ósóma til að borgin
skarti sínu fegursta fyrir daginn.
Viðamikil dagskrá í borginni
Dagskrá þjóðhátíðardagsins í Reykjavík er
að finna á 17juni.is, en hún fer að venju fram í
miðborginni. Fyrir hádegi mun fjallkonan
flytja ávarp á Austurvelli og forsetinn leggja
blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar.
Eftir hádegi verða ókeypis leiktæki í Hljóm-
skálagarðinum og mun Fallhlífaklúbbur
Reykjavíkur sýna fallhlífarstökk þar klukkan
fjögur. Þá mun skrúðganga fara frá Hlemmi
niður Laugaveg kl. 13:40.
Um kvöldið verða tónleikar á Arnarhóli,
dansleikur á Ingólfstorgi og hipphopp-
tónleikar á horni Lækjargötu og Von-
arstrætis.
Allir í strætó og efld löggæsla
Lögregla vill beina til hátíðargesta að nýta
sér almenningssamgöngur til að komast niður
í bæ, en sjái þeir sér það ekki fært er þeim
bent á að leggja í bílastæði við Borgartún og
Háskóla Íslands.
Fram til klukkan sex munu leiðir 1, 3, 6, 11,
12 og 13 aka Snorrabraut, Sæbraut, Geirs-
götu, Mýrargötu, Ánanaust og Hringbraut og
leið 14 mun aka Ánanaust, Hringbraut og
Snorrabraut. Ekið verður skv. tímaáætlun
laugardaga, þ.e. á 30 mínútna fresti.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hyggst
kalla út aukamannskap til að halda uppi gæslu
í miðbænum. Gert er ráð fyrir að lög-
reglumenn muni ganga um miðborgarsvæðið
fjórir í hóp og lögreglumenn á hjólum verða á
svæðinu. Þá verður umferðareftirlit hert,
enda búist við mikilli umferð í bæinn.
Einnig verður haldið upp á daginn m.a. í
Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Kópavogi.
Búist við góðu veðri og margmenni
í miðborginni á þjóðhátíðardaginn
Morgunblaðið/Golli
Gaman Þessir ungu menn munu án efa skemmta
sér jafn vel í ár og í fyrra.
Í HNOTSKURN
»Veðurstofan spáir allt að 15 stiga hita,bjartviðri og litlum vindi á höfuðborg-
arsvæðinu 17. júní.
»Margar götur verða lokaðar í mið-bænum.
»Fallhlífarstökk verður í Hljómskála-garðinum kl. 16.
»Raggi Bjarna borgarlistamaður er með-al þeirra sem halda uppi stuðinu á Ing-
ólfstorgi um klukkan 20.
STUTT
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is