Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 35

Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 35 Sundagarðar 2 – Til leigu Til leigu 2. og 3. hæðin í þessu glæsilega vel innréttaða húsi. Hvor hæð 500 fm. Mötuneyti á efstu hæð fyrir starfsfólk. Næg bílastæði. Leigist saman eða hver hæð fyrir sig. Til afhendingar strax. Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll ehf. - Fasteignafélag Upplýsingar veitir Karl í síma 892 0160 – karl@kirkjuhvoll.com TJARNARGATA - MIÐBORGIN TIL LEIGU Til leigu þetta virðulega hús við Tjarnargötu. Leigist eingöngu undir atvinnurekstur, t.d. skrifstofur og skildan rekstur. 340 fm á tveimur hæðum auk kjallara. Bílskúr. Laust nú þegar. Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll ehf. - Fasteignafélag Upplýsingar veitir Karl í síma 892 0160 – karl@kirkjuhvoll.com ÞAÐ má með sanni segja, að þjóðin standi á öndinni í vanþóknun sinni og undrun yfir meðferðinni, sem Páll Ramses og fjölskylda hans hefur orðið að sæta af stjórnvalda hálfu hér á landi – skilj- anlega og á ekki nógu sterk orð til að lýsa skoðun sinni á málinu. Svo er um mig farið. Þetta eru ekki eðlilegar aðfarir að flóttafólki, sem þeim hefur verið boðið upp á. Ef það væri bara dómsmálaráð- herrann, sem hér á hlut að máli, og um fólk á hans vegum að ræða, þá væri kannske hægt að skilja málið að einhverju leyti en svo vill nú til að hér er líka um kirkjumálaráðherra lands- ins að ræða, þótt hann hafi látið það í ljós á síðasta Kirkjuþingi að honum sé lítt um þann málaflokk gefið og vilji koma honum af sér, þótt vonandi sé honum ekki lítið um kristna kirkju og henn- ar siðferðisgildi gefið að sama skapi. Og því finnst mér málið vera alvarlegra fyrir bragð- ið, því að kristin kirkja leggur mikið upp úr því að mannúð og mann- réttindi séu í heiðri höfð við afgreiðslu allra mála. Það má kallast held- ur kaldhæðið, svo ekki sé meira sagt, að á sama tíma og ver- ið er að vísa ungum, kenískum hjón- um með kornabarn fæddu hér á landi af landi brott á vergang, jafnvel út í opinn dauðann, þá er verið að und- irbúa móttöku á palestínsku flótta- fólki sem kemur von bráðar til lands- ins og er náttúrulega velkomið hingað. Yfir slíkri tvöfeldni í af- greiðslu mála flóttafólks á kristin kirkja aðeins eitt orð: hræsni. Við Ís- lendingar eigum að sýna okkar ann- áluðu gestrisni og að það sé líka pláss fyrir þessa ungu kenísku fjölskyldu, sem fann sér helst griðastað hér á Ís- landi, af því að Páll Ramses hafði kynnst Íslendingum af góðu einu, unnið jafnvel fyrir þá og með þeim í Kenýa, og hélt að hjá þeim gæti hann og fjölskylda hans átt vinum að mæta og góðum griðastað á erfiðum tím- um. Annað hefur komið í ljós. Það er jafnvel efast um að hann segi satt til um það að hann sé í lífshættu í heimalandi sínu. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson dvaldi um nokkurra mánaða skeið í Kenýa í vor og segir í einum ann- álspistli sínum þaðan frá presti úr stjórnarandstöðunni í einu fjalla- þorpa Pókót-héraðs sem her forset- ans var á eftir og átti fótum fjör að launa út í stórfljót nálægt heimili sínu þegar herinn sótti að honum og fjölskyldu hans og hann fékk kúlu úr byssu eins hermannsins yfir höfuð sitt um leið og hann henti sér út í fljótið. Hann beið þar, þangað til her- mennirnir gáfust upp og fóru á brott. Þá kom hann sér upp úr fljótinu og heim til hrelldrar fjölskyldunnar. Þau pökkuðu saman og fóru niður í kristniboðsstöðina, þar sem þau eru enn eftir því sem best verður vitað. Sem betur fer fyrir þennan prest og fjölskyldu hans þá er kristniboðs- stöðin í Kapengúría rekin af norska kristniboðssambandinu. Ég hefði gefið lítið fyrir örlög fólksins ef Björn Bjarnason og útsendarar hans hjá Útlendingastofnun hefðu ráðið þar lögum og lofum. Ég segi ekki annað en þetta sýnir að stjórnarandstæð- ingar í Kenýa eru alls ekki óhultir fyrir herjum forsetans, hvað sem hver segir, og því ástæða til að trúa orðum Páls Ramses þar um. Það er einlæg ósk mín og von að dómsmálaráðherra sjái sóma sinn í því að gæta kristinna mannúðar- og mannréttindasjónarmiða og afgreiði mál kenísku fjölskyldunnar af sann- girni og hún fái réttláta máls- meðferð. Satt að segja finnst mér Sjálfstæð- isflokknum ekki ganga svo vel í skoð- anakönnunum um þessar mundir, eftir allt það sem á undan er gengið, að hann megi við enn einu hneyksl- ismálinu til viðbótar. Það væri vissu- lega hneyksli ef á ekki aðeins að fara að brjóta mannréttindi á blessuðu barninu með því að vísa föðurnum al- farið brott frá Íslandi og senda hann jafnvel út í opinn dauðann heldur vísa því og móður þess með tímanum úr landi líka út í óvissuna. Ef við telj- um okkur geta tekið á móti flóttafólki frá Palestínu og öðrum löndum og boðið það velkomið til Íslands þá get- um við alveg að sama skapi boðið Páli Ramses og fjölskyldu hans velkomin að dvelja hér á landinu og sýnt að það er líka pláss fyrir þau hérna. Ég vona því að dómsmálaráðherr- ann sjái að sér í þessu máli og leyfi Páli Ramses að koma aftur til Ís- lands, og hafi orð Bjarna Benedikts- sonar, sem hann viðhafði á sinni tíð þegar átti að brjóta á rétti barna, í huga og að leiðarljósi: Svona gerir maður ekki. Svona gerir maður ekki Guðbjörg Snót Jónsdóttir vill að mál Pauls Ramses verði endurskoðað Guðbjörg Snót Jónsdóttir » Við Íslendingar eig- um að sýna okkar annáluðu gestrisni og að það sé líka pláss fyrir þessa ungu kenísku fjöl- skyldu, sem fann sér helst griðastað hér á Ís- landi. Höfundur er guðfræðingur og félagi í Amnesty International á Íslandi. Í DAG, 13. júlí, eru liðin 40 ár frá því fyrsta formlega til- kynningin var send til Tilkynningaskyldu ís- lenskra skipa. Það gerði Harald Holsvik, loftskeyta- og tækni- maður á Árna Frið- rikssyni, en skipið var þá við síldarleit um 60 sjómílur vestur af Svalbarða. Fleiri skip voru á svæðinu og var tilkynnt um þau öll á einu bretti með þessari fyrstu tilkynningu. Slysavarnafélag Ís- lands átti mikinn þátt í tilkomu Tilkynninga- skyldunnar árið 1968. Það sem meðal annars hrinti þessum und- irbúningi af stað var sjóslys þegar Stígandi ÓF sökk á leið í land með síldarfarm haustið 1967. Áhöfnin komst í gúmbjörgunarbáta en gat ekki látið vita af sér og fannst ekki fyrr en eftir nokkra daga enda hafði enginn tekið að sakna þess að heyra ekki frá henni fyrr en eftir þrjá daga. Síldveiðiskipstjórar komu í fram- haldinu á tilkynningaskyldu sem Síldarleitin og hjálparskipið Goðinn önnuðust það haust. Menn sáu ör- yggið með slíkum tilkynningum og sáu að þörf var á eftirliti með skip- um umhverfis landið allt til þess að geta gripið strax til aðgerða ef grunur vaknaði um að eitthvað hefði farið úrskeiðis. Hefur sannað gildi sitt Ég rek ekki söguna nánar hér en Tilkynningaskyldan hefur margoft sannað gildi sitt. Hversu oft höfum við ekki heyrt áminningar frá henni í útvarpi gegnum árin þegar hinn eða þessi báturinn er beðinn að hafa samband við næstu strandstöð Landssímans. Oftast kom sem bet- ur fer í ljós að einhver hafði gleymt sér en ef eitthvað alvarlegt var á seyði leið mun styttri tími þar til hægt var að bregðast við en ella hefði verið. Nú er þetta umhverfi allt orðið gjörbreytt og tæknivætt undir merkjum Vaktstöðvar siglinga sem vakir yfir ferðum stórra sem smárra skipa við strendur landsins. Formlega er það Siglingastofnun Íslands sem fer með málefni vaktstöðv- arinnar fyrir hönd samgönguráðuneyt- isins. Gerður var þjón- ustusamningur við þrjá aðila um rekstur vaktstöðvarinnar: Landhelgisgæslu Ís- lands sem fer með faglega stjórn hennar, Neyðarlínuna hf. sem fer að hluta til með fjármál, húsnæðismál og annan rekstur og Slysavarnafélagið Landsbjörg sem rekur björgunarbáta víða um land, auk yf- irstjórnar björg- unarsveita. Þarna er því búið að sameina sérhæfða krafta og er á engan hallað þótt minnt sé á frumkvæði forráða- manna Slysavarna- félags Íslands fyrir fjórum áratugum. Þá byrjaði þessi bolti að rúlla sem hefur síðan undið upp á sig og teknar hafa verið upp margs konar nýjungar eftir því sem tækninni hefur undið fram. Einstök þjónusta Það er í raun merkilegt að sjá hvernig hægt er frá stjórnstöðinni í Skógarhlíð að fylgjast með og sjá á tölvuskjám á einu bretti hvar ein- stök skip eru á ferð og um leið að hefja eftirgrennslan ef einhver hef- ur ekki tilkynnt sig í tíma. Tilkynningaskyldan hérlendis er einstök og er nauðsynlegur örygg- ishlekkur í sjómennsku og sigl- ingum öllum við erfiðar aðstæður við landið. Hún hófst hjá grasrót- inni og er nú eðlileg þjónusta stjórnvalda við sjófarendur. Hún er líka í rökréttu samhengi við lang- tímaáætlun um öryggi sjófarenda sem alltaf þarf að vera til skoðunar. Við minnumst þessa áfanga í dag með þakklæti og af þeirri virðingu sem við þurfum að bera fyrir oft óblíðri náttúrunni hér við land og virðingu fyrir þeim sem gengnir eru. Fjórir áratugir frá tilkomu Tilkynn- ingaskyldunnar Kristján L. Möller skrifar um öryggishlekk sjófarenda Kristján L. Möller » Tilkynn- ingaskyldan hérlendis er ein- stök og er nauð- synlegur örygg- ishlekkur í sjómennsku og siglingum öllum við erfiðar að- stæður við land- ið. Höfundur er samgönguráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.