24 stundir - 26.06.2008, Blaðsíða 14

24 stundir - 26.06.2008, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 24stundir Heppinn áskrifandi að Lottóinu fer á Ólympíuleikana í Peking í ágúst. Nú fer hver að verða síðastur að gerast áskrifandi! Dregið 28. júní. Keppni í heppni! Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórn- arandstöðuflokks Simbabve, segir að alþjóðasamfélagið verði að taka einarða afstöðu gegn forsetanum Robert Mugabe. Óttast hann að ella steypist landið í frekari hörmungar. Tsvangirai hefur undanfarna daga hafst við í sendiráði Hollend- inga í Harare, höfuðborg Sim- babve. Þar leitaði hann hælis, þar sem hann óttaðist um líf sitt. Dvöl- ina í sendiráðinu hefur hann nýtt til að senda leiðtogum grannríkj- anna skeyti. Í gær birti breska blað- ið Guardian bréf eftir Tsvangirai, þar sem hann lýsti áhyggjum sínum af framvindu mála. Kallar eftir alþjóðaliði „Afríka hefur auðvitað séð þetta allt saman áður,“ segir Tsvangirai í bréfinu sem Guardian birti. „At- burðarásin í Simbabve er skugga- lega kunnugleg. Valdasjúkur harð- stjóri heldur þjóð sinni í gíslingu sinna eigin ranghugmynda, brýtur niður von þjóðarinnar og leikur á alþjóðasamfélagið.“ Tsvangirai gagnrýndi málamiðl- unartilraunir Mbekis, forseta Suð- ur-Afríku, sem hann segir sýna Mugabe of mikla linkind. „Við biðjum Sameinuðu þjóðirnar að ganga lengra en þær gerðu í ályktun sinni – að fordæma ofbeldið í Sim- babve, að taka upp virka einangr- unarstefnu gagnvart einræðisherr- anum Mugabe.“ Í því skyni vill Tsvangirai að al- þjóðlegt herlið verði sent til að gæta friðar í landinu. „Ég er ekki að biðja um hvaða hernaðaríhlutun sem er, heldur vil ég sjá vopnaða friðargæsluliða,“ segir Tsvangirai. „Sáttaumleitunina má ekki vinna með hangandi hendi. Tími aðgerða er runninn upp. Þjóðin þolir enga bið.“ Kosið án andstöðunnar Mugabe forseti hyggst halda því til streitu að láta seinni umferð for- setakosninga fara fram á morgun – þótt hann sé orðinn einn í fram- boði. Í ríkisrekna dagblaðinu Her- ald er haft eftir Mugabe að hann sé reiðubúinn til viðræðna, en á sín- um forsendum. Er það talið til marks um að hann vilji nota kosn- ingarnar á föstudag til að festa sig í sessi í forsetastólnum, enda hafi hann hlotið færri atkvæði en mót- herji sinn í fyrri umferð kosning- anna. Þegar sú staðfesting verði fyr- ir hendi verði hann tilbúinn til viðræðna. Tsvangirai kveður fast að orði um kosningarnar á morgun. „Þetta eru ekki kosningar. Þetta er stríð. Mugabe hefur lýst yfir stríði og við viljum ekki taka þátt í því.“ Leiðtogar ríkja í sunnanverðri Afríku ræddu ástandið í Simbabve í gær. Hvöttu þeir Mugabe til að fresta kosningunum og báða aðila til að ræða málin. Tsvangirai óttast að vont versni í Simbabve  Hvetur alþjóðasamfélagið til að einangra Mugabe forseta  Vill að alþjóðalið gæti friðar í landinu Meðmæli Stuðningsmenn stjórnarflokks Mugabes létu í sér heyra í gær. ➤ Morgan Tsvangirai hefur sett fram fjórar kröfur sem hann segir vera lykilinn að lausn deilunnar í Simbabve. ➤ Til að viðræður um kröfurnarkomist af stað segir hann alla aðila verða að viðurkenna umfang vandans. ➤ Ofbeldi ljúki þegar í stað.Hópar vígamanna snúi til síns heima og vegatálmar verði teknir niður. ➤ Mannúðaraðstoð verði leyftað berast til landsins. ➤ Allir sem hlutu þingkosningu29. mars síðastliðinn verði svarnir í embætti. ➤ Allir pólitískir fangar verðileystir úr haldi. KRÖFUR TSVANGIRAIS Bill Clinton, fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, mun leggja lóð sín á vogarskálarnar til að Barack Obama hafi betur í slagnum um Hvíta húsið í haust. Hefur hann heitið Obama fullum stuðningi, eftir að hafa verið tregur til. Obama var helsti keppinautur Hillary, eiginkonu Clintons, um útnefningu Demókrataflokksins í forsetasæti. Hvert framlag Clintons til bar- áttunnar verður er enn ekki ljóst, en hann nýtur mikilla vinsælda í ýmsum þjóðfélagshópum sem Obama þykir ekki ná nógu vel til – sér í lagi hvíts lágtekjufólks í dreif- býli. Obama fagnar stuðningsyfirlýs- ingunni, og segist þurfa aðstoðar beggja Clinton-hjónanna við til að ná kjöri. „Þau þurfa að beita sér mikið í þágu forsetaframboðsins,“ sagði Obama í viðtali við frétta- stöðina CNN. „Ég mun þurfa á þeim að halda.“ Obama og Hillary Clinton munu halda sameiginlega fjáröflun á morgun, þar sem meðal annars stendur til að safna 10 milljónum dala til að greiða niður skuldir Clinton vegna framboðs síns. aij Grær um heilt í Bandaríkjunum Bill Clinton styður Barack Obama Sáttur Forsetinn fyrrverandi veðjar á Obama í næstu kosningum. Mismunun og ofbeldi á grund- velli kynþáttar eru viðvarandi vandamál innan Evrópusambands- ins, sem of fá aðildarríki berjast nægjanlega gegn. Þetta kemur fram í ársskýrslu Evrópustofnunar um grundvallarréttindi. Bretland og Frakkland eru efst á lista yfir níu ríki sem stunda virka baráttu gegn kynþáttafordómum og útlendingahatri. Á árunum 2006-7 féllu þar til að mynda 95 dómar – fleiri en samanlagt í öðr- um aðildarríkjum ESB. Í tólf ríkjum var enginn dæmdur á tímabilinu – sem stofnuninni þykir frekar benda til þess að laga- úrræði skorti, en að kynþáttafor- dómar séu þar engir. aij Tólf Evrópusambandsríki átalin Of miklir fordómar

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.