24 stundir - 26.06.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 26.06.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 30 Amsterdam 22 Alicante 27 Barcelona 28 Berlín 24 Las Palmas 24 Dublin 17 Frankfurt 21 Glasgow 16 Brussel 22 Hamborg 22 Helsinki 15 Kaupmannahöfn 17 London 22 Madrid 35 Mílanó 33 Montreal 18 Lúxemborg 20 New York 21 Nuuk 5 Orlando 26 Osló 18 Genf 30 París 23 Mallorca 28 Stokkhólmur 17 Þórshöfn 8 Austan og norðaustan 3-8 metra á sekúndu, víða bjart veður, en skúrir inn til landsinds, einkum síðdegis. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast suð- vestantil. VEÐRIÐ Í DAG 9 11 6 8 9 Allt að sextán stiga hiti Rigning verður á Norðurlandi, að minnsta kosti hluta úr degi. Örlítið kaldara verður á Austurlandi en rigningarlaust. Hlyjast verðu á Suður- og Vesturlandi og rigningarlaust. VEÐRIÐ Á MORGUN 10 11 6 9 8 Hlýjast sunnanlands „Þessi niðurstaða kemur mér mjög á óvart og er augljóslega á skjön við alla hugsun í lögum um innherjaviðskipti og alþjóðlegar venjur,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Sam- taka fjárfesta, um skoðun efnahagsbrotadeildar á sölu þriggja stjórnarmanna í SPRON á hlutum sínum í félaginu. Efnahagsbrotadeildin telur ekki vera tilefni til þess að hefja opinbera rannsókn „vegna gruns um refsiverða hegðun“, eins og orðrétt segir í bréfi Helga Magnúsar Gunnarsson saksóknara efnahagsbrota til Samtaka fjárfesta. Hildur Petersen, Ásgeir Baldurs og Gunnar Þór Gíslason, sem voru öll stjórnarmenn í SPRON, seldu hluta af stofnfjárhlutum sínum fyrir 196 milljónir að nafnvirði skömmu áður en félagið var skráð á markað í október í fyrra. Gunnar Þór og félög tengd honum seldu fyrir stærsta hluta eða um 188 milljónir. Raunvirði þessara hluta á þeim tíma sem þeir voru seldir var á milli tveggja og þriggja milljarða. Ekki var upplýst um sölu stjórnarmannanna á hlutunum fyrr en hún var gagnrýnd harðlega af Jóhannesi Karli Sveinsson hæstaréttarlög- manni í dómsmáli Saga Capital gegn Insolidum ehf. Insolidum, sem er í helmingseigu Daggar Pálsdóttur varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins, keypti hluta stofnfjárbréfanna sem Gunnar Þór seldi. Stjórnin svaraði því til, aðspurð hvers vegna ekki hefði verið upplýst um sölu stjórnarmann- anna, að Fjármálaeftirlitið (FME) hefði bannað það. Þessu mati stjórnar SPRON var Fjármálaeft- irlitið ósammála og sagði stjórnarmenn SPRON hafa getað upplýst um söluna ef þeir hefðu viljað. „Það liggur í augum uppi að stjórn SPRON hafði undir höndum innherjaupplýsingar um hag félagsins sem aðrir höfðu ekki. Stjórn SPRON var að skora á aðra að kaupa í félaginu með annarri hendinni en á sama var hún að selja hluti leynilega með hinni hendinni. Það er áfall fyrir fjárfesta, sem hafa tapað stórkostlega á hörmulegu gengi SPRON á markaði, að þetta skuli ekki vera rann- sakað,“ segir Vilhjálmur. magnush@24stundir.is Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra (RLS) rannsakar ekki sölu stjórnarmanna í SPRON Segir niðurstöðu RLS áfall fyrir fjárfesta SPRON Gengi SPRON hefur lækkað úr 18,7 í 3,58 síðan félagið var skráð á markað. „Hraðamerkingar eru alþjóðlegar en út- lendingar keyra oftast mun hraðar en Íslendingar á vegum landsins,“ segir Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu og bætir við að erlendir gestir bregði því oft við að allt aðrar reglur gildi í heimalandi sínu. Sigurður segir að umferðarmerkingum sé ekki ábótavant á landinu og að víða séu útskýringar á ensku. „Gerð var bragabót á viðurlögum vegna hraðaksturs í fyrrasumar,“ segir Sig- urður. Auk þessa hafði lögreglan á Hvolfsvelli og Sjóvá frumkvæði að því að dreifa einblöðungi á ensku með upplýsingum um leyfilegan há- markshraða og hættum á vegum. „Slysin gerast aðallega þegar skipt er yfir á malarvegi, því erlendir gest- ir átta sig ekki á muninum á bundnu slitlagi og möl,“ segir starfs- maður Hertz bílaleigunnar. Hámarkshraði á malarvegum landsins er 80 km á klst. en annars er leyfður hámarkshraði 90 km á klst. áb Hraðakstur erlendra gesta Seðlabankinn mun í dag, fyrir hönd ríkissjóðs, bjóða út stutt ríkisbréf í tveimur flokkum af þremur sem ríkisstjórnin boðaði fyrir helgi. Boðið eru út bréf fyrir 15 milljarða króna með gjalddaga í lok þessar árs og bréf fyrir 10 milljarða með gjalddaga um mitt næsta ár. ejg Ríkisbréf fyrir 25 milljarða Kaupþing hefur tilkynnt að von sé á nýjum íbúðalánum frá bank- anum. Verða boðin út sérvarin skuldabréf, með lánshæfismatinu Aaa frá Moody’s, einu sinni í hverjum ársfjórðungi, til að fjár- magna nýju lánin. Kjör á nýju íbúðalánunum fara eftir niðurstöðu útboðsins, en lán þessi verða með 0,9% álagi ofan á vexti skuldabréfanna. Komi til breytingar á vöxtum íbúðalána vegna fyrsta útboðsins, verður hún tilkynnt að morgni dags 30. júní og tekur gildi þegar í stað, segir jafnframt í tilkynningunni. hos Von á nýjum íbúðalánum Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is „Við erum að vinna að fram- kvæmdaáætlun um uppbyggingu á búsetu fyrir fatlaða, biðlistarnir eru of langir að okkar mati,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra. „Biðin eftir búsetuúrræðum fatlaðra er mest í Reykjavík og á Reykjanesi,“ segir hún. Það eru um 30 fötluð börn sem eru í brýnni þörf eftir búsetuúr- ræðum í Reykjavík og á Reykja- nesi en biðlistar almennt fyrir framtíðarúrræðum eru lengri. Fötluð börn í mikilli þörf eftir búsetuúrræðum, skammtímavist- un og stoðþjónustu eru á bið- lististum víðar á landinu. „Mjög brýnt er að bregðast við þessu á næstu tveimur árum,“ segir Jóhanna og bætir við að fjár- lögin ráði því hversu hratt verði hægt að fara í uppbygginguna. Fjármagn til ráðstöfunar „Raunaukning við málaflokk- inn almennt hefur verið 800-900 milljónir króna milli árana 2007- 2008,“ segir hún og bætir við að efling stoðþjónustu á vegum svæðisskrifstofanna og félagasam- taka hafi gert fötluðum betur kleift að búa heima. „Engu að síð- ur eru of margir fatlaðir sem þurfa á búsetu- og þjónustuúr- ræðum að halda og munum við vinna ötullega að lausn þeirra mála“. Framkvæmdaáætlanir Á næsta ári mun ný skamm- tímavistun fyrir fötluð börn opna á Reykjanesi og er ætlað að mæta biðlistum á svæðinu. „Við munum setja fram fram- kvæmdaáætlun til 4-5 ára vegna uppbyggingu á búsetuúrræðum fyrir fatlaða, til að mæta biðlist- unum sem eru of langir,“ segir hún. Unnið er að flytja málaflokkinn yfir til sveita árið 2011 og tilfærslu fjármuna frá ríkinu til sveitafélag- anna. „Mjög mikilvægt er að sveitafélögin sjái um nærþjón- ustuna eins og tíðkast í nágranna- löndunum,“ segir Jóhanna. Segir biðlistana vera of langa  Jóhanna Sigurðardóttir telur brýnt að mæta búsetuþörf fatlaðra  Unnið að framkvæmdaáætlun um búsetuúrræði á næstu 2 árum Jóhanna Telur brýnt að bregðast við búsetuþörf fatlaðra. ➤ Fötluð börn í brýnni þörf eftirbúsetuúrræðum eru um 30 talsins í Reykjavík og á Reykjanesi. Biðlistar eftir þjónustu fyrir fatlaða eru langir. ➤ Aðhaldsaðgerðir ríkisstjórn-arinnar í fjárlagagerð á næsta ári munu eflaust hafa áhrif á ráðstöfunarfjármagn mála- flokksins. FÖTLUÐ BÖRN BÍÐA STUTT ● Lögreglan myndaði brot 15 ökumanna í Lönguhlíð í gær. Á einni klukkustund fóru 162 þar um og því óku nokkuð margir ökumenn, eða 9%, of hratt. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 64 km/klst. en þarna er 50 km hámarkshraði. Tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 76 km hraða. ● Tilkynning Þann 11. júlí nk. mun verðskrá 24 stunda hækka um 5%. Þetta á við um allar auglýsingar. Ástæður þess að nú er gripið til þessarar hækk- unar er mikil hækkun á pappír og dreifingu ásamt lægra gengi krónunnar. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Svíar fagna alþjóðaári kartöfl- unnar sem nú stendur yfir með því að opna kartöflu- skóla. Skólinn er rekinn undir merkjum Háskóla Sameinuðu þjóðanna, og er ætlað að leiða saman kartöflusérfræðinga víðs vegar að úr heiminum. Skólinn er í bænum Alingsås, þar sem fyrsta sænska kart- aflan var gróðursett árið 1723. aij Opnar í Svíþjóð Kartöfluskóli SKONDIÐ ostur.is 20% afsláttur af Samlokuosti í sneiðum í sérmerktum umbúðum í næstu verslun.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.