Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Það er forvitnilegt að skoðahvernig formönnum stjórn-
málaflokkanna gengur að sannfæra
eigin fylgismenn um stefnu sína í
gjaldmiðilsmálum.
Þetta má sjá með því að skoðahvernig stuðningsmenn flokk-
anna svara í nýrri könnun Gallup
fyrir Samtök iðnaðarins. Þar var
spurt hvort menn
væru hlynntir
upptöku evru hér
á landi í stað ís-
lenzku krón-
unnar. Yfir 55%
landsmanna vilja
evruna, en um
30% krónuna.
Ingibjörg Sól-rún Gísladótt-
ir, formaður Samfylkingarinnar,
telur að krónan njóti ekki trausts.
Flokkur hennar vill evru og ESB-
aðild. Og 78% stuðningsmanna
Samfylkingarinnar vilja evru.
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-stæðisflokksins, telur krónuna
áfram góðan kost. Af stuðnings-
mönnum Sjálfstæðisflokksins eru
34% sammála honum, en um 50%
vilja heldur evruna.
Guðni Ágústsson, formaðurFramsóknarflokksins, er
krónumaður. Það eru líka um 40%
stuðningsmanna Framsóknar – en
yfir 45% vilja frekar evruna.
Og ekki vill Steingrímur J. Sigfús-son, formaður Vinstri grænna,
evruna. Hana vill hins vegar hátt í
helmingur stuðningsmanna VG.
Um 34% vilja halda í krónuna.
Hvernig stendur á þessum mis-munandi sannfæringarkrafti
flokksformannanna?
Eru buddur almennings farnar aðkveinka sér undan krónunni?
STAKSTEINAR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Ósannfærandi krónustefna?
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"##
$
##
%#
%
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
%
%&
&% %&
%
%&
%&
&% %&!
%&
%&
%&
%
!%!
!%&
!% !%!
*$BC
! "
#$%
*!
$$B *!
'( )#
#(#
*
<2
<! <2
<! <2
' ) #+
$
,#-.
D$ -
/
E
& '( #
)
*
+'
<
E87
& '( #
)
*
+'
#
, #
'
#)
/0 ##11
##2
#+
$
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
BYGGÐARÁÐ sveitarfélagsins
Skagafjarðar bókaði á fundi sín-
um á föstudag mótmæli við hug-
myndum um flutning innanlands-
flugsins úr Vatnsmýrinni í
Reykjavík. Í bókuninni segir að
Reykjavíkurflugvöllur gegni mik-
ilvægu hlutverki í öryggisneti
landsmanna þar sem nálægðin við
Landsspítalann sé hvað mikilvæg-
ust.
„Aðgengi landsbyggðar að
stjórnsýslu, viðskipta-, menning-
ar- og menntalífi landsins, sem
hefur meginstarfsemi í höfuð-
borginni, má ekki takmarka frek-
ar en fjarlægðir gera nú þegar. Á
það skal minnt að Reykjavík er
höfuðborg allra landsmanna og
því hafa borgaryfirvöld skyldum
að gegna gagnvart landsmönnum
öllum,“ segir í bókuninni og skor-
ar byggðaráð Skagafjarðar á
borgaryfirvöld og ríkisvaldið að
kveða endanlega upp úr með stað-
setningu Reykjavíkurflugvallar í
nágrenni miðborgarinnar og hefja
nú þegar tímabærar framkvæmd-
ir við nýja samgöngumiðstöð.
Skagfirðingar
mótmæla
flutningi úr
Vatnsmýri
Dalvík | Fimm börn á aldrinum 11 til
13 ára frá Ittoqqortoormiit eða
Scorysbysundi á Grænlandi voru
nýverið stödd í Dalvíkurbyggð.
Ittoqqortoormiit er vinabær
byggðarinnar. Börnunum til að-
stoðar eru Sabine Moratz og Dina
Lorentzen en þær vinna báðar við
Kutsadda, nokkurs konar skólavist-
un eða félagsmiðstöð fyrir börn 5-13
ára sem geta þar sinnt ýmsum við-
fangsefnum eftir skóla á daginn. Á
meðan á dvöl hópsins stendur nýta
börnin tímann til að læra að synda
og gengur afar vel hjá þeim þrátt
fyrir að hafa ekki fyrr stundað sund,
að sögn Bjarna Gunnarssonar,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Dalvík-
urbyggðar.
Þau fara víða í heimsóknir, skól-
arnir í sveitarfélaginu njóta þess að
fá þau í heimsókn, þau snæða hádeg-
isverð á degi hverjum með nemend-
um í Dalvíkurskóla og fara svo á
hestbak og skreppa í réttir.
Með heimsókninni er vonast til að
hægt verði að treysta enn frekar
bönd milli sveitarfélaganna. „Græn-
lensku börnin hafa skemmt sér vel
og eru himinlifandi yfir öllu sem hér
ber fyrir augu en þau hafa einnig
getað miðlað mörgu merkilegu til
jafnaldra sinna hér sem þeir vissu
ekki fyrir,“ segir Bjarni.
Læra og leika sér Grænlensku ungmennin hafa nóg fyrir stafni á Dalvík.
Synda, ríða út og
skreppa í réttir
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Elma Rún Krist-
insdóttir og Emil Örn Gunnarsson
voru krýnd lestrardrottning og
lestrarkóngur á uppskeruhátíð
sumarlesturs á Bókasafni Reykja-
nesbæjar á laugardag. Krýningin
er til komin vegna þess hversu vel
þau stóðu sig í sumarlestrinum í
ár. Þau lásu fjölbreyttan bókakost,
skrifuðu góðar umsagnir alveg
sjálf og lásu margar bækur, en
kóngurinn og drottningin eru að-
eins 7 ára.
Bóksafn Reykjanesbæjar hefur
boðið upp á sumarlestur frá árinu
2004. Þátttaka hefur vaxið ár frá
ári og þetta sumarið var slegið enn
eitt lestrarmet. 255 börn lásu 1990
bækur eða 7,8 hver. Þennan mikla
fjölda má þakka þremur sprettles-
urum sem tóku þátt í sumar. Þetta
voru lestrarkóngurinn og lestrar-
drottningin frá því í fyrra, Birkir
Orri Viðarsson og Heiðrún Birta
Sveinsdóttir og yngri bróðir henn-
ar, Hafþór Bjartur Sveinsson.
Samanlagt lásu þau 191 bók og
fengu sérstök verðlaun. Krýningin
í fyrra var þeim hvatning til að
lesa enn meira í ár, en sumarlest-
urinn er þó ekki keppni, heldur
fær hver og einn að njóta sín á sín-
um forsendum. Markmiðið er að
kynna þeim dásemd lesturs og
opna þeim nýja heima.
Herdís Egilsdóttir rithöfundur
gladdi börnin með nærveru sinni
og las fyrir þau nýju skessubókina,
Sigga og skessan á Suðurnesjum,
en þar fá lesendur að vita hvernig
stendur á því að skessan er flutt til
Reykjanesbæjar.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Lestrarkóngurinn Emil Örn Gunnarsson og lestrardrottningin Elma Rún Kristinsdóttir stóðu sig afar vel.
Lestrarkóngur og
lestrardrottning krýnd
Sumarlestri Bókasafns Reykjanesbæjar formlega slitið
með uppskeruhátíð 255 börn lásu samtals 1.990 bækur
Í HNOTSKURN
»Bókasafn Reykjanesbæjarhefur boðið grunnskóla-
börnum upp á sumarlestur frá
2004.
»Í ár var slegið lestrarmet.Meðaltalsútreikningar gefa
niðurstöðuna 7,8 bækur á
hvern þátttakanda.
»Lestrarkóngurinn og lestr-ardrottningin frá í fyrra
efldust við krýninguna og urðu
sprettlesarar sumarsins.
»Börnin þurfa að skila innumsögn um hverja lesna
bók og fá hvatningarverðlaun
eftir hverjar þrjár lesnar.
BROTIST var inn í einbýlishús við
Hverafold í Reykjavík á sjötta tím-
anum í gær. Lögregla telur að
styggð hafi komið að þjófnum er
húsráðendur bar að garði. Þjóf-
urinn forðaði sér út bakdyramegin
en skór hans fundust í garðinum.
„Þjófurinn komst undan með eitt-
hvert þýfi en hann flýtti sér svo
mikið að hann hljóp af sér báða
skóna,“ sagði varðstjóri lögreglu
höfuðborgarsvæðisins við mbl.is.
Lögreglan var kvödd á staðinn
og leitaði í nágrenninu að manni á
sokkaleistunum en það bar ekki ár-
angur.
Ekki fylgdu nánari upplýsingar
um skóna sem þjófurinn skildi eftir.
Þjófurinn
hljóp af sér
skóna