Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 50

Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 50
50 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5 % endurgreitt í BorgarbíóSími 462 3500 Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga Meet Dave kl. 4 - 6:10 - 8:30 - 10:40 B.i. 7 ára Big Stan kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára The Incredible Hulk kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára The Happening kl. 10:20 B.i. 16 ára Zohan kl. 3:30 - 5:40 - 8 B.i. 10 ára Sex and the City kl. 10:20 B.i. 14 ára Mamma Mia kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ Hancock kl. 4 - 8 -10 B.i.12ára Big Stan kl. 6 B.i.12ára Mamma Mia kl. 3:30 - 6 - 8:30 - 11 LEYFÐ Hancock kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára Kung Fu panda enskt tal kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ Sex and the City kl. 3 - 6 - 9 B.i. 14 ára SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI M. ÍSL. TALI, HÁSKÓLABÍÓI M. ENS. TALI 650kr. Eddie Murphy er inn í Eddie Murphy í frábærri gamanmynd fyrir alla fjölskylduna! Þau komu langt utan úr geimnum... í dulargervi sem hæfði veröld okkar fullkomnlega... Það er heill heimur inni í honum sem heldur honum gangandi * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu TILBOÐ Í BÍÓ eee ,,Unnin af natni, tónlistin frábær og undir- strikar firringuna, ofsóknaræðið og óttann við það óþekkta” - S.V., MBL eee eeee 24 stundir 650kr. eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL 650kr. Það er kominn nýr hrotti í fangelsið... af minni gerðinni! 650kr. SÝND SMÁRABÍÓI Þau komu langt utan úr geimnum... í dulargervi sem hæfði veröld okkar fullkomnlega... Það er heill heimur inni í honum sem heldur honum gangandi Eddie Murphy er inn í Eddie Murphy í frábærri gamanmynd fyrir alla fjölskylduna! 650kr. 650kr. * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu TILBOÐ Í BÍÓ JACK BLACK SANNAR AF HVERJU HANN ERTALINN EINN AF FYNDNUSTU GRÍNLEIKURUNUM Í HEIMINUM Í DAG. Emmylou Harris byrjaðisnemma að syngja og þáþjóðlagamúsík og slíktónlist var í aðalhlutverki á fyrstu plötu hennar, Gliding Bird, sem kom út 1970, en Harris á sjálf fimm lög á plötunni. Önnur eru með- al annars eftir Bob Dylan, Hank Williams og Burt Bacharach. Alla jafna er þessi plata ekki talin með verkum hennar og sjálf vill hún að Pieces of the Sky, sem kom út 1975, sé talin hennar fyrsta sólóskífa. Það varð vendipunktur í lífi Em- mylou Harris þegar hún komst í kynni við Gram Parsons en það bar þannig við að nokkrir félagar úr Flying Burrito Brothers sáu hana spila 1971 og einn þeirra, Chris Hill- man, segir svo frá að hann hafi lang- að til að fá hana í sveitina en ákvað á endanum að benda forðum félaga sínum í sveitinni, Gram Parsons, á hana, en Parsons var einmitt að leita að söngkonu. Parsons allur Þau Harris og Parsons náðu strax vel saman og 1973 gekk hún í hljóm- sveit hans The Fallen Angels. Hún var einmitt að vinna að nýrri plötu með honum, Grievous Angel, þegar hann drakk og dópaði sig í hel í september 1973. Sá atburður hafði eðlilega mikil áhrif á Harris og sér hans stað í ýmsum textum hennar og lögum. Að Parsons gengnum fluttist Harris austur til Washington og stofnaði þar hljómsveit, The An- gel Band. Hún tók upp fyrstu sóló- skífuna, Pieces of the Sky, 1975 og var vel tekið. Til að kynna þá plötu stofnaði hún aðra sveit, Hot Band, og fór um Bandaríkin og hljóðritaði svo aðra plötu, Elite Hotel, sem kom út í nóvember það ár. Segja má að Harris hafi verið að hreinsa út úr sálarkirnunni á plöt- unum tveimur því hún syngur ekki nema eitt lag eftir sjálfa sig á þess- um tveimur plötum, „Boulder to Birmingham“ á Pieces of the Sky þar sem hún tregar Gram Parsons. Að öðru leyti syngur hún lög úr ýmsum áttum, allt frá Bítlunum til Hank Williams, en á seinni plötunni, Elite Hotel, tekur hún tvö Flying Burrito Brothers-lög og eitt af síð- ustu plötu Parsons, Grievous Angel. Pieces of the Sky var vel tekið eins og getið er en óhætt er að segja að Elite Hotel hafi slegið í gegn og ekki bara hjá kántrýáhugamönnum heldur fór platan hátt á bandaríska breiðskífulistanum. Út í kant Á næstu árum hafði Harris í nógu að snúast sem getur á plötum ann- arra en tók sér líka tíma til að vinna að nýrri breiðskífu, Luxury Liner, sem kom út 1977 og seldist millj- ónasölu. Hún var þó ekki alveg sátt við rokk- og poppblæinn á því sem hún var að gera og á næstu plötu, Quarter Moon in a Ten Cent Town, sem kom út 1978, tók hún skref í átt að sveitatónlist/kántrý og fór svo alla leið 1989 með plötunni Blue Kentucky Girl sem var sveitatónlist og tært blágresi í bland. Frábær plata. Jólaplata kom út sama ár, Light Virt og vinsæl Bandaríska söngkonan Emmylou Harris. Fáir tónlistarmenn bandarískir hafa notið eins mikillar virðingar í gegnum árin og söngkonan Emmylou Harris. Bæði er að hún hefur haldið virðingu og vinsældum lengur en títt er og svo hitt að hún hefur hvað eftir annað tek- ið krappar beygjur í músíkinni án þess þó að missa sjónar á sjálfri sér. Fyrir stuttu kom út ný plata Harris, All I Intended to Be. Horft um öxl TÓNLIST Á SUNNUDEGI Eftir Árna Matthíasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.