Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 4
4 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
Diddy is.
Diddy.is
dy.is
Diddy.is
iddy.is
Diddy.i
ddy is
s
is
Diddy.is
Did
Didd
Did
Útsala Útsala
Bætum við enn meira af vörum,
allt á að seljast, verslunin hættir.
Tilvalið tækifæri að eignast fl ott
föt á frábæru verði.
Enn meiri afsláttur, lygilegt verð!
Buxur, leggings, toppar, kjólar, mussur,
peysur og margt fl eira í boði.
Allt topp vörur.
Stærðir frá 38 til 50.
Opið frá 13 - 18 virka daga
og 13 - 16 laugardag
Diddy.is
Faxafeni 14 (við hliðina á Bónus) • s: 588 8400
Stelpur, látið þetta ekki framhjá ykkur fara!
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
22°
17°
21°
22°
13°
18°
20°
21°
15°
14°
22°
20°
16°
28°
12°
20°
21°
10°
2
5
5
3
4
6
8
8
5
4
4
13
13
6
6
6
10
10
23
13
16
16
1 4
8
8 3
6
10SUMARDAGURINN FYRSTI
8-15 m/s, hvassast sunnan
og vestan til.
FÖSTUDAGUR
8-15 m/s
-2 1
10
SUMARDAGURINN
FYRSTI Á MORGUN
Jæja, þá kemur
sumarið á morgun.
Allavega samkvæmt
almanakinu. Gott þyk-
ir ef saman frýs vetur
og sumar og er helst
að sjá að það geti
gerst norðanlands og
á Vestfjörðum og þá
einkum til landsins.
Það mætti því segja
mér að þar yrði gott
sumar nú í sumar
allavega ef marka má
þjóðtrúna.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
NOREGUR Norski krónprinsinn
Hákon og Mette-Marit krónprins-
essa ætla að breyta rekstrinum
á bóndabýli sínu, Skaugum við
Asker í Noregi,
þannig að fram-
leiðsla þess
verði vottunar-
hæf sem líf-
ræn.
Breytingin
á sér stað í
tengslum við
ráðningu nýs
bústjóra eftir
að núverandi
bústjóri sest í helgan stein.
Skaugum er nú þegar stórt býli
á norskan mælikvarða. Þar er
framleitt korn, fóður, mjólk og
kjöt og fær reksturinn 500 þús-
und norskar krónur í opinberan
stuðning á hverju ári. Þegar
breytingin hefur átt sér stað
verður býlið eitt af stærstu líf-
rænu býlum í Noregi, að sögn
Jyllandsposten. Um 2.500 vist-
væn býli eru í Noregi. - ghs
Norska krónprinsparið:
Skipta í lífræna
framleiðslu
HÁKON
KRÓNPRINS
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
höfðað mál á hendur manni á
fertugsaldri fyrir hótanir og
ærumeiðingar gagnvart kven-
kyns starfsmanni Barnaverndar
Reykjavíkur, eiginmanni hennar
og syni.
Maðurinn sendi tæplega tví-
tugum syni konunnar fjölda sím-
skilaboða þar sem hann vænir
móður hans um að stela ókunn-
ugum börnum og ýmist selja þau
eða drepa og elda fyrir eigin
fjölskldu. Hann sendi eiginmanni
hennar jafnframt skilaboð þar
sem hann segir hana halda fram-
hjá honum. Maðurinn neitaði sök
við þingfestingu ákærunnar. - sh
Ákærður fyrir ærumeiðingar:
Sakaði konu
um mannát
LÖGREGLUMÁL Mennirnir þrír sem
handteknir voru í tveimur jeppa-
bifreiðum á Austurlandi um helg-
ina í tengslum við stóra skútu-
smyglmálið segjast hafa talið
sig vera að sækja einhver kíló af
sterum, en ekki yfir hundrað kíló
af fíkniefnum samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins.
Sex menn sæta nú gæsluvarð-
haldi og einangrun á Litla-Hrauni
vegna rannsóknar lögreglu á
þessu gríðarmikla smyglmáli
sem upp kom um síðustu helgi.
Vinnuheiti aðgerðar löggæslunn-
ar í málinu er Neptúnus, að sögn
Friðriks Smára Björgvinssonar
yfirlögregluþjóns.
Þrír mannanna voru í Héraðs-
dómi Austurlands í gær úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald til 12. maí,
að undangengnum yfirheyrslum.
Þeir voru handteknir af sérsveit-
armönnum Ríkislögreglustjóra
um borð í skútunni SIRTAKI OR
2387 á sunnudagskvöld. Þá höfðu
aðrir þrír verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 11. maí vegna
rannsóknar á smyglmálinu, þar
sem reynt var að smygla um 109
kílóum af amfetamíni, hassi, e-
töflum og maríjúana til landsins
með skútunni. Um helmingur efn-
anna var amfetamín.
Síðarnefndu mennirnir sóttu
efnin um borð í skútuna í gúm-
bát og gómaði lögregla einn
þeirra með þau í ferðatöskum í
farþegarými jeppa sem hann ók
í nágrenni Hafnar á Hornafirði.
Fimm mannanna eru íslenskir en
sá sjötti er hollenskur. Það var
sá síðastnefndi sem tók skútuna
á leigu hjá bátaleigufyrirtæki í
Belgíu og reiddi fram hálfa millj-
ón króna í evrum, að því er fram
kom á Stöð 2. Hollendingurinn
hefur komið áður til landsins en
ekki komið við sögu lögreglu hér.
Skútumennirnir voru fluttir
flugleiðis með flugvél Flugmála-
stjórnar á Selfoss í gærdag eftir
gæsluvarðhaldsúrskurðinn fyrir
austan. Mennirnir voru fluttir frá
Selfossi á Litla-Hraun.
Leit var að mestu lokið í smygl-
skútunni, samkvæmt upplýsing-
um Fréttablaðsins og höfðu engin
efni til viðbótar fundist í henni.
Fyrirhugað er að færa hana til
Fáskrúðsfjarðar þar sem betra
skipalægi er fyrir hana vegna
þess hve stór hún er.
jss@frettabladid.is
Smyglararnir segjast hafa
talið sig vera að sækja stera
Þrír menn sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna stóra skútusmyglmálsins á Austfjörðum segjast aðeins hafa talið
sig vera að sækja nokkur kíló af sterum. Yfir hundrað kíló af fíkniefnum voru flutt til landsins með skútunni.
SMYGLSKÚTAN Það
voru sérsveitarmenn
Ríkislögreglustjóra
og starfsmenn Land-
helgisgæslunnar sem
stöðvuðu för smygl-
skútunnar á hafi úti.
Sérsveitarmenn fóru
um borð í myrkri og
haugabrimi, meðan
skútan var á fullri
ferð. Hún var færð til
hafnar á Eskifirði, þar
sem myndin var tekin
í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
RÚNAR ÞÓR RÓBERTSSON Leiddur fyrir
Héraðsdóm.
HOLLENDINGURINN Leiddur fyrir
Héraðsdóm.
ÁRNI HRAFN ÁSBJÖRNSSON Leiddur
fyrir Héraðsdóm.
LÖGREGLUMÁL „Furðu vekur að
slíkri hörku hafi verið beitt gagn-
vart aðgerðum hóps sem hafði
það eitt að markmiði að benda
á leiðir til að bæta umhverfi og
samfélag í miðbænum,“ segir í
tilkynningu Torfusamtakanna.
Þar er vísað til aðgerða lög-
reglu gegn hústökufólki við
Vatnsstíg, hinn 15. apríl. Sam-
tökin segja að lögreglan verði
að huga að því hverra hagsmuna
hún gæti í tilvikum sem þessum;
sjónar mið um varðveislu og efl-
ingu mannlífs fari ekki alltaf
saman við hagsmuni eigenda.
Víða í nálægum löndum sé refsi-
vert að láta hús grotna. - kóþ
Torfusamtökin um hústöku:
Harka lögreglu
vekur furðu
SUÐUR-AFRÍKA, AP Allt bendir til
þess að Afríska þjóðaráðið vinni
yfirburðasigur í þingkosningunum
í Suður-Afríku í dag. Eina spurn-
ingin er hvort flokkurinn nær svo
stórum meirihluta á þingi að hann
geti breytt stjórnarskrá landsins
að vild, óháð stuðningi annarra
flokka.
Þegar nýkjörið þing kemur svo
saman mun það kjósa nýjan for-
seta landsins, og þykir fullvíst að
fyrir valinu verði Jacob Zuma,
sem er leiðtogi Afríska þjóðar-
ráðsins.
Zuma er tvímælalaust vinsæl-
asti stjórnmálamaður landsins,
þrátt fyrir ásakanir um spillingu
og nauðgunarákæru, sem hann
var þó sýknaður af árið 2006.
Suður-Afríska þjóðaráðið hefur
unnið yfirburðasigur í öllum þing-
kosningum sem haldnar hafa verið
síðan aðskilnaðarstefna hvíta
minnihlutans leið undir lok á síð-
asta áratug.
Zuma tók við af Thabo Mbeki
sem leiðtogi flokksins síðla árs
2007 eftir valdabaráttu þeirra
innan flokksins. Vinstrivængur
flokksins, undir forystu Zuma,
náði því síðan fram að Mbeki sagði
af sér sem forseti strax nokkrum
mánuðum síðar.
Stuðningsmenn Mbekis klufu
sig hins vegar úr flokknum seint
á síðasta ári og stofnuðu nýjan
flokk, sem hefur þó ekki náð miklu
flugi. - gb
Þingkosningarnar í Suður-Afríku í dag snúast um Jacob Zuma:
Afríska þjóðaráðinu spáð sigri
JACOB ZUMA Fátt getur komið í veg fyrir
að hann verði forseti Suður-Afríku innan
skamms. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENGIÐ 21.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,564
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,17 129,79
187,93 188,85
167,15 168,09
22,436 22,568
18,996 19,108
14,99 15,078
1,3143 1,3219
191,25 192,39
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR