Fréttablaðið - 22.04.2009, Side 2

Fréttablaðið - 22.04.2009, Side 2
2 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR STJÓRNMÁL Samfylkingin hefur enn ekki birt upplýsingar um fjárfram- lög til aðildarfélaga og fulltrúaráða flokksins vegna ársins 2006, þrátt fyrir yfirlýsingu frá því um páska um að upplýsingarnar verði gerðar opinberar. Magnús M. Norðdahl, gjaldkeri Samfylkingarinnar, segir að enn sé unnið að því að safna upplýsingum frá um fjörutíu aðildarfélögum, auk fulltrúaráða og kjördæmis- ráða. Aðspurður sagðist Magnús ekki geta lofað því að upplýsingarn- ar yrðu birtar fyrir kosningar þar sem tíma tæki að afla þeirra. „Við höfum ekkert að fela,“ segir Magnús. Hann segir ekki óheppilegt fyrir Samfylkinguna að fara í kosn- ingar án þess að upplýsa um styrk- ina. Samfylkingin gangi mun lengra en aðrir flokkar. Sjálfstæðisflokk- ur og Framsóknarflokkur hafi sér vitanlega hvorki lofað að birta slík- ar upplýsingar, né gert ráðstafanir til að afla þeirra. Spurningin sé því frekar hvort það sé óheppilegt fyrir þá flokka að fara í kosningabaráttu án þess að lýsa því yfir að þeir séu tilbúnir að upplýsa um sín fjármál. „Ég myndi gjarnan vilja sjá að aðrir stjórnmálaflokkar hefðu kjark til að gera það sem við erum að gera,“ segir Magnús. „Sjálfstæðisflokkurinn er með átján hverfafélög í Reykjavík. Þessi átján hverfafélög og fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, Vörður, söfnuðu peningum grimmt árið 2006,“ segir Magnús. Hann bendir enn fremur á að hvorki Sjálfstæðisflokkur né Fram- sóknarflokkur hafi birt upplýsing- ar um heildarstyrki til flokkanna á árinu 2006. Þeir hafi aðeins birt styrki sem náðu einni milljón króna. Samfylkingin hafi gefið upp heildar- upphæðina. Fréttablaðið hefur upplýsingar um fyrirtæki sem gáfu eina milljón króna eða meira til Samfylkingar- innar árið 2006 en voru ekki á lista yfir þá sem styrktu flokkinn um hálfa milljón króna eða meira. Skýr- ingin á því mun vera sú að styrkir þeirra runnu til aðildarfélaga eða fulltrúaráða, ekki landsflokksins. Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í þættin- um Zetunni á mbl.is á mánudag að hún vildi að Ríkisendurskoðun yfir- færi fjármál stjórnmálaflokkanna frá árinu 2000 til ársins 2007. For- menn annarra flokka hafa tekið undir það. brjann@frettabladid.is Georg, fundu menn ekkert babb í bátnum? „Jú, það kom babb í bátinn hjá bátsverjum þegar þeir voru hand- teknir af Gæslunni.“ Hópur manna flutti 109 kíló af fíkni- efnum til landsins með skútu. Land- helgisgæslan elti þá síðan uppi og handsamaði. Georg Lárusson er forstjóri Landhelgisgæslunnar. Lofa ekki birtingu fyrir kosningar Samfylkingin hefur enn ekki birt upplýsingar um fjárframlög til aðildarfélaga flokksins vegna ársins 2006. Gjaldkeri flokksins getur ekki lofað birtingu fyrir kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki skilað 55 milljóna króna styrkjum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur enn ekki endurgreitt þrjátíu milljóna króna styrk frá FL Group og 25 milljóna króna styrk frá Landsbankanum sem flokkurinn fékk árið 2006. Samkvæmt upplýsingum frá Grétu Ingþórsdóttur, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins, verður féð endurgreitt fljótlega. Ekki sé búið að ákveða nákvæmlega hvenær endurgreiðslan fari fram. Í samtali við Ástþór Magnús- son í Lýðvarpi Lýðræðis- hreyfingarinnar sagði Gréta að nægt fé væri til á reikn- ingum Sjálfstæðisflokksins til að endurgreiða styrkina, samtals 55 milljónir króna. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, lýsti því yfir um páska, eftir að fréttastofa Stöðvar 2 hafði greint frá upphæð styrkja FL Group og Landsbankans, að styrkirnir yrðu endurgreiddir. OFURSTYRKIR ENN EKKI ENDURGREIDDIR GRÉTA INGÞÓRSDÓTTIR VINNUR ÚTTEKT Jóhanna Sigurðar- dóttir, formaður Samfylkingarinnar, vill að Ríkis endur- skoðun yfirfari fjár mál stjórnmála- flokkanna á tíma- bilinu 2000 til 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Nýsköpun og sprotastarf Styðjum við nýsköpun og bætum starfsumhverfi sprotafyrirtækja líkt og best gerist annars staðar. Blásum til sóknar í grænni og menningartengdri atvinnuuppbyggingu. ÞJÓFNAÐUR Macintosh-tölvu, myndavél og námsgögnum var stolið úr bíl við Frakkastíg á sunnudaginn. Í tölvunni voru skólaverkefni eigandans, Fríðu Torfadóttur, sem hún hafði unnið að síðan í janúar. Hún á að skila þeim til kennara í næstu viku. Jóhann Þór Stefánsson, unn- usti Fríðu, vill kaupa tölvuna aftur af þjófnum. Annars gæti Fríða verið fallin í Tækniskól- anum. „Ef ég væri kennari tæki ég ekki svona afsökun gilda,“ segir hann. Þau hafi gætt sín að taka afrit af gögnunum, en því miður hafi afritið einnig verið í bílnum. - kóþ Tölvu stolið við Frakkastíg: Þjófurinn gæti fellt stúlkuna STJÓRNMÁL Aðstandendur nafn- lausra auglýsinga þar sem fjallað er um skattastefnu Vinstri grænna og Samfylkingar hafa enn ekki gefið sig fram. Þór Jónsson almannateng- ill, sem hafði milligöngu um birtingu aug- lýsinganna, segir málið úr sínum höndum. Það sé undir aðstandendum aug- lýsinganna sjálfum komið að stíga fram. Auglýsingarnar birtust í Morgunblaðinu á sunnudag og Fréttablaðinu á mánudag. For- svarsmenn Vinstri grænna og Samfylkingar hafa gagnrýnt þær harðlega, og segja þær fullar af rangfærslum. - bj Nafnlausar auglýsingar: Aðstandendur ekki stigið fram ÞÓR JÓNSSON EFNAHAGSMÁL Nýskráningar öku- tækja eru enn í sögulegu lág- marki samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Fyrstu 107 daga ársins voru 952 ökutæki nýskráð, tæplega níu á dag að meðaltali. Á sama tíma- bili í fyrra voru nýskráningar sjö sinnum fleiri, eða 7.121 talsins, tæplega 67 á dag að meðaltali. Samdrátturinn er ekki jafn mikill þegar kemur að eigenda- skiptum. Alls skiptu 20.797 öku- tæki um eigendur fyrstu 107 daga ársins. Á sama tímabili í fyrra voru eigendaskiptin 27.553 talsins. Hlutfallsleg fækkun er 24,5 prósent. - bj Nýjar tölur Umferðarstofu: Nýskráningar enn í lágmarki BRUNI Stórbruni varð um kvöld- matarleytið í gær í gömlu fisk- vinnsluhúsi að Básvegi 11 í Keflavík. Allur tiltækur mannskapur slökkviliðs Suðurnesja tók þátt í slökkvistarfinu, sem gekk fljótt fyrir sig að þeirra sögn. Húsið var autt og þar var ekkert raf- magn í því. Það stóð ólæst og gat því hver sem er farið þangað inn. Því leiðir lögreglan að því líkur að um íkveikju hafi verið að ræða og er málið rannsakað sem slíkt. Ekki stóð hætta af eldinum að sögn Slökkviliðsins þar sem reyk lagði út á haf og eldurinn ógnaði engu í grenndinni. Þar fengust enn fremur þær upplýsingar að húsið væri í eigu verktaka og til hefði staðið að rífa það. - jse Gamalt fiskvinnsluhús brann til kaldra kola í Reykjanesbæ í gær: Talið að kveikt hafi verið í BRUNI Í KEFLAVÍK Allur tiltækur mannskapur slökkviliðsins glímdi við eldinn í gær. MYND/VÍKURFRÉTTIR ATVINNA Tölvufyrirtækið CCP auglýsir nú eftir starfsfólki og er ætlunin að ráða 100 manns á árinu. Störfin eru ekki bundin staðsetningu og standa fólki um allan heim til boða. Hilmar Veigar Pétursson fram- kvæmdastjóri segir fyrirtækið ganga vel, þrátt fyrir gjaldeyris- höft sem hamli starfseminni. Nýverið var samið við starfsfólk um að greiða því í evrum og segir Hilmar að með því hafi tekist að verja sig gegn gengisáhættunni. „Það er mikill misskilningur hjá stjórnvöldum að veikt gengi sé gott fyrir útflutningsfyrirtæki. Veikt gengi býr til veik fyrir- tæki,“ segir Hilmar. - kóp Gengur vel hjá CCP: Ráða 100 manns á árinu EVRÓPUMÁL „Ef Samfylkingin ekki situr við sinn keip, ef hún selur þetta baráttumál sitt fyrir kosn- ingar fyrir völd eftir kosningar þá er aðild sú, sem ég átti að stofnun hennar, ein mestu mistök sem ég hef gert á mínum stjórnmálaferli,“ skrifar Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi for- maður Alþýðu- flokksins, í grein í Frétta- blaðinu. Sig- hvatur á þar við Evrópustefnu Samfylkingar- innar. Hann skrifar að orðið sé lífsspursmál fyrir þjóðina að láta reyna á hvaða skilmála hún geti fengið verði sótt um aðild að ESB. Sam- fylkingin hafi nú fengið liðsinni atvinnulífsins og samtaka launa- fólks til að leita eftir viðræðum. Málið þoli enga bið. - bs / sjá síðu 22 Sighvatur Björgvinsson: Aðildarviðræð- ur lífsspursmál SIGHVATUR BJÖRGVINSSON STJÓRNMÁL Stórfyrirtæki á borð við Baug og FL Group styrktu frambjóðendur í prófkjörum stjórn- málaflokkanna árið 2006 um milljónir króna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Þar sagði að einstakir frambjóðendur hefðu þegið allt að tvær milljónir í styrk. Fréttablaðið gerði í vetur úttekt á slíkum styrkj- um til þingmanna og þar gaf innan við helmingur þeirra upp hverjir styrktu þá. Einungis Helgi Hjörv- ar, þingmaður Samfylkingarinnar, gaf þar upp að hann hefði fengið styrki frá bönkum, fjármálafyrir- tækjum, eignarhaldsfélögum og fjárfestum í slíkum fyrirtækjum. Kostnaður við prófkjör hans var fimm milljónir. Heimildir fréttastofu Stöðvar 2 herma að Sjálf- stæðisþingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson, Illugi Gunnarsson og Guðfinna Bjarnadóttir, Sam- fylkingarfólkið Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir og framsóknarmaðurinn fyrrverandi Björn Ingi Hrafnsson séu á meðal þeirra sem hlutu styrk frá áðurnefndum fyrirtækjum. Enginn hefur þó viljað staðfesta að hafa þegið slíkan styrk. Lög voru sett um hámark framlaga í ársbyrjun 2007. - jse Stórfyrirtæki styrktu þingmenn í prófkjörsbaráttu um milljónir árið 2006: Þingmenn þáðu milljónir FL GROUP OG BAUGUR Styrktu frambjóðendur í prófkjörum um milljónir, að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.