Fréttablaðið - 22.04.2009, Page 26

Fréttablaðið - 22.04.2009, Page 26
MARKAÐURINN 22. APRÍL 2009 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T A S K Ý R I N G H amfarir alþjóðlegu fjármálakreppunnar, gjaldeyriskreppa Ís- lands og fall fjármála- kerfisins endurspegl- ast í reikningum Seðlabankans fyrir síðasta ár sem lagðir voru fram á ársfundi bankans fyrir helgi. Lára V. Júlíusdóttir, for- maður bankaráðs Seðlabankans, hóf enda erindi sitt á ársfundinum á því að benda á að síðasta ár hefði verið Seðlabanka Íslands þungt í skauti eins og öðrum stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum. Góðmennt var að venju á árs- fundi Seðlabankans og saman komin á honum mörg helstu fyrirmenni íslensks viðskipta- og stjórnmálalífs. Þeir sem mætt hafa síðustu ár gátu þó merkt að heldur var rýmra um mannskap- inn en oft áður, og fleiri sæti laus þegar formaður bankaráðsins, seðlabankastjórinn og forsætis- ráðherra fluttu ræður sínar. Eigið fé Seðlabankans rýrnaði um einn tíunda, fór úr 91 milljarði króna í árslok 2007 í 82 milljarða í lok síðasta árs. Samkvæmt rekstrar- reikningi tapaði Seðlabankinn 8,6 milljörðum króna, samanborið við 1,2 milljarða árið áður. „Aukið tap verður þrátt fyrir að hreinar vaxtatekjur bankans hafi aukist, en þær námu um tuttugu milljörð- um króna á árinu 2008 samanbor- ið við sex milljarða árið á undan. Skýringin liggur fyrst og fremst í því að stöðustærðir sem vext- ir reiknast af hafa hækkað tals- vert að meðaltali milli ára. Þannig námu heildar eignir í árslok 2007 tæplega 500 milljörðum króna en voru ári síðar orðnar um 1.200 milljarðar,“ bendir Lára á. Sömuleiðis hafði gengisþró- un krónunnar mikil áhrif. Árið 2007 styrktist krónan og bank- inn varð fyrir gengistapi upp á tæpa sex milljarða króna. Geng- islækkun krónunnar í fyrra gat hins vegar af sér gengishagn- að upp á um 44 milljarða króna. „Enda voru gengis bundnar eignir bankans nokkru hærri en gengis- bundnar skuldir eins og jafnan er. Breytingin á milli ára nam því um fimmtíu milljörðum króna,“ segir Lára og bendir á að mest af þess- um gengishagnaði hafði komið fram við hrun viðskiptabankanna í byrjun október. Þá liggur fyrir að staða Seðla- bankans hefði ekki verið féleg án aðstoðar ríkisins því bankinn varð sjálfur fyrir miklu tapi við fall bankakerfisins. „Í sumum til- fellum var lánað gagnvart veðum sem reyndust ótrygg þegar íslensk fjármálafyrirtæki féllu í valinn hvert á fætur öðru. Nauðsynlegt reyndist að afskrifa útlán og nam gjaldfærslan 75 milljörðum króna, en slíkur gjaldaliður hefur verið fátíður í bókum bankans,“ bendir formaður bankaráðsins á. „Sam- komulag varð um að ríkissjóður keypti tiltekin veðlán og daglán gagnvart smærri fjármálastofn- unum þar sem undirliggjandi veð voru í skuldabréfum útgefnum af viðskiptabönkunum þremur. Að auki keypti ríkissjóður nokk- ur veðlán með traustum veðum. Samtals nam bókfært verð þess- ara eigna, sem ríkissjóður keypti, 345 milljörðum króna en kaup- verðið var 270 milljarðar og var greitt með verðtryggðu skulda- bréfi. Mismunurinn, 75 milljarð- ar króna, var gjaldfærður í bókum bankans,“ segir hún og bendir á að ríkið verði sennilega að afskrifa Í ÁRSFUNDARSAMSÆTI SEÐLABANKANS Sjóna á föstudaginn, en einhverjir kunna að hafa helst úr le Hér taka stöðuna Ragnar Arnalds bankaráðsmaður, G Íbúðalánasjóðs, og Ágúst Einarsson, sem einnig situr Örn Kristinsson, einn umsækjenda um stöðu seðlab AÐ FUNDAHÖLDUM LOKNUM Hér ræða málin Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur sem nú starfar á skrifs Rozwadowski, sendifulltrúi AGS með aðsetur hér, Svein Harald Øygard seðlabankastjóri og Finnur Sveinb Hamfarir síðasta árs v Seðlabankanu 2007 2008 Breyting Eigið fé 91 82 9 Erlendar skuldir 2 242 240 Erlendar eignir í gjaldeyrisforða 164 429 265 Gengismunur -5,9 44 49,9 Hreinar vaxtatekjur 6 19,7 13,7 Rekstrargjöld 1,6 3 1,5 Tap ársins 1,2 8,6 7,4 Tölur eru í milljörðum króna T Ö L U R Ú R Á R S U P P G J Ö R I S E Ð L A B A N K A Í S L A N D S Fjármálaóróleiki og hamfarir íslensks efnahagslífs endur- speglast glögglega í reikningum Seðlabanka Íslands. Óli Kristján Ármannsson sat ársfund bankans fyrir helgi. Miklar sveiflur eru í afkomutölum bankans og fátíðar færslur, svo sem um myndarlegt innlegg ríkisins vegna tapaðra veðlána. Ársfundur bankans var með hefðbundnu sniði þótt heldur færri hafi sótt fundinn en gert hafa síðustu ár. „Ég skil ekki hvernig fyrirtæki geta farið í gegnum vottun án þess að vera með svona frábært kerfi eins og mannauðskerfið í Dynamics AX. Kerfið veitir okkur nauðsynlega yfirsýn yfir starfsmannahópinn og allar upplýsingar um starfsmenn eru mjög aðgengilegar. Við notum kerfið meðal annars við greiningar og til þess að halda utan um réttindi, menntun og þróunaráætlanir starfsmanna.“ Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri starfsþróunar hjá Landsvirkjun. Mannauðskerfi Microsoft Dynamics AX veitir þér nauðsynlega yfirsýn yfir mannauð fyrirtækisins Guðríðarstíg 2-4 / 113 Reykjavík / Sími 545 1000 / www.hugurax.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.