Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Guðný Ég og Halldór,maðurinn minn, kynntumst þegar við komum bæði að gerð myndar Ágústs Guðmunds- sonar, Gullsandi. Þá sá hann um leik- myndina og ég var framleiðandi. Við tókum saman og eignuðumst síðan Dóra. Það fyrsta sem ég sá við hann er, að hann yrði áhyggjufullur mað- ur. Hann hafði djúpar og miklar áhyggjuhrukkur á andlitinu og í dag er hann áhyggjufullur, eins og flestir ungir menn. Það fór alltaf lítið fyrir honum og hann var þægilegt og rólegt barn. Hann ólst upp í Mosfellsdalnum, rétt hjá bæði ömmu sinni og afa og systur minni, umlukinn fjölskyldu. Systir mín á þrjú börn og voru þau fjögur alveg eins og systkini. Hann var líka mikið heima hjá ömmu sinni og afa þegar hann var lítill. Ég tók þá ákvörðun að vinna heima, til að geta haft hann hjá mér, en honum tók að leiðast það að vera einn í sveitinni með mér þegar á leið, svo þá lét ég það eftir honum að senda hann hálf- an daginn á leikskóla. Ekki týpískt sveitabarn Hann var ekki mikill sveitastrákur í sér. Þegar ég ólst upp, þá var ég alltaf úti að leika mér, á hestbaki eða að dunda mér við eitthvað. Ég reyndi mikið að fá Dóra til að byggja kofa og fara að veiða með honum, ég sendi hann líka á reiðnámskeið, en hann var bara pirraður á því. Ég veit ekki hvort það var heyofnæminu að kenna, en hann hafði bara engan áhuga á því að vera íslenskt sveita- barn. Hann las heldur ekki voðalega mikið, alveg eins og mörg önnur börn af sömu kynslóð, heldur horfði hann á sjónvarpið. Og í dag nýtist mér það ágætlega, að hann er miklu meira inni í kvikmyndaheiminum en ég. Hann veit hverjir allir leikarar eru og er eins konar uppflettirit. Við héldum bókum afa hans ekkert sérstaklega að honum, heldur gerði hann það sem hann sjálfur vildi. Við höfum ekkert verið að ota því, sem einn fjölskyldumeðlimur hefur gert, að öllum hinum. Núna held ég að hann lesi aðeins meira, alla vega helstu núlifandi, íslensku rithöfund- ana og líka bækur afa síns. Ég var hins vegar áfram um að hann færi í tónlistarnám og hann var í skóla- hljómsveit í um átta ár. Fyrst lærði hann á blokkflautu, svo klarinett og í lokin á saxófón. Það gat verið heil- mikill barningur að fá hann til að æfa sig, en hann hafði bara gott af því. Handjárnaður á leið til Írlands Við ferðuðumst mikið saman, bæði innan lands og utan, þar til hann var um þrettán ára. Þá var ekki lengur jafnspennandi að fara út á land með mömmu og pabba. Eitt sinn, þegar hann var átta eða níu ára, fórum við til Írlands að sækja heim gamlan kennara minn, sem ætlaði að lesa fyr- ir mig handrit. Við komum við í London og þar keypti Dóri sér hand- járn, sem voru mjög raunveruleg og ekki beinlínis það sem maður myndi kalla leikfang. Á leiðinni til Írlands handjárnaði hann svo sjálfan sig. Eftir skamma stund kom svo í ljós að honum hafði tekist að týna lyklinum að þeim og þá voru góð ráð dýr, svo harðger voru handjárnin. Það fór svo að hann þurfti að vera handjárnaður í heilan sólarhring, en þá komumst við loksins í járnklippur hjá ná- granna kennarans míns. En hann lét sig hafa það og lék sér handjárnaður við hundana á bænum. Ég held samt að hann hafi aldrei aftur langað í handjárn, svo það var ágætt að hann öðlaðist þessa reynslu snemma. Ég sá snemma að það var vel hægt að treysta honum, án þess að það endaði í einhverri vitleysu. Því urð- um við snemma góðir félagar, frekar en strangir uppalendur. Og það virð- ist hafa tekist vel til, hann hefur alla vega haldið sig frá öllu rugli hingað til. Hann er líka mjög líkur for- eldrum sínum. Fljótur að hugsa eins og pabbi hans og ég og hann höfum mjög svipaðan húmor. Dóri er líka skapmikill, en fær það líklegast frá okkur báðum. Helsti gallinn hans er að alltaf þegar ég bið hann um eitt- hvað segir hann nei og að það sé ekki hægt. Samt er það vel hægt og hann gerir það líka á endanum. Reyndar er hann auðvitað tímabundinn, eins og er með flest ungt fólk í dag og hann getur ekki alltaf verið að snúast í kringum mömmu sína. Hann er rosalega góður vinur og það gleður mig hvað hann er ljúfur við báðar ömmur sínar og ræðinn við eldra fólk. Mér datt aldrei í hug að hann myndi fara að skrifa. Hann sýndi enga tilburði til þess, fyrr en hann Ég er enginn Emil í K Mæðginin Guðný og Dóri eru lík, bæði í útliti og að innræti. Þau eru ekki alltaf sammála um hlutina, en skemmta sér samt vel saman og eru góðir félagar. Guðný Hrafnkelsdóttir ræddi við þau. Guðný Halldórsdóttir fæddist 23. janúar árið 1954, dóttir Auðar Sveins- dóttur og Halldórs Laxness. Hún gekk í Menntaskólann við Tjörnina og lærði síðan kvikmyndagerð við London International Film School. Því námi lauk hún 1981. Guðný hefur fengist við framleiðslu og handritagerð auk leikstjórnar. Kvikmynd hennar Ungfrúin góða og húsið, eftir sam- nefndri smásögu föður hennar, Halldórs Laxness, hlaut Edduverðlaun sem besta kvikmynd ársins 1999. Nýjasta mynd hennar, Veðramót, var tilnefnd til ellefu Edduverðlauna í fyrra en hlaut þó aðeins ein, fyrir besta leikara í aukahlutverki. Skömmu síðar hlaut hún Íslensku bjartsýnisverðlaunin. Auk kvikmynda hefur hún tvisvar leikstýrt Áramótaskaupinu. Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, fæddist 16. maí árið 1985. Foreldrar hans eru kvikmyndagerðarfólkið Guðný Halldórsdóttir og Halldór Þorgeirsson. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og hefur komið víða við síðan þá. Hann var meðlimur í rappsveitinni Bæj- arins bestu og hefur verið gestarappari hjá ýmsum listamönnum. Hann var einn umsjónarmanna þáttarins Tívolí á sjónvarpsstöðinni Sirkús, var með útvarpsþáttinn Blautt malbik á X-inu og starfaði sem blaðamaður hjá DV. Þrátt fyrir miklar annir hefur hann þó haft tíma fyrir háskólanám og var um tíma í bókmenntafræði við Háskóla Íslands og næsta haust hyggur hann á fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.