Morgunblaðið - 17.06.2008, Page 30

Morgunblaðið - 17.06.2008, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SPURNINGIN er ekki sú hvort Magnús Carlsson vinni hið ægisterka Aero-svit mót í Foros í Úkraínu, held- ur miklu frekar hversu langt verður í næstu menn. Eftir fyrstu sjö umferð- irnar hafði hann tveggja vinninga for- skot með 6 vinninga. Þessi árangur, sem minnir um margt á Kasparov og Fischer þegar þeir voru upp á sitt besta, reiknast upp á yfir 3.000 Elo- stig. Gæði taflmennskunnar eru framúrskarandi. Magnús lagði rúm- enska stórmeistarann Nisipeanu í 6. umferð en hægði örlítið á ferðinni og gerði stutt jafntefli við Alekseev í sjö- undu umferð. Sérfræðingar um skákstig hér á landi reiknuðu það út eftir sjöttu um- ferð að Magnús þyrfti aðeins þrjú stig í viðbót til að komast upp fyrir Anand á heimslistanum. Hann þarf m.ö.o. að bæta við a.m.k. sjötta sigrinum til að það takist. En staðan eftir sjöundu umferð var þessi: 1. Magnús Carlsen (Noregi) 6 v. (af 7 ) 2.-4. Andrei Volotkin (Úkraínu), Sergei Karjakin (Úkraínu) og Pavel Eljanov (Úkraínu) 4 v. 5.-8. Alxei Shirov (Spánn), Vasií Ivantsjúk (Úkraínu), Peter Svidler (Rússland) og Dmitry Jakovenko (Rússland) 3 ½ v. 9.-10. Liviu-Dieter Nisipeanu (Rúmaníu) og Evgeny Alekseev (Rússland) 3 v. 11.–12. Loek Van Wely (Holland) og Alexand- er Onitsjúk (Bandaríkin) 2 v. Þegar nokkuð var liðið á áttundu umferð mótsins í gær lá fyrir að Carl- sen var búinn að gera jafntefli við Onitsjúk. Tveir íslenskir sigrar á Boðsmóti TR Sex Íslendingar þrír Danir og einn skákmaður frá Puerto Rico tefla á Boðsmóti Taflfélags Reykjavíkur sem hófst á sunnudaginn. Boðsmót TR hefur farið fram með reglulegum hætti um áratuga skeið og venjulega fer það fram yfir sumarmánuðina. Meðal þeirra sem unnu í fyrstu um- ferð mótsins voru Björn Þorsteinson sem lagði aðalskipuleggjenda móts- ins, Torfa Leósson. Þá vann Björn Þorfinnsson nýr forseti SÍ vann einn- ig sína skák gegn Ivan Nieves Ka- malakanta frá Puerto Rico. Jakov Vang Glud vann Daða Ómarsson en jafntefli gerðu Guðmundur Kjartans- son og Ingvar Þ. Jóhannesson og Espen Lund og Simen Bekker Jen- sen. Einn aðaltilgangur mótsins er að gefa ungum og skákmönnum í TR möguleika á titiláföngum en áfangi al- þjóðlegs meistara er 6½ vinningur af níu mögulegum. Gaman verður að fylgjast með gengi íslensku skák- mannanna en líklegastir til afreka eru sennilega Guðmundur Kjartansson og Ingvar Þ. Jóhannsson að ógleymd- um Birni Þorfinnssyni sem er stiga- hæstur íslensku skákmannanna en Danirnir þrír skipa ásamt honum hóp fjögurra þeirra stigahæstu. Blindur grænlenskur piltur teflir í Djúpuvík Allt útlit er fyrir góða þátttöku á minningarmótinu um Pál Gunnarsson sem fer um næstu helgi. Alls hafa um 60 skákmenn skráð sig til leiks. Meðal keppenda eru stórmeistar- arnir Helgi Ólafsson og Henrik Dani- elssen, alþjóðlegu meistararnir Stef- án Kristjánsson og Arnar Gunnars- son, Björn Þorfinnsson forseti, Guð- mundur Kjartansson og fjölmargir aðrir sterkir skákmenn. Þá hefur skráð sig til leiks blindur grænlensk- ur piltur Paulus Napatoq. Paulus kemur alla leið frá þorpinu Ittoq- qortoormiit, en engin byggð er norð- ar á austurströnd Grænlands. Nær Magnús Carlsen efsta sæti á heimslistanum? Enn einn sigurinn Magnús Carlsen (t.h.) vel birgur af appelsíusafa leggur Rúmenann Nisipeanu í sjöttu umferð. SKÁK Foros, Úkraínu Aerosvit-mótið 7.-20. júní 2008 helol@simnet.is Helgi Ólafsson Það var árið 1949 að sex vaskir ungir piltar fóru með ms. Trölla- fossi vestur til Banda- ríkjanna í flugvirkjanám. Þegar við vorum komnir til New York vorum við svo heppnir að taka Route 66 og komum til Los Angeles eftir ógleymanlega fjögurra sólar- hringa ferð. Flugvirkjanámið tók eitt ár í virt- um flugvirkjaskóla, Cal-Aero í Glen- dale í Kaliforníu. Við vinirnir vorum nú orðnir sjö sem leigðum einbýlis- hús og gerðum lítið annað en að læra og hugsa um eldamennskuna, sem var heilmikið mál í þá daga. En við tengdumst órjúfanlegum vinabönd- um sem hafa haldist í öll þessi ár en Benedikt er sá fyrsti sem fellur frá úr þessum hópi. Benedikt var einn af okkur og eftir heimkomuna réð hann sig til Flugfélags Íslands þar sem hann hafði áður verið lærlingur hjá Brandi Tómassyni yfirflugvirkja. Hann varð vaktstjóri hjá sama fyrirtæki og síðan tóku við flugvél- stjórastörf á DC 4 og DC 6 í tíu ár, bæði á Grænlandi og öðrum áfanga- stöðum Flugfélags Íslands. Þegar flug lagðist niður á þessum vélum þá kom Benni, eins og hann var kallaður, aftur til starfa hjá tæknideildinni sem skoðunarmaður og gegndi því starfi til starfsloka. Benni var góður og vandaður starfsmaður og var alltaf mjög hjálp- samur við að aðstoða ungu mennina sem voru að byrja í starfi enda var hann sérstakur reglumaður og til fyrirmyndar fyrir unga menn. Benedikt var flugmaður og flaug mikið sér til ánægju. Hann átti hlut í Flugstöðinni hf. og þar að auki hlut í mörgum flugvélum. Benni var alltaf að og féll aldrei verk úr hendi. Eftir starfslok hjá Icelandair fór hann að vinna við Pál Sveinsson DC 3, landgræðsluvélina, og lagði hann mikla rækt við það starf. Hann naut þess að koma sér upp sumarbústað með sinni elskulegu konu og einmitt þegar hópurinn ásamt eiginkonum kom síðast saman í fyrrasumar var það hjá Auði og Benna í Skorradalnum. Við skólafélagarnir frá Glendale Benedikt Eyfjörð Sigurðsson ✝ Benedikt Ey-fjörð Sigurðsson fæddist í Reykjavík 2. desember 1929. Hann lést á heimili sínu, Lækjasmára 72 í Kópavogi, 31. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ 10. júní. munum sakna þín því þú varst góður félagi og vinur. Við sendum Auði og fjölskyldunni okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Skólabræður og eiginkonur, Alfreð, Ármann, Búi, Gunnar, Hall- dór og Haraldur. Með örfáum línum viljum við kveðja elskulegan samstarfsmann okkar og félaga, Benedikt Sigurðsson flug- virkja, og senda vandamönnum hans samúðarkveðjur. Benni eins og hann var jafnan kallaður hafði starfað um áratugaskeið hjá Landgræðslunni. Á þeim tiltölulega stutta tíma af hans merku og löngu starfsævi reyndist hann einstaklega hugljúfur og dag- farsprúður félagi og starfsmaður. Hlutverk hans var að sinna viðhaldi landgræðsluflugvélarinnar Páls Sveinssonar eða þristinum eins og hún er nú jafnan kölluð. Með prúð- mannlegri framkomu sinni sýndi hann strax hversu vel hann var starfinu vaxinn. Það var til þess tek- ið hversu hjálpfús hann var og traustur starfsmaður, ljúfmenni og einstakur í samskiptum og um- gengni. Hann hafði mikla kímnigáfu og var ótrúlega sögufróður, sérstaklega frá Grænlandsfluginu og árdögum flugsins hér á landi. Hann naut þess að segja frá margvíslegum ævintýr- um í fluginu og það var unun að hlusta á hann segja frá þeim og veiðiferðum, en silungsveiði var hans líf og yndi. Hann var frábær fagmaður á sínu sviði og þekkti þristinn út í ystu æsar. Þrátt fyrir skerta heyrn á síðustu æviárum heyrði hann alltaf rétt klukkuslátt- inn í þristinum og tilfinning fyrir hljóði vélarinnar var með ólíkindum. Hann þurfti ekki viðgerðarbækurn- ar til að finna það sem að var, eða til að setja hana saman eftir að véla- hlutir höfðu verið teknir sundur. Einstök samviskusemi varðandi vél- ina einkenndu öll hans störf. Benni var sannur þristavinur, en hafði dá- læti á öllum eldri flugvélum og var afar fróður um þær. Okkur félögum hans hjá Landgræðslunni er að leið- arlokum efst í huga þakklæti og virðing fyrir viðkynninguna sem aldrei bar skugga á. Kærar kveðjur frá Jónu Maríu, Ómari og hleðslu- mönnum sem unnu með honum í landgræðslufluginu og hugsa til hans með virðingu fyrir samfylgd- ina. Minningin um góðan dreng, sem vildi öllum gott gera, mun lifa með okkur. Við vottum aðstandendum hans okkar dýpstu samúð. Björn Bjarnarson, Sveinn Runólfsson og synir. Benedikt Sigurðarsyni flugvirkja kynntist ég eftir að ég fór að fljúga DC3 flugvél Landgræðslu ríkisins, Páli Sveinssyni eða Þristinum eins og við nefnum oftast flugvélina. Benni, eins og hann var jafnan kall- aður, var hafsjór af fróðleik um við- hald og uppbyggingu DC3-flugvéla eins og annarra flugvéla sem hann kom nærri. Hann var mikill áhuga- maður um flug á gömlum flugvélum. Hann sá um viðhald á Þristinum „okkar“ Páli Sveinssyni ásamt fleiri flugvirkjum á síðasta áratug land- græðsluflugsins, en hann hafði unnið mikið við DC3-flugvélar meðan þær voru notaðar af Flugfélagi Íslands í innanlandsfluginu. Þegar við vorum að dreifa áburði á Páli frá ýmsum stöðum á landinu, þá fylgdi Benni okkur til að sjá um viðhaldið. Á þeim ferðum okkar kom fyrir eins og gengur að ekki var hægt að fljúga vegna veðurs. Þá voru sagðar sögur úr fluginu frá tímum Catalína-flug- báta, Douglas DC3, DC4, DC6 o.s.frv. Benni gat frætt okkur um all- ar þessar vélar þar sem hann hafði ýmist unnið við þær sem flugvirki eða unnið um borð í þeim sem flug- vélstjóri. Með Benna er genginn einn af frumkvöðlum íslenskrar flugsögu. Menn eins og hann, sem hafa unnið við allar þessar flugvélategundir til- heyra svo sannarlega hópi frum- kvöðla í fluginu á Íslandi. Benni hafði einkaflugmannspróf og átti hlut í mörgum flugvélum í gegnum tíðina og flaug þeim. Hann hafði því einnig reynslu sem flugmaður og naut þess að segja okkur sögur af þeirri reynslu sinni líka. Ein af þeim sögum er mér sérlega eftirminnileg. Það er flug sem hann fór frá Sauð- árkróki til Reykjavíkur á Eurocop- ter sem hann flaug sjálfur. Hann lenti í hremmingum bæði á Holta- vörðuheiðinni vegna þoku og undir Hafnarfjalli vegna mikillar ókyrrð- ar. Við flugmennirnir höfðum gaman af að heyra hann segja frá þessu flugi. Þrátt fyrir að sagan væri al- varleg þá var mikið hlegið þegar hann sagði frá og lýsti þeim hættum sem hann lenti í, á gamansaman hátt. Þessa sögu heyrði ég hann segja mörgum sinnum en alltaf var jafnskemmtilegt að hlusta á hana. Benni var einn af þeim sem hélt Þristinum gangandi og var alltaf tilbúinn að koma og leysa þau mál sem þurfti til að vélin gæti flogið. Þristurinn var Benna ofarlega í huga, þannig fékk ég skilaboð frá honum fáeinum dögum áður en hann lést þar sem hann vildi vita hvernig okkur gengi með Þristinn, þetta vor- ið. Ég heimsótti hann og þar rædd- um við um Þristinn og það sem búið væri að gera og það sem væri fram- undan. Það eru forréttindi að fá að kynnast og vinna með manni eins og Benna. Fyrir hönd stjórnar DC3 Þristavinafélagsins sendi ég eftirlif- andi eiginkonu Benna, Auði og fjöl- skyldu samúðarkveðjur. Tómas D. Helgason. Á hverjum mánudagsmorgni hitt- ist fámennur hópur manna í kaffi í Perlunni. Þetta eru fyrrverandi samstarfsmenn og félagar Bene- dikts E Sigurðssonar flugvirkja en hann var félagi í þessum fámenna hópi. Hans er nú sárt saknað og missirinn mikill fyrir hópinn. Bene- dikt er nú floginn til annars heims en minningin um hann lifir áfram. Auði og fjölskyldunni sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Perluhópsins, Karl Hjartarson. Enginn ræður sín- um næturstað. Þetta fór um huga minn, er ég frétti andlát Helgu vinkonu minn- ar, sem svo snöggt og að því er virðist fyrirvaralaust kvaddi þetta líf. Hún hafði brugðið sér í sund, svona rétt eins og venjulega, en veiktist og var látin áður en komið var á sjúkrahús. Þetta var mikið reiðarslag fyrir alla ástvini Helgu, ekki síst er hátíð ljóss og friðar var í nánd. Þar sem ég komst ekki að útför Helgu langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Kynni okkar Helgu hófust er ég réð mig eitt sumar sem matráðs- kona hjá bræðrum hennar í sveit- inni. Með mér var ungur sonur minn og þótti hann fljótt liðtækur við bústörfin, enda undi hann sér vel í sveitinni og sumrin urðu fleiri. Á þessum tíma komu hjónin Er- lendur og Helga í heimsókn. Svo Helga Ívarsdóttir ✝ Helga Ívars-dóttir fæddist í Vestur-Meðal- holtum í Flóa 4. jan- úar 1934. Hún lést í Reykjavík 21. des- ember 2007 og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 3. janúar 2008. ég kynntist þeim all- nokkuð. En eftir and- lát Erlendar fór ég að taka Helgu með mér á ýmis námskeið, til dæmis dansnám- skeið og ýmislegt fleira. Upp úr standa þó dagsferðirnar, sérstaklega þó Skógaferðin, þar sem veðrið lék við okkur og svo safnið, sem er yfirgripsmikið og for- vitnilegt. Þegar við fórum í þessar löngu ferðir höfðum við varabílstjóra svona til öryggis. Aldrei henti neitt óhapp okkur Helgu á ferðum okk- ar enda ferðabænin alltaf til stað- ar. Helga reyndist Erlendi manni sínum mjög vel í hans alltof langa sjúkdómsstríði. Erlendur var myndarmaður og mjög flinkur húsgagnasmiður. Ekki verða fleiri ferðirnar okkar Helgu í sveitina en síðastliðið sumar kom okkur sam- an um að hafa töðugjöld og var þá kallað í bræðurna sem búa annars staðar, svo allir gætu notið veiting- anna. Ekki datt mér í hug að þetta yrðu síðustu samfundir okkar Helgu. Ég minnist góðra stunda í sveitinni er við Helga vorum að út- búa helgarsteikina og auðvitað var tekist á um hvor væri betri kokk- ur, mikið hlegið og mikið grínast. En því miður er því lokið. Helga var myndarhúsmóðir sem veitti af rausn. Handavinnan henn- ar var falleg. Helga tók mikinn þátt í félagslífinu í Hæðargarði, enda bjó hún þar svo hægt var um vik. Helgu verður sárt saknað því hún var dugleg að flytja fólið sem þar bjó til kirkju. Sárt er að hugsa til þess hve Sverrir, sambýlismaður Helgu, naut hennar stutt. En tæpt ár varði þeirra sambúð. Sverrir reyndist Helgu afar vel, nú vinnur hann úr sorginni með sinni al- kunnu ró. Ekki sést jeppinn hennar Helgu úti á planinu hjá mér í sumar. Ekki verður farin nein helgarferð í sveitina til að aðstoða þá bræður. Ég sakna þeirra ferða. Ég bið góðan Guð að blessa alla ástvini Helgu. Læt fylgja hér með ljóð sem er í miklu uppáhaldi hjá mér: Yndislega ættarjörð ástarkveðju heyr þú mína. Þakkar klökkva kveðjugjörð, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína. (Sig. Jónsson frá Arnarvatni) Blessuð sé hennar minning. Elín S. Kristinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.