Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 47 Lögga, læknir og lögfræðingur Kippan VERÐUR ÞÚ EINHVERN TÍMANN EINMANA? NEI, ÉG HEF ALLTAF ÁTT MJÖG AUÐVELT MEÐ AÐ SKEMMTA SJÁLFUM MÉR MÉR HEFUR ALLTAF ÞÓTT ÞAÐ MAGNAÐUR HÆFILEIKI, ROBBI TAKK KÆRLEGA FYRIR ÞAÐ, ROBBI NÚNA TÓKST HONUM ALVEG AÐ RUGLA MIG ÉG ER BÚINN AÐ KAUPA SVO MARGA LOTTÓMIÐA UM ÆVINA AÐ ÉG ÞARF AÐ VINNA Í ÞETTA SKIPTIÐ SVO ÉG KOMI ÚT Á SLÉTTU ÉG ER B ÚINN AÐ GLEY MA ÞVÍ HVAÐ ÞE TTA ÁTTI AÐ VERA MÉR TEKST ALDREI AÐ HAFA SVONA HAUG Í GARÐINUM MÍNUM... ÉG BORÐA HANN ALLTAF ÞVÍ MIÐUR SÁU LEIKARARNIR OKKAR SÉR EKKI FÆRT AÐ KOMA Í KVÖLD... MIG VANTAR NOKKRA SJÁLFBOÐALIÐA ÚR SALNUM TIL AÐ SKEMMTA OKKUR Í STAÐINN EINS GOTT AÐ ÞÚ VARST MEÐ MÉR Í BÍLNUM! Velvakandi MIKILL afturkippur hefur orðið í bílasölu eins og í annarri verslun og óseldir bílar eru eins og hafsjór yfir að líta á geymslusvæðum skipafélag- anna. Þessi bílabreiða er meðfram Sundahöfn, skammt frá Kleppi. Morgunblaðið/Ómar Bílabreiður Týndur hundur Föstudaginn 11. júlí var auglýst eftir hundi sem fannst við sum- arbústað, er villtur en hefur nú fengið húsa- skjól. Hann fannst á þjóðvegi 1 rétt hjá Hvammstanga. Hann er svartur og hvítur með mikið af doppum á sér, kannski einhver dalmatíublendingur eða labrador. Hann var mjög svangur og þreyttur og búinn að flakka um svæðið í ein- hverja daga. Hann er greinilega borgarbarn og kann ekkert að umgangast hross eða kindur. Hann var mjög glaður að sjá mig og leikur sér mikið, hann kann að sitja, sækja og heilsa, t.d. (hann heilsar alltaf með vinstri loppu) Hann hlýðir nafninu Depill, svo kannski heitir hann það. Hann er örmerktur og nr hans er: 208224000153439. Ef einhver hefur upplýsingar um hann er hann eða hún vinsamlegast beðin um að hafa samband í síma 865-8174. Týndi vagninn á Teigunum INNI á vef Reykjavíkurborgar sá ég frásögnina um týnda vagninn á Teigunum. Kona nokkur skrifaði að hún hefði notað strætisvagn frá barnsaldri og þó hún ætti bíl vildi hún halda því áfram. En fyrir þrem- ur árum þegar nýtt leiðakerfi kom hvarf strætisvagninn og eldra fólkið í hverfinu þurfti að taka leigubíla. Við þessa færslu konunnar stóð af- greitt, svo kannski hefur týndi vagn- inn komið fram eftir þrjú ár. Ég ótt- ast að þeir séu margir týndu vagnarnir í úthverfunum, og að það hafi kostað marga, einkum eldra fólk, tugi þúsunda í leigubíla. Á meðan ekki er ráðin bót á þessu er vonlaust að laða fólk að almenn- ingssamgöngum. Þessi saga sýnir aðeins að það þarf að færa stræt- isvagnaþjónustu í úthverfum í það horf, sem hún var fyrir leiðakerf- isbreytinguna. Það nægir ekki að einblína eingöngu á stofnæðar. Víða mætti nota minni vagna og það þarf að taka upp stefnu í almennings- samgöngum sem er ekki beinlínis mannfjandsamleg. Leiðakerfisbreytingin fólst meðal annars í því að láta fólk ganga sem lengst til að ná í vagn og ráðgefandi um- hverfisverkfræðingur skrifaði blaðagreinar og dásamaði þetta kerfi. Auglýs- ingaskrumið hefur ver- ið yfirgengilegt. En svo fór að fólkið kunni ekki að meta þessa köldu fagmennsku, fannst það ekki aðlaðandi að þvælast gangandi sem lengst í rigningu, roki og frosti til að leita uppi strætisvagn. Þess vegna þarf að endurbæta þetta leiðakerfi, taka mið af því eldra og finna týndu vagnana í úthverfunum. Þuríður Guðmundsdóttir. Athugasemdir til lögreglunnar ÞAÐ sem okkur íbúa á öllu land- inu vantar er aukinn löggæsla á veg- unum. Lögreglan mætti vera miklu sýnilegri á vegnum, í gamla daga var lögreglan sýnilegri. Hvar er lög- reglan? Við viljum sjá lögregluna eins og var í gamla daga. Ingi Hrafn Stefánsson. Ekki nógu gott ÉG hef verið að hlusta á Útvarp Sögu og það gengur svo fram af mér hvað útvarpstjóri hefur sífellt verið að setja út á RÚV á allan mögulegan hátt. Meðal annars hefur RÚV verið gagnrýnt fyrir að eyða peningum í Evrópumótið í fótbolta og Evr- óvisjón-söngvakeppnina. Ég skil ekki hver meining er með þessu. Ég hef ekki efni á að kaupa aðrar sjón- varpstöðvar og nýt góðs af RÚV. Einngi langar mig að lýsa því yfir hvað mér finnst þeir sem hringja inn á símatíma milli kl. 11-12 á morgn- anna oft ruddalegir í tali, þeir tala ílla um annað fólk sem mér finnst ekki við hæfi í útvarpi. Hlustandi.   Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Skrán- ing í Þýskalandsferð 22.-29. sept. er haf- in. Uppl. í síma 898-2468. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif- stofan er lokuð v/sumarleyfa til 5. ágúst. Uppl. gefa: Kristjana, s. 897-4566, og Kristmundur, s. 895-0200. Félagsvist í Gjábakka og Gullsmára. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Fá sæti eftir í ferð á Strandir dagana 2.-4. ágúst. Skrifstofan er lokuð í júlí. Skráning og uppl. eru í Gjábakka og Gullsmára og hjá ferðanefnd FEBK í s. 554-0999 Þráinn / s. 554-0191 Stefnir / s. 565-6353 Bjarni. Greiða þarf f. 18. júlí. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- að í Stangarhyl 4, kl. 20. Dans- hljómsveitin Klassík leikur. Síðasti dans- leikur fyrir sumarleyfi. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Skoðunarferð í Hellisheiðarvirkjun 15. júlí. Farið frá Hlaðhömrum kl. 13. Skrán- ing í s. 586-8014 e. hádegi og 692-0814. Hraunbær 105 | Óvissuferð verður 16. júlí, lagt af stað frá Hraunbæ kl. 13. Skráning á skrifstofu eða í síma 411- 2730. Verð 1.500. Hæðargarður 31 | Félagsvist á mánu- dögum kl. 13.30. Matur og kaffi og lista- smiðjan opin. Uppl. 568-3132. Íþróttafélagið Glóð | Ringó og pútt á flötinni við Gerðarsafn miðvikud. kl. 12 og laugard. kl. 13. Línudans í Húnabúð, Skeifunni 11, Rv. á miðvikud. kl. 17. Uppl. í síma 564-1490 og 554-5330. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Söng- og helgistund kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, Inga Eydal syngur og leiðir söng. Fríkirkjan Kefas | Almenn samkoma kl. 20. Sveinbjörn Björnsson prédikar og tónlistarhópurinn leiðir lofgjörð. Boðið upp á fyrirbænir. Á eftir sam- komu er kaffi og samvera og verslun kirkjunnar opin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.