Morgunblaðið - 16.09.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.09.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 13 FRÉTTIR Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. september 2008, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. september 2008 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. september 2008, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.350 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. september 2008. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Á SÓLHEIMUM í Grímsnesi er nú hópur háskólanema frá Bandaríkj- unum sem munu dvelja þar næstu þrjá mánuði við nám og störf. Þetta er annar hópurinn á veg- um menntasamtakanna CELL sem kemur til að mennta sig á Sól- heimum í Grímsnesi, en þetta sama nám var í boði síðastliðið haust. Það námskeið þótti heppn- ast mjög vel. Námið ber yfirskriftina „Sjálf- bær þróun í sjálfbæru samfélagi“ og byggist á námskeiðum, vett- vangsferðum um landið, sjálfboða- vinnu og verkefnum sem miða öll að því að gera umbætur í um- hverfismálum á Sólheimum. Háskólanám á Sólheimum HINN 16. september 1936 fórst franski leiðangursstjórinn og landkönnuðurinn Jean-Baptiste Charcot með allri áhöfn utan eins á rannsóknaskipinu Pourquoi Pas? út af Mýrum í Borgarfirði og átti þá að baki langt og merkilegt rann- sóknarstarf á suður- og norð- urheimskautinu ásamt mönnum sínum. Til að minnast þessa merka vís- indamanns, landkönnuðar og Ís- landsvinar standa Alliance Franc- aise, Franska sendiráðið og Háskóli Íslands að fyrirlestri um for- vitnilegar rann- sóknir sem unnar eru í anda Charcot. Í dag heldur Daniel Desbruy- ères fyrirlestur til minningar um Charcot sem hann nefnir „Hveralífríki í djúphöfunum,“ Fyrirlesturinn verður í sal N-132 í Öskju – Náttúrufræðahúsi, Sturlu- götu 7, í dag kl. 17.15. Charcot-fyrirlestur um hveralífríki í djúphöfunum Jean-Baptiste Charcot ALÞJÓÐLEGI skólamjólkurdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn 24. september nk. Í tilefni dagsins býður Mjólkursamsalan öllum grunn- skólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum og má reikna með að þar verði drukknir 12.000 lítrar af mjólk. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim en það er Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna sem hvetur til að haldið sé upp á daginn. Á Íslandi er haldið upp á hann undir kjörorðunum „Holl mjólk og heilbrigðir krakkar“. Góð Mjólkin er góður drykkur. Morgunblaðið/Frikki Gefa börnum 12.000 l af mjólk Á FIMMTUDAG nk. kl. 20 verður annað fræðslukvöld haustsins haldið í Hafnarfjarðarkirkju, og verður þar fjallað um meint hjóna- band Jesú Krists og Maríu Magda- lenu. Fræðslukvöldið er í umsjón sr. Þórhalls Heimissonar en hann hef- ur tekið saman bók um Maríu Magdalenu sem væntanleg er í haust. Aðgangur er ókeypis og öll- um opinn. Ástin í lífi Jesú ÁKVEÐIÐ hefur verið að gera minnisvarða um hjónin í Vorsa- bæ, Guðfinnu Guðmundsdóttur og Stefán Jas- onarson, í skóg- ræktarreit Umf. Samhygðar við Timburhóla í Gaulverjabæjarhreppi hinum forna. Þau hjón voru bændur í Vorsabæ í hálfa öld og Stefán var frumherji í störfum fyrir samtök sunnlenskra bænda, ungmenna- félagshreyfinguna, umferðarör- yggi og varðveislu þjóðlegra verð- mæta. Minnisvarðinn verður afhjúpaður nk. sunnudag kl. 15. Eftir athöfnina verður boðið til kaffisamsætis í Félagslundi. Minnisvarði um hjónin Stefán Jasonarson Í DAG, þriðjudag, mun Björn Bjarnason dómsmálaráðherra opna haustdagskrá Sagnfræðingafélags Íslands með erindi sitt „Kalda stríð- ið – dómur sögunnar,“ þar sem beint verður sjónum að hernaðar- legu gildi Íslands í kalda stríðinu. Erindið verður haldið í fyrir- lestrasal Þjóðminjasafnsins kl. 12.05-13.00. Björn á fundi ALÞJÓÐLEGI geðheilbrigðisdagurinn verður þann 10. október nk. og verður af því tilefni haldin hátíðardagskrá og kynning í Perlunni. Í ár verð- ur dagurinn sérstaklega helgaður málefnum barna og ungmenna. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson verður sérstakur verndari dagsins. Óskað er eftir þátttakendum í dagskránni og geta þeir sem vilja tekið þátt í henni með því að setja upp kynningarstand og hafa þeir frjálsar hendur um hvernig það er gert. Aðstoð verður veitt við uppsetningu á kynningarstandinum og verður aðstaðan alveg að kostnaðarlausu. Æski- legt að fólk tilkynni þátttöku sína sem fyrst svo hægt sé að taka frá pláss. Skoða geðheilbrigðismál barna STUTT ÞAÐ lá vel á Jóni Guðmundsyni, hafnarverði á Rifi. Nóg var að gera við að vigta aflann sem upp úr bát- unum kom en þegar löggildingarmenn frá Frumherja komu á hafnarvogina til þess að athuga hvort vigtin stæðist kröfur um löggildingu kom rólegur tími hjá Jóni. Jón birtist í glugganum á vigtarskúrnum brosandi til þess að fylgjast hvernig verkinu liði. Morgunblaðið/Alfons Jón er á útkikki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.