Morgunblaðið - 11.07.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 11.07.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008 21 G.Rúnar Blog.is Ingibjörg Elsa Björnsdóttir | 10. júlí Þyrlað upp moldviðri ... Um daginn var ég stödd við Gullfoss ásamt hundruðum ferðafólks. Veðrið var gott og regn- bogi var yfir foss- inum...EN... það sveimaði risastór þyrla eins og vofandi fiskifluga yfir fossinum og olli þvílíkri hávaða- mengun að margir tóku fyrir eyrun. ... Meira: ingibjorgelsa.blog.is Hannes Friðriksson | 10. júlí Glitnir að selja í Fasteign ehf.? … Nú í morgun sá ég á vefnum að lá fyrir mál frá Glitni banka er varðaði fyrirhugaða sölu á hluta af hlut þeirra í Fasteign ehf. Auðvitað kom þetta mér svolítið á óvart, ef lit- ið er til þeirrar röksemdarfærslu sem að baki stofnunar Fasteignar ehf. lá, en þau voru einmitt þau að slíkt félag með Glitni að baki væru hæfari til að fjármagna verkefni sveitarfélaganna … Meira: smali.blog.is ÞEGAR ég rak aug- un í grein Hildar Evlal- íu Unnarsdóttur hér í Morgunblaðinu 2. júlí síðastliðinn átti ég erfitt með að skilja hvernig hún hefur upplifað æv- intýrið á Austurlandi. Svo ég vitni beint í greinina hennar: „Með álveri og virkjun átti að bjarga Austurlandi og fólksfækkun vegna kvótaruglsins. En svo varð víst ekki raunin.“ Mér finnst skondið að tala um björgun sem niðrandi aðgerð því við vitum öll hvernig ástandið var hér áður fyrr. Við getum sett okkur í þau spor hvernig ástandið væri í dag vegna „kvótaruglsins“ ef það hefði ekki verið komið álver. Hvernig væri ástandinu háttað þá? Þá væri pottþétt hægt að tala um „líkn- ardeildina Austurland“. Störf við allra hæfi Mér finnst ótrúleg einföldun þeg- ar fólk talar um að það sé bara hægt að vinna sem framhaldsskólakenn- ari hér fyrir austan eða í álveri. Sumir halda að vinnan sem er unnin í álveri sé vinna eins og tíðkaðist í 100 ára gömlum verksmiðjum Sovétríkjanna, en þannig er það ekki. Þau störf sem verið er að tala um í álveri eru svo dæmi séu tekin: Rafvirkjar, bíl- stjórar, hjúkr- unarfræðingar, kokk- ar, viðskiptafræðingar, verkfræðingar, ýms- ar tegundir iðn- aðarmanna og framleiðslufólks, upplýsingastörf, öryggisverðir og fleira og fleira sem ég get talið upp. Hildur kemur inn á sjálfstætt starf- andi atvinnurekendur í grein sinni og nefndi í því sambandi Blómabæ og Byggingavöruverslun KHB sem hefðu lagt upp laupana þegar Blómaval og Húsasmiðjan komu inn á svæðið. En þetta er það sem er að gerast alls staðar, það fer bara meira fyrir því í litlum byggðarlög- unum en til dæmis í Reykjavík. Mér þætti gaman að fá taldar upp 3 sjálf- stætt reknar byggingavöruverslanir í Reykjavík. Nokkur lítil fyrirtæki hafa hins vegar orðið til í kjölfar álversins og dafnað vel. Þar má nefna Fjarða- þrif, Launafl sem samanstendur af litlum verktakafyrirtækjum sem hafa vaxið ört. Kaffihús, söfn, íþróttavöru- og tískubúðir eru einn- ig meðal þeirra sprotafyrirtækja sem hafa rutt sér til rúms á svæð- inu. Subway er á leiðinni austur og líka Quiznos. Krónan og Pósturinn hafa hafa fært út kvíarnar, einnig Mannvit og HRV og svona gæti ég lengi haldið áfram. Íbúafjöldi Reyðarfjarðar nær tvöfaldast Samkvæmt opinberum tölum frá Hagstofunni, Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði hefur íbúum á Eg- ilsstöðum og í Fellabæ fjölgað úr 1990 árið 2002 í 2673 árið 2008. Þetta er 34% fjölgun. Á Reyðarfirði hefur íbúum fjölgað úr 616 í 1140 á þessu sama tímabili eða um 85%. Útlendir farandverkamenn eru ekki inni í þessum tölum. Þarna sjáum við mikla fjölgun í Fellabæ og á Egilsstöðum sem virð- ist svæði Hildar en á Reyðarfirði þar sem áhrifa álversins gætir mest hefur fjölgað mest. Síðan skil ég ekki þetta tal um skemmtistaðina, að það sé álveri og virkjun að kenna að þeir þrífist ekki. Margir af þess- um stöðum hefðu fyrir það fyrsta aldrei opnað nema af því að það myndaðist markaður með þessum framkvæmdum. Sumir af þessum stöðum fóru á hausinn og aðrir ekki. Það er einfaldlega eðli viðskiptalífs- ins. Virkjunin vinsæll ferðamannastaður Mér finnst líka persónulega ótækt að fólk tekur álver og stillir því upp gagnvart öllu hinu. Af hverju getur álver ekki þrifist með til dæmis fjallagrasatínslu sem svo margir andstæðingar framkvæmdanna bentu á sem góðan atvinnukost? Af hverju geta þessir hlutir ekki virkað saman? Til gamans má geta þess að enginn af þessum andstæðingum hefur sýnt því nokkurn áhuga að koma og tína þessi blessuðu fjalla- grös eftir því sem ég best veit. Ég mæli með að andstæðingar framkvæmdanna komi og skoði ál- verið og virkjunina, sem er orðin einn vinsælasti ferðamannastaður Austurlands. Ferðamannaiðnaður- inn hefur vænkast, eitthvað sem andstæðingar framkvæmdanna töldu dauðadæmt. Mesta ógnin sem steðjar að ferðamannaiðnaðinum er þessi ómálefnalegi málflutningur andstæðinga virkjunarinnar sem þeir breiða út. Svo ég komi aðeins örlítið inn á fasteignamarkaðinn og allar 335 íbúðirnar sem eru skráðar til sölu á Austurlandi. Þetta vandamál er ekkert sérvandamál á Austurlandi, heldur er þetta að gerast í Reykja- vík, á Spáni, í Bandaríkjunum og svo gott sem alls staðar. Ég fagna þessu samt miðað við ástandið sem var hér áður, þegar til dæmis húsið sem ég bý í, sem er 170 fm hús, var metið á 4 milljónir. Í dag er það metið á 20 milljónir. Áður var fólk í gíslingu eigna sinna, en er það ekki lengur. Á Reyðarfirði hafði ekki ver- ið byggt hús í 10 ár þar til þetta byrjaði. Ég endurtek, 10 ár. Í stuttu máli hefur íbúum fjölgað, fjölbreytni hefur aukist, laun hækk- að, tækifærunum fjölgað og bjart- sýni aukist samkvæmt könnun Há- skólans á Akureyri. Ég hef búið öll mín 18 ár hér fyrir austan og er virkilega stoltur af þessum framkvæmdum. Ég er sum- arstarfsmaður í fyrsta sinn hjá Al- coa Fjarðaáli og er mjög ánægður hér. Ég tek það jafnframt fram að ég er mikill náttúruunnandi og hef ferðast mikið um landið, eitthvað sem margir andstæðingar álvers og virkjunar ættu að gera líka. Eftir Hafþór Eide Hafþórsson » Íbúum hefur fjölgað, fjölbreytni aukist, laun hækkað, tækifær- unum fjölgað og bjart- sýni aukist. Hafþór Eide Hafþórsson Höfundur er menntaskólanemi og sumarstarfsmaður hjá Alcoa Fjarða- áli. Virkjun, álver og meira líf Í UMRÆÐUNNI undanfarið hefur komið fram að aukin iðn- aðarstarfsemi álvera á Íslandi myndi skaða ímynd landsins. Ég er ósammála þessu. Þvert á móti tel ég að mikilvægur liður í að byggja upp sterka og góða ímynd, sé að stuðla að góðu mannlífi. Til þess að það sé hægt þurfa stoðir atvinnulífsins að vera styrkar. Ég styð þess vegna byggingu álvers á Bakka við Húsavík og nýtingu umhverf- isvænna orkuauðlinda svæðisins til nýsköp- unar í atvinnulífi. Árið 2004 vann ég B.Sc. verkefni um ímynd Húsavíkur meðal Íslendinga á aldr- inum 20 til 60 ára. Niðurstöður rannsókn- arinnar bentu til þess að ímynd staðarins væri afar óljós og fólk hefði litla sem enga vitneskju um það hvað staðurinn hefur upp á að bjóða. Ímyndin var frekar í neikvæðari kantinum. Helst var talið að á Húsavík væri lítið um afþreyingu og að bærinn væri gam- aldags og rólegur. Þetta var neikvætt í hug- um þeirra sem svöruðu spurningum í könn- uninni. Erfitt að snúa til baka eftir nám Þetta gefur hugmynd um þá ímynd sem Húsavík og jafnvel landsbyggðin öll hefur verið að berjast gegn á síðustu árum. Staðnaður og óspennandi stað- ur er ekki sú mynd sem íbúum Húsavíkurbæjar hugnast og mikið hefur verið reynt og gert í því að styrkja og styðja at- vinnulíf hér á staðnum und- anfarin ár. Þrátt fyrir það hef- ur fyrirtækjum fækkað og fólk flust frá staðnum og langt er síðan íbúaþróun hér var jákvæð. Ein ástæða þessa er sú að það hefur verið erfitt fyrir fólk að snúa til baka, eftir að hafa farið héðan til að sækja sér menntun. Þegar ég flutti til Húsavíkur að loknu meistaranámi erlendis nýverið kveið ég því einna helst að hér væri litla atvinnu að hafa við hæfi, enda hafa atvinnutækifærin hér ekki verið á hverju strái. Ég hafði þó heppnina sannarlega með mér og gegni í dag mjög spennandi starfi í orku- geiranum sem er í senn krefjandi og spenn- andi. Ekki spillir að með mér starfar einvala lið og mannauður fyrirtækisins er mikill. Það hafa þó ekki allir verið jafn heppnir og ég í þessum efnum. Álver eflir ferðaþjónustu Á Húsavík er virkilega gott að búa en bet- ur má ef duga skal. Mér finnst mikilvægt að hér rísi álver til að styrkja atvinnulíf og áframhaldandi byggð á svæðinu Hér hefur margt gott verið gert og það er mitt mat að rísi hér álver myndi það styrkja og styðja við áframhaldandi uppbyggingu og góð búsetuskilyrði. Ferðaþjónusta er til að mynda í blóma hér og með álveri myndu sam- göngur til svæðisins verða greiðari sem myndi vonandi stuðla að auknu flæði ferða- manna hingað. Það er ekki áhyggjuefni af minni hálfu að ferðamenn forðist Húsavík ef hér rís álver. Öflugt og iðandi mannlíf dregur að ferðamenn. Það hefur sýnt sig að ferða- þjónusta í heiminum er mikil í kringum mannvirki og iðnað af ýmsu tagi, eins og nú sýnir sig t.d. við Kárahnjúka. Þá finnst mér einnig merkilegt að hægt verði að sýna ferða- mönnum, innlendum sem erlendum, að ál sé framleitt hér á Íslandi með endurnýjanlegum orkugjöfum, með orku úr iðrum jarðar eins og til stendur í álveri á Bakka. Með því erum við að leggja okkar lóð á vogarskálar um- hverfisverndar á heimsvísu og þannig erum við hluti af lausninni. Mér finnst það óbilgirni að kenna sig við að vera „grænn“ eða „um- hverfisverndarsinni“ en vilja fyrir alla muni vísa framleiðslu áls úr landi til annarra landa þar sem það yrði framleitt með mun meiri losun gróðurhúsalofttegunda en hér. Við vilj- um nota vistvænni bíla, sumir kjósa að hjóla, mörg okkar fljúga og þar fram eftir götunum en með því erum við að viðhalda eftirspurn eftir áli. Það er mitt álit að við getum ekki tekið þátt í að auka eftirspurn eftir áli en neitað að framleiða það,. Ábyrgð Íslendinga er töluverð þar sem við getum framleitt orku á vistvænni hátt en margir aðrir. Vissulega er allt gott í hófi og það er ekki mitt mat að við eigum endilega að kappkosta að byggja sem flest álver á Íslandi. Hins- vegar finnst mér fyrirhugað álver á Bakka vera sérlega rökrétt með tilliti til nýtingar þeirra orku sem Húsvíkingar og nærsveit- ungar hafa í „bakgarðinum". Hér hefur íbúaþróun verið á þann veg að ekki hefur tekist að stemma stigu við brott- flutningi ungs fólks úr samfélaginu. Norð- urþing þarf á nýjum, öflugum vinnustað að halda sem skapar ný tækifæri fyrir ungt fólk til að starfa á svæðinu. Íbúar Norðaust- urlands hafa rétt til að nýta orku á svæðinu sér og sínum til hagsbóta og álver á Bakka mun verða til mikilla hagsbóta fyrir íbúa svæðisins og landsins alls. Eftir Guðrúnu Erlu Jónsdóttur » Það er ekki áhyggjuefni að ferðamenn forðist Húsavík ef hér rís álver. Öflugt og ið- andi mannlíf dregur að ferða- menn. Guðrún Erla Jónsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur ehf. Ímynd og álver Sjáðu þarna uppi Afkomendur Thors Jensen komu í gær saman á Fríkirkjuvegi 11 í tilefni þess að öld er liðin síðan flutt var inn í húsið. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff voru meðal gesta. Húsið er sögufrægt og er nú komið í eigu afkomanda Thors Jensen, Björgólfs Thors Björgólfssonar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.