24 stundir - 26.06.2008, Blaðsíða 41

24 stundir - 26.06.2008, Blaðsíða 41
24stundir FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 41 Colin Farrell passar vel upp á son sinn en nýtt myndband sýnir hvar Farrell leikur sér í sjónum með syni sínum þar til hann tekur eftir því að verið er að mynda hann. Hann fer með soninn til vina sinna og hleypur í átt að mynda- tökumanneskjunni sem heyrist segja „oh, ó“ þegar ljóst er að Colin er á leið- inni. Colin spyr hvort verið sé að taka helvítis mynd af honum og skipar þeim að slökkva. Hræðslutónninn í fólkinu á bak við myndavélina gefur skýrt að kynna að hér séu forvitnir strandagestir á ferð en ekki atvinnumenn. Athygli vek- ur að hin kasólétta Minnie Driver er með Farrell á ströndinni og því spurning hvort frétta sé að vænta af þeim tveimur? iav Colin Farrell á stefnumóti með Minnie Driver? Söngkonan Joss Stone er víst í miklum fjárhagsvandræðum þessa dagana. Stone hefur ekki komið lagi á topp 10 síðan árið 2004 en eyðir enn þá peningum eins og þeir vaxi á trjánum. Á síð- asta ári greiddi hún sér 2,2 millj- ónir dollara í laun og fór stór hluti af þeim peningum í kaup á húsi í Hollywood. Heimildir herma að söngkonan þurfti að taka á sínum málum ef hún ætlar að halda sér réttu meg- in við núllið. Hún þarf að gefa út nýja plötu og reyna að koma henni á toppinn. Það ætti ekki vera vandi enda er hún mjög hæfileikarík söngkona. iav Peningalaus Joss Stone FÓLK 24@24stundir.is a Colin spyr hvort verið sé að taka helvítis mynd af honum og skipar þeim að slökkva. fréttir

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.