Morgunblaðið - 17.06.2008, Qupperneq 35
Ljósmyndir/Leó Stefánsson
Smókur Karl Karlsson eða Kalli úr Dáðadrengjum fær sér smók, nýlentur í Viðey með þyrluna í bakgrunni.
AÐ minnsta kosti 250 manns
sóttu fimm ára afmælis-
veislu blaðsins Reykjavik
Grapevine í Viðey á föstu-
dagskvöldið.
Veðrið lék við veislugesti
eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum og skemmtu
menn sér konunglega.
Það var hljómsveitin
Dáðadrengir sem hélt uppi
stuðinu og að sögn viðstaddra
var sveitin hreint út sagt stórkostleg. Það voru því sælir og ánægðir veislu-
gestir sem sigldu aftur í land um sólsetur.
Veðurblíða
í Viðeyjarveislu
Flott í tauinu Huggulega klædd stúlka í afmælisveislu.
Notalegt Gestir á eyjunni góðu. Bassinn plokkaður Rauðskeggjaður bassaleikari Dáðadrengja.
Flöskustútur? Tilefni myndatöku óljóst.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 35
FIMM ár eru liðin síðan Ang Lee
reyndi að færa ævintýri græna ris-
ans Hulks á hvíta tjaldið. Útkoman
árið 2003 var skelfileg, hæfileikar
hins framúrskarandi taívanska
leikstjóra fóru í súginn og myndin
gekk illa í þokkabót. Draumar um
myndaröð á borð við Spiderman
eða Batman runnu því í sandinn.
Fólkið hjá Marvel hefur þó ekki
gefist upp, viðhorfið þar á bæ virð-
ist vera að Hulk skuli slá í gegn,
hvort sem áhorfendum líkar betur
eða verr, og því gefur nú að líta
aðra tilraun um kvikmyndaaðlögun.
Hér er ekki á ferðinni fram-
haldsmynd í hefðbundnum skiln-
ingi þess orðs, né heldur end-
urgerð. Hinn ótrúlegi Hulk (The
Incredible Hulk) er einfaldlega
önnur atlaga að því að búa til
fyrstu myndina í gróðavænlegri
seríu, og fyrsta verkefni leikstjór-
ans, Louis Leterrier, er að reyna
að þurrka út minningar um mynd
Lees. Þetta reynir Leterrier að
gera með því að forðast eins og
heitan eldinn að skapa sál-
fræðilegar flækjur umhverfis þau
örlög að verða að gammageisla-
skrímsli, en það var ein af mörgum
gildrum sem Lee féll í í fyrri
myndinni.
Í nýju myndinni er upprunasög-
unni komið áleiðis á fyrstu mín-
útunum meðan nafnalistinn rúllar
og því næst erum við komin beint
inn í hringiðu söguþráðarins. Víkur
sögunni þar til Brasilíu þar sem
Bruce Banner (Edward Norton)
dvelst í felum fyrir útsendurum
hersins sem vilja góma hann í til-
raun til að nota Hulk sem vopn.
Í hönd fer einstaklega ófrumleg
saga sem helst á floti vegna þess að
tekist hefur að fá ágæta leikara til
að taka að sér helstu hlutverk. Ew-
ard Norton er stórfínn sem hinn
hrakti og örvæntingarfulli Banner
og William Hurt og Tim Roth eiga
vel saman sem ómennin í sögunni.
Þá hefur tölvutækninni fleygt fram
síðan hinn stóri græni skoppaði um
tjaldið líkt og undirfurðulegur
sterabolti í mynd Lees og þótt
Hulk sé ekki beinlínis sannfærandi
sköpunarverk í nýju myndinni
framkallar hann að minnsta kosti
ekki hlátrasköll.
Annars er það að ráðast í aðra
útgáfu af Hulk kannski fyrst og
fremst dæmi um þá gríðarlegu
hugmyndafátækt sem ræður ríkj-
um í Hollywood, ofurhetjumyndir
eru vissulega hver annarri líkar en
samt mætti halda því fram að fáar
séu jafn ósjarmerandi og hinn
ómálga Hulk.
Grænn en ekki vænn
KVIKMYND
Smárabíó, Laugarásbíó, Borg-
arbíó, Sambíóin Álfabakka og
Selfossi
Leikstjórn: Louis Leterrier. Aðalhlutverk:
Edward Norton, Liv Tyler, William Hurt og
Tim Roth. Bandaríkin, 114 mín.
The Incredible Hulk (Hinn ótrúlegi Hulk)
bbnnn
Heiða Jóhannsdóttir
Hamskipti Edward Norton um það bil að breytast í Hulk. Önnur útgáfa af Hulk er kannski fyrst og fremst dæmi
um þá gríðarlegu hugmyndafátækt sem ræður ríkjum í Hollywood, að mati gagnrýnanda.
SLÚÐURFREGNIR herma að
Reese Wither-spoon hafi farið með
kærasta sínum Jake Gyllen-haal í
jógatíma um helgina. Jógatíminn
þykir ekki síst
fréttnæmur fyrir
þær sakir að hann
fór fram aðeins
tveimur dögum
eftir að gengið var
frá skilnaði Reese
og fyrrum eigin-
manns hennar,
Ryan Phillippe.
Mun Ryan hafa
upplýst við fjölmiðla að þegar skiln-
aðurinn blasti við hafi hann liðið
miklar vítiskvalir, verið í algjöru
rusli bæði líkamlega og andlega, og í
sjálfsvígshugleiðingum.
Gekk jafnvel svo langt að hann
vaknaði með grátstafinn í kverkun-
um og uppköstum. Ryan mun nú all-
ur hressari, kominn á fast með leik-
konunni Abbie Cornish.
Reese og
Jake í jóga
Reese WitherspoonJake Gyllenhaal
Ryan Phillippe