Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 7
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
43
68
4
09
.2
00
8
www.toyota.is
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Corolla
1600 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 06.04 Ekinn: 107.000 km
Verð: 1.300.000 kr. Skr.nr. ML-184
Tilboð: 990.000 kr.
Toyota Avensis W/G EXE
2000 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 10.07 Ekinn: 14.000 km
Verð: 4.150.000 kr. Skr.nr. GSD-70
Tilboð: 3.890.000 kr.
Toyota Land Cruiser 120 VX
4000 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 06.07 Ekinn: 18.000 km
Verð: 6.460.000 kr. Skr.nr. AL-848
Tilboð: 5.790.000 kr.
BNB-sölugreining
Bílarnir ganga í gegnum strangt gæðamat sem tekur mið af aldri, akstri
og viðhaldssögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort
í flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur okkar
bjóðum við þér hann ekki.
Toyota Yaris T-sport
1800 Bensín 5 gíra
Á götuna: 07.07 Ekinn: 18.000 km
Verð: 2.630.000 kr. Skr.nr. YZ-522
Tilboð: 2.390.000 kr.
Toyta Corolla S/D
1400 Dísel 5 gíra
Á götuna: 02.08 Ekinn: 3.000 km
Verð: 2.990.000 kr. Skr.nr. HZK-74
Tilboð: 2.690.000 kr.
SUMIR NOTAÐIR BÍLAR
ERU EINFALDLEGA BETRI EN AÐRIR
Toyota Land Cruiser 100
4700 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 11.05 Ekinn: 57.000 km
Verð: 6.450.000 kr. Skr.nr. AZ-426
Tilboð: 5.890.000 kr.
„MEÐGÖNGUEITRUN er alltaf
hættuleg en ég var heppin að því leyti
að fá hana seint á meðgöngunni og
var í daglegu eftirliti fram að fæð-
ingu,“ segir Valgerður Kristín Guð-
björnsdóttir, sem eignaðist dreng í
verkfalli ljósmæðra aðfaranótt
fimmtudagsins 11. september.
Valgerður segir að fæðingardeild
Landspítalans hafi verið full, en hún
hafi fengið inni á tveggja manna her-
bergi sem þriðja kona eftir að hafa
átt barnið inni á skoðunarherbergi.
„Ég þurfti að liggja inni af því að ég
var með meðgöngueitrun,“ segir hún
og bætir við að eitrunin einkennist
meðal annars af háum blóðþrýstingi,
prótíni í þvagi og höfuðverk. „Þetta
getur verið mjög krítískt fyrir móður
og barn,“ segir hún og leggur áherslu
á að hún þurfi að passa sig svo að
blóðþrýstingurinn rjúki ekki upp úr
öllu valdi.
Send heim
Verkfallið setti strik í reikninginn
hjá Valgerði eins og fleirum, en hún
var send heim á hádegi á föstudag.
„Þeir hefðu haft mig lengur inni eftir
fæðinguna ef það hefði ekki verið
verkfall, en ég fékk ljósmóður til að
fylgjast með mér heima.“ Hún segir
að nýfæddi drengurinn sé mjög vær
og svo njóti hún góðrar aðstoðar hjá
fjölskyldunni. Það sé hennar lán og
þess vegna gangi hlutirnir upp.
Hins vegar sé erfitt að þurfa að
fara af fæðingardeildinni svona
skömmu eftir fæðingu, því fyrstu sól-
arhringarnir eftir hana séu svo krít-
ískir, þegar um meðgöngueitrun sé
að ræða. „Það var ekki þægilegt að
þurfa að fara heim og vita ekki hvað
myndi gerast.“
Drengurinn er þriðja barn hjón-
anna en fyrir eiga þau níu ára stelpu
og tveggja og hálfs árs strák. Val-
gerður segir að vegna meðgöngueitr-
unarinnar hafi verið ákveðið að gang-
setja hana sl. föstudag en hún hafi
fætt áður en til þess hafi komið. „Ég
hefði ekki viljað eiga mitt fyrsta barn
í verkfalli,“ segir Valgerður og árétt-
ar mikilvægi reynslunnar í þessu efni
auk þess sem hún vísar líka til mikils
álags á þeim sem vinni í verkfalli.
„En það er ljóst að ljósmæðurnar
vinna geysilega mikilvægt starf og
allt þetta eftirlit skiptir gríðarlega
miklu máli.“ steinthor@mbl.is
Slapp fyrir
horn með með-
göngueitrun
Morgunblaðið/Frikki
Heima Valgerður var komin heim
með soninn daginn eftir fæðingu.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ANNA Þ. Björnsdóttir á von á sér á
föstudag. Hún missti af síðustu
mæðraskoðun vegna fyrsta verkfalls
ljósmæðra í byrjun september og
veit ekki hver staðan verður á fæð-
ingardeild Landspítalans á föstudag,
hvort það verður verkfall eða ekki.
Það þykir henni óþægileg staða.
„Óvissan um hvort ég lendi á
verkfallsdegi er mjög óþægileg,“
segir hún. „Ég krossa bara fingur og
vona það besta.“
Samningafundur í dag
Ljósmæður og samninganefnd
ríkisins halda áfram samningafundi
hjá ríkissáttasemjara árdegis í dag
en tæplega sex tíma fundur í gær
skilaði ekki árangri. Að öllu óbreyttu
hefst þriggja sólarhringa verkfall á
miðnætti.
Guðlaug Einarsdóttir, formaður
Ljósmæðrafélags Íslands, segir að
ýmislegt hafi verið rætt á fundinum
og í dag komi í ljós hvort þeim miði
eitthvað áleiðis. „Ég veit ekki hvað
skal segja um það,“ segir Guðlaug
spurð hvort hún sé bjartsýnni en áð-
ur. „Við reynum að nálgast en meira
er ekki hægt að segja um það.“
Gunnar Björnsson, formaður
samninganefndar ríkisins, er einnig
fámáll um gang mála. „Það er auð-
vitað verið að reyna að skoða alla
fleti,“ segir hann.
Ætlaði í Hreiðrið
Fyrir um 11 mánuðum eignuðust
Anna og maður hennar Sindri Vi-
borg soninn Funa. Þá gekk allt eins
og í sögu, jafnt á meðgöngu, í fæð-
ingu og eftir fæðingu. „Þá var ég
bara í Hreiðrinu og hafði það gott,“
segir Anna og bætir við að ætlunin
hafi verið að fara aftur í Hreiðrið
núna.
„Það er svo gott að vera þar því þá
getur maðurinn minn verið hjá mér
sólarhring eftir fæðinguna, en ef ég
er einhvers staðar annars staðar er
ég ein yfir nóttina og það er verra,“
segir hún.
Í verkfalli ljósmæðra er Hreiðrið
lokað. „Það er sérstaklega óþægilegt
að vita ekki hvernig aðstæður verða
við fæðinguna,“ segir Anna. „Ég hef
heyrt að konur þurfi að liggja úti á
göngum og ég veit ekki í hverju ég
get lent. Það stuðar mann.“
Morgunblaðið/Frikki
Óvissa Anna Þ. Björnsdóttir var í Hreiðrinu þegar hún eignaðist Funa og
vonar að hún geti endurtekið leikinn en verkfall getur komið í veg fyrir það.
Óvissan um fæðingu í verk-
falli eða ekki mjög óþægileg