Fréttablaðið - 22.04.2009, Page 30
22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR2
„Við önnum varla eftirspurn og
þó er hjólatímabilið rétt að byrja
fyrir alvöru,“ segir Heiðar Ingi
Ágústsson, eigandi ferða- og úti-
vistarverslunarinnar Everest í
Skeifunni. Nýlega var þar tekið
upp á þeirri nýjung að taka við vel
með förnum gömlum hjólum sem
greiðslu upp í ný. Gömlu hjólin eru
yfirfarin á verkstæði verslunar-
innar og þau svo seld aftur. „Við
gerðum þetta með skíðin í vetur.
Það mæltist mjög vel fyrir svo við
ákváðum að prófa þetta með hjólin
líka,“ segir Heiðar.
Hann leggur áherslu á að ekki
sé tekið við hvaða görmum sem er.
Hjólin verði að vera vel með farin
og í þokkalegu ástandi. Þau séu svo
ekki seld áfram fyrr en gírarnir
hafi verið yfirfarnir, glit séu að
framan og aftan og séð til þess að
bremsurnar virki sem skyldi.
Eftirspurnin er langmest eftir
barnahjólum, enda eru börn yfir-
leitt ekki nema tvö ár að vaxa upp
úr hjólunum sínum. „Það er til
óendanlega mikið af lítið notuð-
um barnahjólum í bílskúrum um
allan bæ. Þessi hjól standa bara og
safna ryki. Það er um að gera að
fá stærra hjól fyrir barnið og setja
gamla hjólið upp í,“ segir Heiðar.
Kaup- og söluverð gömlu hjól-
anna fer eftir því hvort eitthvað
vantar á þau og hversu vel með
farin þau eru. „Við erum með verð-
skrá sem við miðum við. En aðal-
reglan er að við seljum hjólin á
margfalt lægra verði en það kostar
að kaupa ný. Það getur munað
heilmiklu fyrir budduna.“
Hann tekur dæmi um 24 tommu
barnahjól sem kostar nýtt 39.900
krónur. Hægt sé að fá sambærilegt
hjól notað á átján til tuttugu þús-
und á markaðnum.
„Í fyrra jókst hjólasala mikið
almennt, enda var bensínverð að
fara upp úr öllu valdi á þeim tíma.
Þá myndaðist stemning fyrir því
að leggja bílnum og hjóla í staðinn.
Þá seldist mikið af dýrari hjólum.
Í dag eru breyttir tímar og færri
hafa efni á að kaupa sér nýtt hjól.
En áhuginn er jafn mikill eftir
sem áður. Þess vegna var þetta ráð
í tíma tekið hjá okkur. Það hefur
nefnilega sárvantað markað fyrir
notuð hjól.“ holmfridur@frettabladid.is
Taka notuð hjól upp í ný
Þeir sem hafa hug á að eignast hjól fyrir sumarið ættu að kíkja í útivistarverslunina Everest. Þar má fá
vel með farið notað hjól á góðu verði eða láta gamla hjólið sem safnar ryki í bílskúrnum upp í nýtt.
Heiðar Ingi Ágústsson, framkvæmdastjóri Everest, segir löngu hafa verið tímabært að virkja markaðinn með notuð hjól.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLLI
Ferðafélag Íslands
hefur staðið fyrir öfl-
ugu starfi síðan það
var stofnað 27. nóv-
ember árið 1927.
Innan vébanda félags-
ins starfa ýmsar deild-
ir sem eiga og reka
skála og halda úti
ferðum allan ársins
hring. Auk ferða af
ýmsum toga er marg-
víslegt félagslíf innan
félagsins.
www.fi.is
ATORKA skipuleggur á sumardaginn fyrsta ferð frá
Gljúfrasteini að Gróttu, eftir göngustígum meðfram
ströndinni norðan megin og í gegnum Elliðaárdalinn og
áfram með ströndinni sunnan megin. Sjá www.man.is.
Morgungöngur Ferðafélags Íslands:
Við fyrsta hanagal
Mánudaginn 4. maí hefjast árlegar morgungöngur Ferðafélags Íslands. Þá er farið í fjallgön-
gur í nágrenni Reykjavíkur klukkan 6 alla morgna 5 daga í röð. Stjórnendur morgunganga
eru Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir
Fjöllin sem gengið verður á eru þessi.
Mánudagur 4. maí: Helgafell við Hafnarfjörð. Brottför frá Mörkinni kl. 06.00 en ganga
hefst við Kaldársel.
Þriðjudagur 5. maí: Keilir á Reykjanesi. Brottför frá Mörkinni kl. 06.00 ganga hefst á
bílastæðinu við Keili. Beygt af Reykjanesbraut við undirgöng rétt sunnan við Kúagerði við
skilti sem vísar á Keili.
Miðvikudagur 6. maí: Vífi lsfell. Brottför frá Mörkinni kl. 06.00 og beygt til hægri efst á
Sandskeiði og stefnt að fjallinu. Ganga hefst í malarnámi við rætur fjallsins.
Fimmtudagur 7 maí: Helgafell í Mosfellssveit. Brottför frá Mörkinni kl. 06.00 en ganga
hefst á bílastæði norðvestan við fjallið. Beygt af veginum upp Mosfellsdal rétt eftir að
Vesturlandsvegi sleppir.
Föstudagur 8 maí: Úlfarsfell. Brottför frá Mörkinni kl. 06.00 en ganga hefst við bílastæði
sunnan við fjallið. Beygt af Vesturlandsvegi við Bauhaus og akið gegnum hverfi ð uns komið
er að bílaslóð sem liggur áleiðis upp fjallið.
Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Sæludagar í
Hlöðuvik
14. – 21. júlí
Hin sívinsæla fjölskylduferð þar sem dvalið er á
Búðum, nú í tveim skálum. Skipulagðar göngu-
ferðir um nágrennið og kvöldvökur með söng og
glensi.
Fararstjóri: Guðmundur Hallvarðsson,
hornstrandajarl, leiðtogi hornstrandafara.
Sjá nánar á www.fi .is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Vandaðar
dömumokkasíur
úr mjúku leðri,
skinnfóðraðir
og með mjúkum
gúmmísóla.
Sannkallaðir
sjö mílna skór.
Margar gerðir
og litir, td:
Stærðir: 36 - 41
Verð: 9.985.-
Gallabuxur
háar í mittið
st. 36-46
5990,-
Gallapils S-XL
4990,-
Laugaveg 54,
sími: 552 5201
Auglýsingasími
– Mest lesið