Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 24

Morgunblaðið - 16.09.2008, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN GRÆNATÚN 22 - OPIÐ HÚS Í DAG KL.18.00-19.00 Ert þú með lítinn rekstur? - Tilvalið fyrir aðila sem geta nýtt sér neðri hæð fyrir lítinn rekstur, s.s. endurskoðendur, smærri heildsölur o.fl. BORGARTÚN 29 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net REYNIR BJÖRNSSON ELÍAS HARALDSSON L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R Grænatún 22 - Kóp. Mjög fallegt og mikið endurnýjað 287 fm einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum tvöföld- um bílskúr. Eignin hefur verið mikið endur- nýjuð og má þar nefna gólfefni, eldhús, baðherbergi, gestasnyrting og fl. Björt og rúmgóð stofa með arni og útgangi út á stórar suður svalir með heitum potti. Hús- ið skiptist í 5 svefnherbergi, sjónvarps- stofu, stofu, borðstofu, eldhús, tvö bað- herbergi og rúmgóða ca 17 fm geymslu undir svölum sem er ekki inn í fm tölu hússins. Bílskúr er með rafmagni og hita. Garður er fallegur í rækt. Verð 70 millj. Möguleiki að gera sér íbúð á neðri hæð. Allir velkomnir í opið hús í dag milli kl. 18.00-19.00 Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI PÓLITÍKIN almennt er vond tík. Stórveldapólitíkin er þó einna verst því hún veldur átökum á milli ríkja. Átökin í Kákasus eru helst í sviðsljós- inu þessa dagana. En eru menn búnir gleyma Kosovo? Evrópusambandinu og SÞ fannst það allt í lagi að Albanir í Kosovo fengju sjálfstæði og þar með væri stór hluti Serbíu sniðinn af rík- inu. En hver er munurinn á því og að Abkasar og Ossetar fái sjálfstæði frá Georgíu? Og hvað eru Rússar að hugsa? Hver er munurinn á Ossetíu og Tétsníu? Ég held að SÞ og ES hafi ekki hugsað dæmið til enda. Hvað er þá næst á dagskrá? Hvað um Moldav- íu? Hvað um Baska á Spáni? Hvað um Ungverja í norðurhluta Serbíu? Hvað um Kúrda? Hvar endar þetta? Það er stundum svo að stjórnarmálamenn, jafvel þeir sem við höldum að séu í hópi hinna hæfustu, sjást ekki fyrir. Hugsunin er ekki skýr. Hvað er að þessu fólki? Mér sýnist að allt of margir stjórnmálamenn séu fastir í gömlum klisjum, séu of „nærsýnir“. Við verðum að hugsa lengra fram í tímann og reyna að gera okkur grein fyrir hagsmunum annarra en okkar sjálfra. Þegar maður veltir fyrir sér áhuga fjölda smáríkja og smáþjóða fyrir því að ganga í Evrópusambandið vakna spurningar um hvað sjálfstæði í raun og veru þýðir. Þýðir það e.t.v. bara að fá að ráða því sjálfir hver ræð- ur yfir þér? Vegna átakanna í Georgíu er það augljóst að Georgíumenn sáust ekki fyrir um afleiðingar þess að beita ofbeldi gagnvart Abkösum og Osset- um. Treystu þeir e.t.v. of mikið á stuðning ES og NATO? Já, ég held það, jafnvel þótt þeir væru varaðir við. NATO og ES eru ekki tilbúin að fara í styrjöld við Rússa út af átökum við jað- arríki í gamla Sovétinu. Það er aug- ljóst og er það eina jákvæða við þessi átök. Þetta ættu aðrir að láta sér að kenningu verða. Það sem næst liggur fyrir er að Rússland og ES/NATO verða að leggja sig fram um að kom- ast að samkomulagi um framhaldið. Stríð kemur ekki til greina. Þessir að- ilar verða að semja. BNA verður jafn- framt að gera sér grein fyrir að það getur ekki hundsað Rússa eins og þeir séu einskis megnugir. Rússland er stórveldi sem þarf að taka tillit til. Palli (BNA) er ekki einn í heiminum. HERMANN ÞÓRÐARSON, fyrrverandi flugumferðarstjóri. Stórveldapólitík Frá Hermanni Þórðarsyni ÞROSKAHEFTIR hafa lengi verið tengdir við niðursetningsviðhorf ríkis og sveitarstjórna og stundum notið minni umhyggju en heimilisdýrin. Margt hefur þó færst til betri vegar, en enn eru allmargar gloppur í þjón- ustunni. Sum sveitarfélög hafa komið upp sérstökum þjónustustöðvum fyrir þroskahefta. Þetta er mjög þarft verk- efni og vel til þess fallið að tryggja þeim, sem ekki geta búið hjá for- eldrum, þægilegt heimili. En þjón- ustan þarf að vera veitt af til þess hæfu starfsfólki. Þetta er þó ekki auð- velt verkefni því hugarheimur þess þroskahefta getur verið mjög á skjön við fyrirætlanir stjórnenda og skamm- ir eða refsing valdið óþægindum fyrir báða aðila. Þeir einstaklingar sem einnig eru flogaveikir geta verið mun erfiðari en aðrir vegna afbrigðilegra geðhrifa sem lyfin framkalla, því þarf að umgangast þá með tilliti til þeirra áhrifa sem lyfin valda einstaklingnum og eru honum ekki sjálfráð. Þetta þarf starfsfólkið að þekkja svo það refsi ekki ein- staklingnum fyrir það sem hann ræð- ur ekki við. Reyndar ætti refsing ekki að þekkjast á svona heimilum og floga- veikilyf mega aldrei tengjast refsingu, það heyrir undir ofbeldi. Flogaveiki- lyfin eru eign þess sem á að nota þau og eiga því alltaf að fylgja ein- staklingnum hvar sem hann er því mikilvægt er að lyfin séu tekin alltaf á réttum tíma. Þau eiga að vera skil- yrðislaust óháð öllum deilum. Stundum gleymist að þroskaheftir eru tilfinningaverur því tilfinningar sjást sjaldnast utan á fólki og menn fara að stjórna þeim eftir því sem kerfinu hentar best. Hjá flogaveikum sjást köstin, en ekki eftirköstin. Þriggja til sjö sekúndna hjartastopp er ekki langur tími en tekur á líkam- ann og sá sem fyrir þessu verður er mjög ringlaður á eftir og líkaminn er marga klukkutíma að jafna sig, en þeir sem litla eða enga þekkingu hafa á flogaveiki verða ekki varir við þenn- an þátt, því er ekki óeðlilegt að sá sem fyrir þessu verður, jafnvel nokkrum sinnum í mánuði, verði óör- uggur og kvíðinn, finni hann fyrir því að þeir sem þjóna honum í foreldra- stað hafi ekki skilning á hans vanda, og vilji því aftur til foreldranna. Samskiptareglur starfsfólks svæð- isskrifstofa við foreldra þurfa að vera skýrar og foreldrum aðgengilegar þegar afkomandi fer til dvalar á veg- um svæðisskrifstofu svo annar hvor aðilinn geti ekki valdið yfirgangi, og æskilegt væri að hafa aðgang að óháðum aðila til að leysa deilur, svo þær verði ekki að endalausu einelti. Svona stofnanir eiga ekki að vera í lokuðu kerfi þar sem allar kvartanir eru svæfðar. GUÐVARÐUR JÓNSSON Valshólum 2 Þjónusta við þroskahefta Frá Guðvarði Jónssyni Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í FRÉTT Morgun- blaðsins þann 30. ágúst er haft eftir undirrituðum að skóg- rækt hér á landi hefði lítið að segja í baráttu við loftslagsbreyt- ingar. Ég sagði að „trén hafa lítinn tíma til að laufgast og eru auk þess oft sett niður í jarðveg sem þegar er gróinn. Ef þú plægir upp mólendi þá losarðu ákveðinn koltvísýring og svo ætlarðu að binda hann aftur með því að setja niður einhverjar hríslur. Viðbót- arbinding kolefnis verður þá svo lít- il að ávinningurinn er sama og eng- inn.“ Og að lokum kom fram í frétt Morgunblaðsins eftirfarandi nið- urstaða mín: „Ef menn vilja virki- lega beita sér fyrir því að efla bind- ingu kolefnis með skógrækt, þá er mun vænlegra til árangurs að koma í veg fyrir eyðingu regnskóganna og styrkja skógrækt þar.“ Ofansögðum ummælum mínum vilja þrír yfirmenn hjá Skógrækt ríkisins, skógfræðingar og „áhuga- menn um raunverulega nátt- úruvernd“ andmæla í Morgunblaðinu í gær, þeir Þröstur Eysteins- son, Þorbergur Hjalti Jónsson og Aðalsteinn Sigurgeirsson. En fræðingarnir missa marks. Hvergi í grein skógfræðinganna þriggja er því andmælt að binding kolefnis með skógrækt hér á landi er harla takmörk- uð. Hvergi er því and- mælt að framlag Ís- lands til að vernda regnskóga myndi skipta miklu meira máli fyrir bindingu kolefnis en skógrækt á Ís- landi. Þremenningarnir segja bara að „það skapast svo mikil önnur verðmæti og samfélagslegur ávinn- ingur með skóggræðslu á Íslandi að þau ein duga til að borga brúsann þegar upp er staðið.“ En ummæli mín í Morgunblaðinu snerust ekki gegn skógrækt heldur hinu að slík iðja verður tæplega réttlætt með baráttu við loftslagsbreytingar. Náttúruverndarsamtök Íslands hafa frá upphafi vega krafist að- gerða af hálfu stjórnvalda gegn þeirri vá sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér. Samtökin hafa margoft bent á að íslensk stjórn- völd verði að marka stefnu um samdrátt í útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda fyrir árið 2020. Nú rúmu ári eftir að ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar tók við völdum hefur slík stefna enn ekki verið mótuð. Þetta er ákaflega bagalegt því Ísland hefur formlega lýst yfir stuðningi við þau meg- inmarkmið loftslagsstefnu Evrópu- sambandsins að draga skuli úr út- streymi um 25-40% fyrir árið 2020 og að hitnun jarðar verði haldið innan 2°C að meðaltali. Stuðningur Íslands við þessi markmið er enn án innihalds. Ég hirði ekki um að svara rang- færslum og aðdróttunum þremenn- inganna í minn garð og Náttúru- verndarsamtaka Íslands. Þeim væri nær að svara ábendingum mínum málefnalega. Lítil binding kolefnis með skógrækt Árni Finnsson svar- ar grein þriggja yfirmanna hjá Skógrækt ríkisins Árni Finnsson » Samtökin hafa marg- oft bent á að íslensk stjórnvöld verði að marka stefnu um sam- drátt í útstreymi gróð- urhúsalofttegunda fyrir árið 2020. Höfundur er formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands MIKIÐ hefur verið rætt og ritað um ný- legan úrskurð um- hverfisráðherra um sameiginlegt mat á fjórum af átta fram- kvæmdum er tengjast byggingu álvers á Bakka. Þessi úrskurð- ur gekk gegn áliti sér- fræðinga Skipulagsstofnunar og vilja meirihluta sveitarstjórnar Norðurþings og flestra annarra sveitarstjórna á Norðausturlandi. Ekki var talið hyggilegt að fram- kvæmdirnar færu í sameiginlegt mat, meðal annars þar sem þær eru misjafnlega langt á veg komnar og óljóst væri hvort flókið sameig- inlegt umhverfismat myndi leiða til þess að betri mynd fengist af um- hverfisáhrifum framkvæmda. En umhverfisráðherra leitaði ekki álits sveitarstjórna í úr- skurði sínum og gekk gegn vel rökstuddu áliti Skipulagsstofn- unar. Alvarlegsta afleiðing úrskurðar umhverf- isráðherra er að hann tekur hugsanlega fyrir möguleika á því að fá leyfi fyrir tilraunabor- unum næsta vor. Það myndi hafa í för með sér eins árs seinkun á verkefninu. Unnið er að því hörðum höndum að finna leið til þess að komast hjá þessum hlið- arverkunum úrskurðarins. Takist það, eins og margt bendir nú til að geti gerst, er verkefnið aftur komið í góðan farveg. Sameiginlegt mat bætir engu við Ekkert bendir til þess að sameig- inlegt mat muni á einhvern hátt leiða til þess að betra mat verði lagt á umhverfisáhrif fram- kvæmdanna, eins og skýrt kom fram í upphaflegum úrskurði Skipulagsstofnunar. Það mun held- ur ekki verða til þess að koma í veg fyrir framgang verkefnisins. Til- gangur úrskurðarins virðist fyrst og fremst vera að friða hluta af kjósendahópi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Auðvitað erum við Þingeyingar ekki ánægðir með að fjöregg okkar sé nýtt í slíkum leik. En við látum það ekki hrekja okkur af leið. Samningar verði kláraðir næsta haust Við undirritun á endurnýjaðri viljayfirlýsingu á milli Alcoa, Norð- urþings og iðnaðarráðuneytisins varð það að samkomulagi að stefnt yrði að því að klára samninga vegna álversins næsta haust. For- senda fyrir því er að búið verði að rannsaka háhitasvæðin nægjanlega til þess að hægt verði að segja með fullri vissu að hægt sé að virkja í það minnsta 400 megavött á svæð- inu. Til þess þarf að leysa hnútinn sem bundinn var með úrskurði um- hverfisráðherra. Sveitarfélagið hef- ur í viðræðum við Alcoa lagt mikla áherslu á að samningar um bygg- ingu álversins verði kláraðir sem fyrst. En eins og áður er sagt er það ekki framkvæmanlegt fyrr en búið er að staðfesta að nægjanleg orka sé fyrir hendi. Ástæða þess að Norðurþing hef- ur lagt áherslu á að klára samninga við fjárfestinn er að ekki er búandi öllu lengur við það óvissuástand sem hugsanleg fjárfesting af þess- ari stærðargráðu skapar. Því fyrr sem ákvörðun er tekin, því betra fyrir samfélagið. Yfirgnæfandi líkur eru á því að samningar um helstu lykilatriði náist við Alcoa næsta haust. Búast má við því að fram- kvæmdir við virkjanir og álver geti þá hafist árið 2010. Eðli jarð- varmavirkjana er þannig að best er að taka þær í notkun í áföngum, eftir því sem borunum og öðrum framkvæmdum miðar áfram og þannig má búast við stöðugum framkvæmdum frá frá árinu 2010 til 2015. Framkvæmdir við álver og virkjanir myndu dreifast á 6 ár sem er jákvætt fyrir samfélagið. Verum bjartsýn Ekki er hægt að fullyrða að samningar náist við Alcoa en á það verður látið reyna næsta haust af fullri einurð. Það er hins vegar hægt að fullyrða að við Þingeyingar búum yfir einstöku tækifæri til að styrkja atvinnulíf okkar til langrar framtíðar með því að nýta orku sem býr í jörð í Þingeyjarsýslu. Erfitt er að finna nokkurt annað samfélag utan höfuðborgarsvæð- isins sem býr yfir viðlíka vaxt- armöguleikum. Mikilvægt er að við gerum okkur grein fyrir þessari stöðu okkar og að við nálgumst verkefni dagsins í dag með bjart- sýni. Samstaða okkar um það að orka í Þingeyjarsýslum skuli nýtt í heimabyggð þarf að vera órofin og við látum enga stöðva okkur í að nýta þau tækifæri. Jón Helgi Björnsson skrifar um vænt- anlegt álver á Bakka » Sveitarfélagið Norðurþing hefur í viðræðum við Alcoa lagt mikla áherslu á að samningar um byggingu álversins verði kláraðir sem fyrst. Jón Helgi Björnsson Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins og óháðra í sveitarstjórn Norðurþings. Látum ekki hrekja okkur af leið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.