Fréttablaðið - 22.04.2009, Síða 10
22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
Dásemdardýrð
Lifðu núna
Fáðu þér flottan tónlistarsíma
í næstu verslun Vodafone
Nokia 5800 XpressMusic
• 12.000 kr. inneign*
• 5 lög í tónlistarverslun Vodafone
• Idol hringitónn
5.500 kr.
á mán. í 12 mán.
Nokia 5310 XpressMusic
• 12.000 kr. inneign*
• 5 lög í tónlistarverslun Vodafone
• Idol hringitónn
3.000 kr.
á mán. í 12 mán.
*1.000 kr. á mán í 12 mán.
*1.000 kr. á mán í 12 mán.
KENÍA, AP Sómalskir sjóræningjar slepptu í gær úr
vörslu sinni tankskipi sem þeir rændu fyrir fimm
mánuðum. Þar með varð 23 manna filippseysk
áhöfn skipsins líka laus úr langri prísund.
Óljóst var hvort lausnargjald var greitt fyrir
lausn skipsins og áhafnarinnar. Aðstandendur
áhafnarmeðlima upplýstu að upprunalega settu sjó-
ræningjarnir upp fimm milljón dala lausnargjald,
en í síðustu viku hefðu þeir verið búnir að lækka
kröfuna í 2,2 milljónir dala.
Að minnsta kosti sextán önnur skip og hátt í 300
manns sem mönnuðu þau eru enn talin í höndum
sómalskra sjóræningja. Stjórnmálaskýrendur segja
nærri tveggja áratuga stjórn- og lögleysisástand í
Sómalíu rótina að hinum mikla uppgangi sjóráns-
útgerðar frá landinu. Árásir sjóræningja hafa verið
mjög tíðar á síðustu vikum. Áhöfn líbansks flutn-
ingaskips tókst með naumindum að komast undan
einni slíkri undan Jemenströnd á mánudag. Í fyrra-
dag létu sjóræningjar aftur laust flutningaskip sem
þeir höfðu tekið viku fyrr, eftir að þeir komust að
því að það var á leið að sækja matvælaaðstoð fyrir
hungrandi landa þeirra. - aa
HALDA ENN HÁTT Í TUTTUGU SKIPUM Gríska flutningaskipið
Irene E.M. sem sómalskir sjóræningjar tóku 14. apríl sl.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sómalskir sjóræningjar sleppa tankskipi og áhöfn þess nær hálfu ári eftir rán:
Óljóst um lausnargjaldsgreiðslu
NEYTENDAMÁL Verð á skiptingu,
umfelgun og jafnvægisstillingu á
dekkjum reyndist vera lægst í flest-
um tilfellum hjá Hjólbarðaverkstæði
Vöku í Eldshöfða. Þetta kemur fram
í verðkönnun sem Alþýðusamband
Íslands hefur látið gera nú þegar bíl-
eigendur eru að koma bílum sínum
á sumardekkin.
Munur á lægsta og hæsta verði
er mestur þegar kemur að þessari
þjónustu fyrir meðalstóra jeppa en
þar er hann 5.560 krónur. Þegar
kemur að fólksbílum er þessi munur
um tvö þúsund, fer það þó eftir því
hvort bílarnir eru á stál- eða álfelg-
um.
Þjónusta hjólbarðaverkstæða við
fólksbíla hefur hækkað að meðaltali
um 10 prósent frá því í október 2007.
Þegar kemur að stórum jeppum er
þessi munur um 16 prósent. - jse
Alþýðusambands Íslands kannar verð á þjónustu dekkjaverkstæða:
Dekkjaskiptin stöðugt dýrari
VERÐKÖNNUN ASÍ UM SKIPTINGU, UMFELGUN OG JAFNVÆGISSTILLINGU Á DEKKJUM
Lægsta verð Hæsta verð
Fólksbíll á stálfelgum Hjólbarðaverkstæði Vöku 5.200 Höldur hjólbarðaverkstæði 7.136
Fólksbíll á álfengum Hjólbarðaverkstæði Vöku 5.200 Hjólbarðaverkstæði Heklu 7.690
Lítill jeppi á stálfelgum Bílvogur (Hekla) 6.100 Dekkjaverkstæði Reykjavíkur 9.892
Lítill jeppi á álfelgum Bílvogur (Hekla) 6.100 Dekkjaverkstæði Reykjavíkur 10.419
Meðal jeppi Hjólbarðaverkstæði Vöku 7.700 Sólning 13.260
Stór jeppi Hjólbarðaverkstæði Vöku 8.800 Hjólbarðaverkstæði Heklu 13.600
AF MEÐ NAGLADEKKIN Það verður sífellt dýrara að koma þessum af á vorin.