Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KJARTAN L. Pálsson skrifaði fyrstu greinina um Henson í dagblaðið Tímann 1970 og með fylgdi mynd af Jimmy Greaves, sem var nýlega genginn til liðs við West Ham frá Tottenham, í Henson- peysu. „Ég var í viðskiptum á Eng- landi og Greaves bjó í næsta húsi við viðskiptamann minn,“ segir Halldór Einarsson. „Því var kjörið að láta hann fara í fyrstu flíkina.“ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is T ÆKNIVÆDDASTA fataframleiðslufyrirtæki á Íslandi,“ stendur í glugga hjá Henson í Brautarholtinu ásamt nokkrum öðrum upplýsingum um starfsemina, en þess er ekki getið að innan um framleiðsluna er eitt merk- asta knattspyrnusafn landsins. „Þetta er svona áhugamál sem byrj- aði smátt en hefur orðið að góðum bolta,“ segir Halldór Einarsson, eig- andi Henson. Um leið og inn í fyrirtækið er kom- ið blasa við myndir úr knatt- spyrnuheiminum. Í fyrra var Halldór sæmdur heiðurskrossi Knattspyrnu- sambands Íslands og við það tæki- færi var tekin mynd af honum með Michael Platini, forseta Knattspyrnu- sambands Evrópu, UEFA, og Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ. Hún skipar veglegan sess á skrifstofunni ásamt árituðum myndum, sem Hall- dór teiknaði af annars vegar bras- ilíska snillingnum Pele og hins vegar goðunum Ásgeiri Sigurvinssyni og Argentínumanninum Maradona. Síminn hringir stöðugt, „geturðu bjargað þessu fyrir helgi,“ og svarið er alltaf það sama og það hefur verið í nær 40 ár: „Ég redda þessu,“ segir maðurinn, sem ætíð er í vinnunni en hefur samt tíma til að gera ótrúleg- ustu hluti. „Ég teikna og mála í frí- stundum en svo fer ég líka í veiði og golf auk þess sem ég reyni að fara á alla leiki Vals og landsliðsins,“ segir hann. „Svo er það söfnunaráráttan.“ Enn í mótun Myndirnar á jarðhæðinni gefa tón- inn og á efri hæðinni er safnið í rúm- góðu herbergi. Ekki tilbúið og ekki eins og Halldór hugsaði það í fyrstu og þar sem farið er að þrengja að því vegna aukinnar starfsemi í fram- leiðslunni er það farið að dreifa úr sér fram á lager. „Það er svo mikið að gera í merkingunum og mottufram- leiðslunni að ég get ekki réttlætt að taka allt þetta rými undir áhuga- málið. Því verð ég að láta minnka her- bergið en þá verð ég bara að nota veggplássið hinum megin.“ Halldór lék fótbolta um árabil með Val og hefur tengst íþróttinni sterk- um böndum. Hann hefur framleitt íþróttabúninga á flesta íþróttamenn landsins og erlend knattspyrnulið hafa leikið í búningum frá Henson. Hitt og þetta „Þessi árátta, að halda upp á gaml- ar minjar, hefur alltaf fylgt mér,“ segir hann og bætir við að fyrir um það bil áratug hafi hann séð fyrir sér safn sem tengdist fyrirtækinu. Hann bendir á að á íþróttasafninu á Akra- nesi séu margar flíkur sem Henson hafi gert og segi mikla sögu, en þetta safn sé persónulegra. Fyrst um sinn verði það ekki opnað almenningi, hvað sem síðar verði, en sem formað- ur fulltrúaráðs Vals sé hann að vinna að því að koma upp minjasafni félags- ins með veglegum hætti að Hlíð- arenda. „Þetta eru tvö óskyld mál en af sama meiði,“ segir Halldór og vísar til þess að í Valsheimilinu séu t.d. hlutir sem tengjast Evrópuleikjum Vals og Benfica, aðgöngumiðar, vegg- spjöld, blaðaúrklippur, peningaseðlar frá þeim tíma og skeyti. „Íslendingar hafa farið mjög illa með minjar í gegnum tíðina og til dæmis hefði mátt geyma eins og einn miða- söluskúr frá Melavellinum.“ Í safni Halldórs er fjöldi mynda, úrklippur úr blöðum, viðurkenningar, gamlir skór og boltar, eftirlíking af Evrópubikarnum, fyrsta saumavél Henson og fleira. Og saga á bak við hvern einasta hlut. Á einum veggnum er gjöf frá Knattspyrnusambandi Ungverja- lands til sir Stanley Matthew á 80 ára afmæli hans. „Ég keypti þennan platta af manni í Stoke. Stanley var ein fyrsta súperstjarnan í enska bolt- anum,“ segir Halldór dreyminn á svip og bætir við að hann hafi víða leitað fanga. Stundum hafa frægir menn verið fengnir til að afhenda verðlaun á lokahófi íslenskra knattspyrnumanna og segja sögur. Vera skemmtilegir. „Einu sinni hafði ég milligöngu um að fá Bobby Moore, fyrirliða heims- meistaraliðs Englands 1966, í þetta hlutverk. Hann var mjög reffilegur, þakkaði mér fyrir boðið og afhenti verðlaunin. En sagði engar sögur.“ Háðugleg útreið Á einu horninu eru úrklippur sem tengjast landsleik Íslands og Dan- merkur 1955. Á einni segir að áhorf- endur hafi verið 10.286 og íbúafjöldi Reykjavíkur 57.865. Leikurinn tap- aðist 4:0 og lítil athugasemd segir hug eins áhorfanda: „Herra ritstjóri. Fyrir alla muni stuðlið að því að þessar knattspyrnu- mannaheimsóknir hætti. Allt sem við græðum á þeim er háðugleg útreið í aðalleikjunum og ausandi rigning. Knattspyrnufélögin eiga að bjóða tveimur liðum heim á haustin – ensku og ungversku – og láta þau eigast við. Þá verður gaman, engin rigning og engin háðung.“ Morgunblaðið/RAX Gamalt og nýtt Fyrir skömmu hóf Henson framleiðslu á gúmmímottum með prentaðri áletrun á annarri hliðinni. Fyrsta mottan var gerð í tilefni mál- verkasýningar Halldórs og þriggja annarra myndlistarmanna í tilefni goslokahátíðar í Eyjum, en framleiðslan tekur rými frá safninu. Henson alltaf í boltanum Árið 1997 Hópur þekktra knattspyrnumanna og stjóra á Englandi. Þar á meðal eru t.d. David Beckham, David Platt, Alan Shearer og Dwight York. Á myndinni er Halldór í treyju númer 15. „Tony Stevens átti 50 ára afmæli og 15 þýðir að við höfðum þekkst í 15 ár,“ segir Halldór sem er þriðji frá hægri í efstu röð. Vinur Mynd af Þóri Jónssyni, for- manni Knattspyrnudeildar FH, skipar sérstakan sess í safninu, en Þórir lést í bílslysi 19. maí 2004. „Þórir var einstakur maður, bjart- sýnn og jákvæður, og mikill og góð- ur félagi í knattspyrnunni.“  Eitt merkasta knattspyrnusafn Íslands uppi um alla veggi í fataframleiðslu- fyrirtæki Halldórs Einarssonar  Árátta að halda upp á gamlar minjar „HÉRNA eru til dæmis fót- spor George Best,“ segir Halldór og hreyfir um 60 kg steypustykki með áletrun þess efnis að írski snilling- urinn hafi opnað verslun í Belfast 1993. „Ég fékk hann til að leika með Val á móti Manchester United 1982 í Reykjavík og á Akureyri og í kjölfarið sendi hann mér bókina sína. Þessar minningar sýna ágrip af hans ferli.“ HALLDÓR Einarsson var beð- inn um að útvega treyjur vegna fyrsta fótboltaleiksins í Írak eftir innrásina 2003 og svaraði kallinu eins og öðru, en myndir frá leiknum eru á einum veggnum í húsnæði Henson. „Mér brá þegar ég sá mynd- irnar,“ segir Halldór og vísar til skriðdreka í baksýn. HALLDÓR Einarsson hefur komið víða við á löngum ferli og fyrir rúmlega aldarfjórð- ungi eða 1982 var hann heið- ursgestur á leik West Ham og Liverpool í London. Sérstakt skjal er til vitnis um það og áritaðar myndir leikmanna. „Þetta er svolítið sérstakt, eitt af þessum skemmtilegu momentum,“ segir hann og bendir á að tengingin sé ekki síður skemmtileg nú með Björgólf Guðmundsson sem eiganda West Ham. Jimmy Greaves í fyrstu flíkinni Í fótspor Írans George Best Henson í miðju Íraksstríðinu Skemmtilegar minningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.