Fréttablaðið - 22.04.2009, Page 29

Fréttablaðið - 22.04.2009, Page 29
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Sú ferð sem er í ferskustu minni er sú nýjasta, ganga á Mælifells- hnjúk og brun á bretti niður,“ segir Skagfirðingurinn og ævintýra- maðurinn Jón Þór Bjarnason. Síð- astliðinn sunnudag vakti vekjara- klukkan hann um fimmleytið og eftir kjarngóðan morgunmat lá leið hans frá Sauðárkróki inn Skaga- fjörð í fylgd þriggja félaga. „Um sjöleytið vorum við orðnir græj- aðir og gönguklárir, vel nestaðir með skíði og snjóbretti á baki,“ lýsir hann brosandi. Mælifellshnjúkur er eitt helsta kennileiti Skagafjarðar, 1.138 metrar að hæð. Þangað upp er stik- uð og greið gönguleið og sagt er að í góðu skyggni sjáist af toppnum um allt land, eða til ellefu sýslna. „Sólin skein skært þennan morg- un en þeir sem enn voru syfjað- ir vöknuðu fljótt þegar suðaustan vindsperringurinn klappaði okkur hressilega á vangann,“ segir Jón kátur í bragði. „Ferðin upp tók rúman klukkutíma, en í um það bil þúsund metra hæð ákvað ég að doka við meðan félagarnir gengu upp í skýjahuluna á toppnum í von um að útsýni opnaðist stundarkorn til allra átta. Þó fátt sé skemmti- legra en óbyggðaferð með góðum félögum er ekkert sem jafnast á við að eiga stund með sjálfum sér í fögrum fjallasal. Ég sat dágóða stund þarna einn, horfði yfir og leyfði kyrrðinni að streyma inn í sálina. Ég spennti svo sæll á mig snjóbrettið og náði að renna mér nokkrar ferðir áður en hópurinn sameinaðist að nýju.“ Niðurleiðin var engu lík að sögn Jóns Þórs. „Mjöllin beið okkar ósnortin og við náðum að renna okkur nánast alla leið niður að bíl. Alsælir lágum við svo í vegkant- inum, teygðum lúna leggi og maul- uðum harðfisk og annað íslenskt eðalnasl. Enn skein sól í heiði og vermdi rjóða vanga, en eins og oft áður eftir vel heppnaðar fjallaferð- ir skynjaði maður sterkast sólina í sálinni.“ gun@frettabladid.is Á snjóbretti niður Mæli- fellshnjúk í Skagafirði Jón Þór Bjarnason ferðamálafræðingur hefur úr mörgu eftirminnilegu að velja þegar hann er beðinn um ferðasögu, meðal annars Kínaheimsókn, brettabruni í Austurríki og veiði og eggjatöku í Drangey. „Mjöllin beið okkar ósnortin og við náðum að renna okkur nánast alla leið niður að bíl,“ segir Jón Þór, sem hér sést kampakátur í skagfirsku fjalllendi. MYND/JÓN ÞÓR BJARNASON FERÐANEFND ÍFHK stendur fyrir ferð á Nesjavelli 16. til 17. maí. Boðið verður upp á trúss og hver kemur með sitt nesti á grillið. Sjá www.fjalla- hjolaklubburinn.is. 20 ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.