Morgunblaðið - 11.07.2008, Side 36
Tjúnið bassakeiluna.
Pússið Buffalo-skóna.
Fáið ykkur leyninúmer hjá
Tali. Framundan er bullandi
hlöðukelirí… 39
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
Akureyri | Í hinu óviðjafnanlegu
Safnasafni er unnið hörðum höndum
að uppsetningu sýninga um þessar
mundir. Á morgun mun Gjörn-
ingaklúbburinn opna sýningu á
verkum sínum kl. 16 og listakonan
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar
sama dag kl. 14 sýningu sem byggir
á Réttardeginum sem hún hélt í júní
við góðar undirtektir.
Sýning Gjörningaklúbbsins í
Safnasafninu byggir einnig á minni
úr sveitinni: gestrisni. Í forgrunni er
stórt tjaldverk sem er í senn tjald-
kona og fjall, en einnig er þar að
finna kleinur í öllum regnbogans lit-
um og óvenjulega gripi eins og kína-
sauðskinnskó og skotthúfubombu.
„Verkin á sýningunni eru sprottin
frá hugmyndinni um hlutverk kon-
unnar sem gestgjafa í gegnum ald-
irnar,“ segir Jóní Jónsdóttir úr
Gjörningaklúbbnum. „Konan veitir
skjól og skapar rými fyrir samskipti
á milli manna. Til að lifa af í þessum
heimi verður maður að vera fús til að
þiggja það sem manni er gefið og
gefa á móti. Um það fjöllum við:
hvað það er að vera gestrisinn í eigin
landi, hvernig við bjóðum fólki til
okkar. Við fjöllum einnig um hvernig
það er að vera gestur í nýju landi.“
Það má því sannlega segja að efni
sýningarinnar tengist því sem ber
hæst í íslenskum samtíma.
Tengjast vangavelturnar því að
ykkur var boðið norður að sýna?
„Að vissu leyti, já. Þegar okkur
var boðið að sýna á Safnasafninu
spurðum við okkur hvernig væri að
fara út á land og hvernig okkur yrði
tekið. Safnasafnið hefur tekið vel á
móti okkur og við vonum að aðrir
geri það líka.
Sýningin er öðrum þræði óður til
sveitarinnar. Það er magnað að
koma á sveitaheimili þar sem í boði
eru föt af kleinum, hnallþórum og
ljúffengum veisluréttum þannig að
maður fær valkvíðakast við borðið.
Á sama hátt ætlum við að vera
gestrisnar og bjóða fólki upp á grill
og gos, gítarspil og söng á morgun.
Öllum er velkomið að koma og
skemmta sér á fallegum stað.“
Gestrisni í Safnasafninu
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Gjörningaklúbburinn Öðru nafni The Icelandic Love Corporation sam-
anstendur af Sigrúnu Hrólfsdóttur, Jóní Jónsdóttur og Eirúnu Sigurð-
ardóttur. Þær bjóða gesti velkomna í Safnasafnið á morgun kl. 16.
Heimboð í gítarpartí og grillveislu hluti sýningar
Þungarokkshá-
tíðin Eistnaflug
hófst með pompi
og prakt í Nes-
kaupstað í gær-
kvöldi. Um fimm-
tíu hljómsveitir
troða upp á hátíðinni í ár en há-
punktur hátíðarinnar er óneit-
anlega tónleikar Ham sem fram
fara rétt eftir miðnætti aðfaranótt
sunnudags. Samkvæmt áreið-
anlegum heimildum Morgunblaðs-
ins er hópur íslenskra kvikmynda-
gerðarmanna kominn til
Neskaupstaðar og er ætlun þeirra
að taka upp efni fyrir heimild-
armynd sem mun vera í smíðum um
íslenska þunga- og dauðarokks-
tímabilið sem reið röftum hér á Ís-
landi á tíunda áratugnum síðasta.
Eistnaflug hafið í
Neskaupstað
„This club is under arrest
bass cop
You better turn up the bass now
this club is under arrest
bass cop
Turn up the bass or get
the fuck out of the club
Bass cop, bass cop
I’m here in the building
to turn up the bass
bass cop
You are all under arrest
you like it, bass cop
You are all under arrest
bass cop
Move to the bass, move
(Bass Cop með Merzedes Club)
Bassalöggan er mætt í
húsið, þér líkar það
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
UM 700 manns búa á Seyðisfirði að staðaldri. En
í næstu viku hefst listahátíðin LungA í bænum
og þá margfaldast íbúafjöldinn allskyndilega.
„Þessa viku sem hátíðin stendur erum við að fá
3.000-4.000 manns í bæinn út af hátíðinni,“ segir
Björt Sigfinnsdóttir sem er í framkvæmdaráði
hátíðarinnar og segir mikinn handagang í öskj-
unni. „Þetta er auðvitað algjört brjálæði og allir
himinlifandi með það, skilar fullt af peningi í
bæjarkassann.“ En LungA skilar þó miklu meiri
verðmætum en það.
„Á LungA-vikunni koma brottfluttir Seyðfirð-
ingar mikið heim, við hvetjum leiðbeinendur að
fara út með listasmiðjurnar sínar svo við verðum
sýnileg þannig að það skapast mjög góð stemn-
ing,“ segir Björt og bætir við að hátíðin hafi
áhrif árið um kring. „Krakkar koma mun frekar
heim allt sumarið og LungA er stór hluti þess
sem dregur þá aftur heim,“ segir hún um seyð-
firska unglinga sem eru margir í námi í fram-
haldsskólum annars staðar á veturna.
Teiknisagnagerð og sirkuskúnstir,
gjörningar og fatahönnun
Á hátíðinni eru listasmiðjur í gangi á milli kl. 9
og 16 úti um allan bæ í teiknisagnagerð, hljóm-
list, gjörningum, fatahönnun og sirkuskúnstum.
Alls eru um 80 þátttakendur í listmiðjunum sem
einbeita sér alla vikuna að einni listmiðju en þá
er að auki eitt kvöldnámskeið í bókbindingum
sem allir geta sótt. Kvöldin eru svo þéttskipuð
þar sem tónlistaratriði, kvikmyndasýningar og
ýmsar aðrar menningaruppákomur eru í boði
fyrir gesti hátíðarinnar. Þátttakendur í list-
smiðjunum eru á aldrinum 16-25 ára en önnur
dagskrá hátíðarinnar er öllum opin. „Við erum
að fá krakka af öllu landinu sem og frá öðrum
löndum,“ segir Björt en í ár verða 20 krakkar frá
Eistlandi og Finnlandi með.
Aðstandendur LungA hafa lagt áherslu á að
eyða ranghugmyndum sem oft eru í gangi varð-
andi listir og hafa reynt að gera listina aftur kúl
í hugum unglinga á staðnum. „Síðasta sumar
voru allar smiðjur troðfullar rétt eins og nú, það
talar alveg fyrir sínu. Svo fengum við Eyrarrós-
ina 2006, sem segir að við séum hipp og kúl,“
segir Björt og glottir.
Að gera listina kúl aftur
LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi, fer fram á Seyðisfirði í næstu viku
Framkvæmdaráð LungA Frá vinstri: Ívar Pétur Kjartansson, Sigrún Halla Unnarsdóttir, Björt Sig-
finnsdóttir, Sigríður Eir Zophoniasardóttir, Lísa Leifsdóttir og Guðmundur Jónsson. Á myndina vant-
ar Hrefnu Bóel Sigurðardóttur, hún var erlendis þegar myndin var tekin.
Hugleikur Dagsson heldur teiknimynda-
sagnasmiðju, Björn Stefánsson, trommari úr
Mínus, stjórnar Stomp, námskeiði í rytma og
hljóði, Gísli Galdur og Curver Thoroddsen
stjórna skífuþeytingum og vinna með ein-
kennileg hljóð, bræðurnir Snorri og Ás-
mundur Ásmundssynir halda gjörn-
ingasmiðju og sirkuskennararnir Henna og
Olla úr Circus Cirkör leiðbeina fjölleika-
hússtjörnum framtíðarinnar.
Fjölmargir tónleikar fara fram í tengslum
við hátíðina þar sem hljómsveitir og tónlist-
armenn á borð við Bang Gang, skífuþeyt-
ararnir Trentmoller og Kasper Björke, Dísa
(Bryndís Jakobsdóttir), Bloodgroup, FM Bel-
fast, B.Sig, E.T. Tumason, Benni Hemm
Hemm, Borkó, Morðingjarnir og Reykjavík!
koma fram.
Auk þess verður sérstök hönnunarsýning,
Loppumarkaður þar sem allt mögulegt verð-
ur til sölu, ljósmyndasýning, myndlistarsýn-
ing og graffití-gjörningur og þá verður sér-
stök sýning af afrakstri listasmiðjanna þar
sem öllum listgreinunum er blandað saman.
Dagskrána í heild sinni má sjá á heima-
síðu hátíðarinnar, www.lunga.is.
Dagskrá LungA