Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 4

Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ENGAR breytingar hafa orðið á út- söluverði á bensíni og dísilolíu hjá olíufélögunum þrátt fyrir umtals- verðar lækkanir á hráolíu á heims- markaði að undanförnu. Eldsneytis- verð hefur að mestu haldist óbreytt hjá félögunum frá 20. ágúst. Talsmenn olíufélaga, sem rætt var við í gær, benda á að á móti nýlegum lækkunum á heimsmarkaði vegi óhagstæð gengisþróun sem standi í vegi fyrir því að unnt sé að lækka eldsneytisverðs til neytenda hér á landi eins og sakir standa. Einn viðmælandi segir sveiflurnar á alþjóðamörkuðum ótrúlegar en á móti komi að gengisvísitalan hafi far- ið upp í 170 og aldrei verið hærri. Styrking á gengi Bandaríkjadals hafi étið upp verðlækkunina. Ef gengið hefði haldist stöðugt síðustu tvær til þrjár vikur væri búið að lækka bens- ínverð hér á landi um 6-7 krónur. Haldi hráolíuverð hins vegar áfram að lækka næstu daga hljóti það að kalla á einhverjar breytingar á út- söluverðinu hér. Algengasta verð á 95 oktana bens- íni í sjálfsafgreiðslu er í dag 165,70 kr. Og á dísilolíu 181,60 kr. Verð á tunnu af hráolíu á heimsmarkaði nálgast nú 95 dali en svo lágt hefur verðið ekki verið í hálft ár. Viðmælendur hjá olíu- félögunum segjast gera sitt besta til að verðið endurspegli heimsmark- aðsverðið en gengisflöktið og veiking krónunnar gagnvart dollar setji mönnum stólinn fyrir dyrnar. Skýrari vísbendingar á morgun Sú spurning er hins vegar áleitin hvort verðlækkun á hráolíu á mörk- uðum frá því um mitt sumar sé meiri en nemur gengissigi krónunnar og hvort sá munur hafi skilað sér í út- söluverðinu. Gjaldþrot Lehman Brothers og sviptingar á fjár- málamörkuðum áttu í gær stærstan hlut að máli þegar viðmiðunarverð á hráolíu lækkaði niður fyrir 96 Banda- ríkjadali tunnan. Hefur verðið ekki verið lægra frá því í lok mars sl. Á þeim tíma var algengt verð á 95 okt. bensíni nálægt 155 kr. lítrinn. En á þeim tæplega 6 mánuðum sem liðnir eru hefur gengi dollars styrkst um tæp 17%. Gengi Bandaríkjadals var þá 77,94 kr en stóð í 91,05 kr. við lok- un markaða í gær. Gengisvísitalan var 157,70 stig í lok mars sl. þegar verð á olíutunnu var svipað og eftir lækkanirnar í gær en vísitalan end- aði í 169,90 við lokun markaða í gær. Fæstir treysta sér til að spá hver þróun heimsmarkaðsverðsins verður á næstu dögum og vikum. „Það er fátt sem bendir til að verðið fari jafn- hratt upp og það hefur farið niður,“ segir Már Erlingsson, innkaupa- stjóri hjá Skeljungi. Magnús Ás- geirsson, innkaupastjóri hjá N1, seg- ir óvissuna talsverða. Hráolíuverðið hafi sveiflast í gær en á morgun gætu komið fram skýrari vísbendingar um hvert stefnir þegar birtar verða birgðatölur eldsneytis í Bandaríkj- unum. Styrking doll- ars étur upp lækkunina                                   ! STARFSHÓPUR um fyrirkomulag flutnings- jöfnunar leggur til að flutningsjöfnunarsjóður olíuvara verði starfræktur áfram, en að lögin um hann verði endurskoðuð. Þetta kemur fram í skýrslu starfshópsins sem viðskiptaráðherra skipaði í árslok í fyrra. Hópurinn átti meðal annars að meta þau áhrif sem yrðu þegar flutningsjöfnunarsjóður olíu- vara yrði lagður niður, með hvaða hætti ætti að mæta þeim og jafna flutningskostnað almennt. Starfshópurinn telur að verði flutningsjöfn- unarsjóður olíuvara lagður niður „sé raun- veruleg hætta á því að eldsneytisverð á af- Ennfremur að lagt verði mat á hugsanlegan kostnað við rekstur strandflutningaskips og væntanlegan hlut ríkisins eftir útboð. Undanþáguákvæði kannað Starfshópurinn segir að ein móttökustöð ÁTVR skekki mjög samkeppnisstöðu inn- lendra áfengisframleiðenda og fyrirkomulag- inu megi breyta. Þá leggur starfshópurinn til að kannað verði hvernig undanþáguákvæði 53. gr. tollalaga hafi verið beitt og hvort ástæða sé til að breyta því. steinthor@mbl.is ingskostnaði olíuvara sé að mörgu leyti einfalt og skilvirkt. Í sambandi við flutningsstyrki til framleiðslufyrirtækja leggur starfshópurinn til að tímabundið verði komið á sambærilegu kerfi og gildir í Noregi. Sú ívilnun sem felist í reglunum þar flokkist sem ríkisstyrkur sam- kvæmt þeim reglum sem gildi á Evrópska efnahagssvæðinu og telja verði líklegt að Eftirlitsstofnun EFTA samþykkti sambæri- legt kerfi, aðlagað íslenskum aðstæðum. Varðandi sjóflutninga vill hópurinn að lagt verði mat á stórflutningaþörf um landið og áhrif þess á vegakerfið í sliti á þjóðvegum. skekktari svæðum landsins verði hærra en á þéttbýlli svæðum þar sem arðbærara er að halda úti sölu á eldsneyti. Þá telur starfshóp- urinn að ekki liggi fyrir með óyggjandi hætti að starfsemi sjóðsins geti talist samkeppnis- hamlandi á afskekktari svæðum. Starfshópur- inn mælir með því að sjóðurinn verði starf- ræktur áfram en að lögin um hann verði endurskoðuð m.a. með það í huga að afmarka á annan hátt þau landsvæði sem jöfnunin tekur til.“ Í niðurstöðum hópsins kemur fram það álit að ríkjandi fyrirkomulag við jöfnun á flutn- Leggur til að flutningsjöfnunarsjóður olíuvara verði starfræktur áfram UNNIÐ hefur verið að gagngerum endurbótum innandyra í Akureyrar- kirkju undanfarið og kirkjan því lokuð. Bekkirnir eru í gámum fyrir utan húsið og raunar fátt innandyra sem minnir á hvunndaginn annað en kross- inn fallegi ofan kórsins og auðvitað steindu gluggarnir litskrúðugu og fögru. Verið er að mála loft og veggi kirkjunnar auk þess sem hljóðkerfið verð- ur endurnýjað og skipt um allar perur og lagnir að ljósum. Samkvæmt upp- lýsingum Sveins Jónassonar kirkjuvarðar eru 18 ár síðan var kirkjan var síðast máluð innan og lýsingin var síðast tekin í gegn árið 1960. Núverandi hljóðkerfi er um aldarfjórðungs gamalt. Kirkjan verður lokuð til laugar- dagsins 20. september næstkomandi, en áætlað er að hefja vetrarstarfið með fjölskylduguðsþjónustu daginn eftir. skapti@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Málarar og rafvirkjar við völd í Akureyrarkirkju Klifrað á Krists vegum RÚMLEGA 55% eru fylgjandi evru en 30% á móti, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gall- up gerði fyrir Samtök iðnaðarins. Óákveðnir eru 14%. Karlar eru hlynntari upptöku gjaldmiðilsins en konur en tæp 63% karla vilja taka upp evru en 48% kvenna. Þá eru færri grunnskóla- prófsmenntaðra fylgjandi upptöku evru, eða 49% til móts við 59% há- skólamenntaðra. Meirihluti þeirra sem eru með yfir 800 þúsund krónur í laun á mánuði eru fylgjandi evru, eða 63% og 24% eru á móti. Þá er helmingur þeirra sem hafa undir 250 þúsund krónum í mánaðarlaun fylgjandi gjaldmiðlinum en 40% á móti. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru jákvæðari gagnvart evru en íbúar landsbyggðarinnar. Um 78% stuðn- ingsmanna Samfylkingarinnar eru hlynntir því að taka upp evru en 13% eru því andvígir. Þegar litið er til stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokksins eru 50% hlynntir en 35% þeirra eru því andvígir. Meirihlutinn vill evru Reuters ENN fjölgar þeim sem sækja sér þjónustu Landspítalans, en þeir voru fjög- ur þúsund fleiri fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum starfsemistölum spít- alans. Þá eru komur á göngudeildir spítalans um 13 þúsund fleiri en í fyrra en komum á dagdeildir hins vegar fækkar. Fjöldi koma á slysa- og bráða- móttökur er svipaður milli ára en þeim sem þangað leita og eru lagðir inn á spítalann hefur fækkað um 4,5%. Heldur meira hefur þurft að draga úr sjúkrahústengdum heima- vitjunum í sumar en á síðasta ári. Fleiri rannsóknir Aukin aðsókn leiðir einnig til aukn- ingar á rannsóknum til greiningar sjúkdóma, svo sem rannsóknum á sviði myndgreiningar, blóðmeina- fræði og lífefnafræði. Þá voru fæð- ingar 182 fleiri en á sama tíma í fyrra. Heildarfjöldi innlagna á spít- alann er svipaður milli ára, en legu- dögum fækkar jafnt og þétt og meðallegutími styttist. sunna@mbl.is Fæðingum fjölgar enn Sé verð á bensíni og dísilolíu, sem íslenskum neytendum stendur til boða, borið saman við verð í ná- grannalöndum, kemur í ljós að smásöluverð á þessum eldsneyt- istegundum er víða nokkru hærra en hér. Danska vegagerðin birtir hvern mánudag samanburð á verði bensíns og dísilolíu í rúmlega 20 löndum umreiknað í evrum og dönskum kr. Nýjustu upplýsing- arnar voru birtar í gær og þar má sjá að 95 oktana bensínlítrinn er dýrastur í Noregi eða sem sam- svarar rúmlega 213 íslenskum kr. Ísland lendir í 17. sæti á þeim lista. Lítrinn af dísilolíu er einnig dýr- astur í Noregi eða rúmlega 212 ísl. kr. Algengasta útsöluverð á dísil- olíu á Íslandi skipar landinu í 9. sæti. Verðlagning á eldsneyti er og verður undir smásjá neytenda. Innan tíðar má búast við niður- stöðum úttektar sem viðskipta- ráðherra hefur óskað eftir á þróun verðlags á olíumarkaði. Talsmenn olíufélaganna standa á því fastar en fótunum að ekkert sé óeðlilegt við verðlagninguna. Í níunda og 17. sæti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.