Morgunblaðið - 17.06.2008, Page 40

Morgunblaðið - 17.06.2008, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HORNLEIKARAR úr öllum áttum steðja nú til Íslands, þeirra erinda að halda hátíð. Alþjóðlega hornleik- araþingið Nordhorn 2008 hefst í Saln- um á morgun og lýkur á sunnudag. Hornleikararnir verða ekki í vandræð- um með að hafa ofan af fyrir sér, því auk alls kyns samspilsæfinga fyrir tón- leika hátíðarinnar verða erindi, fyr- irlestrar og masterklassar, auk tón- leika þar sem hornið verður í aðal- hlutverki. Dagskráin þessa þessa fimm daga er þrautskipulögð frá morgni til kvölds. Lítið af leiðinlegum keppnisanda Stefán Jón Bernharðsson er yngsti hornleikarinn í Sinfóníuhljómsveit Ís- lands, en hefur samt talsverða reynslu af því að sækja hornleikaraþing. „Það er mjög sterkt bræðralag meðal horn- leikara; minna af leiðinlegum keppn- isanda og meira kammeraterí,“ segir Stefán Jón, og kveðst ekki hafa hug- mynd um af hverju hornleikarar hafa þessa sérstöðu meðal hljóðfæraleikara. „Það er þekkt fyrirbæri alls staðar, að hornleikarar standa vel saman, og það er alltaf gaman að hitta þá hvar sem er. Við horndeildin í Sinfó höfum til dæmis oft farið saman á svona þing, og ferðumst saman. Fólk spyr hvort við fáum ekki nóg hvert af öðru yfir veturinn þótt við eyðum ekki sumrinu saman líka, en svona er það samt. Ég held að þetta þekkist ekki til dæmis meðal fiðluleikara eða flautuleikara.“ Frá áhugafólki til þeirra bestu Stefán Jón segir það algera veislu að fá tækifæri til að hitta svo marga hornleikara. Þingið sæki áhugamenn og nemar en einnig flinkasta atvinnu- fólkið á okkar slóðum. „Það er frábært fyrir okkur – og líka þá sem ekki spila á horn, að fá að heyra í afburða horn- leikurum víðsvegar að úr heiminum. Ég held að þeir sem ekki spila á horn geti vel heyrt hvað Ísland á í rauninni góða hornleikara miðað við þá allra bestu. Svo heyrir maður þetta fólk líka kenna. Þetta er gríðarleg inspíra- sjón.“ Alþjóðlega hornleikaraþingið Nordhorn 2008 haldið á Íslandi í fyrsta sinn Sterkt bræðralag meðal hornleikara Morgunblaðið/Kristinn Vinir Hornaflokkur Sinfóníuhljómsveitar Íslands blæs í friði og vináttu. Gott er að eiga hauk í horni. EINLEIKARI í Hornkonsert Richards Strauss á Sinfóníutónleikum á föstudags- kvöld er Radovan Vlatkovic frá Zagreb í Króatíu. Hann byrjaði sex ára að læra á horn, fyrst í Bandaríkjunum, svo heima í Zagreb, en lokaprófi lauk hann frá Tónlistarháskól- anum í Detmold í Þýskalandi. Á námsárum sínum vann hann verðlaun í þremur alþjóð- legum hornleikarakeppnum, og hélt þeirri frægðarför áfram að námi loknu, meðal annars með sigri í einleikarakeppni ARD- útvarpsins í München í Þýskalandi. Frægðarferill Vlatkovic hefur verið óslit- inn, en frá 1990 hefur hann helgað sig ein- leik á hljóðfæri sitt. Hann þykir einn besti horneinleikari heims í dag. Radovan Vlatko- vic er einnig prófessor við Mozarteum í Salzburg. Komst á toppinn á námsárunum Salurinn, annað kvöld kl. 20 Kammersveit Reykjavíkur leikur; Petri Sakari stjórnar Mozart: Sinfonia di caccia í G-dúr Einleikarar: Joseph Ognibene, Emil Friðfinnsson, Stefán Jón Bernharðsson og Þorkell Jóelsson. Graun: Konsert í D-dúr Einleikari: David M.A.P. Palmquist Lars-Erik Larsson: Concertino Op. 45 No. 5 Einleikari: Annamia Larsson Hugi Guðmundsson: Hex (2008) Einleikari: Stefán Jón Bernharðsson Gordon Jacob: Concerto Einleikari: Esa Tapani -------------------------- Háskólabíó, föstudagskvöld kl. 19.30 Sinfóníutónleikar með 20 manna hornasveit; Stef- an Solyom stjórnar Þrjú verk eftir Richard Strauss: Alpasinfónía Hornkonsert nr. 2 Einleikari: Radovan Vlatkovic Ævintýri Ugluspegils Tónleikar á hornþingi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.