Morgunblaðið - 16.09.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.09.2008, Blaðsíða 29
margir muna, fyrsta læknismennt- aða kona á Íslandi, gift Vilmundi Jónssyni landlækni. Kristín gegndi líka oft hlutverki ljósmóður og brá auðvitað skjótt við. Við stelpurnar fylgdumst með því úr öruggri fjar- lægð þegar hún mætti á tröppurn- ar hjá nágrönnunum, reiðubúin til skyldustarfa. Konan sór auðvitað af sér óléttuna og furðu lostinn eig- inmaðurinn kallaði upp yfir sig: „Hví hefur þú leynt mig þessu?“ Engir eftirmálar urðu af hrekk þessum og ekki komst upp um okk- ur stelpurnar. Þetta var á þeim ár- um sem ungt fólk þurfti að hafa of- an af fyrir sér sjálft. Eflaust hefði Kristín frænka þó fyrirgefið okkur stelpunum, því hún hafði góðan húmor. Síðan rofnar samvera okkar þar sem ég flyt til útlanda og dvelst líka seinna flest stríðsárin í Fær- eyjum. En leiðir okkar liggja aftur saman eftir að foreldrar mínir flytja í hús sitt í Gentofte. Þá býrð þú ekki langt frá, í Hellerup, hjá frænda þínum Jakobi Möller, þá sendiherra Íslands í Danmörku. En hann var einnig gamall vinur foreldra minna og tengdur þeim fjölskylduböndum. Eftir að þú giftist hinu mikla tónskáldi Jóni Leifs hófst nýtt og jafnvel ögrandi tímabil í ævi þinni. En þú kunnir einhvern veginn tök- in á flestu – oft á ævintýralegan hátt. Sonur ykkar Jóns, Leifur, ynd- islegur drengur, og börn okkar Sigurðar léku sér oft saman, ýmist heima hjá okkur eða ykkur Jóni á Freyjugötunni. Þér tókst alltaf afar vel að gera huggulegt þar sem þú bjóst þér til hreiður. Ef ég reyni að lýsa þér, Dídí mín elskuleg, þá varstu engum lík. Sterkur persónuleiki og bjóst yfir listrænum gáfum, sem þú gafst þó ekki beint lausan tauminn. En þú varst listunnandi og studdir við bakið á ýmsu listskapandi fólki. Ég vil muna þig sem ungu sér- stöku stelpuna Dídí Möller. Þín Ólöf Pálsdóttir (Lóla). Ég kynntist Þorbjörgu Leifs skömmu eftir að ég kom heim að loknu námi erlendis. Hún, og eig- inmaður hennar Jón Leifs, tóku vel á móti ungum listamönnum. Jón var fordómalaus maður, og fylgdist vel með því sem var að gerast í listum. Þorbjörg var móð- urleg og hlý. Hún bar hag tón- skálda mjög fyrir brjósti. Jón var umdeildur maður, bæði sem félagsmálafrömuður og tón- skáld. Þorbjörg stóð sem klettur við hlið hans og hafði óbilandi trú á málstað hans og hugmyndum. Það var henni mikil gleði að upp- lifa þá alþjóðlegu athygli, og sívax- andi viðurkenningu, sem verk hans nutu hin síðari ár. Þorbjörg var frábær gestgjafi. Það var einstaklega gott og eft- irminnilegt að vera gestur á heimili hennar og Jóns á Freyjugötunni. Þar ríkti glaðværð og víðsýni. Þorbjörg vann um árabil í STEFI, sem Jón stofnaði, og tók þannig þátt í uppbyggingu þessara réttinda- og hagsmunasamtaka tónhöfunda. Þrátt fyrir töluverð veraldleg umsvif sinnti Jón listsköpun sinni af kappi þau ár sem þau Þorbjörg voru gift. Jón var þroskaður listamaður þegar þau kynntust, skoðanir hans fastmótaðar og hann vissi ná- kvæmlega hvað hann vildi. Þorbjörg skildi hvað innra með honum bjó. Hún skapaði honum skjól og þann frið, innan heimils og fjölskyldu, sem gerði honum kleift að reka endahnútinn á stórbrotið ævistarf. Ber þar hæst Eddurnar þrjár, um sköpun heimsins, líf guð- anna og ragnarök. Ást hennar, umhyggja og fórn- fýsi, sprottin af kvenlegu innsæi, auðvelduðu honum sköpunarstarf- ið. Ég kveð Þorbjörgu með söknuði, því um hana á ég aðeins góðar minningar. Atli Heimir Sveinsson. Kveðja frá STEFi Leiðir STEFs og Þorbjargar Leifs lágu saman í meira en hálfa öld. Sem eiginkona Jóns Leifs, sem var frumkvöðull að stofnun sam- takanna og forystumaður þeirra fyrstu tvo áratugina, fylgdist hún að sjálfsögðu náið með baráttu hans fyrir sjálfsögðum, en torsótt- um réttindum tónskálda og ann- arra rétthafa að tónverkum. Þá skipti það Jón miklu máli að eiga hana að bakhjarli, því að oft gust- aði um hann, svo að um munaði, á fyrstu hjúskaparárum þeirra. Síðar þegar um hægðist sá hún til þess að hann gæti sinnt tónsmíðum sín- um óskiptur. Þorbjörg kom þó ekki aðeins að starfsemi STEFs með þessum óbeina hætti, heldur starfaði hún sjálf fyrir samtökin. Í fyrstu með því að stýra um langt árabil út- hlutun á höfundagreiðslum til tón- skálda og annarra rétthafa. Síðar var hún kjörin í stjórn samtakanna sem fulltrúi erfingja höfundarétt- inda árið 1979 og átti sæti í stjórn- inni allt fram á þetta ár, enda þótt hún hefði ekki getað sótt stjórn- arfundi síðustu árin vegna heilsu- brests. Við fráfall Þorbjargar vil ég, fyr- ir hönd stjórnar STEFs, færa henni alúðarþakkir fyrir óeigin- gjörn störf hennar í þágu samtak- anna á liðnum áratugum. Ennfrem- ur vil ég persónulega þakka henni fyrir samstarf okkar, sem aldrei bar skugga á, þ.á m. fyrir það hversu vel hún tók mér þegar ég réðst til starfa hjá STEFi. Syni hennar og öðrum aðstandendum sendi ég samúðarkveðjur. Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri STEFs. Ég hitti Þorbjörgu Leifs í fyrsta skipti upp úr 1956, að mig minnir. Björt og glaðleg gekk hún niður Bankastræti með tónskáldinu Jóni Leifs, sem hún hafði þá nýlega gengið að eiga. Þar með hófst nýr kafli í ævi hennar. Það fyndna var að ég var líka ný- gift tónskáldi, Leifi Þórarinssyni, og hann var hvorki meira né minna en systursonur Þorbjargar. Móðir hans var hin elskaða leikkona Alda Möller, en hún var þá látin langt fyrir aldur fram. Við skiptumst á nokkrum kveðjuorðum en við áttum eftir að kynnast betur. Reykjavík var ansi frumstæð í þá daga og lítið um veitingastaði. Það var því mikil framför þegar mjög fallegur matstaður var reist- ur neðarlega á Vesturgötu. Hann bar nafn sitt, Naustið, með rentu, því innréttingarnar báru keim af sjómennsku. Borðin voru í básum sem merkt- ir voru með útskornum skipanöfn- um. Svo voru þar ef ég man rétt líka stólar, hannaðir af Sveini Kjarval, og vöktu aðdáun. Lista- menn borgarinnar löðuðust mjög að staðnum og Jón Leifs stofnaði þar eins konar listamannaklúbb. Oft var Þorbjörg með honum, glæsilega klædd, og það geislaði af henni. Hún var gjarna með gler- augu sem hún átti í mörgum litum, og á einhverju listamannaþingi, að mig minnir, í Þjóðleikhúskjallaran- um, mætti hún í logagylltum kjól og skóm í stíl. Sannkallaður fagurkeri, það var hún! Og hrifnæm með afbrigðum. Það var gaman að koma á Freyju- götuna þar sem þau bjuggu og sjá hvað hún gat búið tónskáldinu sínu hrífandi umgjörð. Svo bjó hún til fjarska góðan mat! Einhvern tíma þegar henni fannst Jón þurfa mikið næði til að skapa tónverk sín fann hún honum vinnustað í vitanum á Dyrhólaey í Mýrdal þar sem þau dvöldu part úr sumri. Þar voru herbergi sem hún fór létt með að gera vistleg. Það var makalaust hvað hún Dídí, eins og hún var gjarna kölluð af vinum og ættingj- um, gat gert umhverfi sitt fagurt. Hún gerði listamanninum sínum kleift að sinna köllun sinni, enda var Jón mikilvirkur í tónsmíðunum árin sem þau áttu saman. Ég vil nefna þrjú stór verk sem hann vann á þeim tíma: Baldur, hljóm- sveitar- og ballettverk, flutt af Sin- fóníuhljómsveit æskunnar undir stjórn Pauls Zukovskys, Edda, oratóríur 1-3. Sú fyrsta var frum- flutt ekki alls fyrir löngu og er nú fáanleg á geisladiski. Loks var það forleikurinn Hekla. Hinsta kveðja. In memoriam, op. 53. Dídí varð langlífust af systkinum sínum (öll til samans voru þau 11). Með tímanum varð hún börnum þeirra stoð og stytta og sýndi þeim og mökum þeirra mikla hlýju. Ég kynntist því vel á þeim 20 árum sem ég bjó með tónskáldinu mínu. En þar kom að við skildum. Fyrir duttlunga örlaganna tók ég all- nokkru síðar saman við Kristján Árnason bókmenntafræðing, sem áður var kvæntur systur Leifs, Kristínu Önnu Þórarinsdóttur leik- konu, en hún var þá látin. Öll nut- um við gestrisni Dídíar og glæsi- brags. Við Kristján minnumst hennar með hlýju og sendum syni hennar og Jóns, Leifi Leifs, inni- legar samúðarkveðjur. Inga Huld Hákonardóttir og Kristján Árnason. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 29 ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður og ömmu, GUÐRÚNAR BJARGAR HAFLIÐADÓTTUR, GÍGJU, Suðurbyggð 15, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við heimahlynningu Akureyrar og öðrum sem sáu um hjúkrun hennar. Sigurvin Jónsson, Sigríður Sigurvinsdóttir, Bjarni Kristinsson, Jóna Ólafía Sigurvinsdóttir, Ásdís Sigurvinsdóttir, Einar Birgir Kristjánsson, Björg Sigurvinsdóttir, Stefán Þór Sæmundsson, Trausti Sigurvinsson og barnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma, BRYNDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR, Hrísmóum 4, Garðabæ, sem andaðist föstudaginn 5. september, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 18. september kl. 13.00. Þeim sem vilja heiðra minningu hennar er bent á Barnaheill, sími: 553-5900. Ástríður H. Þ., Bjarni E. Thoroddsen, Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Betúel Betúelsson, ömmubörn, langömmubörn og fjölskyldur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞORLÁKUR BREIÐFJÖRÐ GUÐJÓNSSON rafvirkjameistari, Bláhömrum 2, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 17. september kl. 13.00. Ragnheiður Sturludóttir, Þórunn Þorláksdóttir, Þorgeir Jónsson, Herborg Þorláksdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson, Guðsteinn Þorláksson, Lindsey Tate, Ólafur Magnús Þorláksson, Herborg Þuríðardóttir, Ragnheiður Kr. Þorláksdóttir, Fergal Malone, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LILJU ÞORLEIFSDÓTTUR. Einnig færum við öllu starfsfólki sjúkradeildar Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja sérstakar þakkir fyrir einstaka umhyggju og alúð. Guð blessi ykkur öll. Brynjúlfur Jónatansson, Halldór Guðbjarnason, Ragnheiður Brynjúlfsdóttir, Smári Grímsson, Hjálmar Brynjúlfsson, Margrét Ársælsdóttir, Anna Brynjúlfsdóttir, Rúnar Páll Brynjúlfsson, Edda Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Brynhildur Brynjúlfsdóttir, Rafn Pálsson, Steinunn Jónatansdóttir, Óðinn Steinsson, ömmubörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Kær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES PÁLL JÓNSSON frá Sæbóli, Aðalvík, Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 9. september. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fimmtudaginn 18. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð MND-félagsins. Sólveig Björgvinsdóttir, Björg Jóhannesdóttir, Sigurður Skagfjörð Steingrímsson, Signý Jóhannesdóttir, Magnús Ingi Óskarsson, Sif Jóhannesdóttir, Ingólfur Arnarson og afabörnin. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma, dóttir og systir, ÞÓREY ÓLAFSDÓTTIR, Skarðshlíð 21, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju, miðvikudaginn 17. september kl. 14.00. Jarðsett verður í Lögmannshlíðarkirkjugarði. Benidikt Sigurbjörnsson, Elínrós Jóhannsdóttir, Sigurjón Herbertsson, Anna Benidiktsdóttir, Ólafur Jónsson, Matthildur Benidiktsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Sveinn Benidiktsson, Auður Eiðsdóttir, Sigurbjörn Benidiktsson, Emelía Sverrisdóttir, Sveinbjörg Baldvinsdóttir og aðrir aðstandendur. MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.