Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 44
22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
Prestsbakkakirkja á Síðu hefur þjónað íbúum Kirkjubæjar-
klausturs og sveitanna í kring allt frá því á skírdag hinn 21.
apríl árið 1859. Þá vígði kirkjuna Páll Pálsson, sóknarprestur
og prófastur í Hörgsdal. Síðan eru liðin 150 ár. Í tilefni
af því fer þar fram hátíðar- og afmælismessa á morgun,
sumardaginn fyrsta.
„Ég vona að sem flestir komi úr sveitunum og helst af land-
inu öllu,“ segir séra Ingólfur Hartvigsson sóknarprestur. „En
þetta er eins og með allar góðar veislur. Maður veit ekki fyrir
víst hversu margir koma. Kirkjan tekur tvö hundruð manns,
svo það er nóg pláss.“ Margir kirkjunnar menn og konur taka
þátt í messunni. Herra Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar.
Til altaris þjóna, lesa ritningarorð og leiða bænir, auk Ing-
ólfs, þau séra Sigurður Sigurðsson vígslubiskup, séra Har-
aldur M. Kristjánsson prófastur, séra Þorvaldur Karl Helga-
son biskupsritari og séra Bryndís Malla Elídóttir, fyrrver-
andi sóknarprestur í Prestsbakkasókn.
Prestsbakkakirkju er nokkra kílómetra austan við Kirkju-
bæjarklaustur. Á staðnum stóð bænahús fram yfir miðja 18.
öld og þar var síðar prestsbústaður. Sóknarkirkjan var hins
vegar á Kirkjubæjarklaustri. Eftir Skaftárelda árið 1783
magnaðist svo sandfok á Kirkjubæjarklaustri að byggingar
í þorpinu voru illa barðar af sandi og vindum. Kirkjan var
loks svo illa leikin að nauðsynlegt þótti að færa hana eða
byggja nýja. Eftir skoðanakönnun meðal sóknarbarna var
ákveðið að flytja hana að Prestsbakka. Trésmíðameistari
úr Reykjavík, Jóhannes Jónsson byggði Prestsbakkakirkju
ásamt heimamönnum með Sigurð Sigurðsson á Breiðabóls-
stað fremstan í flokki. Hún er ólík öðrum íslenskum kirkjum
að því leyti að prédikunarstóllinn er í miðjum kórnum, beint
fyrir framan altarið. Það mun vera afar fátítt hér á landi,
ef ekki einsdæmi. „Hún er líka sérstaklega fallega máluð
að innan,“ segir Ingólfur. „Einar Jónsson frá Fossi í Mýrdal
málaði hana árið 1910 í tilefni af fimmtíu ára afmæli henn-
ar. Á aldarafmæli kirkjunnar máluðu hjónin Jón og Gréta
Björnsson aftur og létu veggskreytingar Einars halda sér.“
Eftir hátíðarmessuna er öllum gestum boðið í kirkjukaffi
á Hótel Klaustri. „Nú biður maður og vonar að það verði
gott veður á sumardaginn fyrsta,“ segir sóknarpresturinn
Ingólfur. holmfridur@frettabladid.is
PRESTSBAKKAKIRKJA Á SÍÐU: HEFUR
ÞJÓNAÐ SÓKNARBÖRNUNUM Í 150 ÁR
Messa og kaffi
SÓKNARPRESTURINN OG KÓRINN Ingólfur Hartvigsson sóknarprestur
ásamt kirkjukór Prestsbakkakirkju á Síðu. MYND/ÚR EINKASAFNI
KAKÁ ER 27 ÁRA Í DAG.
„Ég hef lært að það hvort eitt-
hvað muni gerast eða ekki veltur
á trúnni.“
Brasilíski knattspyrnumaðurinn
Kaká, sem heitir fullu nafni Ricardo
Izecson dos Santos Leite, er fyrir
löngu orðinn goðsögn í lifandi
lífi. Hann er einn af lykilmönnum
ítalska meistaraliðsins AC Milan, á
fast sæti í brasilíska knattspyrnu-
landsliðinu og er meðal launahæstu
knattspyrnumanna heims. Kaká er
heittrúaður, hans eftirlætistónlist
er gospel og hann les biblíuna í frí-
stundum sínum.
timamot@frettabladid.is
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Tonny Margrethe Muller
Hrafnistu í Hafnarfirði,
áður Tjarnarbraut 17, Hafnarfirði,
sem lést mánudaginn 20. apríl, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 28. apríl kl.
13.00.
Kristinn Guðjónsson
Tryggvi Anton Kristinsson
Snorri Lorentz Kristinsson Anna Gréta Arngrímsdóttir
Reynir Kristinsson Lilja Guðmundsdóttir
Ingvi Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðmunda
Guðmundsdóttir
Egilsbraut 9, Þorlákshöfn,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn
13. apríl. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 24. apríl kl.13.00.
Helga Stefánsdóttir Júlíus Roy Arinbjarnarson
Guðni Pétursson Íris Sif Orangan
Víðir Lárusson Áslaug Traustadóttir
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug, samúð, kærleika og vin-
áttu við andlát og útför ástkærra foreldra
okkar, tengdaforeldra, ömmu og afa, lang-
ömmu og langafa,
Sigurðar Ágústs
Magnússonar
og
Guðmundu
Bjarnýjar
Ólafsdóttur
Jóngeir A. E. Sigurðsson Una Árnadóttir
Benedikt Gabríel Sigurðsson Ólafía Kristný Ólafsdóttir
Magnús Sigurðsson Dagbjört Lára Garðarsdóttir
Sigurður Ágúst Sigurðsson Kelly Lane
Margrét Sigurðardóttir Guðmundur Sv.
Guðmundsson
Jóhanna S. Martin Jay Alex Martin
barnabörn og barnabarnabarn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Ellerts Erlendssonar
Höfðabraut 3, Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjartadeildar
Landspítalans við Hringbraut fyrir hlýhug og góða
umönnun.
Áslaug Valdimarsdóttir
Lilja Ellertsdóttir Gunnar Þór Garðarsson
Jón Ellert Guðnason Arnþrúður Kristjánsdóttir
Áslaug Kristín Guðnadóttir
Gunnar Þór Gunnarsson Eva Lind Matthíasdóttir
og langafabörn.
Ástkær fósturbróðir minn og frændi okkar,
Hjálmar Rögnvaldur
Bárðarson
skipaverkfræðingur,
fyrrverandi siglingamálastjóri,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðju-
daginn 7. apríl. Útförin fer fram frá Garðakirkju á
Álftanesi miðvikudaginn 22. apríl kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Bárðardóttir
Guðrún Kristjana Hafsteinsdóttir
Bárður Hafsteinsson
Okkar ástkæra eiginkona og móðir,
Alda Berglind
Þorvarðardóttir
verður jarðsungin frá Hafnarkirkju föstudaginn
24. apríl kl. 14.00 og jarðsett í Bjarnaneskirkjugarði.
Lárus Óskarsson
Dagbjört Rós Lárusdóttir
Guðmunda Ingibjörg Lárusdóttir
Berglind Sara Lárusdóttir
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Úlfar Stígur Hreiðarsson
Grísará 2, Eyjafjarðarsveit,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
17. apríl.
Hildur Gísladóttir
Ragnheiður María Pétursdóttir
Katrín Úlfarsdóttir Jóhann Ólafur Halldórsson
Hjördís Úlfarsdóttir Fjóla Björk Jónsdóttir
Gísli Brjánn Úlfarsson Þorgerður Hauksdóttir
Úlfhildur Úlfarsdóttir Baldvin Ingi Símonarson
afa- og langafabörn.
Elskulegi eiginmaður, faðir, sonur, bróðir,
tengdasonur og mágur,
Gísli Þór Reynisson
Haukanesi 14,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju, miðviku-
daginn 22. apríl kl. 15.00.
Anna Margrét Kristinsdóttir
Gabríel Þór Gíslason
Anna Fríða Gísladóttir
Benjamín Ágúst Gíslason
Katrín Rósa Gísladóttir
Reynir Þorgrímsson
Rósa Guðbjörg Gísladóttir
Einar Örn Reynisson
Ingibjörg Reynisdóttir
Ólafur Tryggvason
Ragnar Már Reynisson
Elín Oddsdóttir
Margrét Helgadóttir
frá Fellsenda í Þingvallasveit,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 14. apríl, verður jarðsungin frá
Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu föstudaginn 24. apríl
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir,
en þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir að láta
Samhjálp njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnar M. Þórisson
MOSAIK
Eiginkonan mín, móðir, stjúpmóðir og
dóttir,
Björg Ólöf Bjarnadóttir
Hafnargötu 28, Vogum, Vatnsleysuströnd
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn
22. apríl kl. 15.00.
Ragnar Óskarsson
Bjarni Birgir Fáfnisson
Þormar Elí Ragnarsson
Hafsteinn Veigar Ragnarsson
Ragna Sól Ragnarsdóttir
Halldór Leví Ragnarsson
Ester Hurle