Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 20

Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 20
|þriðjudagur|16. 9. 2008| mbl.is daglegtlíf Davíð Hjálmar Haraldssonbregður á leik í limru: Kófsveittur rembdist og rósrjóður en raunabót var þetta hrós: „Góður! Þú ert þindarlaus, Kári!“ – fyrir þrem fjórðu úr ári. Nú er hann að leita að ljósmóður. Allir dagar hefjast eins hjá Pétri Stefánssyni: Vaknaður er ég enn á ný. Upp úr rúmi stíg ég. Vinnufötin fer ég í fyrst, og síðan míg ég. Tek svo fölsku tennurnar og treð í ginið hagur. Þá er ég orðinn eins og var: yndislega fagur. Svo er haldið heiman að frá hugfanginni kvinnu, og bílnum ekið beint af stað og brunað niður’í vinnu, þar sem blöðin bíða mín, brauð og Thermoskanna. -Aðdáun úr augum skín allra samstarfsmanna. Og ýmsar konur eftir mér augum sínum renna. Af ástarþrá mun önnur hver örugglega brenna. Sérhver morgunn svona hefst. Síst er þörf að kvarta. Allar stundir um mig vefst auðnudísin bjarta. Björn Ingólfsson á Grenivík orti eftir lesturinn: Veggbrattur þessi einatt er, allur á lofti og hreykir sér. Það sér maður betur og betur að oft væri dauft og leiðinlegt og ljóðmálið bæði þungt og tregt ættum við ekki Pétur. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Af morgni, Pétri og limru Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Ég bjó í sveit um nokkurra áraskeið sem krakki og á bænumvar vinnumaður sem notaði frí-tíma sinn til að smíða bíl fyrir mig,“ segir Helgi K. Pálsson innanhúss- arkitekt. „Ég var ellefu ára þegar þetta var og man hvað mér fannst þetta gaman, ekki hvað síst af því að hann leyfði mér að taka þátt í bílasmíðinni.“ Bílaáhuginn hefur ekki yfirgefið Helga því hugmyndin lifði með honum og er raun- ar kveikjan að leikfangabílunum Gretti og Spora sem hann sýnir þessa dagana Á skör- inni hjá Handverki og hönnun. Læri á verkfærin Á sýningunni er líka að finna teikningar að Spora, sem Helgi er með til sölu, enda er það hugmynd hans að fólk geti smíðað bíl- inn með einföldum verkfærum og í sam- vinnu fullorðinna og barna. „Gamli leik- fangabílinn minn var miklu betri en bílar sem fengust í búðunum á þeim tíma. Í dag er úrvalið af leikföngum vissulega miklu betra svo enginn þarf að standa í þessu. Það er samt sem áður ekki hægt að kaupa bíla eins og þessa og fara með þá í sams konar leiki eins og þeir bjóða upp á,“ segir Helgi, og bætir við að Spori sé ætlaður krökkum sem eru sjö ára og eldri. „Hugsunin er sú að foreldrar smíði bílinn með börnum sínum. Krakkarnir kynnast þá þeirri rökhugsun sem liggur að baki smíð- inni og læra sömuleiðis aðeins á verkfærin í gegnum vinnuna. Í bílunum felast hug- myndir mínar um að hægt sé að smíða með venjulegum verkfærum skemmtilegt og sterkt útileikfang sem getur enst nokkrar kynslóðir barna.“ Sjálfur á Helgi þrjár dætur og fjögur barnabörn sem öll hafa leikið sér með bíl- ana í gegnum tíðina. „Grettir, sá guli, er upphaflega frá 1992, þó útgáfan sem ég sýni núna sé mikið breytt. Spori er mun yngri. Hann hannaði ég 2002 og hann er mun létt- ari, enda úr áli og þolir þannig dyntótt veð- urfar betur.“ Hann segir drauminn að geta útbúið eins konar „kit-car“ útgáfu af bílunum. „Þá væru hlutirnir sem hann er samsettur úr tilbúnir og aðeins ætti eftir að skrúfa þá saman,“ segir Helgi og útilokar ekki að slík eintök Spora og Grettis eigi eftir komast í fram- leiðslu seinna meir. Morgunblaðið/Valdís Thor Bílasmiður Helgi Pálsson á heiðurinn af álbílnum Spora sem þolir alls konar torfærur. Að smíða bíl með krökkunum Handverk og hönnun Aðalstræti 10 www.handverkoghonnun.is www.hphonnun.is Það kemst varla hnífur á milli gul- bröndóttu bræðranna sem fund- ust við Keilufell í Breiðholti 10. júlí í sumar og hafa síðan yljað mönnum um hjartarætur í Katt- holti. Þessir blíðu og mannelsku kett- ir sem líklega koma úr sama gotinu eru um ársgamlir og bíða nú húsbónda eða -bænda. Þó nánir séu þurfa bræðurnir ekki að fara á sama heimili – aðalatriðið er að þau séu góð og ábyrg. Þeim hent- ar vel að vera í félagsskap barna, enda eru þeir miklar félagsverur. Búið er að gelda og örmerkja gulbröndóttu gæðablóðin, sem búa enn fremur yfir þeim kostum að vera afskaplega hreinleg. Hver vill eiga mig? Gulbröndótt gæðablóð Morgunblaðið/Frikki Þeir sem hafa áhuga á kisunum geta snúið sér til Kattholts í síma 567 2909. Torfærurnar ráðast af afli einstaklingsins „ÞAÐ kemur í ljós þegar maður byrjar að draga Spora að hann er töluvert þungur – um átta kíló. Þess vegna það er það alveg sérstök tilfinning að draga hann og ekki laust við að manni finnist maður vera að draga alvöru bíl,“ segir Helgi. „Þar sem það er loft í dekkjum bílsins þá pressast þau saman eins og á alvöru bílum og eins er fjöðrunarsviðið það gott að hægt er að fara með hann yfir bókstaflega hvaða torfærur sem er. Torfær- urnar ráðast af afli þess sem dregur. Þannig getur fullorðinn einstaklingur valið sér grófara undirlag en barnið sem ekki hefur sama afl og velur þar af leiðandi léttari hindranir.“ Í torfærum Dætur Helga léku sér með vörubílinn Gretti þeg- ar þær voru yngri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.