Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf
Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud-
laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
BORGARBÚAR þurfa enn að bíða
eftir sýnilegri uppbyggingu í miðborg
Reykjavíkur eftir bruna húsanna í
Austurstræti 22 og Lækjargötu 2.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum
sl. fimmtudag að leggja 60 milljónir
til undirbúnings framkvæmdanna og
reiknað er með að þær standi út árið.
Eiginleg uppbygging á reitnum hefst
því ekki fyrr en á nýju ári.
Skemmst er að minnast orða þá-
verandi borgarstjóra, Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar, á degi brunans 18.
apríl 2007, en þá sagði hann að upp-
byggingu yrði hraðað sem kostur
væri.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, verð-
andi borgarstjóri, lét einnig hafa eftir
sér, hinn 6. september 2007, þegar
hún kynnti úrslit í hugmynda-
samkeppni vegna reitsins, að vonast
væri til að arkitektar gætu lokið
vinnu fyrir [síðustu] jól og fram-
kvæmdir hæfust áður en langur tími
liði.
Dagur B. Eggertsson, þáverandi
borgarstjóri, sagði þá, 1. nóvember
2007, þegar borgarráð samþykkti
kaupin á fasteigninni Austurstræti
22, að [þá] hillti undir endurnýjun
Lækjartorgs og að sárið yrði grætt.
Aldrei voru nefndar neinar tíma-
setningar, en víst er að borgarbúar
bjuggust vart við því að bíða þyrfti
fram til ársins 2009 eftir að hreyft
yrði við spýtu.
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri fram-
kvæmda- og eignasviðs, segir að eftir
sé að gera fornleifarannsóknir, mæla
húsin upp og taka þau niður. Sér-
staklega taki langan tíma að taka
Lækjargötu 2 niður sem þurfi því
sem næst að gera spýtu fyrir spýtu.
„En við vonumst til að vera komin af
stað með uppbyggingu einhvern tíma
í byrjun næsta árs. Þá verður þessum
fornleifarannsóknum lokið og búið að
teikna nýju húsin.“
Uppbygging hefst á næsta ári
Borgarráð samþykkti að veita 60 millj-
ónir til undirbúnings framkvæmda
Morgunblaðið/Júlíus
Rústir Austurstræti 22 verður fært nær upphaflegri mynd. Lækjargata 2
verður hækkuð um eina hæð og horft til útlits hússins um aldamótin 1900.
Í HNOTSKURN
»Eldsvoðinn í húsunumAusturstræti 22 og Lækj-
argötu 2 varð 18. apríl 2007.
Það var mesti eldsvoði í mið-
borginni í 40 ár.
»Næstu mánuði var unniðað því að hreinsa bruna-
rústirnar og hinn 6. sept-
ember var niðurstaða hug-
myndaleitar vegna
undirbúnings deiliskipulags
kynnt.
»1. nóvember samþykktiborgarráð að kaupa Aust-
urstræti 22 en 22. maí sl.
Lækjargötu 2.
»Borgarráð lagði framtillögu um nýtt deiliskipu-
lag fyrir miðborgina en hún
er byggð á hugmyndaleitinni
3. júlí sl.
„TÍMI stóryrða og gífuryrða er lið-
inn. Menn verða að horfa fram á
veginn og skynsamt fólk þarf að
setjast niður og leysa þessi vanda-
mál,“ segir Ólafur Jóhann Ólafsson,
nýr stjórnarformaður Geysis
Green, spurður um REI-málið.
Í viðtali við Morgunblaðið lýsir
Ólafur Jóhann því meðal annars
hvernig REI-málið horfi við honum.
„Menn benda hver á annan og
kenna öðrum um en ég held að mál
sé að linni því þannig leysum við
engan vanda,“ segir Ólafur Jóhann.
„Mjög agressívir fjármálamenn
komu inn í þennan geira og verklag
þeirra var kannski ekki það ákjós-
anlegasta miðað við aðstæður. Síð-
an blandaðist pólitík saman við og
úr þessu varð sprengja. Ég held að
menn hafi gert hluti í fljótfærni og
eftir það komst málið í hnút sem
hefur hingað til virst erfitt að leysa.
Einhverjir þurfa að toga í spottann
til að leysa hnútinn en sumir hafa
kannski forðast það því óneitanlega
hafa þeir sem hafa komið nálægt
málinu lent í ýmiss konar kröggum.
Þess vegna hefur allt setið fast
mánuðum saman og þessi orkugeiri
lítið þróast,“ segir Ólafur Jóhann.
Ólafur Jóhann segir að menn
verði að hætta að finna blóraböggla
og láta af því að velta sér upp úr því
sem orðið er því fortíðinni breyti
enginn. | 18
Morgunblaðið/Ómar
Hætti Ólafur Jóhann segir að menn
verði að hætta að finna blóraböggla.
Tími
gífuryrða
er liðinn
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu handtók á sjöunda tímanum í
morgun karlmann eftir að hann
lagði til annars manns með hnífi í
miðborginni. Fórnarlambið særðist
á hálsi en er ekki lífshættulega slas-
að, að sögn lögreglu, og var flutt til
aðhlynningar á slysadeild Landspít-
ala.
Hnífamaðurinn ógnaði fleira
fólki úti á miðri götu og var þá og
þegar kallað eftir aðstoð lögreglu.
Maðurinn svaf úr sér vímuna í
fangaklefa og beið yfirheyrslu þeg-
ar Morgunblaðið fór í prentun.
Annars var nóttin tíðindalítil að
sögn lögreglu, aðeins um hefð-
bundin verkefni að ræða, tengd
skemmtunum og drykkjulátum.
Ógnaði fólki
með hnífi
SAMTÖKIN Saving Iceland hafa komið upp mót-
mælabúðum á Hellisheiði, skammt frá Hellis-
heiðarvirkjun. Að sögn Miriam Rose, eins tals-
manna samtakanna, hafa um 50 manns þegar
komið sér fyrir í búðunum. Mótmælendurnir
koma hvaðanæva úr heiminum, til að mynda frá
Evrópu og Bandaríkjunum.
Miriam segir margvíslegar mótmælaaðgerðir
fyrirhugaðar og meðal annars verði stækkun
Hellisheiðarvirkjunar tekin fyrir. Hún kveðst þó
ekki geta tjáð sig um hvenær eða hvar mótmælin
muni fara fram. Það eigi eftir að koma betur í
ljós.
Hún segir jafnframt að von sé á fleiri mótmæl-
endum hingað til lands á næstunni.
Náttúruverndarsinnar búa sig undir að mótmæla stóriðju í sumar
Morgunblaðið/Frikki
Mótmælabúðir Saving Iceland á Hellisheiði
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu handtók tvo unglingspilta á föstu-
dagskvöld sem grunaðir eru um að
hafa ráðist á leigubílstjóra í Garðabæ
aðfaranótt föstudags. Piltarnir, sem
ekki hafa náð sjálfræðisaldri, börðu
leigubílstjórann í andlitið og komust
undan með þúsund krónur og farsíma
bílstjórans.
Eftir skýrslutöku var öðrum pilt-
inum sleppt. Hann beið ekki boðanna
heldur hélt þegar af stað niður í mið-
borgina. Í verslun 10-11 í Austur-
stræti veittu lögreglumenn honum at-
hygli en að sögn varðstjóra var hann
flóttalegur að sjá. Þegar pilturinn sá
að lögreglumenn fylgdust með honum
henti hann frá sér vörum sem hann
hafði stungið inn á sig og reyndi að
flýja.
Lögreglumenn voru fljótir að ná
honum en pilturinn veitti töluverða
mótspyrnu og skallaði m.a. annan lög-
reglumanninn í andlitið. Sá þurfti að
leita aðhlynningar á slysadeild. Pilt-
urinn er enn í haldi. andrikarl@mblis
Látinn laus en hand-
tekinn skömmu síðar
Unglingspiltur grunaður um árás skallaði lögreglumann
Í HNOTSKURN
»Á innan við sólarhring hef-ur annar piltanna átt aðild
að árás á leigubílstjóra, verið
staðinn að búðarhnupli og ráð-
ist á lögreglumann.
»Að sögn lögreglu höf-uðborgarsvæðisins hafa
piltarnir ekki náð 18 ára aldri.