Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 15 »Ég leit á þessi gögn sem mínpersónulegu skjöl. Guðmundur Þóroddsson , fyrrverandi for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, fjarlægði skömmu áður en hann lét af störfum sem forstjóri gögn tíu ár aftur í tímann Guð- mundur kveðst ætla að skila gögnunum eftir helgi. »Bíllinn varð ekki stöðvaður ítæka tíð enda lyfti hann öll- um hjólum og lék jafnvægis- kúnstir á ávölum steininum eins og drukkinn trúður. Dagur Gunnarsson gerði Bílaleigu Húsa- víkur þann greiða að flytja nýyfirfarinn Daihatsu til Reykjavíkur. »Góðu heilli eigum við vel tilmögru áranna. Atvinnuleysistryggingarsjóður fitnaði vel í góðærinu, að sögn Gissurar Péturs- sonar , forstjóra Vinnumálastofnunar. » Þetta þýðir það að þetta málmun flækjast fyrir í sam- skiptum Íslands við Evrópusam- bandið og skapa óþarfa vinnu fyrir íslenska diplómata. Árni Finnson , formaður Náttúruvernd- arsamtaka Íslands, sagði þetta um and- stöðu Evrópusambandsins við hvalveiðar Íslendinga í samtali við mbl.is. »Ég missti alla trú á verðlaun-unum yfirleitt. Safnastjóri Safnasafnsins á Svalbarðs- strönd, Níels Hafstein , hefur afþakkað að safnið verið tilnefnt til Íslensku safn- averðlaunanna. »Fegursta rósin vex oft ímesta skítnum. Guðmundur Oddur „Goddur“ Magnússon , um veggjakrot í miðborginni. » Þetta er ekki spurning umhvort ég yrði drepinn, heldur hvernig. Paul Ramses , aðspurður hvað bíði hans fari það svo að hann verði sendur aftur til Kenýa. » Þarna er þetta gert í bútumtil að það þurfi ekki að fara í umhverfismat. Stefán Sigurðsson , íbúi á Kársnesinu í Kópavogi, er síður en svo sáttur við tillögu að nýju skipulagi á nesinu. Ummæli vikunnar Gómaður Kvíga nælir sér í ungan hlaupara í lok fimmta nautahlaups San Fermin hátíðarinnar í Pamplona á Spáni, sem fram fór í vikunni. á væntanlegt gengi frambjóðenda. Og líklegt er að McCain eigi auðveld- ara en Obama með að ná til sumra fjölmennra samfélagshópa, ekki síst hvítra, tekjulágra verkamanna, mörgum þeirra finnst að Obama sé yfirlætislegur menntamaður sem skilji þá ekki. Eitt getur orðið McCain að falli: aldurinn, hann verður 72 ára í ágúst. En hann virðist vera við góða heilsu, ber þess að vísu enn merki að hann var pyntaður þegar hann var fangi Norður-Víetnama, síðan getur hann ekki lyft handleggjunum upp fyrir axlir. Hann var skorinn upp við húð- krabbameini fyrir nokkrum árum en segist hafa náð sér að fullu. Einnig minnir McCain á að hann sé af seigu fólki kominn. Móðir hans er rösklega níræð og hefur komið fram á kosn- ingafundum hans, hún er svo spræk að nýlega var hún tekin fyrir of hrað- an akstur. Áhyggjur af varaforsetaefni En mörgum finnst þó blasa við að val frambjóðandans á varafor- setaefni geti skipt miklu; McCain gæti dáið í embætti. Stundum hafa forsetaefni þótt sýna ábyrgðarleysi við þetta val. Spiro Agnew, varafor- seti Nixons, varð að hrökklast úr embætti vegna fjársvika. George H.W. Bush, faðir núverandi forseta, valdi Dan Quayle sem var aðhláturs- efni allan sinn feril í Hvíta húsinu vegna einfeldningsháttar. Fari svo að efnahagsumrót og jafnvel kreppa verði mál málanna í nóvember, eins og margir spá nú, er erfitt að sjá fyrir hver viðbrögð kjós- enda verða. Margir munu vafalaust fyllast hefndarþorsta og kenna repú- blikunum um ástandið, tími sé kom- inn til að leyfa öðrum flokki að kom- ast að. En þá verður að hafa í huga að Bandaríkjamenn eru fyrst og fremst að kjósa einstakling þegar þeir kjósa forseta, ekki flokk. Og verði óvissan og angistin mikil gætu einhverjir velt fyrir sér hvort rétt sé að taka áhætt- una og láta nær óreyndan mann eins og Obama stýra skútunni í gegnum brimskaflana. Þeir gætu farið að íhuga hvort heppilegra sé að skip- stjórinn sé reyndur jaxl sem flestir vita hvar þeir hafa, nefnilega McCa- in. Ellin og silfurhárin gætu þá eftir allt komið honum að gagni. Obama er að mörgu leyti óþekkt stærð í augum margra Bandaríkja- manna, ferill hans í landsmálum spannar aðeins nokkur ár en McCain hefur í reynd verið landsþekktur í meira en aldarfjórðung. Talið var til skamms tíma að repúblikanar myndu einkum beita þeirri aðferð að reyna að koma því inn hjá kjósendum að Obama væri stórhættulegur vinstri- maður enda öflugt vopn í forsetaslag, vopn sem gæti bitið þegar barist er um miðjufylgið. Þótt mun fleiri kjós- endur segist nú styðja demókrata en repúblikana eru vinstrimenn [libe- rals á amerískri ensku] aðeins liðlega fimmtungur kjósenda. Mun fleiri kalla sig íhaldsmenn. Skiptir hörundslitur máli? Pólitískir loftfimleikar Obama síð- ustu vikurnar í sókninni inn á miðju gætu reynst honum varasamir, repú- blikanar gætu sagt að enginn viti hvaða skoðun maðurinn hafi í reynd. Hann sé eins og vindhani. En þá má ekki gleyma að McCain hefur líka breytt mjög ýmsum áherslum sínum, vafalaust til að tryggja sér stuðning kjarnans í flokknum sem hann óttast að muni sitja heima. Og sumir kjós- endur gætu líka sagt að þeir séu bún- ir að fá nóg af leiðtogum eins og Bush sem aldrei skipti um skoðun þótt staðreyndir breytist. Meiri sveigj- anleiki og jafnvel slatti af hentistefnu séu ef til vill betra veganesti inn í Hvíta húsið. Nýtur McCain þess að vera hvít- ur? Hann er ekki líklegur til beita læ- víslegum brögðum, nota t.d. sakleys- islegt orðalag sem kveikir á ósjálfráðum kenndum og fordómum meðal hvítra gagnvart svörtum. En ekkert getur breytt því að hann er hvítur karl. Hann er þess vegna auð- veldari kostur en Obama fyrir marga hvíta þótt þeir viðurkenni ekki op- inberlega fordóma sína. Kynþátta- fordómar leika nú minna hlutverk í bandarískum stjórnmálum en nokkru sinni fyrr. En þeir eru ekki horfnir þótt þeir séu vafalaust mun áhrifaminni vestra en í mörgum Evr- ópuríkjum. Stangarhyl 5, sími 567 0765 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á www.motas.is Skipalón 16-20 á Hvaleyrarholti 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir á frábærum stað. www.motas.is Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is Bókið skoðun hjá Ívari í síma 861 2928ÍSL E N S K A S IA .I S M O T 42 82 6 07 .2 00 8 Söluaðili: Glæsilegar íbúðir HvaleyrarholtiSkipalón • Tvennar svalir, bæði út úr eldhúsi og stofu. Ótrúlegt útsýni. • Stórar stofur.Tvö baðherbergi, baðherbergi inn af hjónaherbergi. • Amerískur ísskápur, kvörn í vaski og uppþvottavél fylgja. • Granít á borðum og sólbekkjum. • Arinn og 2 stæði í bílageymslu með stærstu íbúðunum. • 80 m2 salur í sameign fylgir (afmæli og minniháttar tilefni). • Þvottastæði í bílageymslu. • Golfvöllur í göngufæri. Verðdæmi: • 2ja herb. m/ bílskýli frá 18.500.000 kr. • 3ja herb. m/ bílskýli frá 24.500.000 kr. • 4ra herb. m/ bílskýli frá 29.000.000 kr. Berið saman verð og gæði fyrir 50 ára og eldri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.