Morgunblaðið - 16.09.2008, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er þriðjudagur 16. september,
260. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar
á hann, því að hann ber umhyggju fyr-
ir yður. (1Pt. 5, 7.)
Víkverji óskar Listasafni Reykja-víkur til hamingju með glæsi-
lega yfirlitssýningu á verkum Braga
Ásgeirssonar á Kjarvalsstöðum. Það
var löngu tímabært að koma slíkri
sýningu í kring enda geta flestir ver-
ið sammála um að Bragi sé í hópi
merkustu núlifandi myndlistar-
manna okkar Íslendinga. Þarna gefst
einstakt tækifæri til að kynna sér
feril þessa litríka listmálara sem
spannar hvorki meira né minna en
sex áratugi.
Ótrúlegt er hverju Bragi hefur af-
kastað gegnum tíðina en sem kunn-
ugt er stundaði hann áratugum sam-
an kennslu með list sinni, auk þess að
vera um árabil einn mikilvirkasti
gagnrýnandi og listasögumiðlari
þjóðarinnar. Hann hefur skrifað ófáa
dálkmetrana um dagana, einkum í
þennan miðil hér, eins og glöggt má
sjá í einu herbergja sýningarinnar.
Þar hefur skrifum Braga bókstaflega
verið komið fyrir í hólf og gólf.
Víkverji var við opnun sýning-
arinnar sl. laugardag og auðséð er af
fjöldanum sem var þar saman kom-
inn að Bragi nýtur ómældrar virð-
ingar meðal listelskra Íslendinga.
Vonlaust var að njóta sýning-
arinnar sem skyldi í slíku fjölmenni
en þá er bara að koma aftur. Sýn-
ingin stendur til 16. nóvember.
x x x
Frá Kjarvalsstöðum hélt Víkverjiá laugardaginn sem leið lá í
sparkhúsið Kórinn í Kópavogi til að
fylgjast með úrslitaleiknum í ut-
andeildinni í knattspyrnu. Áttust þar
við Vængir Júpíters úr Grafar
vogi og knattspyrnufélagið Hjör-
leifur en uppistaðan í því liði eru
menn sem ólust upp hjá Þrótti í
Reykjavík.
Leikurinn var jafn og tvísýnn en
Vængirnir höfðu að lokum verð-
skuldaðan sigur, 1:0. Skoraði Helgi
Frímannsson markið með glæsi-
legum skalla eftir eitraða fyrirgjöf
frá David Beckham þeirra Vængja,
Andrési Ársælssyni. Vængir Júpí-
ters eru þar með tvöfaldir meistarar
í ár, unnu bæði deild og bikar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fanga, 8 naut,
9 ávöxtur, 10 gljúfur, 11
hamingja, 13 svarar, 15
tappagat, 18 undrandi,
21 bókstafur, 22 ill-
kvittni, 23 hin, 24 barn
að aldri.
Lóðrétt | 2 andróður, 3
raka, 4 pinna, 5 málms, 6
þvottasnúra, 7 skordýr,
12 raddblæ, 14 alls ekki,
15 sáldra, 16 skelfiskur,
17 hægur, 18 alda, 19
sólar, 20 peninga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hægur, 4 felds, 7 óþörf, 8 orkan, 9 sót, 11 sótt,
13 haga, 14 áræði, 15 bull, 17 nekt, 20 rit, 22 fagri, 23
andar, 24 syrpa, 25 lerki.
Lóðrétt: 1 hjóms, 2 gröft, 3 refs, 4 flot, 5 lykta, 6 senda,
10 ótæti, 12 tál, 13 hin, 15 buffs, 16 lógar, 18 endir, 19
torfi, 20 riða, 21 tagl.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 Rf6 4. e3 e6 5.
Bxc4 a6 6. O–O b5 7. Bd3 Bb7 8. a4 b4
9. De2 c5 10. dxc5 Bxc5 11. e4 Rc6 12.
Rbd2 Rd7 13. Rc4 O–O 14. e5 Rb6 15.
Rxb6 Bxb6
Staðan kom upp í landsliðsflokki
Skákþings Íslands sem lauk fyrir
skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Sigurvegari mótsins í ár
sem og sl. átta ár, Hannes Hlífar Stef-
ánsson (2566), hafði hvítt gegn Birni
Þorfinnssyni (2422). 16. Bxh7+! Kxh7
17. Rg5+ Kg8 18. De4 He8 19. Dh7+
Kf8 20. Dh8+ Ke7 21. Dxg7 Rxe5?
Betri leikir stóðu svörtum til boða þó
að staða hans væri við það áfram erfið.
Í framhaldinu vinnur hvítur drottningu
svarts og heldur áfram sókn sinni. 22.
Rxf7! Rxf7 23. Bg5+ Kd6 24. Bxd8
Rxd8 25. Dg3+ Kd7 26. Hfd1+ Bd5 27.
Dg4 Kc7 28. a5 Ba7 29. Hac1+ Rc6 30.
Hxd5 exd5 31. Dg7+ og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Erfið vörn.
Norður
♠64
♥10
♦ÁKG8643
♣Á94
Vestur Austur
♠KDG ♠Á10987
♥643 ♥D52
♦1075 ♦D92
♣D752 ♣KG
Suður
♠632
♥ÁKG987
♦--
♣10863
Suður spilar 4♥.
Sveit Eykar varð bikarmeistari
um helgina eftir sigur á sveit Breka
jarðverks í úrslitaleik (198–161 í 64
spilum). Áður höfðu Eykarmenn lagt
Grant Thornton í undanúrslitum
(125–115 í 48 spilum). Í Eyktarsveit-
inni spiluðu fjórmenningarnir Jón
Baldursson, Þorlákur Jónsson,
Sverrir Ármannsson og Aðalsteinn
Jörgensen.
Spilið að ofan er frá úrslita-
leiknum. Austur vakti á báðum borð-
um á 1♠, en síðan tóku NS völdin.
Vörnin misfórst báðum megin eftir
♠K út. Til að ná 4♥ niður þarf vest-
ur að taka annan slag á spaða og
skipta síðan yfir í lauf. En báðir
vesturspilarar völdu að spila laufi
strax í öðrum slag. Þar með var
hægt að henda tveimur spöðum nið-
ur í ♦ÁK, svína í trompi og sækja
slag á fjórða laufið heima.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert hetja í augum ástvinar. Ef
þú meðtekur það kemurðu auga á fleiri
tækifæri til þess að haga þér hetjulega –
án þess endilega að hlaupa inn í brenn-
andi byggingar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarft að vera í rólegu umhverfi
svo þú getir hvílst fyrir annasama viku
framundan. Innleiddu reglu sem bannar
öskur á heimilinu. Aðdáandi eykur sjálfs-
traustið í kvöld.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Himintunglin hressa tvíburann
við. Hann er með fullan tank og brunar
eftir hraðbraut lífsins, staðráðinn í að
lenda á ókunnum stað.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú uppgötvar eins mikinn sann-
leika um tilteknar aðstæður og þú kærir
sig um. Treystu skilningarvitunum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ljónið veit sitt af hverju en til allrar
hamingju ekki allt, enda væri það mjög
þreytandi fyrir félagana. Reyndu fyrir
þér sem byrjandi á einhverju sviði í dag.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Svo virðist sem meyjan hafi misst
tökin snemma í dag. Kannski gerði mak-
inn áætlanir fyrir tvo eða þá að skuld-
binding sem gleymdist riðlar öllu skipu-
lagi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ljúf samskipti eiga sér stað. Vogin
sönglar af spenningi sem fylgir nýrri vin-
áttu, eða kannski á að kalla þetta hams-
lausa hrifningu. Farðu varlega.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Sumir myndu segja að það
sem þú sérð fyrir þér verði líklega ekki
að veruleika. Það er fyrsta vísbendingin
um að takmarkið sé verðugt verkefni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Allt verður meira spennandi
þegar þú ert með. Láttu reyna á þessa
kenningu. Leggðu þitt af mörkum í sam-
ræðum og sjáðu hvernig lifnar yfir þeim.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Andstæðan við að tala er ekki
að bíða. Segðu það við sjálfhverfasta
kunningja þinn. Það eina sem þú upp-
skerð er tómt augnaráð. Ekki hafa
áhyggjur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ef sálir í erfiðleikum geta
komið skikki á líf sitt virðist ekki mikið
mál að herða agann hjá sjálfum sér.
Byrjaðu á því að tala einungis vel um
sjálfa(n) þig.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Himintunglin ýta undir skemmti-
legt félagslíf. Það, sem þér tekst að
áorka, verður til vegna persónulegra
sambanda. Hjálpaðu vinum þínum.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
16. september 1905
Ellefu manns drukknuðu er
bátur fórst nálægt landi við
Akranes. Í bátnum var ungt
fólk, þar af fimm systkini, á
heimleið frá Reykjavík.
16. september 1936
Franska hafrannsóknaskipið
Pourquoi pas? strandaði í fár-
viðri við Straumfjörð á Mýr-
um. Alls fórust 38 menn,
þeirra á meðal vísindamað-
urinn og heimskautafarinn dr.
Jean Charcot, en einn komst
lífs af. Minnisvarði var reistur
á strandstaðnum rúmum sex-
tíu árum síðar.
16. september 1940
Skipverjar á togurunum
Snorra goða og Arinbirni
hersi björguðu um fjögur
hundruð mönnum af franska
flutningaskipinu Asca á Ír-
landshafi en þýsk flugvél hafði
gert árás á skipið.
16. september 1989
Tilkynnt var að Erró hefði
gefið Reykjavíkurborg tvö
þúsund listaverk eftir sig og
að safninu yrði komið fyrir á
Korpúlfsstöðum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Vinkonurnar Petra Sylvie Bohic
og Kara Sól Samúelsdóttir færðu
Kópavogsdeild Rauða krossins
4.010 kr. Þær höfðu tekið til í dóta-
kössunum heima hjá sér í sumar og
haldið tombólu fyrir utan Sundlaug
Kópavogs.
Hlutavelta
ÁRNI Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur er 35
ára í dag, 16. september, og má segja að afmælis-
dagurinn marki lok á velheppnaðri tónleikaferð
hans í Frakklandi. Árni Heimir var á flugvellinum í
París á heimleið þegar hann var gómaður í spjall.
„Ætli ég mæti ekki með köku í vinnuna handa sam-
starfsfólki mínu hjá Sinfóníuhljómsveitinni,“ segir
hann um mögulegt tilstand í dag.
Árni Heimir tók þátt í tónlistarhátíð sem nefnist
Festival d’ile de France og flutti þar fyrirlestur um
íslenska miðaldatónlist ásamt því að flytja tónlist
með sönghóp sem starfar undir merkjum kamm-
erhópsins Carmina. „Við vorum þarna tólf íslenskir karlmenn sem
sungum fimmundarsöngva og gamla íslenska tvísöngva. Viðtökurnar
voru mjög góðar og stemmningin ótrúlega góð. Við þurftum að taka
aukalög og áheyrendur ætluðu varla að sleppa okkur. Við hefðum ekki
getað verið ánægðari með viðtökurnar.
Einn er sá afmælisdagur sem stendur út úr í minningunni. Það var
árið 1993 þegar hann var nýkominn til náms í Bandaríkjunum og skóla-
félagar hans létu hann upplifa óvænta afmælisuppákomu. „Þeir höfðu
komið sér fyrir inni á heimavistinni hjá mér, með ljósin slökkt og biðu
komu minnar. Þegar ég kom inn stukku allir fram með látum og sungu
afmælissönginn. Þá vissi ég að ég var kominn til Bandaríkjanna.“
Árni Heimir Ingólfsson er 35 ára í dag
Stukku fram með látum
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is