Morgunblaðið - 16.09.2008, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
VINNUHÓPUR Alþjóðahval-
veiðiráðsins, IWC, fundar á
Flórída í Bandaríkjunum í vik-
unni í þeim tilgangi að reyna
að höggva á þá hnúta sem
hindra að ráðið virki eins og
það á að gera. Stefán Ás-
mundsson, annar fulltrúi Ís-
lands á fundinum, segir að
verkefnið sé að skoða málið
frá ýmsum hliðum og nið-
urstöðurnar verði síðan rædd-
ar á sérstökum aukafundi á
næsta ári.
Á ársfundi Alþjóðahval-
veiðiráðsins í Santiago í Chile
í sumar var samþykkt að koma
á vinnuhópi, sem er ætlað að
reyna að finna lausnir á efnis-
legum ágreiningi aðildarríkja
IWC. Fundur hópsins hófst á
Flórída í Bandaríkjunum í
gær og honum lýkur á föstu-
dag, en fulltrúar liðlega 20
ríkja sitja fundinn.
Skiptar skoðanir
Stefán Ásmundsson segir
að mjög skiptar skoðanir séu
innan ráðsins og því sé ekki
auðvelt að ganga frá sameig-
inlegu samkomulagi, en á
fundinum sé verið að reyna að
leita leiða til þess að komast
að samkomulagi, sem geti
tryggt að IWC gegni því hlut-
verki sem ráðið eigi að gegna.
„Við vonum að það gangi sem
best að þoka málunum áfram í
viðræðunum í vikunni,“ segir
Stefán.
Reynt að höggva á hnúta í IWC
Fundur vinnuhóps Alþjóðahval-
veiðiráðsins hófst á Flórída í gær
Morgunblaðið/Kristinn
Veiðar Guðmundur Haraldsson á vélbátnum Nirði við undirbúning hrefnuveiða í Kópavogshöfn síðastliðið vor.
ALLS hafa 22 alþingismenn ráðið sér jafn
marga aðstoðarmenn í samræmi við ný lög
og reglur sem tóku gildi í mars á þessu ári.
Aðstoðarmenn formanna stjórnarand-
stöðuflokkanna fá fullt þingfararkaup,
541.720 krónur, en aðstoðarmenn
„óbreyttra“ þingmanna fá 25% af þingfar-
arkaupi, um 135.000 krónur.
Formenn stjórnmálaflokka sem eiga sæti
á Alþingi og eru ekki jafnframt ráðherrar,
eiga rétt á að ráða sér aðstoðarmenn í fullt
starf. Alþingismenn úr Norðvestur-, Norð-
austur- og Suðurkjördæmi, sem eru ekki
jafnframt ráðherrar eða flokksformenn,
eiga rétt á að ráða sér aðstoðarmann í þriðj-
ungsstarfshlutfall.
Þrír þingmenn sem eiga rétt á aðstoð-
armanni hafa ekki nýtt sér réttinn, þeir
Árni Johnsen, Kjartan Ólafsson og Kristinn
H. Gunnarsson, skv. upplýsingum á vef Al-
þingis.
Ráðning aðstoðarmanns má fara fram án
auglýsingar og hann má samhliða gegna
öðru starfi. Samkvæmt reglum Alþingis
ræður alþingismaður störfum aðstoð-
armanns og ákveður verkefni hans en þau
skulu vera í þágu hans sem þingmanns. Al-
þingismönnum er bannað að ráða sem að-
stoðarmann náið skyldmenni eða vensla-
mann.
Greiðslur fyrir kostnað
Auk fastra launa á aðstoðarmaður rétt á
ýmsum greiðslum fyrir hvern mánuð eða
hluta úr mánuði, s.s. styrk á móti far-
símakostnaði, 60.000 krónur á ári, greiðslu
fyrir útlögðum rekstrarkostnaði, þ.á m. fyr-
ir leigu á skrifstofu í kjördæminu þar sem
hann starfar, að hámarki 420.000 krónur á
ári. Hann getur einnig fengið fartölvu að
láni frá Alþingi. runarp@mbl.is
22 aðstoða alþingismenn
Flestir alþingismenn sem hafa rétt á að ráða aðstoðarmenn hafa
nýtt sér réttinn Þrír þingmenn eru aðstoðarmannslausir
Morgunblaðið/ÞÖK
Aðstoð Það er hlutastarf að aðstoða
flesta alþingismenn.
BARNAHEILL, Save the Children og rithöf-
undar víða um heim hafa tekið höndum saman
og hvetja til aðgerða til að tryggja öllum börnum
skólagöngu fyrir árið 2015, en það er eitt af þús-
aldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Rithöfundarnir hafa skrifað undir bréf, til
leiðtoga ríkja heims og Ban-Ki Moon, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að
herða róðurinn í baráttu gegn ólæsi og skorti á
menntun. Pétur Gunnarsson, rithöfundur, af-
henti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanrík-
isráðherra áskorunina með undirskrift 45 ís-
lenskra rithöfunda, en utanríkisráðherra og
forsætiráðherra sækja Allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna síðar í mánuðinum þar sem þúsald-
armarkmiðin verða til umræðu. Íslensk ung-
menni voru viðstödd athöfnina í Þjóðmenn-
ingarhúsinu.
Rithöfundar víða um heim krefjast þess að SÞ standi við markmið sín
Morgunblaðið/G. Rúnar
Öll börn fái skólagöngu fyrir árið 2015
Arnbjörg Sveinsdóttir – Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
Atli Gíslason – Ragnheiður Eiríksdóttir
Birkir J. Jónsson – Stefán Bogi Sveinsson
Bjarni Harðarson – Ármann Ingi Sigurðsson
Björk Guðjónsdóttir – Halldór Leví Björnsson
Einar Már Sigurðarson – Örlygur Hnefill Örlygsson
Guðbjartur Hannesson – Guðrún Vala Elísdóttir
Guðni Ágústsson – Agnar Bragi Bragason
Grétar Mar Jónsson – Guðrún María Óskarsdóttir
Guðjón A. Kristjánsson – Magnús Þór Hafsteinsson
Herdís Þórðardóttir – Eydís Aðalbjörnsdóttir
Höskuldur Þórhallsson – Mínerva Björg Sverrisdóttir
Jón Bjarnason – Telma Magnúsdóttir
Karl V. Matthíasson – Hlédís Sveinsdóttir
Kristján Þór Júlíusson – Anna Blöndal
Lúðvík Bergvinsson – Árni Rúnar Þorvaldsson
Magnús Stefánsson – Gunnar Bragi Sveinsson
Ólöf Nordal – Kristín Ágústsdóttir
Steingrímur J. Sigfússon – Finnur Ulf Dellsén
Sturla Böðvarsson – Sigríður Finsen
Valgerður Sverrisdóttir – Hallveig Björk Höskuldsdóttir
Þuríður Backman – Huginn Freyr Þorsteinsson
Alþingismenn og aðstoðarmenn
STAÐA forstöðumanns Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum er laus til umsóknar. Vé-
steinn Ólason er forstöðumaður
stofnunarinnar nú.
Stofnunin er háskólastofnun sem
hefur náin tengsl við Háskóla Ís-
lands. Hlutverk hennar er að vinna
að rannsóknum í íslenskum fræð-
um og skyldum fræðigreinum,
einkum á sviði miðaldafræða, ís-
lenskrar tungu og bókmennta, að
miðla þekkingu á þeim fræðum og
varðveita og efla þau söfn sem
henni eru falin eða hún á. Nánari
upplýsingar um stofnunina er að
finna á vefsíðu hennar: http://
www.arnastofnun.is.
Forstöðumaður Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum
skal hafa hæfi sem prófessor á
fræðasviði stofnunarinnar að mati
þriggja manna dómnefndar sem
menntamálaráðherra skipar. For-
stöðumaður stjórnar starfsemi og
rekstri stofnunarinnar. Hann ræð-
ur starfsmenn hennar og er í fyr-
irsvari fyrir hana. Hann ber
ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og
að starfsemi hennar sé í samræmi
við lög og stjórnvaldsfyrirmæli.
Menntamálaráðherra skipar for-
stöðumann til fimm ára að fenginni
umsögn stjórnar stofnunarinnar.
sbr. 1. mgr. 5. gr. laga um stofn-
unina. Skipunartímabil forstöðu-
manns er frá 1. mars 2009.
Umsóknir skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu fyrir 1.
október 2008.
Staða forstöðu-
manns Árna-
stofnunar laus