Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 33

Morgunblaðið - 16.09.2008, Side 33
fjölmargir öflugir hugsjónamenn séu að vinna afrek í þessum efnum við þröngan stakk þar sem sífellt er sótt að einkafluginu með endalausum „Brussel“-kröfum og yfirmenntunar- kröfum sem eiga ekkert skylt við flug. Öllum ber saman um að Helgi Jónsson hafi verið frábær flugkennari og flugmaður, traustur félagi, varkár, öruggur og hlýr, með áherslur á kór- rétt viðbrögð við hinar óvæntu að- stæður. En nú er hann farinn í sitt síðasta flug, óvænt og allt of fljótt, fyrir aldur fram. Megi góður Guð varðveita ást- vini hans og stóran vinahóp. Megi starf hans verða hvatning fyrir aukna rækt í fluginu, aukinn vilja flugyfir- valda til þess að létta undir með einkafluginu og auka möguleikana. Alltaf eru nýir möguleikar til að vinna að og þegar flugkennarinn góði lendir á völlum eilífðarinnar munu margir bíða spenntir. Það skyldi þó aldrei vera að englar alheimsins vilji skerpa á flugtækninni í hröðum heimi nú- tímans og njóta leiðsagnar frábæra flugkennarans. Árni Johnsen, Breki Johnsen. Ég kynntist Helga fyrir fáum ár- um. Hann kom með félögum sínum á skrifstofu landbúnaðarráðuneytisins að ræða sameiginlegt áhugamál þeirra; uppbyggingu Selárdals í Arn- arfirði. Þegar Helgi Jónsson er kvaddur hinstu kveðju, er rétt að gera þessum þætti í starfi hans ein- hver skil. Framkoma Helga bar það með sér að þar færi hógvær maður en fylginn sér og ósjaldan hafði hann orð fyrir sínum félögum í viðræðunum, rök- fastur í máli og skýr. Í ráðuneytinu höfðum við rætt framtíð Selárdals og skoðað þennan sögufræga dal og mannvirkin sem ár hvert nöguðust upp af tímans tönn. Skemmst er frá því að segja að verk- efni um endurreisn Selárdals var hrundið í framkvæmd af ráðuneytinu og áhugafólki. Á fáeinum mánuðum hafa algjör stakkaskipti orðið á svæð- inu til hins betra. Í stað eyðileggingar er verið að byggja upp og gömul hús og mannvirki að fá svip sinn að nýju. Af áhugamönnunum var Helgi fremstur meðal jafninga. Hann sótti um að fá sjálft Selárdalshúsið, sem var mjög illa farið til að gera það upp. Á síðsta ári og allt til þessa dags var hann ásamt fjölskyldu sinni að byggja upp húsið: steypa gólf, skipta um glugga, taka inn rafmagn, mála húsið og lagfæra með það að markmiði að geta flogið þangað í frístundum sínum og notið góðra stunda á fornum æsku- slóðum. Hann lét uppbyggingu Sel- árdalshússins hins vegar ekki nægja, heldur var hann boðinn og búinn að hjálpa félögum sínum og saman vann þessi hópur í sjálfboðavinnu við að lagfæra og mála kirkjuna í Selárdal og umhverfi hennar, sem ekki var vanþörf á. Áhugi Helga á verkefninu var einlægur og oft hringdi hann í mig til að láta mig vita hvernig gengi og hvað stæði til. Síðast var það fyrir tæpum mánuði og gaf hann mér þá ít- arlega skýrslu um framgang mála, en vildi einnig vita hvernig gengi hjá mér, sem er að fást við svipað verk- efni annars staðar á landinu. Saman ræddum við bjástur með hamar og sög í náttlausri veröld vorsins og hvað þess konar streð er gefandi. Teikna á koddanum að kveldi það sem fram- kvæma skal næsta dag. Eina sem vantaði var tíminn, þetta undarlega fyrirbrigði og afstæða hugtak sem enginn skilur. Tími Helga hér á jörðu er runninn út og nú er skarð fyrir skildi hjá þess- um hópi dugnaðarfólks sem stendur að uppbyggingu í Selárdal. Gott er þó til þess að vita að fjölskylda Helga ætlar að halda ótrauð áfram með verkið og sannfærður er ég um vilja Helga í þá veru. Oft ræddum við og til stóð að hann flygi með okkur vestur til að líta á verkið en af því varð þó ekki og verður ekki úr þessu. Helgi hefur lagt í annað og lengra flug sem okkur öllum er ætlað, en brottfarar- tími hans ákveðinn fyrr en nokkurn óraði fyrir. Það var einstaklega ánæjulegt að fá að kynnast Helga og fá að starfa með honum þótt sá tími væri skemmri en ég hafði vonað. Um leið og við vinir hans í ráðuneytinu vottum eiginkonu og fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð, biðjum við Guð að blessa Helga Jónsson og minningu hans. Farðu vel, góði drengur, og þakka þér liðsinnið og dugnaðinn. Níels Árni Lund. Ég vil í fáeinum orðum kveðja vin minn Helga Jónsson. Kynni okkar hófust fyrir nokkrum árum og strax myndaðist traust vinarsamband, varla leið sú vika að við heyrðum ekki hvor í öðrum og þá til að spjalla um sameiginlegt áhugamál okkar, nú eða bara um daginn og veginn og þá kom oft hnyttin tilsvör og hárbeittur húm- or hans í ljós. Helgi var maður orða sinna, traust- ur og hjálpsamur og lét verkin tala, það voru engin vandamál til hjá hon- um, aðeins verkefni sem þurfti að vinna og þá skipti engu hvort það var fyrir hann eða aðra. Það er sárt að þurfa að kveðja þig, vinur, það var lærdómsríkt að kynnast þér og for- réttindi að eiga þig að sem vin og fé- laga. Elsku Jytte og fjölskylda, við vilj- um votta ykkur samúð okkar og biðja guð að blessa minningu um góðan dreng. Smári og fjölskylda. Í dag kveðjum við góðan vin, Helga Jónsson flugmann. Hann rak sam- nefndan flugskóla óslitið frá árinu 1964 ásamt eiginkonu sinni og vinnu- félaga. Skóla þennan sóttu þúsundir nemenda, ýmist þeir sem voru lengra komnir, eða að stíga sín fyrstu skref í flugnámi, skref sem áttu eftir að færa þá að lokamarkmiðinu, hvort sem það var próf til atvinnuflugmanns og/eða einkaflugs. Einnig sóttu margir í visku- og reynslubrunn Helga á ein- hverjum þeim tímapunkti sem þeir þurftu á að halda, ekki síst fyrrver- andi nemendur Helga, samtímamenn svo og aðrir félagar hans ungir sem aldnir, jafnvel þeir sem hættir voru atvinnuflugi og vildu fljúga litlum einkavélum sér og sínum til skemmt- unar. Þótt sjálfur hafi ég hvorki lært til einka- né atvinnuflugs hjá Helga kynntist ég honum um 1979 þegar ég leitaði til hans ráðalítill vegna ferju- flugs frá Bandaríkjunum um Græn- land og hingað heim. Er mér ávallt minnisstæð sú fræðsla sem hann veitti mér, og sú alúð sem hann sýndi, þótt ekki væri ég úr „skólanum hans“. Hollráð hans þá sem og síðar, eftir að ég byrjaði mér til gamans að fljúga smávélum á ný, hafa reynst mér ómetanleg. Þess vegna tilheyri ég nemendahópi Helga Jónssonar og er stoltur af. Helgi var greiðvikinn maður, stillt- ur til orðs og æðis. Hann vék úr vegi til að gera öðrum til hæfis. Undir niðri var hann fastur fyrir og lét engan bil- bug á sér finna þótt að honum væri sótt. Hann hafði ríka réttlætiskennd og lét til sín taka ef honum fannst menn órétti beittir. Hann var rökfast- ur maður og hafði yndi af þjóðmála- umræðu og eru mér kærar í minning- unni stundirnar hin síðari ár yfir kaffibolla í flugskólanum með fjöl- skyldu hans, vinum og starfsfólki, þar sem rætt var um daginn og veginn. Stundum hefur heyrst að flugskól- arnir vinni vanþakklátt starf, þar sem þeir framleiði flugmenn fyrir stóru flugfélögin en sitji eftir án starfsfólks. Aldrei heyrði ég Helga kvarta yfir þessu, þótt oft hafi reksturinn verið strembinn, sérstaklega yfir langa vetrarmánuðuna. Hitt er alkunna, hve vel þjálfaðir nemendur úr Flug- skóla Helga Jónssonar hafa reynst hjá öðrum flugfélögum. Að öðru ólöst- uðu ber þar hæst annálaða blindflug- skennslu Helga. Þarna var kennarinn þaulreyndur við erfiðustu skilyrði, ut- anlands sem innan, og notuð flugvél, sem að öllu jöfnu er notuð til farþega- flugs í áætlunar- og leiguflugi. Það var engum í kot vísað sem heimsótti þau hjón á Reykjavíkur- flugvelli. Þar voru þau öllum stundum og unnu sér lítillar hvíldar. Þau voru líka góðir nágrannar. Ég minnist sér- staklega góðra samskipta milli okkar sem unnum hjá Arnarflugi innan- lands hf. enda flaug hann heilmikið fyrir okkur á árunum frá 1980-1990. Þar bar aldrei skugga á. Ég sendi konu hans, Jytte, börnum, Jóni, Ester og Astrid, barnabörnum og starfs- fólki innilegar samúðarkveðjur. Nem- endur hans sakna hans í dag og minn- ast frumkvöðulsins með stóra hjartað. Gamlir nemendur og vinir hjá Flugfélaginu Atlanta hf. sem eru erlendis í dag skila hinstu kveðju. Jón Grímsson flugstjóri. Mig langar að kveðja vin minn Helga Jónsson með nokkrum línum en hann varð bráðkvaddur hinn 6. sept. sl. Ég kynntist Helga haustið 1993. Ég hafði þá lokið einkaflug- mannsprófi nokkrum árum fyrr og ákvað að ljúka atvinnuflugmanns-, blindflugs- og flugkennaraprófi hjá Helga. Maður fann fljótt að Helgi var maður með mikla reynslu og hafði miklu að miðla. Sérstaklega er mér minnisstæð blindflugskennslan þar sem Helgi kunni að greina aðalatriði frá aukaatriðum og lagði þunga áherslu á það sem skipti mestu máli. Síðar kenndi ég hjá Flugskóla Helga og flaug einnig hjá flugfélaginu Jór- vík hf. og naut þar handleiðslu Helga því hann sá um þjálfun flugmanna fyrir það félag. Helgi kenndi mér margt í þeirri þjálfun t.d. varðandi veður, áhrif landslags á staðbundin veður, ísingu, fjallabylgjur, mat á ástandi flugbrauta o.s.frv. Þetta flug var farið á C-402 og PA-23. Lærði ég mikið af því og ásamt því að kenna hjá Flugskóla Helga lagði þetta grunninn að starfi mínu sem atvinnuflugmaður. Ég veit að margir starfandi flug- menn í dag hafa verið í þessum sömu sporum – kennt við skólann og flogið jafnframt stærri vélum Odin Air. Ég verð Helga ævinlega þakklátur fyrir hans stóra þátt í þjálfun minni til at- vinnuflugmanns og velvilja þeirra hjóna í minn garð alla tíð. Segja má að þau Helgi og Jytte hafi verið vakin og sofin yfir flugrekstr- inum, hvort heldur var skólinn eða Odin Air. Þetta hafa verið þeirra ær og kýr. Helgi var mikill áhugamaður um flug og flugvélar og var hafsjór af fróðleik á þessu sviði. Hann bar um- hyggju fyrir nemendum sínum og lagði áherslu á góða kennslu og þjálf- un. Einnig fylgdist hann úr fjarska með gömlum nemendum í starfi og vissi oftast hjá hvaða flugfélagi þessi eða hinn var að fljúga. Gamlir nem- endur hafa líka komið í heimsóknir í skólann í spjall og kaffi. Sjálfur hef ég litið inn hjá Helga og Jytte oftast þeg- ar ég hef verið heima. Það hefur alltaf verið gaman að drekka kaffi með þeim og ræða málin, hvort heldur er flugið, þjóðfélagsmálin eða heimsmál- in. Oft ræddum við stöðu mála fyrir vestan enda erum við Helgi báðir bornir og barnfæddir Arnfirðingar. Helgi hafði áhuga á framtíð svæðisins og í því sambandi höfðu þau hjónin í samstarfi við aðra lyft grettistaki í enduruppbyggingu mannvirkja í Sel- árdal. Það er stórglæsilegt framtak og þeim til sóma. Allt er í heiminum hverfult og Helga entist ekki aldur til að sjá frekari uppbyggingu þarna í dalnum. Hann steig sín hinstu spor á Reykjavíkurflugvelli, í flugskýlinu þar sem hann átti svo mörg spor. Helgi minn, kæri vinur, nú hefurðu fengið síðustu flugtaksheimildina. Megirðu hvíla í friði á nýjum ákvörð- unarstað. Að lokum vil ég votta Jytte og fjöl- skyldunni allri mína dýpstu samúð. Guð geymi góðan mann. Hannes Sigurður Pétursson. Það var einstaklega þægilegt að vera í návist Helga. Hann var afburða flugkennari, enda ófáir flugmenn sem hófu sinn feril hjá honum. Helgi kenndi okkur ekki bara að fljúga flugvél, hann kenndi okkur að starfa sem ábyrgir flugmenn og njóta starfsins. Við áttum margar ógleymanlegar stundir með Helga og þær minningar munu gleðja okkur um ókomna fram- tíð. Elsku Jytte, Ester, Astrid og Jón, við vottum ykkur og ykkar fjölskyld- um okkar dýpstu samúð, Birgir og Ólöf Dís.  Fleiri minningargreinar um Krist- mund Helgia Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 33 Raðauglýsingar Húsnæði í boði Atvinnuauglýsingar Einbýlishús Til sölu/ leigu, 265 fm hús á Seltjarnarnesi með aukaíbúð í kjallara. Stór gróinn garður. Ath. Skipti. Uppl. í síma 663 5901 Til leigu Jörð til leigu Til leigu rúmlega 1000 hektara jörð í Víðidal, 190 km frá Reykjvík. Eldra íbúðarhús og útihús. Upplýsingar í síma 663 5901. Til sölu Bækur til sölu Fornmannasögur 1-10, 1825, Sýslumannaævir 1-5, Hver er maðurinn 1-2, Íslenskar æviskrár 1-6, samstætt gott band,Tímarit Hins íslenska bókmenntafélags 1-25, Safn Fræðafélagsins 1-12, Heimspeki eymdarinnar Þ.Þ., Hvítir hrafnar Þ.Þ., Íslensk bygging, Guðjón Samúlsson, Kjósamenn, Nokkrar Árnesingaættir, Bergsætt 1-3, Stokkseyr- ingasaga 1-2, Saga hraunhverfis á Eyrabakka, Sunnlenskar byggðir 1-4, Upplýsingar í síma 898 9475. Tilboð/Útboð Tilboð í þakviðgerð Húsfélag í Hlíðarhverfi óskar eftir tilboðum í járnskipti á u.þ.b. 360 fm þaki. Nánari upplýsingar veitir Guðlaug, netfang: gudlaugri@simnet.is Félagslíf I.O.O.F. Rb. 4 1579168 I.O.O.F. Ob.1,Petrus 18909168 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.